Morgunblaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 25
Í LEIÐARA Morgunblaðsins 18.
júní var vitnað í nýútkomna skýrslu
bandaríska utanríkisráðuneytisins
um mansal. Í frétta-
skýringu blaðsins
tveimur dögum áður
segir að skýrslan sé
„… úttekt banda-
rískra yfirvalda á að-
gerðum fjölda landa
til þess að hamla því
að fólk sé þar selt í
þrældóm, vændi,
hernað eða aðra nauð-
ungarvinnu.“ Á sex-
tán landa svörtum
lista voru nákvæm-
lega tvö lönd frá Am-
eríku, Kúba og Vene-
súela. Þetta eru ríki sem
ráðastéttinni í Bandaríkjunum
hugnast hvað minnst og hefur hún
beitt öllum tiltækum ráðum til þess
að koma ríkisstjórnum þar frá völd-
um.
Bandarísk stjórnvöld hafa framið
umfangsmikla stríðglæpi, meðal
annars tekið fólk höndum í fjar-
lægum heimsálfum, flutt það og
haldið því föngnu í ein fimm ár án
dóms og laga í ræningjaherstöðinni
á Guantanamo, og fært það síðar til
annarra landa í því skyni að pynta
það frekar. Hér kveða þau upp úr
um mannréttindi annarra þjóða. Þau
hafa orðið uppvís að því að ljúga til
um atburði. Þau hafa fyrirskipað
leyniþjónustunni að taka háttsetta
stjórnmálamenn af lífi, notað til þess
mafíuna í eigin landi. Þeim er alveg
sama um mannréttindi og alveg
sama um mansal.
Þegar til valda koma stjórnir sem
beygja sig ekki undir hagsmuni ráð-
astéttanna í heiminum er gripið til
furðufrétta og uppspuna, oftast um
mannréttindabrot viðkomandi
landa, vegna þess að önnur tæki eru
ekki tiltæk. Allt hefur verið reynt og
linnulaus óhróður og
lygar er það eina sem
eftir er. Þannig er það
með fyrrgreinda skýrslu
og margur bítur á agnið.
Í leiðaranum, þar sem
Kúba er nefnd sér-
staklega ásamt sex öðr-
um ríkjum í sextán
landa hópnum á
„svarta“ listanum, segir
m.a: „Þrælasala er hins
vegar það alvarlegt mál
að aðgerða er þörf og
skýrslan er nauðsynlegt
innlegg. Augljóst er að
Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, leggur
metnað í að taka á þessu máli.“
Hvernig getur skýrslan verið „nauð-
synlegt innlegg“? Hvað ætlar
bandaríski utanríkisráðherrann að
gera? Undirbúa innrás? Hvaða
metnað kann ráðherrann að hafa í
mannréttindamálum?
Þá var fyrir skömmu í Morg-
unblaðinu frétt um andlát Vilmu
Espín, sem var titluð „eiginkona
starfandi Kúbuforseta“ – en hún er
nú ekki síður þekkt fyrir að hafa ver-
ið stofnandi og fyrsti forseti Sam-
taka kúbanskra kvenna, sem hafa
lagt höfuðáherslu á menntun kvenna
og þátttöku í samfélaginu. Í grein-
inni er komið að einni furðufréttinni
sem er ætlað að afskræma fjarlægar
þjóðir með því að gera þær furðu-
legar í huga lesandans. Þar er sagt
að fyrir byltingu hafi Espín
„… hafst við í hellum Sierra Ma-
estra-fjallanna“. Vestast á Kúbu eru
hellar sem íslenskir túristar koma
stundum í. Sierra Maestra-fjöll eru
austast í landinu. Ekki veit ég til
þess að þar séu hellar og enn síður
að byltingarmenn hafi dvalið í slík-
um vistarverum og hef ég þó séð
þær með eigin augum. Síðar í grein-
inni segir: „… henni er eignaður
heiðurinn af því að árið 1979 hætti
samkynhneigð að vera ólögleg á
Kúbu.“ Veit ég ekki til þess að sam-
kynhneigð hafi nokkru sinni verið
ólögleg á Kúbu þótt fordómar hafi
ríkt. Það gera þeir víða. Morg-
unblaðið reri bersýnilega á þau mið
með leiðara sínum 18. júní sl.
