Morgunblaðið - 23.05.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 23.05.2007, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Kauptu bíómiðann á netinu Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Fracture kl. 8 - 10.10 B.i. 14 ára Spider Man 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára Pirates of the Carribean 3 kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11 B.i. 10 ára Pirates of the Carribean 3 LÚXUS kl. 5 - 9 Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Unknown kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára Painted Veil kl. 5.30 - 8 - 10.30 It’s a Boy Girl Thing kl. 5.50 - 8 - 10.10 Spider Man 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára FALIN ÁSÝND eee „Falin ásýnd er vönduð kvikmynd...“  H.J., MBL It’s a Boy Girl Thing kl. 3.45 - 5.50 Spider Man 3 kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 10 ára Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni! Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“ tv - kvikmyndir.is 30.000 MANNS Á AÐEINS 18 DÖGUM! eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is Ef þú rýnir nógu djúpt sérðu að allir hafa veikan blett Hann reynir að komast úr nærbuxunum hennar... ekki í þær! ÞEIR ERU LOKAÐIR INN OG MUNA EKKI HVAÐ GERÐIST. ÞEIR TREYSTA ENGUM OG ÓTTAST ALLA. FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ FLOTTUM LEIKURUM. Kvikmyndin Death Proof varfrumsýnd hér í Cannes ígær en hún er önnur tveggja í svokölluðu Grindhouse- verkefni Quentins Tarantino og Roberts Rodrigues. Death Proof er ein þeirra mynda sem eru „í keppn- inni“, en það þýðir að hún eigi möguleika á að hreppa Gull- pálmann næstkomandi sunnudag. Tarantino á þegar einn Gullpálma á arinhillunni sinni en hann fékk hann fyrir Pulp Fiction. Death Proof segir frá tveimur hópum firnasterkra kvenhetja og samskiptum þeirra við hinn rúnum rista Stuntman Mike, sem leikinn er af Kurt Russel. Meðal kvennanna er Zoe Bell sem kemur fram undir eigin nafni. Sú er áhættuleikari og lék öll áhættu- atriði Umu Thurman í Kill Bill- myndunum. Senuþjófurinn er þó án efa Russel, sem er stórkostlegur í myndinni, sérstaklega í síðari hlut- anum. Blaðamannafundur var svo hald- inn að Cannes-sið með leikstjóra og leikurum. Tarantino sagðist alltaf byrja handritsgerð á því að búa til persónur. Það gerði hann sjaldnast með ákveðna leikara í huga. Und- antekningarnar væru hinsvegar hlutverk Zoe í Death Proof og Umu í Kill Bill. „Þær voru bara þær sjálfar í myndunum,“ sagði Tarantino.    Fyrrihluta gærdagsins var svoeytt á hinu goðsagnarkennda Hotel Du Cap. Það er í um hálftíma akstursfjarlægð frá strandlengj- unni og skilst mér að allar skær- ustu stjörnurnar gisti þar ár hvert. Allavega er öryggisgæslan mikil. Tilgangur ferðalagsins var þó ekki að lepja kokteila við sundlaug- arbakkann með fræga fólkinu held- ur að taka viðtöl við leikstjóra og leikara A Mighty Heart, sem frum- sýnd var hér í gær. Það var trúlega engu logið um tigna gesti hótelsins því þarna sáust á sveimi hjóna- kornin Brad og Angelina ásamt öll- um leikurum úr Ocean’s 13, sem fumsýnd verður hér næstkomandi fimmtudag. Clooney var reyndar hvergi sjáanlegur í þetta skiptið. Króatískur blaðamaður ætlaði svo aldeilis að slá um sig með upplýs- ingum: „Ég sá Maddox og Zahara vera að leika sér við sundlaugina.“ Fyrir þá sem ekki vita eru það helmingur barna Jolie og Pitt. Aumingja fólkið, þau hljóta að vera það fólk sem fylgst er best með í heiminum!    Annars er auðvelt að geta sér tilum hver er frægur hér og hver ekki. Þeir allra frægustu eru undantekningarlaust með í eft- irdragi um 250 kílóa mannveru sem færi létt með að taka Gunnar á Hlíðarenda og Gretti Ásmundarson í bakaríið … báða í einu. Það legg- ur því trúlega enginn í að kasta sér á kvikmyndastjörnurnar, nema reyndar ein stúlkukind sem fleygði sér á Brad Pitt eftir blaðamanna- fund A Mighty Heart og æpti: „Brad, ég elska þig!“ Kraftajötn- arnir voru fljótir að fjarlægja hana. Aðdáendur frægra ein- staklinga gætu hæglega haldið árshátíð sína hér í borg á þessum tíma árs. Jafnvel getur verið að slíkur gleðskapur fari fram þessa dagana því daglega hanga hundruð manns fyrir framan stærstu hótelin hér við strandgötuna og vonast til að sjá glitta í eitthvert uppáhaldið. Blaðamennirnir hér eru líka skemmtilegur þjóðflokkur. Aug- ljóst er að margir eru eldri en tvæ- vetur í starfinu og í sumum við- tölum og á blaðamannafundum hefjast spurningarnar á: „Síðast þegar við hittumst, Brad Pitt, þá sagðirðu að “. Einnig varð ég vitni að afar fagmannlegum vinnu- brögðum hjá breskum og ástr- ölskum kollegum mínum um dag- inn. Yfirvofandi var viðtal við leikarann Josh Brolin og á meðan beðið var hreyttu blaðamennirnir tveir svoleiðis fúkyrðum hvor í annan að ég signdi mig í huganum. Um leið og sást glitta í verðandi viðtalsefni hurfu blótsyrðin sam- stundis og þeir voru hinir alúðleg- ustu hvor við annan meðan á við- talinu stóð og afsökuðu sig prúðmannlega ef annar greip frammí fyrir hinum. Ég elska þig, Brad! » Það var trúlega engulogið um tigna gesti hótelsins því þarna sáust á sveimi hjóna- kornin Brad og Angel- ina ásamt öllum leik- urum úr Ocean’s 13. Reuters Kátt á hjalla Quentin Tarantino og Robert Rodriques með leikurunum. birta@mbl.is FRÁ CANNES Birta Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.