Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 13

Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 13 Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf H rafnkell Eiríksson, sér- fræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun, segir að humarveiðin hafi gengið vel í sum- ar. Oft hafi hún byrjað af miklum krafti og nánast undantekningar- laust dottið niður en nú hafi hún nán- ast haldist alla vertíðina, eins og reyndar undanfarin tvö ár. Mjög mikill humarafli á togtíma var á suðaustursvæðinu í fyrra, sá mesti frá upphafsárum humarveiða í byrjun sjöunda áratugarins. Hrafn- kell segir að þá hafi líka verið dágóð veiði á Eldeyjarsvæðinu. Veiðin þar hafi verið enn betri í ár og sérstak- lega norður af Eldey, á svæði sem hafi verið hálfdautt í 15 ár. Þar hafi verið léleg nýliðun en nú hafi verið eins og humarinn hafi vaknað úr dvala og verið vel veiðanlegur. Eitt- hvað meira sé í uppvextinum en talið hafi verið en samt sé ekki að sjá sér- staka nýliðun með komandi ár í huga. „Menn hafa freistast til þess að liggja dálítið mikið í þessum stóra humri og ég segi um of, því það bitn- ar á okkur síðar meir,“ segir hann og bendir á að þetta hafi verið aðal humarsvæðið á sjöunda áratugnum. Þrátt fyrir að sóknin hafi verið of mikil, að mati Hrafnkels, segir hann að gott sé að sjá dreifinguna yfir á suðvesturhornið. Svona dreifing hafi ekki sést lengi og því hafi sóknin ver- ið allt of mikil við suðausturlandið í mörg ár og við Vestmannaeyjar 2005. Veiðin sé svæðabundin og hafi til dæmis ekki verið góð við Eyjar nú og í fyrra og ekkert sérstök á Sel- vogsbankanum og við Surtsey í ár. Góð skilyrði Hrafnkell segir að skilyrðin í sjón- um hafi geysileg áhrif á veiðanleika humars. Á köldum árum eins og ísa- árið 1968 og 1979 hafi nánast enginn humar veiðst á austustu svæðunum. Skýringin hafi verið ískaldur og tær sjór og lítið um þörunga. Undanfarin tvö ár hafi besta veiðin oft verið að deginum til. Það þýði að mikill þör- ungur hafi verið í sjónum, sem skapi mjög góð skilyrði, og hitastig sjávar hafi farið vaxandi á síðari árum. Það sé svipað því sem hafi verið á sjö- unda áratugnum, þegar humarveiði hafi verið mjög góð. Auk þess sé uppsveifla í humarstofninum. „Hann telst ekki í þeirri sögulegu lægð sem hann var,“ segir Hrafnkell og vísar til ástandsskýrslu Hafrannsókna- stofnunar frá því fyrr í sumar. Þormóður rammi, Humarvinnslan og Hafnarnes gera út á humar í Þor- lákshöfn. Hjörleifur Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Humarvinnsl- unnar, segir að veiðum og vinnslu hjá fyrirtækinu ljúki í þessari viku, Hafnarnes sé búið og Þormóður rammi sé í svipuðum sporum og Humarvinnslan. „Þetta hefur gengið mjög vel í sumar, góð veiði og góður humar,“ segir hann og áréttar að Þorlákshöfn sé stærsta löndunar- höfn á humri í landinu og þar sé unn- inn rúmlega helmingur humarkvót- ans. Fyrsta löndun hjá Humarvinnsl- unni var 19. apríl og vertíðinni lýkur fyrr en venjulega. Hjörleifur segir að til að byrja með hafi bátarnir ver- ið að veiðum austur í Lónsdjúpi, Skeiðarárdjúpi og Breiðamerkur- djúpi en eftir sjómannadaginn hafi nær allur flotinn verið á Eldeyjar- svæðinu, þar sem hafi verið mjög góð veiði og mjög góður humar. Góð humarveiði var í fyrra en Hjörleifur segir að hún hafi verið enn betri í ár. Humarbátunum hafi fækkað mikið og þeim sé ekki beitt af fullum krafti heldur ráði vinnslan sókninni. „Veiðarnar hafa gengið mjög vel og ástandið á þessum hum- arstofni virðist vera gott. Við sjáum ekki annað.“ Humarvinnslan selur nánast allan sinn humar á Spán en humarhalarnir fara til Bandaríkjanna og Kanada. Hjörleifur segir að hátt gengi krón- unnar komi sér illa hjá þeim eins og öðrum sem standi í útflutningi og afli gjaldeyris. Auk þess hafi verðið á stórum humri á erlendum mörkuð- um lækkað og þyngra verið að selja. Á móti kæmi að minni stærðir hefðu hækkað. Mokveiði Skinney-Þinganes á Höfn í Horna- firði gerir út þrjá humarbáta. Her- mann Stefánsson framleiðslustjóri segir að veiðarnar hafi gengið mjög vel og gera megi ráð fyrir að þær haldi áfram fram í ágúst. Humarinn hafi verið misjafn eftir svæðum og bestur á vestursvæðinu en þar hafi verið mikið um stóran humar. „Það hefur verið mokveiði og við værum löngu búnir ef ekki þyrfti að vinna hann,“ segir Hermann og vísar til þess að vinnslan ráði ferðinni. Humarinn frá Skinney-Þinganesi fer fyrst og fremst til Spánar, Jap- ans, Ítalíu og Kanada. Hermann seg- ir að verðið hafi verið svipað og í fyrra í erlendri mynt en hríðfallið í íslenskum krónum. Góður markaður „Við erum að klára síðustu tonnin, segir Sigurjón Gíslason, framleiðslu- stjóri hjá Vinnslustöðinni í Vest- mannaeyjum, um humarvinnsluna. Vinnslustöðin hefur unnið humar frá fimm bátum og eru fjórir búnir en einn í síðasta túrnum. „Það hefur verið mjög góð veiði í allt sumar, stór og fallegur humar.“ Uppistaða aflans í sumar hefur fengist við Eldeyjarbankann og seg- ir Sigurjón að bátarnir hafi verið þar lengst af. Kvótinn sé meiri en í fyrra en veiðum og vinnslu ljúki á svip- uðum tíma og í fyrra. Í bæði skiptin hafi verið hægt að ljúka vertíðinni fyrr en tíminn hafi ráðist af afköst- um vinnslunnar. „Menn hafa ekki verið í vandræðum með að ná í sinn kvóta og veiðistofninn virðist vera í mjög góðu standi,“ segir hann. Sigurjón segir að markaðshorfur séu góðar og helst vanti smáhumar, en Vinnslustöðin framleiði langmest fyrir Spánarmarkað en einnig Ítalíu og Króatíu. steinthor@mbl.is Humarveiðinni nær lokið  Mikill og stór humar hefur veiðst á Eldeyjarsvæðinu í sumar  Sérfræðingur varar við ofveiði  Vinnslan ræður sókninni  Góður markaður en hátt gengi krónunnar setur strik í reikninginn Mjög góð humarveiði hefur verið á vertíðinni og 1.800 tonna kvótinn nær allur veiddur. Steinþór Guðbjartsson kannaði stöðuna. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Mokveiði Humarveiðin hefur gengið mjög vel alla vertíðina og mikið um stóran og góðan humar. Morgunblaðið/ÞÖK Góður gangur Humarvinnsla hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. ÚR VERINU GAMLI flugvöllurinn við Sauðanes á Langanesi var aflagður fyrir all- mörgum árum þegar nýr völlur var byggður við Þórshöfn. Þó flugvélar séu að mestu hættar að nýta sér völlinn þá kemur hann skipunum að góðu gagni og einn sólardaginn mátti sjá rúmlega 550 metra langt flottroll liggja þar eftir flugbraut- inni. Það var þó ekki á leið í loftið eins og flugvélarnar heldur voru skipverjar að gera við það og splæsa saman enda. „Togveiðiskipin Júpíter og Álsey toga saman þetta tvíburatroll og við átökin í hafinu er algengt að eitthvað gefi sig,“ segir Jón Axels- son skipstjóri. Afli skipanna, síld og makríll, fer allur í bræðslu og hefur verið unnið við bræðsluna á vöktum allan sólar- hringinn að undanförnu. Flottrollið á flugvellinum Morgunblaðið/Líney

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.