Morgunblaðið og mansal
Gylfi Páll Hersir skrifar
um mannréttindi » Þegar til valdakoma stjórnir sem
beygja sig ekki undir
hagsmuni ráðastétt-
anna er gripið til
furðufrétta og upp-
spuna, oftast um
mannréttindabrot
Gylfi Páll Hersir
Höfundur er í Vináttufélagi Íslands
og Kúbu.
Rækjuverksmiðja til sölu
Til sölu er eign þrotabús Miðfells
hf., Ísafirði, fasteignin Sindragata 1,
Ísafirði, ásamt öllum vélum og tækj-
um til rækjuvinnslu. Um er að ræða
eina fullkomnustu rækjuverksmiðju
landsins með 5 pillunarvélum og 3
laservélum, svo og fullkominni
pökkunarstöð. Æskilegt er að kaup-
tilboð nái til allra lausamuna í hús-
inu sem tilheyra rækjuvinnslu.
Nánari upplýsingar eru gefnar á Fasteignasölu Vestfjarða
að Hafnarstræti 19, Ísafirði, sími: 456 3244. fax: 456 4547
netfang: eignir@fsv.is
Tæknilegar upplýsingar um verksmiðjuna gefur Albert Haraldsson,
s: 899 1195
Óskað er eftir tilboðum í ofangreindar eignir eigi síðar en
föstudaginn 10. ágúst 2007, kl. 16,00.
Á þessum eftirsótta stað
vorum við að fá einstak-
lega sjarmerandi 4ra her-
bergja 88 fm íbúð á 2.
hæð. Íbúðin skiptist m.a. í
2 samliggjandi stofur og 2
svefnherb. Suður svalir,
útsýni. V. 24,9 millj.
(3942)
Svavar og Ágústa
taka á móti gestum
milli kl. 19 og 20
í dag miðvikudag.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR 15 - 101 RVK
Opið hús í dag miðvikudag 18. júlí milli 19-20
www.101.is • 101@101.is
Laugavegur 66 • 101 Reykjavík • s. 511 3101 • f. 511 3909
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag þetta glæsilega einbýlishús sem er alls 304 fm þ.a. með ný-
legum 57 fm bílskúr. Húsið hefur allt verið endurnýjað undanfarin ár frá
grunni að utan sem innan á mjög smekklegan og vandaðan hátt. Nýleg
steinskífa á þaki. Allar lagnir, gluggar, gler, þak útveggir, allar innréttingar,
gólfefni, tæki og fl. er nýlegt. Þrennar svalir, stórar stofur, stórt og glæsi-
legt eldhús. Kjallarinn er mjög skemmtilega innréttaður og er með sérinn-
gangi.
EINSTÖK EIGN. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
TILBOÐ ÓSKAST Í HÚSIÐ.
Ólafur B Blöndal, löggiltur fasteignasali sýnir húsið í dag kl. 17-18.
HREFNUGATA 9, RVK.
OPIÐ HÚS Í DAG
EF marka má umfjöllun fjölmiðla
undanfarna daga þá virðist svo vera.
Hver fjölmiðlungurinn á fætur öðr-
um hefur hafið fréttir
eða spjallþætti á af-
brigði af þessari gríp-
andi setningu, sem er
raunar farin að jaðra
við staðhæfingu í
munni þeirra margra.
Undirritaður telur að
flestir, ef ekki allir,
geri fjölmiðlamenn-
irnir þetta með bók
Andra Snæs Magna-
sonar, Draumalandið, í
huga en þar kallar
Andri Snær Rio Tinto
„versta fyrirtæki í
heimi“.
Nefndur Andri
Snær var í viðtali í Ís-
landi í dag á Stöð 2 síð-
astliðinn föstudag og
hélt raunar sömu sjón-
armiðum fram í frétt-
um RÚV þann sama
dag. Á Stöð 2 sagði
hann blákalt: „Rio
Tinto hefur af verkalýðsfélögum,
náttúruverndarsamtökum og rík-
isstjórnum víða um heim verið kallað
versta fyrirtæki í heimi.“ Stór orð,
mjög stór orð, en þarna er Andri ekki
að gera annað en að endursegja það
sem hann heldur fram í bók sinni
Draumalandinu. Fréttamaðurinn
virðist trúa þessari staðhæfingu eins
og nýju neti.
