Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Fracture kl. 8 - 10.10 B.i. 14 ára
Spider Man 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
Pirates of the Carribean 3 kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11 B.i. 10 ára
Pirates of the Carribean 3 LÚXUS kl. 5 - 9
Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára * Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Unknown kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Painted Veil kl. 5.30 - 8 - 10.30
It’s a Boy Girl Thing kl. 5.50 - 8 - 10.10
Spider Man 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
FALIN ÁSÝND
eee
„Falin ásýnd er
vönduð kvikmynd...“
H.J., MBL
It’s a Boy Girl Thing kl. 3.45 - 5.50
Spider Man 3 kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 10 ára
Mesta ævintýri
fyrr og síðar...
...byrjar við hjara veraldar
„Besta Pirates myndin í röðinni!
Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira
tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“
tv - kvikmyndir.is
30.000 MANNS
Á AÐEINS 18 DÖGUM!
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
Ef þú rýnir nógu djúpt sérðu að allir hafa veikan blett
Hann reynir
að komast úr
nærbuxunum
hennar...
ekki í þær!
ÞEIR ERU LOKAÐIR INN OG MUNA EKKI HVAÐ GERÐIST.
ÞEIR TREYSTA ENGUM OG ÓTTAST ALLA.
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ FLOTTUM LEIKURUM.
Kvikmyndin Death Proof varfrumsýnd hér í Cannes ígær en hún er önnur
tveggja í svokölluðu Grindhouse-
verkefni Quentins Tarantino og
Roberts Rodrigues. Death Proof er
ein þeirra mynda sem eru „í keppn-
inni“, en það þýðir að hún eigi
möguleika á að hreppa Gull-
pálmann næstkomandi sunnudag.
Tarantino á þegar einn Gullpálma
á arinhillunni sinni en hann fékk
hann fyrir Pulp Fiction.
Death Proof segir frá tveimur
hópum firnasterkra kvenhetja og
samskiptum þeirra við hinn rúnum
rista Stuntman Mike, sem leikinn
er af Kurt Russel. Meðal
kvennanna er Zoe Bell sem kemur
fram undir eigin nafni. Sú er
áhættuleikari og lék öll áhættu-
atriði Umu Thurman í Kill Bill-
myndunum. Senuþjófurinn er þó án
efa Russel, sem er stórkostlegur í
myndinni, sérstaklega í síðari hlut-
anum.
Blaðamannafundur var svo hald-
inn að Cannes-sið með leikstjóra og
leikurum. Tarantino sagðist alltaf
byrja handritsgerð á því að búa til
persónur. Það gerði hann sjaldnast
með ákveðna leikara í huga. Und-
antekningarnar væru hinsvegar
hlutverk Zoe í Death Proof og
Umu í Kill Bill. „Þær voru bara
þær sjálfar í myndunum,“ sagði
Tarantino.
Fyrrihluta gærdagsins var svoeytt á hinu goðsagnarkennda
Hotel Du Cap. Það er í um hálftíma
akstursfjarlægð frá strandlengj-
unni og skilst mér að allar skær-
ustu stjörnurnar gisti þar ár hvert.
Allavega er öryggisgæslan mikil.
Tilgangur ferðalagsins var þó ekki
að lepja kokteila við sundlaug-
arbakkann með fræga fólkinu held-
ur að taka viðtöl við leikstjóra og
leikara A Mighty Heart, sem frum-
sýnd var hér í gær. Það var trúlega
engu logið um tigna gesti hótelsins
því þarna sáust á sveimi hjóna-
kornin Brad og Angelina ásamt öll-
um leikurum úr Ocean’s 13, sem
fumsýnd verður hér næstkomandi
fimmtudag. Clooney var reyndar
hvergi sjáanlegur í þetta skiptið.
Króatískur blaðamaður ætlaði svo
aldeilis að slá um sig með upplýs-
ingum: „Ég sá Maddox og Zahara
vera að leika sér við sundlaugina.“
Fyrir þá sem ekki vita eru það
helmingur barna Jolie og Pitt.
Aumingja fólkið, þau hljóta að vera
það fólk sem fylgst er best með í
heiminum!
Annars er auðvelt að geta sér tilum hver er frægur hér og
hver ekki. Þeir allra frægustu eru
undantekningarlaust með í eft-
irdragi um 250 kílóa mannveru
sem færi létt með að taka Gunnar á
Hlíðarenda og Gretti Ásmundarson
í bakaríið … báða í einu. Það legg-
ur því trúlega enginn í að kasta sér
á kvikmyndastjörnurnar, nema
reyndar ein stúlkukind sem fleygði
sér á Brad Pitt eftir blaðamanna-
fund A Mighty Heart og æpti:
„Brad, ég elska þig!“ Kraftajötn-
arnir voru fljótir að fjarlægja
hana. Aðdáendur frægra ein-
staklinga gætu hæglega haldið
árshátíð sína hér í borg á þessum
tíma árs. Jafnvel getur verið að
slíkur gleðskapur fari fram þessa
dagana því daglega hanga hundruð
manns fyrir framan stærstu hótelin
hér við strandgötuna og vonast til
að sjá glitta í eitthvert uppáhaldið.
Blaðamennirnir hér eru líka
skemmtilegur þjóðflokkur. Aug-
ljóst er að margir eru eldri en tvæ-
vetur í starfinu og í sumum við-
tölum og á blaðamannafundum
hefjast spurningarnar á: „Síðast
þegar við hittumst, Brad Pitt, þá
sagðirðu að “. Einnig varð ég vitni
að afar fagmannlegum vinnu-
brögðum hjá breskum og ástr-
ölskum kollegum mínum um dag-
inn. Yfirvofandi var viðtal við
leikarann Josh Brolin og á meðan
beðið var hreyttu blaðamennirnir
tveir svoleiðis fúkyrðum hvor í
annan að ég signdi mig í huganum.
Um leið og sást glitta í verðandi
viðtalsefni hurfu blótsyrðin sam-
stundis og þeir voru hinir alúðleg-
ustu hvor við annan meðan á við-
talinu stóð og afsökuðu sig
prúðmannlega ef annar greip
frammí fyrir hinum.
Ég elska þig, Brad!
» Það var trúlega engulogið um tigna gesti
hótelsins því þarna
sáust á sveimi hjóna-
kornin Brad og Angel-
ina ásamt öllum leik-
urum úr Ocean’s 13.
Reuters
Kátt á hjalla Quentin Tarantino og Robert Rodriques með leikurunum.
birta@mbl.is
FRÁ CANNES
Birta Björnsdóttir