Morgunblaðið - 05.06.2007, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
HERMANN
GLEÐILEG
JÓL
KÖTTUR
ER ALLT
Í LAGI?
MÁGUR
MINN ER BÚINN
AÐ VERA Í
HEIMSÓKN HJÁ
OKKUR ALLAN
MÁNUÐINN...
HVAÐ VILT
ÞÚ FÁ Í
JÓLAGJÖF?
AÐ ÞÚ
ÉTIR
HANN
HÉRNA
SNOOPY! ÉG
ÆTLA AÐ
KASTA
BOLTANUM
OG ÞÚ ELTIR
HANN!
Æ, NEI!
ÉG NENNI
EKKI AÐ
ELTAST VIÐ
BOLTA
EINS OG
KJÁNI!
ÞAÐ ER ERFITT AÐ
FELA SIG FYRIR AFTAN
FÓLK SEM GENGUR
UPPRÉTT
ÉG MÁ EKKI FARA ÚT
FYRR EN ÉG KLÁRA HEIMA-
VINNUNA MÍNA. EF ÞÚ
HJÁLPAR MÉR ÞÁ VERÐ ÉG
BÚINN FYRR. HVAÐ
ER SJÖ PLÚS FIMM?
VEIT
ÞAÐ EKKI EKKIÉG
HELDUR
ÞÁ ER
SVARIÐ,
„ÉG VEIT
ÞAÐ EKKI“
JÁ,
AUÐVITAÐ!
ÞAÐ ER RÉTT
SVAR! ÉG GET
SKRIFAÐ ÞAÐ
VIÐ ALLAR
SPURNING-
ARNAR
VIÐ ÆTTUM AÐ KÍKJA Á
HEIMAVINNUNA HJÁ LITLA
UNDRABARNINU OKKAR
NÁÐIR ÞÚ Í ELDIVIÐ FYRIR
ARININN Í GÆR?
JÁ!
HVERT SETTIR
ÞÚ STAFLANN? VIÐ
ÚTIDYRA-
HURÐINA
GRÍMUR,
ÞÚ ERT JAFN
ANDFÚLL OG
HUNDUR!
OG ÞAÐ ER
SKRÍTIÐ VEGNA
ÞESS AÐ...
KIDDA NÆR ALDREI
AÐ KLÁRA ALLA
HEIMAVINNUNA SEM
ÞÚ SETTIR FYRIR
MÉR ER SAMA
ÞÓ AÐ FORELDRAR
HJÁLPI BÖRNUNUM
SÍNUM
EN FORELDRAR ERU UPPTEKNIR!
GERIR ÞÚ RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ VIÐ
FORELDRAR EYÐUM NOKKRUM
KLUKKUTÍMUM Á DAG Í AÐ HJÁLPA
BÖRNUNUM OKKAR MEÐ
HEIMANÁMIÐ?
GÓÐIR FORELDRAR
ÆTTU AÐ GERA ÞAÐ
ÉG ER VÍST
GÓÐ MÓÐIR!
ÉG ER EKKI HINN
RAUNVERULEGI...
KÓNGULÓARMAÐUR-
INN ER MAGNAÐASTA
HETJA SEM UPPI
HEFUR VERIÐ!
AF HVERJU EKKI AÐ
TAKA ÞÁTT Í LEIKNUM?
Á MEÐAN...
ÉG GET EKKI
SITIÐ HÉRNA
LENGUR...
ÉG VERÐ
AÐ FINNA
BÚNINGINN
MINN
dagbók|velvakandi
Íslenskukunnátta
blaðamanna
ÞEGAR ég les Morgunblaðið verður
mér oft hugsað til þess þegar ung
frænka mín fékk vinnu sem blaða-
maður þar fyrir nokkrum árum.
Mamma þessarar frænku minnar
sagði mér stolt frá því að dóttirin
hefði staðist þær ströngu kröfur
sem blaðið gerði til sinna blaða-
manna.
Með það í huga er oft skrítið að
lesa blaðið. Til dæmis er stór-
furðulegt að rekast á setningu eins
og „undanfarið hef ég teymt barna-
barn undir honum (hestinum)“ þeg-
ar væntanlega er átt við að hest-
urinn hafi verið teymdur undir
barnabarninu. (Mbl. 2. júní, bls. 29.)
Á sömu síðu skrifar Víkverji „tíma-
bært að hlú betur að“. Veit Víkverji
ekki að það heitir að hlúa að ein-
hverju? Ég hef að vísu orðið vör við
þessa villu að undanförnu og erfitt
er að sjá hvað veldur. Fyrir stuttu
rakst ég líka á að blaðamaður sagði
„aðra hvora“ helgi þegar hann átti
við aðra hverja helgi. Þetta er líka
allt of algeng villa en ætti ekki að
sjást í Morgunblaðinu. Svona mætti
lengi telja.
Ósjálfrátt geri ég meiri kröfur til
Morgunblaðsins varðandi málfar en
annarra blaða. Að sama skapi geri
ég líka meiri kröfur til Ríkisútvarps-
ins heldur en annarra stöðva og ég
held að þannig sé því farið með
marga aðra. Hefur Morgunblaðið
slakað á kröfunum ?
Þóra Guðmundsdóttir.
Gleraugu töpuðust
GLERAUGU töpuðust þann 2. maí
sl. á leiðinni frá Akranesi til Reykja-
víkur. Um er að ræða dökkfjólublá
gleraugu af gerðinni Bulgari í svörtu
gleraugnahulstri, svolítið beygluðu.
Gleraugnanna er sárt saknað. Þeir
sem kunna að hafa fundið gleraugun
vinsamlega hafi samband við Ragn-
heiði í síma 660 5222.
Lúlli er týndur
KÖTTURINN
Lúlli hvarf frá
Ásgarði í Kefla-
vík fyrir nokkr-
um dögum. Lúlli
er grábröndóttur
fress, frekar lítill
miðað við fullvax-
inn kött og mjög
gæfur. Hann er
örmerktur og
með bláa ól um hálsinn. Á ólina er
fest bjalla og járnhólkur sem skrúfa
má í sundur, en inni í hólknum er
miði með upplýsingum um heimili og
símanúmer. Lúlli var í pössun hjá
„afa og ömmu“, en hans rétta heimili
er í Garðabæ. Hann er því alls
ókunnur umhverfinu, þar sem hann
var í pössun. Þeir sem kunna að vita
hvar köttinn er að finna eða hafa
jafnvel skotið yfir hann skjólshúsi
eru vinsamlegast beðnir að hringja í
síma 421 4441 eða 898 2252. Góðum
fundarlaunum er heitið.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FUGLINN heilsaði upp á menn sem voru að „splæsa“ saman krana í
Borgartúni. Búast má við að borgarmynd Reykjavíkur breytist nokkuð á
næstu mánuðum vegna byggingar fjölmargra háhýsa.
Morgunblaðið/Ásdís
Unnið þar sem fuglinn flýgur
FRÉTTIR
ROSY Weiss, forseti alþjóðlegu
kvenréttindasamtakanna Int-
ernational Alliance of Women
(IAW), gistir Ísland á komandi dög-
um í boði Kvenréttindafélags Ís-
lands (KRFÍ). Weiss, sem hefur
starfað lengi innan samtakanna og
verið forseti þeirra frá 2004, mun
taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem
KRFÍ stendur fyrir á Grand Hóteli í
Reykjavík, föstudaginn 8. júní kl. 13-
16. Ráðstefnan, sem haldin verður á
ensku, ber yfirskriftina: A Place for
Prostitution? Gender Equality and
Respect in Modern Societies eða
Fara vændi og virðing saman í jafn-
réttisþjóðfélagi? Aðrir þátttakendur
í pallborðsumræðum ráðstefnunnar
eru Janice Raymond, fram-
kvæmdastjóri Coalition Against
Trafficking in Women (CATW),
Ágúst Ólafur Ágústsson, alþing-
ismaður og varaformaður Samfylk-
ingar og Rachael Lorna Johnstone,
lektor við félagsvísinda- og laga-
deild Háskólans á Akureyri. Fund-
arstjóri verður Guðrún Jónsdóttir,
talskona Stígamóta. Ráðstefnan er
öllum opin og er ókeypis.
Weiss mun einnig taka þátt í mál-
þingi á Akureyri um alþjóðlega
kvenréttindabaráttu og stöðu jafn-
réttismála, fimmtudaginn 7. júní kl.
12. Sá fundur verður haldinn í hús-
næði Jafnréttisstofu á Borgum við
Norðurslóð en Jafnréttisstofa, Ak-
ureyrarbær og Háskólinn á Ak-
ureyri hafa einnig komið að und-
irbúningi fundarins.
Aðrir framsögumenn verða Þor-
björg Inga Jónsdóttir, formaður
KRFÍ og Margrét María Sigurð-
ardóttir, framkvæmdastjóri Jafn-
réttisstofu. Fundarstjóri verður
Katrín Björg Ríkarðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri samfélags- og mann-
réttindadeildar Akureyrarbæjar.
Fundurinn er öllum opinn og boðið
verður upp á léttan hádegisverð.
Ráðstefna
um vændi og
virðingu
Afmælisþakkir
Innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu mér vináttu með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á áttræðisafmæli mínu 2. júní sl.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnar Ólafsson,
Barmahlíð 6,
Reykjavík.