Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 40

Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6:15 - 7:20 - 8:15 - 10:15 - 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 6 - 10 ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára THE REAPING kl. 8:10 - 10:10 B.i.16.ára BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ GOAL 2 kl. 3:50 - 6 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni! Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“ tv - kvikmyndir.is „SANNUR SUMAR- SMELLUR... FINASTA AFÞREYINGARMYND“ Trausti S. - BLAÐIÐ 30.000 manns á 7 dögum Stærsta 5 daga sumar opnun allra tíma á íslandi MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI eee LIB, Topp5.is Eftir Ómar Örn Hauksson mori@itn.is ÞAÐ eru góðir hlutir í vændum fyrir PSP-eigendur og aðdáendur God of War-seríunnar. Hinn ofurpirraði stríðsguð Kratos lætur reiði sína bitna á óvinum sínum og öðrum vættum í PSP-formi á næstunni því að nýr leikur í seríunni er í vinnslu og kemur sennilega á markað síðar á þessu ári. Sagan í leiknum gerist á und- an sögunni í fyrsta leiknum og það ætti ekki að draga úr ofbeldinu frá Kratos á neinn hátt þrátt fyrir að hann sé enn mannlegur þegar hér er komið sögu. Það sem hefur einkennt God of War-leikina eru gíf- urlega stór og mikil borð með miklum smáatriðum og það verður forvitnilegt að sjá hvernig framleiðand- anum Ready at Dawn tekst að færa það yfir í þessa litlu en kraftmiklu leikjatölvu. Af myndunum af dæma sýn- ist manni þeim hafa tekist vel upp. Það er langt síðan leikur byggður á kvikmyndinni Aliens var gerður síðast sem verður að teljast skrýtið þar sem myndin er nánast eins og tölvuleikur. En biðin er brátt á enda – þ.e.a.s. ef þú nennir að bíða í eitt og hálft ár því nýir Aliens-leikir eru væntanlegir í búðir 2009 og byggja þeir á mynd James Cameron frá árinu 1986. Einn leikurinn verður fyrstu persónu skotleikur og þá spilar maður sem nýlenduhermaður á móti þess- um skrímslum sem hafa hrellt kvikmyndaaðdáendur um áraskeið. Það eina sem er vitað um seinni leikinn er að hann verður RPG, hlutverkaleikur. Þá er einnig í vinnslu leikur byggður á kvikmyndinni Heat, sem skartaði Robert De Niro og Al Pacino í aðal- hlutverki. Mann grunar að leikurinn verði svipaður í formi og Grand Theft Auto en aðrir leikir byggðir á glæpamyndum, líkt of Godfather og Scarface, hafa not- að það form. Enn er litlar upplýsingar að fá um leikinn og ekki er vitað hvenær hann kemur út eða hvort mað- ur geti spilað sem De Niro eða Pacino. Þó er vitað að leikstjóri Heat, Michael Mann, kemur að vinnslu leiks- ins að einhverju leyti. Guð, geimverur og Robert De Niro? Stríðsguðinn Kratos er án efa ein stórkostlegasta tölvuleikjahetja samtímans. FRÁ upphafi rappsins vestur í Bandaríkjunum hefur ofbeldi verið órjúfanlegur fylgifiskur listforms- ins, hver svo sem ástæðan er, og því er ekki skrýtið að foreldrar hafi haft áhyggjur af því að rapptónlist hefði slæm áhrif á börn þeirra. Def Jam: Icon á ekki eftir að róa þessa sömu foreldra því leikurinn gengur í stuttu máli út á að berja alla þá sem reyna að koma í veg fyrir að þú rísir til hæstu metorða sem um- boðsmaður rappstjarna. Def Jam: Icon er nánast endurgerð á leikn- um Def Jam: Fight for NY sem kom út fyrir þremur árum en þar var maður í hlutverki skærustu rappstjarna Def Jam-plötufyr- irtækisins. Leikurinn er skemmtilegur og sérstaklega fyndinn ekki síst vegna þess að hann tekur sig alvarlega og söguþráðurinn er eins og klipptur út úr hallærislegri spennumynd. Eins og í Fight for NY verður maður að græða peninga á þeim stjörnum sem maður er með um- boð fyrir og verða sér svo úti um glæsileg föt, skartgripi og húðflúr og breyta hárgreiðslunni reglulega til þess að hækka í virðingarstig- anum. En maður verður líka að passa upp á það að stjörnurnar séu ánægðar með mann sem umboðs- mann og það felur meðal annars í sér að leysa þær út úr fangelsi, borga fyrir bílana sem þær keyra og senda þær í tónleikaferðalag. Í grunninn er þetta samt einfaldur slagsmálaleikur, þar sem þú leysir öll þín vandamál með hnefanum. Spilunin getur reynst flókin í byrjun en áður en maður veit af er maður byrjaður að lumbra á Red- man, Big Boi, The Game og Sean Paul eins og enginn væri morg- undagurinn. Tónlist skiptir líka miklu máli í leiknum og er notuð á skemmtilegan hátt til þess að auka möguleika manns á að sigrast á andstæðingi sínum. Grafíkin er mjög góð, litrík og falleg og rapp- stjörnurnar líkar fyrirmyndunum. Nú vantar okkur bara svipaðan leik um fyrirtæki Einars Bárðar þar sem við getum barist sem Garðar Cortes á móti Nylon eða Jógvan. Það væri frábært. Rapparar fljúgast á TÖLVULEIKIR Playstation 3 EA Games Def Jam: Icon  Ómar Örn Hauksson Á toppnum Umboðsmenn og rapparar berja hverjir á öðrum eins og eng- inn væri morgundagurinn. ÉG hef persónulega aldrei skilið af hverju Metal Gear Solid-serían er svona vinsæl og mikilsvirt í leikjabransanum. Þegar ég spilaði fyrsta leikinn var ég orðinn svo reiður þegar honum lauk að ég sór þess eið að spila hann aldrei aftur eða annan Metal Gear-leik … sem ég stóð svo ekki við. Leik- urinn var einstaklega illa hannaður en hann sner- ist um að læðast framhjá óvininum um leið og maður sá aðeins þrjá metra fram fyrir sig frá þriðju persónu sjónarhorninu en gat svo ekki hreyft sig í fyrstu persónu sjónarhorninu. Svo til að bæta gráu ofan á svart var söguþráðurinn svo ótrúlega illa skrifaður og langur að maður öskraði nánast um leið og einhver í leiknum opn- aði munninn. Portable Ops er mun skárri en þeir Metal Ge- ar-leikir sem ég hef spilað. Núna getur maður stjórnað myndavélinni, sem er „fítus“ sem var bara nýlega settur í endurútgáfu af Metal Gear Solid 3 eftir miklar kvartanir spilara. Portable Ops gengur út á að Snake, sem er að- alhetjan, er fangaður í Suður-Ameríku en losnar úr prísundinni með hjálp annars hermanns. Þeir taka svo höndum saman og safna í her til þess að yfirbuga óvininn sem ætlar að stofna til styrj- aldar á milli Bandaríkjanna og Rússlands. Þitt verkefni er svo að fanga meðlimi óvinahersins og fá þá til að berjast fyrir þig, senda njósnara inn á svæði til þess að afla upplýsinga og koma þér upp liði sjúkraliða og tæknifólks til þess að búa til lyf og vopn. Maður getur sem sagt spilað sem aðrar persón- ur, sem eiga auðvelt með að leynast á meðal óvin- arins, og náð takmarkinu í hverju verkefni á mun auðveldari hátt en ef maður spilar sem Snake. Það getur tekið nokkuð langan tíma að spila leikinn í gegn og hefur maður því smá tíma til að læra á stjórnunina sem getur verið flókin fyrir óvana. Grafíkin er mjög góð og framleiðendur ná að troða miklum smáatriðum í umhverfi og per- sónur án þess að það hefti spilun. Hljóðmynd er einnig til fyrirmyndar. Á hinn bóginn fara per- sónur í sögunni yfir um í ofleik, en þannig hefur það svo sem alltaf verið í þessum leikjum. Sér- staklega er pirrandi röddin í sjálfum Snake sem reynir eins og hann getur að hljóma töff. Þetta er fínn leikur til þess að taka með sér í frí, eins og ég gerði, því hann endist lengi og hægt er að slökkva á tölvunni á hvaða tíma sem er án þess að vista og halda beint áfram þegar maður kveikir á henni næst. Aðdáendur Metal Gear-bálksins ættu að verða ánægðir með þessa viðbót. Kalda stríðinu afstýrt Metal Gear Söguhetjan Snake er hörð í horn að taka. TÖLVULEIKUR PlayStation Portable (PSP) Konami Metal Gear Solid: Portable Ops  Ómar Örn Hauksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.