Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 40

Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ eee V.J.V. TOPP5.IS WWW.SAMBIO.IS PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6:15 - 8 - 10 - 11:10 - 11:30 B.i. 10 ára DIGITAL GOAL 2 kl. 5:50 B.i. 7 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 3:50 LEYFÐ ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4:30 - 6 - 8 - 10 - 11:30-POWER B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4:45 - 8 -11:10 ZODIAC kl. 8 - 9 - 11:30 B.i.16.ára THE REAPING kl. 5:50 - 10:10 B.i.16.ára SPIDER MAN 3 kl. 6 B.i.10.ára BLADES OF GLORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni! Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“ tv - kvikmyndir.is BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The 6th Target – James Patter- son og Maxine Paetro 2. Simple Genius – David Baldacci 3. The Yiddish Policemen’s Union – Michael Chabon 4. The Children of Húrin – J.R.R. Tolkien 5. I Heard That Song Before – Mary Higgins Clark 6. The Woods – Harlan Coben 7. Rant – Chuck Palahniuk 8. Nineteen Minutes – Jodi Picoult 9.The Good Husband of Zebra drive – Alexander McCall Smith 10. Back on Blossom Street – Deb- bie Macomber New York Times 1. On Chesil Beach – Ian McEwan 2. Digging to America – Anne Tyler 3. Suite Francaise – Irene Nem- irovsky, et al. 4. A Short History of Tractors in Ukrainia – Marina Lewycka 5. Wicked! – Jilly Cooper 6. Restless – William Boyd 7. Half of a Yellow Sun – Chimam- anda Ngozi Adichie 8. The Quest – Wilbur Smith 9. Love Over Scotland – Alexander McCall Smith 10. The Boleyn Inheritance – Phil- ippa Gregory Waterstone’s 1. 5’th Horseman - James Patterson 2. The Naming of the Dead - Ian Rankin 3. The Secret - Rhonda Byrne 4. The Thirteenth Tale - Diane Set- terfield 5. The Human Body - Steve Parker 6. Fragile Things - Neil Gaiman 7. Angels Fall - Nora Roberts 8. Reader’s Digest World Atlas - Reader’s Digest 9. The Children of Húrin - J.R.R. Tolkien 10. Born in Death - J.D. Robb Eymundsson EDUARDO Mendoza er einn helsti rithöfundur Katalóna, býr og starfar í Barcelona og er þekkt- ur hér á landi fyrir Undraborgina. Sú bók sem hér er tekin til kosta, No Word from Gurb, birtist sem framhalds- saga í spænska dagblaðinu El País 1990, en kemur nú út í fyrsta sin á ensku. Gurb er geim- vera sem komin er til jarðarinnar að rannsaka mannfólkið með félaga sínum og undirmanni. Þeir lenda skipi sínu í útjaðri Barcelona og úr verður að undirmaðurinn, Gurb, fer af stað til að komast í tæri við mannfólk og til þess að vekja sem minnsta athygli líkamnast hann sem Ma- donna. Allt gengur að óskum, Gurb fær strax far hjá manni sem á leið framhjá en síðan spyrst ekki meira af honum (henni) og áður en langt um líður fer yfirmaðurinn að óttast um hann og fer á endanum að leita að honum. Þessi saga Mendoza er farsa- kennd í meira lagi og yfirmað- urinn, geimskipstjórnin, lendir í ótal ævintýrum í Barcelona, dettur í það hvað eftir annað, reynir að verða ástfanginn, vinnur sér inn milljónir, leysir af á bar, drekkur sig útúrfullan aftur og aftur og aftur og étur churros í kílóavís. Þeir sem þekkja Barcelona skemmta sér konunglega við lest- urinn, en bókin er eiginlega fyrir alla því allir eru breyskir, geim- verur líka. Breyskar geimverur No Word from Gurb eftir Eduardo Men- doza. Telegram gefur út 2007. Árni Matthíasson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SAGNFRÆÐINGAR sem fjallað hafa um þriðja ríkið þýska og heimsstyrjöldina síðari hafa gjarnan beint sjónum að arkitektum þeirra hörmunga, aðallega Hitler og meðreiðarsveinum hans, og eins er miklu púðri eytt í hernaðinn sjálfan. Nýleg bók sagn- fræðingsins Adams Toozes sýnir aðra hlið á Þýskalandi undir stjórn nasista, því The Wages of Destruction: The Making and Breaking of the Nazi Economy er hagfræðisaga þriðja rík- isins. Vanþróað ríki í stríðshugleiðingum Eins og Tooze rekur söguna, og rökstyður býsna vel, var ógerningur fyrir Þjóðverja að sigra í þeim hildarleik sem þeir hrundu af stað, til þess höfðu þeir ekki efnahagslega getu eða leiðtoga, þá skorti hráefni, verksmiðjur og mannskap. Við það bættist að ekki var bara að þýsk iðnaðarframleiðsla væri ekki nógu mikil heldur var mikið af þeim hergögnum sem framleitt voru mun lakara að gæðum en það sem andstæðingurinn bjó yfir; til að mynda stóðu þýskir skriðdrekar sovéskum drekum langt að baki og herflugvélar Þjóðverja voru úr- eltar og gamaldags áður en yfir lauk. Hann sýnir líka fram á hvernig nasistar fengu þýska iðnjöfra í lið með sér – fyrst var þeirra freistað með gríð- arlegum stríðsgróða og síðan þegar allt var á leið til and- skotans var það óttinn við Stalín sem hélt þeim við efnið. Vendipunktur í desember 1941 Að mati Toozes var vendipunktur seinni heimsstyrj- aldarinnar í desember 1941 þegar ljóst var að þýski her- inn myndi ekki ná að brjóta þann sovéska á bak aftur það ár og ekki líkur á því að það myndi takast nokkurn tím- ann. Þá byrjuðu æðstu menn í þýsku herstjórninni að þrýsta á um friðarsamninga við Sovétmenn – nokkuð sem geðsjúklingurinn við stjórnvölinn tók ekki í mál. Það segir sitt um stílfimi Toozes að bókin verður aldr- ei leiðinleg eða staglkennd þótt í henni sé gríðarmikið af hagtölum og hún ríflega 800 síður að lengd. Honum tekst að setja verkið svo fram að á stundum er eins og maður sé að lesa spennandi reyfara. Ýmislegt verður og ljóst við lesturinn sem ekki var skýrt fyrir, í mínum huga í það minnsta, eins og sú sérkennilega staðreynd að á meðan vinnuafl skorti í Þýskalandi voru gyðingar myrtir í tug- þúsundavís. Á endanum náðu þó stríðsrekendur og SS- sveitirnar saman – fljótlegasta leiðin til að auka mat- arbirgðir Autur-Evrópu var að drepa alla gyðinga. Sú nauðhyggja var í takt við annað – til að rýma fyrir þýsk- um landnemum á hernámssvæðum í Austur-Evrópu ákvað Hitler og hans hyski að svelta til bana alla þá sem þar væru fyrir – þrjátíu milljónir manna, og enginn hreyfði mótmælum. Stríðsglæpamaðurinn Albert Speer Albert Speer fær sérstakar trakteringar í bókinni og Tooze sýnir fram á að hann átti skilið að fara í gálgann ekki síður en margir aðrir af stríðsglæpahyskinu þýska og jafnvel enn frekar, því Speer var nánast alráður í þýsku efnahagslífi undir það síðasta og beitti öllum með- ölum til að halda manndrápsvélinni gangandi, skeytti ekkert um líf og limi þeirra sem fórna þurfti, aðallega stríðsfanga sem þrælað var til bana í þúsundavís. Tooze flettir einnig ofan af goðsögninni um kraftaverk Speers í hergagnaframleiðslu og sýnir fram á hvernig hann beitti blekkingum til að telja fólki trú um að afköst hefðu stóraukist, blekkingum sem dugðu líka vel til að heilla þá sem handtóku hann að lokum. Forvitnilegar bækur: Þjóðverjar töpuðu stríðinu áður en það hófst Dvergur á brauðfótum Associated Press Hyski Albert Speer (t.v.) ásamt Adolf Hitler árið 1943. Speer fær sérstakar trakteríngar í bókinni og Tooze sýnir fram á að hann átti skilið að fara í gálgann ekki síður en margir aðrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.