Morgunblaðið - 18.07.2007, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þyrlan TF-Sif hefur á 22 ára ferli
komið að björgun tuga ef ekki
hundraða mannslífa. Hún var fljót
að sanna gildi sitt sem alhliða
björgunartæki, eins og sést á þessu
yfirliti yfir björgunaraðgerðir
þyrlunnar á aðeins fimm ára tíma-
bili.
14. mars 1987
Níu skipverjum af Barðanum GK
bjargað um borð í TF-Sif, eftir að
skipið hafði strandað í Dritvík á
Snæfellsnesi. Allir skipverjar voru
heilir á húfi, en skipstjórinn var
fluttur til Reykjavíkur þar sem
hann var orðinn mjög þrekaður.
12. febrúar 1988
Ellefu mönnum bjargað frá borði
Hrafns Sveinbjarnarsonar III GK
með aðstoð TF-Sifjar, eftir að bát-
urinn strandaði í Hópsnesi austan
við innsiglinguna til Grindavíkur.
Þyrlan fór fjórar ferðir; fjórir skip-
verjar voru fluttir í fyrstu ferðinni,
þrír í annarri og síðan tveir og tveir.
14. júní 1990
Áhöfn TF-Sifjar bjargar tveimur
mönnum sem nauðlentu tveggja
hreyfla flugvél í sjó, 29 kílómetrum
vestur af Reykjanesi. Mennirnir
voru illa klæddir, í stuttermabolum
og berfættir, og aðeins annar þeirra
var í björgunarvesti. Hinn hékk í
loftneti flutvélarinnar sem var að
hverfa í hafið. Að sögn björg-
unarmanna mátti engu muna.
6. ágúst 1991
Þýskum námsmanni, sem hafði
fallið um 20 metra í fjallgöngu á
Öræfajökli, var bjargað við erfiðar
aðstæður.
Ekki var hægt að hífa Þjóðverj-
ann beint upp í þyrluna af slysstað
vegna sviptivinda og niðurstreymis,
en hann var fluttur með TF-Sif und-
ir læknishendur.
Traust TF-Sif í sínu fyrsta sjúkraflugi, um miðbik níunda áratugarins. Frá
fyrsta degi hefur hún verið burðarásinn í björgun fjölda mannslífa.
Þyrlan TF-SIF, sem nú er milli
heims og helju, ef svo má að orði
komast, hefur eflaust meira til-
finningagildi fyrir Benóný Ás-
grímsson, þyrluflugstjóra hjá
Landhelgisgæslunni, en flesta
aðra Íslendinga. Benóný var með í
för þegar þyrlan var sótt í verk-
smiðju Aérospatiale í Frakklandi
árið 1985. Hann hefur flogið henni
óslitið frá þeim tíma og tók síðast
vakt á henni fyrir rúmri viku.
„Þegar þyrlan kom til landsins
var hún talin í hópi fullkomnustu
björgunarvéla í sambærilegum
stærðarflokki, sérstaklega með til-
liti til útbúnaðarins,“ segir Ben-
óný. Skömmu eftir að þyrlan kom
til landsins var 24 klukkustunda
varðstaða sett á vélina og í kjöl-
farið buðust fimm ungir læknar til
þess að taka vaktir á þyrlunni í
sjálfboðavinnu. Læknarnir starfa
enn með þyrlusveit Landhelg-
isgæslunnar, þótt ekki sé lengur
um sjálfboðavinnu að ræða.
„Þyrlan reyndist afskaplega vel
strax í upphafi. Gæslan hafði verið
með annars konar þyrlur og við
tókum strax eftir því hversu við-
halds- og bilanalítil hún var í sam-
anburði við þær. Þetta var gott
eintak sem í gegnum árin hefur
tekið þátt í mörgum erfiðum
björgunum og sjúkraflugi. Hún
sannaði gildi sitt fljótlega eftir að
hún kom heim, en mikið reyndi á
hana við björgun níu manna
áhafnar Barðans, sem strandaði í
Dritvík árið 1987,“ segir Benóný.
En skyldi flugmaðurinn, sem
eytt hefur drjúgum hluta ævi sinn-
ar um borð í TF-Sif, ekki sjá mikið
eftir henni. „Jú, vissulega geri ég
það. Það sem hins vegar skiptir
höfuðmáli er það að hún hefur
ávallt skilað áhöfn sinni og þeim
sem hafa reitt sig á hana heilum
heim,“ segir Benóný. Hann segir
óhætt að fullyrða það að TF-Sif sé
besta þyrla sem hann hefur flogið.
„Þetta er auðvitað persónubundið
smekksatriði eins og hvað annað.
Ég hef alltaf sagt að þyrlur af
Dauphin-gerð [líkt og TF-Sif] séu
eins og litlir sportbílar, bornar
saman við Super Puma-þyrlurnar
[líkt og TF-Líf] sem eru líkari
fjórhjóladrifnum trukkum. Fólki
þykir oft skemmtilegra að vera á
sportbílnum, en trukkurinn fer
kannski yfir meira,“ segir Benóný.
Að sögn Halldórs B. Nellet,
framkvæmdastjóra aðgerðasviðs
Landhelgisgæslunnar, hefur TF-
Sif verið afskaplega vel við haldið
í gegnum tíðina og í raun ekki
hægt að tala um að vélin sé frá
1985, þar sem svo oft hafi verið
skipt um varahluti í henni.
Líklega sé skrokkurinn eini
hluti hennar sem sé yfir 20 ára
gamall. Þyrlan sé því ekki komin
til ára sinna, þótt hönnunin sé í
sjálfu sér gömul og nýjar sam-
bærilegar vélar búnar stærri mót-
orum og nýrri tækni.
„Þyrlan reyndist afskaplega vel“
Reynslubolti Benóný Ásgrímsson, þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni
þekkir TF-Sif betur en flestir. Hann segist mikið sjá eftir þyrlunni.
Ljósmynd/ Jim Smart
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
TILDRÖG þyrluóhappsins í Straumsvík eru
enn á reiki, en Landhelgisgæslan hefur lagt
það fyrir áhöfn TF-Sifjar og þá sem vitni urðu
að óhappinu að tjá sig ekki um atvikið í tvo sól-
arhringa vegna rannsóknarhagsmuna. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins var þyrlan að und-
irbúa hífingu þegar hún missti skyndilega afl.
Neyðarflotum hafi verið skotið út og þyrlunni
mjúklega lent á sjónum. Áhöfnin kom sér sjálf
frá borði og um borð í björgunarbátinn Einar
Sigurjónsson, sem var þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar til halds og trausts við æfingarnar í
gær. Eftir að þyrlan hafði verið yfirgefin flaut
hún í um hálfa klukkustund, en þá hafi loft tek-
ið að leka úr neyðarflotum með þeim afleið-
ingum að þyrlan fór á hvolf.
Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri Rann-
sóknarnefndar flugslysa, staðfestir að það sé til
skoðunar af hverju loft hafi ekki verið í öllum
neyðarflotum þyrlunnar. Hann segir að rann-
sókn óhappsins megi skipta í tvennt. Annars
vegar sé verið að athuga af hverju vélin hafi
fallið og hins vegar af hverju hún hafi farið á
hvolf. Þorkell segir að undir vélinni séu fjögur
neyðarflot. Tvö kúlulaga flot séu að aftan og
tveir sívalingar að framan. Að sögn Þorkels eru
flotin að framan hólfuð í þrennt og útlit er fyrir
að eitt hólfið hafi brostið og loft tæmst úr því.
Björgunaraðgerðir heppnuðust vel
TF-Sif var dregin til Hafnarfjarðar og tekin
á land þar í gærmorgun. Lyftibelgir voru settir
á vélina til að tryggja að hún flyti og að því
loknu var hljóðritinn tekinn úr vélinni og flakið
myndað að beiðni rannsóknarnefndar flug-
slysa. Kafarar fóru niður undir vélina og fjar-
lægðu þyrluspaðana af henni og komu böndum
undir ásinn sem heldur spöðunum til að rétta
vélina af. Prammi með krana var notaður til
þess að hífa hana upp og tókst sú aðgerð með
ágætum. Vélin var dregin upp að bryggju í
Hafnarfirði þar sem hún var hífð upp á bíl og
flutt í húsnæði á vegum Rannsóknarnefndar
flugslysa á Reykjavíkurflugvelli þar sem hún
mun sæta frekari rannsókn. Um 30 manns tóku
þátt í björgunaraðgerðum. Auk starfsmanna
Gæslunnar höfðu hönd í bagga kafarar
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, björgunar-
sveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Lands-
björg, lögreglan og Köfunarþjónusta Árna
Kópssonar.
Gæti tekið marga mánuði
Vettvangsrannsókn er nú á lokastigi að sögn
Þorkels Ágústssonar. Starfsmenn nefndarinn-
ar hafa verið á vettvangi síðan óhappið bar að
höndum og safnað hverfulum sönnunargögn-
um og myndað vettvanginn. Þorkell segir að sú
staðreynd að slysið hafi átt sér stað á sjó úti
geri það að verkum að vettvangsrannsókn taki
lengri tíma en ella.
Að vettvangsrannsókn lokinni hefst frum-
rannsókn þar sem frekari gagna verður aflað.
Viðtöl verða tekin við vitni, upplýsinga aflað úr
flugritum og GPS-tækjum í því skyni að varpa
ljósi á hvort slysið sé að rekja til veðurfars,
stjórntækja, hreyfils, mannlegra mistaka og
þar fram eftir götum. Þorkell segir að frum-
rannsókn geti tekið eina til tvær vikur, en að
henni lokinni fari myndin vonandi að skýrast
og rannsóknin að beinast í ákveðna átt. Hin
eiginlega rannsókn tekur við í kjölfarið, en hún
er býsna umfangsmikil og margir mánuðir
geta liðið þar til niðurstöðurnar liggja fyrir.
„Þetta er ekki eins og að kaupa bíl,“ segir
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunn-
ar, spurður um hvernig leit að nýrri þyrlu til
bráðabirgða miði. Hann segir að björgunar-
þyrlur séu af skornum skammti og til að mynda
séu Norðmenn að huga að þyrlum sem eigi að
vera tilbúnar árið 2020. Hann segir að ef TF-
Sif reynist ónýt hafi Gæslan ekki annarra kosta
völ en að falast eftir vél frá framleiðandanum
Eurocopter þar sem menntun og færni starfs-
manna, bæði hvað varðar viðhald og flugfærni,
miðist við þyrlur frá framleiðandanum.
Eftir óhappið í Straumsvík samanstendur
þyrlufloti Gæslunnar af þremur vélum, tveim-
ur stærri Super-Puma-þyrlum og einni minni
Dauphin-þyrlu, en TF-Sif er af gerðinni Daup-
hin.
Vélin aðeins tryggð fyrir 78 m.kr.
Georg segir ekkert neyðarástand ríkja í
björgunarmálum í kjölfar óhappsins í fyrra-
dag, en það sé þó mjög bagalegt og kostnaðar-
samt að reka aðeins þrjár þyrlur og því brýnt
að ný vél verði tekin í gagnið sem fyrst.
„Við teljum að öryggi sé nokkuð tryggt, þar
sem við höfum breytt notkun og viðhaldi á vél-
unum. En það kostar aukin fjárútlát þar sem
meiri vinna fer í viðhaldsmál og skipulagningu
vakta.“
Dagmar Sigurðardóttir, lögfræðingur Land-
helgisgæslunnar, segir að TF-Sif sé tryggð
fyrir 1,3 milljónir Bandaríkjadollara eða tæpar
78 milljónir króna miðað við gengi í gær. Þar af
eru 20% eigin áhætta, eða um 16 milljónir
króna.
Hún segir að þegar tryggingafjárhæð hafi
verið ákveðin hafi verið litið til búnaðar sam-
bærilegra þyrlna erlendis miðað við búnað, ald-
ur og fleira. Ekki sé langt síðan fjárhæðin hafi
verið metin í samráði við dómsmálaráðuneytið.
Georg Lárusson segir að ný vél af sömu tegund
og TF-Sif, útbúin til leitar og björgunar, kosti
um einn milljarð króna. Himinn og haf er því á
milli kostnaðar við kaup á nýrri þyrlu og þeirra
bóta sem fást úr tryggingu ef TF-Sif reynist
ónýt.
Ljósmynd/Sigurður Ásgrímsson
Í Straumsvík Björgunaraðgerðir í gærmorgun heppnuðust mjög vel. Prammi með krana var notaður til þess að hífa vélina upp og draga í land.
Loft var ekki í öllum neyðarflotum
Frumrannsókn á tildrögum þyrluslyssins í Straumsvík er í þann mund að hefjast Rannsóknar-
stjóri RNF staðfestir að til skoðunar sé af hverju loft hafi ekki verið í öllum neyðarflotum þyrlunnar