Ef notast er við sömu rannsókn-
araðferðir og Andri beitir að hluta í
heimildaöflun sinni fyrir Drauma-
landið, en það er upplýsingaleit með
leitarvélum á netinu, þá kemur
áhugaverð staðreynd í ljós.
Öll þessi verkalýðsfélög, nátt-
úruverndarsamtök og ríkisstjórnir
sem Andri Snær segir vera þeirrar
skoðunar að Rio Tinto sé versta fyr-
irtæki í heimi heita James Vassilo-
poulos, en sá er sósíalisti frá Can-
berra í Ástralíu sem árið 1997
skrifaði grein í rit róttækra vinstri-
manna í Ástalíu sem heitir Green
Left Weekly og yfirskrift grein-
arinnar var „Rio Tinto, the worst
company in the world?“ Þetta er eini
staðurinn á öllum veraldarvefnum
þar sem Rio Tinto er kallað versta
fyrirtæki í heimi. Ástralskur öfga-
maður! Svo lepja íslenskir fjölmiðlar
þetta upp eins og ekkert sé sjálfsagð-
ara. Afsakið orðbragðið.
Markmið mitt er ekki að verja Rio
Tinto, enda þekki ég ekki mikið til
fyrirtækisins, en það sem undirrit-
aður hefur lesið um fyrirtækið und-
anfarna daga er ekki í neinu sam-
ræmi við fréttaflutning af því hér á
landi. Raunin virðist vera sú að flest
fyrirtæki í námu- og jarðefnavinnslu
lenda á einhverjum tímapunkti í úti-
stöðum við skipulagða hópa. Ég ætla
ekki að verja hvernig
slík fyrirtæki höguðu
starfsemi sinni áður fyrr
en margt hefur breyst í
heiminum á und-
anförnum árum og ára-
tugum varðandi hvað
telst eðlilegt þegar um-
gengni um náttúruna er
annars vegar.
Ábyrgð fjölmiðla
Markmið þessara
skrifa er að vekja athygli
á ábyrgð fjölmiðla. Nú
hefur glumið í fjöl-
miðlum að nýr
eigandi álversins í
Straumsvík (gangi
kaupin eftir) sé
,,versta fyrirtæki í
heimi“. Svo virðist
sem ekki nokkur
fjölmiðlamaður
hafi tekið sér and-
artak til að vinna
lítils háttar rannsóknarvinnu og „Go-
ogla“ viðeigandi efni. Það er sama
hvaða leitarvél er notuð á netinu, að-
eins er einn maður á öllum gervöllum
veraldarvefnum sem hefur haldið því
fram að Rio Tinto sé versta fyrirtæki í
heimi, svo tekur Andri Snær Magna-
son rithöfundur þetta upp eftir honum
og síðan íslenskir fjölmiðlar upp eftir
Andra Snæ sem viðtekna skoðun úti í
heimi. Hvers eiga áhorfendur frétta
að gjalda ef rannsóknarvinnan er ekki
burðugri en þetta? Þurfa þeir sem
hlusta á fréttir að hafa efasemdir um
allt sem þar kemur fram? Þurfa
fréttaþyrstir Íslendingar að leggja í
sjálfstæða rannsóknarvinnu vegna
hverrar einustu fréttar? Eru fleiri
staðhæfingar Andra Snæs í Drauma-
landinu, sem hefur verið látið svo mik-
ið með, byggðar á jafnveikum grunni?
Það er eðlileg krafa þeirra er horfa
og hlusta á fréttir að fréttastofur
rannsaki að einhverju marki þau mál
sem fjallað er um. Ef slíkt hefði verið
gert í þessu tilfelli, þá væri ekki hver
fréttastofan af annarri búin að gera
orð ástralska öfgamannsins James
Vassilopoulos að sínum. Jafnframt
væri áhugavert ef einhver fréttastof-
an tæki sig til og spyrði Andra Snæ
hvaða ríkisstjórnir hefðu kallað Rio
Tinto versta fyrirtæki í heimi, eins og
hann hélt fram í viðtalinu í Íslandi í
dag.
Er Rio Tinto versta
fyrirtæki í heimi?
Bergþór Ólason skrifar um
ábyrgð fjölmiðla
Bergþór Ólason
» Þurfa frétta-þyrstir Íslend-
ingar að leggja í
sjálfstæða rann-
sóknarvinnu vegna
hverrar einustu
fréttar?
Höfundur er áhugamaður um vand-
aðan fréttaflutning.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali