Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 20
heilsa
20 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
S
terk tengsl eru á milli
sýklalyfjanotkunar
barna og útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra
pneumókokka. Á stöð-
um þar sem skilningur lækna og
foreldra á vandamálinu virðist
vera góður er hægt að draga
mjög mikið úr sýklalyfjanotkun
barna auk þess sem þörf á hljóð-
himnurörum hjá börnum minnkar
til muna. Mikil sýklalyfjanotkun
getur hinsvegar leitt til tíðari mið-
eyrnabólgusýkinga meðal barna
og þörf á hljóðhimnurörum síðar,
að sögn dr. Vilhjálms Ara Arason-
ar, heimilislæknis í Hafnarfirði,
sem unnið hefur að viðamikilli
rannsókn á sýklalyfjanotkun
barna, miðeyrnabólgum og þróun
sýklalyfjaónæmis ásamt fleirum.
Rannsóknin, sem var framkvæmd
í þremur áföngum á árunum 1992-
2003 og náði til 1-6 ára barna, var
kynnt á Norræna heimilislækna-
þinginu í Reykjavík fyrir skömmu.
Heilbrigðisógn
framtíðar
Sýklalyfjaónæmi er alvarlegt og
vaxandi heilbrigðisvandamál í
heiminum í dag og hefur Al-
þjóðlega heilbrigðisstofnunin skil-
greint vandann sem eina af mestu
heilbrigðisógnum framtíðar.
Vandinn felst í því að sýklalyfin
hætta að virka á alvarlegar sýk-
ingar. Á Íslandi þurfa börn orðið
að leggjast inn á sjúkrahús til
sértækrar sýklalyfjameðferðar í
æð þar sem venjuleg sýklalyf
virka ekki alltaf til að ráða nið-
urlögum sýkinga. Sýklalyfja-
ónæmi hefur verið mest í þeim
löndum sem nota mest af sýkla-
lyfjum. Bent hefur verið á að oft-
ast þarf ekki að meðhöndla vægar
bráðamiðeyrnabólgur með sýkla-
lyfjum heldur er frekar mælt með
að fylgja málum eftir og end-
urmeta þörf á sýklalyfjameðferð á
síðari stigum.
„Tímaskortur foreldra, skortur
á fræðslu og mikið vinnuálag eru
líklegustu skýringarnar á tíðari
sýklalyfjaávísunum hér á landi.
Foreldrar þurfa einnig að fá betri
aðgang að nauðsynlegri lækn-
ishjálp fyrir börnin í heilsugæsl-
unni, sem getur boðið upp á eft-
irfylgni í stað sýklalyfjaávísunar
af minnsta tilefni á skyndivökt-
um,“ segir Vilhjálmur.
Kostar fleiri innlagnir
„Pneumókokkar eru algengasti
meinvaldur loftvegasýkinga af
völdum baktería, svo sem mið-
eyrnabólgu hjá börnum. Þeir geta
þó einnig valdið alvarlegum sýk-
ingum og eru algeng orsök sýk-
inga, sem leiða til dauða ungra
barna í þróunarríkjunum.
Lungnabólga, sem pneumókokkar
valda, er einnig ein algengasta
dánarorsök aldraðra um allan
heim. Það er því sérstaklega al-
varlegt þegar þessi baktería er
farin að verða ónæm fyrir venju-
legum sýklalyfjum. Fyrir upp-
götvun penisillíns fyrir hálfri öld
lést um þriðjungur þeirra sem
fengu lungnabólgu af völdum
pneumókokka. Penisillínið var tal-
ið kraftaverkalyf þegar það kom
fyrst á markað í heimsstyrjöldinni
síðari. Það virkaði vel gegn
pneumókokkasýkingum í byrjun
og læknaði flesta. Talið er að með
tilkomu þessa eina lyfs hafi lífs-
líkur manna í hinum vestræna
heimi aukist um tíu ár. Nú hálfri
öld síðar blasir við ótti við að tími
kraftaverkalyfsins líði undir lok
og getur sú þróun haft alvarlegar
afleiðingar í för með sér ef ekki
er lengur hægt að treysta á sýkla-
lyfin þegar upp koma alvarlegar
sýkingar. Staðan nú er sú að um
helmingur pneumókokka hefur
verið skilgreindur með ónæmi fyr-
ir penisillíni í þeim löndum, sem
nota mest af sýklalyfjum. Í þeim
Morgunblaðið/Sverrir
Heimilislæknirinn Læknar ættu að hugsa sig tvisvar um áður en sýklalyfjameðferð er beitt á sýkingu, sem kann
að lagast af sjálfu sér, segir dr. Vilhjálmur Ari Arason sem unnið hefur að viðamikilli rannsókn um þessi efni.
Morgunblaðið/Ásdís
Eyrnabólgan Sýklalyfin geta leitt til sýklalyfjaónæmis, sem er alvarlegt og
vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum í dag.
Leggja þarf aukna
áherslu á fræðslu og
ráðleggingar í sjúk-
lingaviðtali ef um er að
ræða vægar efri loft-
vegasýkingar og
miðeyrnabólgur barna,
frekar en að treysta
blint á sýklalyfin.
