Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 19

Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 19
|þriðjudagur|5. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf Strætisvagnaferðir skapa nýja möguleika fyrir íslenskar ferða- skrifstofur að koma ferða- mönnum upp á Akranes. »21 bæjarlífið Félagarnir Arnór Már Arn- órsson og Þorsteinn Baldvin Jónsson ætla í Háskóla unga fólksins þriðja árið í röð. »20 menntun Þegar kemur að kjólavali í brúð- artískunni kennir ýmissa grasa en hvíti liturinn verður þó yf- irleitt fyrir valinu. »21 tíska Við höfum ekki séð marga ásvona hjólum hér í borg,enda erum við ekkert mik-ið fyrir að apa eftir öðrum, við erum meira fyrir að búa sjálfir til tísku. Kannski verður komið svona einhjólaæði í lok sumars, hver veit. En þetta var algjör tilviljun hjá okk- ur, gerðist bara allt í einu og af því bara. Við sáum þessi einhjól í glugg- anum í GÁP-búðinni í Skeifunni og ákváðum að kaupa okkur hvor sitt hjólið og veðja um hvor væri orðinn betri á því eftir einn mánuð,“ segja þeir félagar Jóakim Meyvant og Daníel Bjarni sem fengu þessa hug- dettu síðastliðinn föstudag, keyptu hjólin og hafa verið að æfa sig stíft síðan og segja fjandanum erfiðara að ná tökum á því að hjóla á svona fyr- irbæri. „Reyndar sagði sá sem seldi okk- ur hjólin að það tæki ekki nema sjö klukkutíma að ná tökum á þessu. En það er ekki alveg rétt, alla vega ekki í okkar tilfelli,“ segja vinirnir sem þurfa að leggja sig heldur betur fram ef verðlaunin eiga að vera í höfn eftir mánuð. Sá sem vinnur veð- málið fær hvorki meira né minna en bananaís með lúxusdýfu og snik- kerskurli. „Biggi vinur okkar hefur verið titlaður þjálfari okkar en hann kann reyndar ekkert sjálfur á svona hjól. Það er alveg ljóst að hann verður dómarinn þegar kemur að því að skera úr um hvor verði orðinn betri. Þetta verður bara gaman.“ Æfa sig á kvöldin og um helgar Jóakim er nemandi í Borgar- holtsskóla en Daníel í Iðnskólanum og þeir eru báðir komnir með sum- arvinnu svo það gefst ekki annar tími til að æfa færnina á hjólunum en á kvöldin og um helgar. „Það er erfitt að halda jafnvægi á þessu og við erum enn að reyna að finna út hvaða tækni er best að nota til að sitja hjólið. Okkur hefur reynst vel að byrja á því að hjóla meðfram vegg og styðja okkur við hann á meðan við erum að fá tilfinningu fyr- ir þessu. Maður verður vissulega að láta sig hafa það að detta mjög oft þegar veggnum sleppir, en það er allt í lagi, við erum nokkuð vanir að detta frá því við vorum á línu- skautum. Reyndar þarf að passa að detta frekar fram fyrir sig en aftur fyrir sig á svona einhjóli, það er mun betra. Við erum þokkalega marðir á sköflungunum, af því annar petalinn rekst yfirleitt í löppina þegar maður stígur á hjólið.“ Einhjól kostar um tíu þúsund krónur en vinirnir sjá ekki eftir þeim peningum. „Við höfðum ekkert betra við peningana að gera,“ segja strák- arnir og þó hjólin hafi aðeins verið í þrjá daga í eigu þeirra þá hefur Daníel strax sett mark sitt á gripinn, hann hefur hannað útlitið á sínu ein- hjóli upp á nýtt og er búinn að vefja það með límbandi í öllum regnbog- ans litum. „Þetta er nú bara gert til að fá athygli,“ segir hann fullur hóg- værðar. Þeir eru ekki frá því að ein- hvers staðar sé hægt að keppa á þessum hjólum og ef ekki, þá ætla þeir sjálfir að koma slíkri keppni á laggirnar. „Við höldum bara okkar eigin keppni og rústum henni, það er ekki spurning.“ Þeim Jóakim og Daníel finnst gaman að prófa eitthvað nýtt þegar kemur að tómstundum. Í fyrra og hittifyrra voru þeir á fullu á línu- skautum, núna er það einhjólið og sjálfsagt eitthvað allt annað næsta sumar. Allt hið besta mál enda bráð- holl áhugamál sem krefjast mikillar hreyfingar og útvistar. Morgunblaðið/Eyþór Jafnvægislist Daníel og Jóakim eru óþreytandi að æfa sig á einhjólunum góðu. Veðmál um færni á einhjóli Það er svolítið einkennilegt að sjá fólk á einhjóli á göt- um úti því flestir eiga því að venjast að slíkar kúnstir tilheyri sirkus. Kristín Heiða Kristinsdóttir rakst á tvo unga menn sem einhjóla fyrir ánægjuna eina. khk@mbl.is GAMLIR kjólar og annar notaður fatnaður kann að vinna vel með fatatískunni um þessar mundir, en gamlar snyrtivörur eru ekki alveg jafn sniðugar. „Það er viss kaldhæðni í því að konur skuli eyða jafn miklum tíma og fjármunum í að gera sig fallegar, en svo nota þær samt gamlar snyrtivörur sem fela í sér hættu á ýmiskonar sýkingu,“ hefur breska dagblaðið Guardian eftir dr. Susan Blakeny augnsérfræðingi við College of Optometrists. „Öll matvæli hafa á sér síðasta söludag og fólk hugsar sig ekki tvisvar um að henda mjólkinni þegar sá dagur kemur,“ segir Blake- ney. „Snyrtivörurnar sem maður notar ættu að vera jafn ferskar og maturinn sem maður borðar. Samt geyma konur snyrtivörur árum saman,“ bætti Blakeney við og sagði þann sið að deila snyrtivörum með öðrum ekki vera síð- ur hættulega smitleið. Þegar búið er að opna snyrtivöruumbúð- irnar ætti að nota þær innan:  3-6 mánaða maskari,  6-8 mánaða farði, hyljari, hreinsikrem, rakakrem,  1 árs púður, glitpúður, augnskuggar, varagloss, varasalvi, hreinsivatn,  18 mánaða augn- og varablýantar. Sýkingarhætta af gömlum snyrtivörum Morgunblaðið/Eggert Snyrtivörur Það ætti ekki að geyma snyrtivörur of lengi eftir að umbúðir hafa verið opnaðar. HANN virðist óneitanlega geta sómt sér vel á Ascot- veðreiðunum í Bretlandi þessi líflegi hattur. Fuglarnir sem þarna sitja eru hins vegar lifandi og hafa einfaldlega tyllt sér á hatt þessarar brosandi konu, sem stödd var í Kachoen fugla- og blómagarðinum í Kakegawa í Japan, til að öðlast betri að- gang að fæðu. Fínn fyrir Ascot Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.