Morgunblaðið - 23.05.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 39
Sýnd kl. 4, 7 og 10 B.i. 10 ára
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
kl. 4 og 6 Ísl. tal - 450 kr.
ÞAÐ ER NIÐURSKURÐUR Á SKRIFSTOFUNNI!
Sýnd kl. 8 B.i. 16 ára
ÓHUGNALEGA FYNDIN GRÍNHROLLVEKJA Í ANDA SHAUN OF THE DEAD
www.laugarasbio.is
eeee
SV, MBL
eee
LIB Topp5.is
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
www.haskolabio.is Sími - 530 1919
Unknown kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Fracture kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
Condemned kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára
Lives of Others kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
Spider-Man 3 kl. 5.20 B.i. 10 ára
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
SVAKALEG HASAR-
MYND MEÐ TÖFFAR-
ANUM VINNIE JONES.
450 k
r.
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 3:15, 6:30 og 10-POWER
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
DAS LEBEN DER ANDERN / LÍF ANNARRA
eeee
K. H. H., FBL
eeee
KVIKMYNDIR.COM
eeeee
S.V., MBL
10
Mesta ævintýri
fyrr og síðar...
...byrjar við
hjara veraldar
„Besta Pirates myndin í röðinni!
Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira
tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“
tv - kvikmyndir.is
Ef þú rýnir nógu djúpt sérðu að allir hafa veikan blett
MAGNAÐUR SÁLFRÆÐITRYLLIR
ÞEIR ERU LOKAÐIR INN OG MUNA EKKI HVAÐ GERÐIST.
ÞEIR TREYSTA ENGUM OG ÓTTAST ALLA.
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ FLOTTUM LEIKURUM
HINN 18. maí voru veitt verðlaun í fyrstu ljóða- og
smásagnasamkeppni Iðnskólans í Hafnarfirði og
hlutu þau þrjár stúlkur. Elísa Gyrðisdóttir fékk
fyrstu verðlaun fyrir smásögu, Ballerínuna, og Dagný
Björk Guðmundsdóttir önnur verðlaun fyrir smásög-
una Skýjaborg. Fyrstu verðlaun fyrir ljóð hlaut
Tanja Bjarnadóttir fyrir ljóðið Eden og önnur verð-
laun Jenný Magnúsdóttir fyrir ljóðið Leitin að sjálfri
mér.
Elísa er 22 ára og dóttir Gyrðis Elíassonar ljóð-
skálds. Hún á því ekki langt að sækja hæfileikana.
Elísa er á fyrsta ári í hönnun og stefnir á frekara
hönnunar- eða listnám að loknu iðnskólanámi.
„Þetta er nú ekkert sérstaklega djúp saga, ég
skrifaði hana meira mér til skemmtunar. Hún fjallar
um siðblinda ballerínu og það sem hún gerir til þess
að komast á toppinn,“ segir Elísa. Hún er ekki ball-
erína sjálf en hefur þó prófað ballett.
„Þetta er saga sem ég byrjaði að skrifa þegar ég
var sautján ára, bjó úti og átti að skrifa ritgerð,“ seg-
ir Elísa, en hugmyndin að sögunni hafi ekki kviknað
út frá neinu sérstöku.
Elísa segir föður sinn Gyrði ekki skipta sér af
hennar ritstörfum. Hún hafi sýnt honum söguna þeg-
ar hún var tilbúin. „Við erum með svo ólíkan stíl,“
segir Elísa. Hún lesi ljóð föður síns og hafi gaman af.
Elísa segir ekki ómögulegt að hún leggi ritstörf
fyrir sig í framtíðinni.
Elísu er fleira til lista lagt en hönnun og ritstörf,
því hún tók þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna í
apríl síðastliðnum, fyrir hönd Iðnskólans í Hafn-
arfirði. Þar söng hún lagið „Þetta er búið“, sem heitir
á frummálinu Call me when you’re sober.
Saga af
siðblindri
ballerínu
Morgunblaðið/Eyþór
Rithöfundur Elísa Gyrðisdóttir segir föður sinn ekki
skipta sér af hennar ritstörfum.
Inn í herbergið gekk Sylvía,
lágvaxin grindhoruð stelpa
með svart hár í háu tagli og
einbeitt brún augu. Hún heils-
aði engum heldur stillti sér
upp við spegilinn og byrjaði
samstundis að gera æfingar.
Allir störðu á hana í smá
stund, allt pískur hljóðnaði eitt
augnablik, en svo var eins og
þær áttuðu sig og pískrið hélt
áfram af meiri krafti en
nokkru sinni fyrr.
– Ágætt að þær pískri um
hana en ekki mig, hugsaði hún
á meðan hún virti keppinautinn
fyrir sér. Svart hárið á Sylvíu
minnti hana á suður-ameríska
kennarann sem kenndi henni
stærðfræði í fjögur ár í grunn-
skóla. Einhverra hluta vegna
höfðu persónutöfrar hennar
sem venjulega heltóku alla
kennara engin áhrif á hann.
Hún hafði minna en engan
áhuga á stærðfræði og gat
ekki fyrir sitt litla líf hugsað
sér að læra heima, svo hún
reyndi allt sem hún mögulega
gat til að heilla kennarann.
Hún greiddi sér og klæddi á
hátt sem lét hana líta út fyrir
að vera næstum suður-amerísk,
með stóru brúnu augun og
rennislétta síða hárið, en hann
leit ekki á hana. Hún reyndi að
baka smákökur handa honum
en hann borðaði ekki hveiti.
Hún reyndi að rekast á hann
eins og fyrir tilviljun þar sem
hann var að kaupa kók, ávexti
og klósettpappír í litlu búðinni
á horninu, bauðst brosandi til
að hjálpa honum að bera pok-
ann en hann svaraði þurrlega
neitandi.
Hún gat ekki skilið af hverju
hann var ekki veikur fyrir
henni eins og allir fullorðnir
voru. Hún var óvenjulega sæt,
það vissi hún vel, og fólk talaði
um að hún væri sérstaklega
kurteis, ljúf og vel upp alin.
Það að fá herra Cortéz til að
líka við sig varð einskonar ár-
átta hjá henni; skemmtileg
áskorun sem leyfði henni að
þjálfa samskiptahæfnina enn
betur. Þetta hætti að vera
skemmtilegt daginn sem hann
felldi hana á lokaprófi níunda
bekkjar.
Bútur úr smásög-
unni Ballerínan