Á meðan dregið hefur úr
sýklalyfjanotkun í flestum
löndum hefur hún aukist
hérlendis. Dr. Vilhjálmur
Ari Arason heimilislæknir
sagði Jóhönnu Ingv-
arsdóttur að vandinn fæl-
ist í því að sýklalyf myndu
hætta að virka á alvar-
legar sýkingar ef fram
héldi sem horfði.
Í HNOTSKURN
» Eyrnabólga er algeng-asti heilsuvandi ís-
lenskra barna sem leitað
er með til læknis og þriðja
hvert barn á Íslandi fær
hljóðhimnurör.
» Sýklalyfjanotkunin eraðallega vegna mið-
eyrnabólgu þar sem með-
ferð með sýklalyfjum er
oft óþörf.
» Sýklalyfjanotkunin ermeiri hér á landi en á
hinum Norðurlöndunum
og fer vaxandi.
» Vitneskja foreldra umskynsamlega notkun
sýklalyfja skiptir miklu
máli.
» Um þriðjungur barnaber sýklalyfjaónæmar
bakteríur í nefi eftir
hvern sýklalyfjakúr, sem
smitast auðveldlega milli
barna.
» Vísbendingar eru umað sýklalyf geti aukið
hættu á endurteknum mið-
eyrnabólgum og þörf á
hljóðhimnurörum síðar.
Tími kraftaverkalyfsins er að líða
SUMARIÐ er sá tími sem við notum
hvað mest til útvistar. Við förum í
útilegur, fjallgöngur, hjólum, spilum
golf, förum í sund og veiðiferðir svo
eitthvað sé nefnt. Margir nýta líka
sumartímann til að annast viðhald á
húsum sínum og garði, mála bæði
veggi og þök og dytta að því sem
farið er að láta á sjá, smíða skjól-
veggi og palla o.s.frv. Sumir ráðast
jafnvel í að byggja sumarbústað.
Þegar á heildina er litið má því segja
að sumarið sé tími framkvæmda og
athafnagleði. Það hefur sýnt sig að
þrátt fyrir jákvæðnina sem fylgir
ofangreindu þá fjölgar heima- og
frítímaslysum verulega yfir sum-
artímann, enda flestir í fríi á þeim
tíma.
Hægt að fyrirbyggja mörg slys
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysaskrá Íslands voru heima- og
frítímaslys 37,8% af skráðum slysum
árið 2006 og eru þau með algeng-
ustu slysum í öllum aldurshópum.
Þess ber þó að geta að ekki eru öll
slys skráð í Slysaskrá Íslands.
Það má til sanns vegar færa að
slysin geri ekki boð á undan sér, en
þrátt fyrir það er ýmislegt hægt að
gera til að fyrirbyggja þau. Málið
snýst um það hvernig við hegðum
okkur við ólíkar aðstæður og við at-
hafnir sem við erum kannski ekki
vön.
Þegar taka á til hendinni heima
fyrir er nauðsynlegt að lesa vel leið-
beiningarnar sem fylgja þeim tækj-
um og tólum sem nota skal og jafn-
framt skal þess gætt að nota
viðeigandi öryggisútbúnað. Hættu-
aðstæður skapast auðveldlega t.d.
þegar á að skreppa upp á þak til að
laga loftnet eða reka niður nagla.
Til að forðast heima- og frí-
tímaslys er gott að hafa í huga eft-
irfarandi öryggisatriði þegar hefj-
ast skal handa við umbætur heima
við. Hafa ber í huga að hér er ein-
göngu tæpt á örfáum atriðum.
Við notkun stiga er mikilvægt að:
velja réttan stiga út frá þeim að-
stæðum sem á að nota hann í.
lesa og fara eftir leiðbeiningum.
ganga úr skugga um að stiginn sé
heill og nothæfur.
hann standi á sléttu og stöðugu
undirlagi.
Þegar farið er upp á þak skal:
ætíð gæta fyllstu varkárni.
nota tvöfaldan stiga eða örygg-
isbönd ef þakið er bratt.
veita því athygli ef þakið er blautt
og hált.
vera á skóm með sólum sem veita
viðnám.
Þegar garðurinn er sleginn skal:
þekkja vélarbúnað sem er verið
að nota, lesa og fara eftir leiðbein-
ingum.
aldrei eiga við sláttuvélina nema
slökkva á henni fyrst og taka hana
úr sambandi ef um rafmagns-
sláttuvél er að ræða.
passa vel upp á að börn séu ekki
nálægt sláttuvélinni.
ganga úr skugga um að ekki séu
steinar eða aðrir smáhlutir í grasinu
sem á að slá. Stórslys getur hlotist af
því ef hnífur sláttuvélarinnar grípur
Forðumst slys við framkvæmdir heima fyrir
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sumarið er tími framkvæmda Heimaslysum fjölgar þó yfir sumartímann
og því um að gera að fara varlega þegar taka á til hendinni.
hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð