Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 21

Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 21
löndum eru ráðlagðir helmingi stærri sýklalyfjaskammtar við meðhöndlun venjulegra sýkinga en hingað til hefur tíðkast, t.d. hér á landi. Vandinn kostar sífellt fleiri innlagnir á sjúkrahús til meðhöndlunar með sterkustu og breiðvirkustu sýklalyfjum sem völ er á og sem aðeins er hægt að gefa í æð, stundum með óvissum árangri. Sama ástand blasir nú við á Íslandi á næstu misserum en þegar þurfa nokkur börn að leggj- ast inn á sjúkrahús hérlendis í hverjum mánuði þar sem venjuleg sýklalyf virka ekki,“ segir Vilhjálmur Ari. Þriðja hvert barn fær rör Miðeyrnabólgur barna eru lang- algengasta orsök sýklalyfjanotk- unar. Sýnt var fram á í öllum þremur áföngum íslensku rannsóknarinnar að sýkla- lyfjanotkuninni fylgdi fjór- til fimmfalt aukin áhætta á að börn smituðust af og bæru á eftir pen- isillínónæma pneumókokka. Eyrnabólguvandamál eru mjög al- geng hjá íslenskum börnum ef draga má ályktun af tíðni rör- ísetninga í hljóðhimnur, en um þriðja hvert barn fær rör í hljóð- himnu hérlendis sem er miklu meira en þekkist annars staðar. Rannsóknin leiddi líka í ljós að foreldrar eru líklegri til að sækj- ast eftir sýklalyfjameðferð, jafnvel gegn kvefi, ef þeir hafa áður feng- ið sýklalyfjameðferð fyrir barnið sitt. Þróuninni þarf að snúa við Grípa verður til aðgerða til að draga úr óþarfa notkun sýklalyfja til að draga úr hratt vaxandi sýklalyfjaónæmi í þjóðfélaginu, að sögn Vilhjálms Ara. „Leggja þarf aukna áherslu á fræðslu og ráðleggingar í sjúk- lingaviðtali ef um er að ræða væg- ar efri loftvegasýkingar og mið- eyrnabólgur barna, frekar en að treysta blint á sýklalyfin. Tryggja þarf foreldrum aðgang að nauð- synlegri læknishjálp fyrir börn á daginn þar sem boðið er upp á eftirfylgni þannig að hægt sé að grípa inn í ef sýkingar þróast á verri veg. Frítökuréttur foreldra í vinnu vegna veikra barna þarf að vera betur tryggður en hann er í dag svo börnin geti verið heima þegar þau eru veik.“ join@mbl.is þessa hluti og sendir þá frá sér af miklu afli. Þó að heima- og frítímaslys séu algeng þá eru áverkarnir í flestum tilfellum ekki alvarlegir, en þó geta þeir stundum verið mjög alvarlegir og leitt til örkumla og jafnvel dauða. Farið því ávallt með gát og forðist að gera vanhugsaða hluti þegar dytta á að hlutum heima fyr- ir. Markmið heilbrigðisáætlunar á sviði slysavarna er að slysum og dauðaslysum fækki um 25% á tíma- bilinu 2001-2010. Eitt af aðalverk- efnum slysavarna á Lýðheilsustöð þetta haustið er að skoða nánar or- sakir og tegundir heima- og frí- tímaslysa til að geta haft áhrif á stefnumótun og tryggja að aðgerð- ir/forvarnir séu í samræmi við það. Með bestu óskum um gott og slysalaust sumar. Rósa Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri slysavarna, Lýðheilsustöð daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 21 inu sem þeir nota um sjálfa sig og fólk af öðrum þjóðernum og kynþáttum. x x x Í bókinni er að finnamikinn töffara- skap, látalæti og sýndarmennsku. Sögumaður er besta skinn, en kominn í fé- lagsskap, sem flestir myndu segja að væri slæmur. En sögu- manni finnst hann aldrei hafa verið í betri málum, þótt hon- um sé frekar eðlilegt að vera hallærislegur en svalur og hann verði hallærislegri og hallær- islegri eftir því sem hann reynir að vera svalari. x x x Bækur af þessum toga getaveitt nýja innsýn í það þjóð- félag, sem um er fjallað, og sýnt hvernig stundum myndast þjóð- félag í þjóðfélaginu. Víkverji hefur rekist á svipaðar bókmenntir bæði í Bandaríkjunum og Þýskalandi, en ekki enn á Íslandi. Líklega er þess þó ekki langt að bíða að fram komi íslenskir rithöfundar, sem lýsi þessum heimi hér á landi. Það gæti orðið forvitnileg lesning. Eru tilinnflytjenda- bókmenntir? Víkverji hefur undanfarið rek- ist á bækur, sem fjalla um hlutskipti og upplifun innflytjenda, og kannski sér- staklega hinnar svo- kölluðu annarrar kyn- slóðar, sem er að einhverju leyti ut- angátta eða hafnað í nýja heiminum, en hefur ekki tengsl for- eldranna við þann gamla. Þessi lífs- reynsla tengist síðan rótleysi og firringu samtímans. x x x Í Bretlandi er stórt samfélag inn-flytjenda og þar hefur verið mikil umræða um hið fjölmenning- arlega samfélag, ekki síst eftir hryðjuverkin í neðanjarð- arlestakerfinu. Víkverji rakst fyrir skömmu á skáldsöguna Lond- onstani eftir rithöfundinn Gautam Malkani. Þar er lýst heimi ung- linga af pakistönskum uppruna og málfari þeirra, sem er kostulegt. Á köflum liggur við að þurfi dulmáls- lykil til að þýða orðfæri þeirra yfir á menntaskólaensku og eins tekur nokkurn tíma að átta sig á slangr-     BLÓMSKRÚÐ er mikið í kringum hús og heimili víða erlendis en þó má halda því fram með nokkru ör- yggi að á fáum stöðum sé meira lagt upp úr að skreyta hús, svalir og garða með blómum en í Ölp- unum. Á það jafnt við í Austurríki og Sviss sem og syðst í Þýska- landi. Vissulega er hægt að sjá þar margbreytileg blóm en í svala- kössum ber þó mest á pelar- góníunni góðu. Hún var helsta gluggablómið hér á landi fyrir meira en hálfri öld og konur kepptust við að eiga pelargóníur í sem flestum litum. Sumar pelar- góníurnar voru meira að segja með mislitum blómum. Fáum datt þá í hug að reyna að fara með pelargóníurnar sínar út í garð. Blómatískan hefur breyst og nú eru pelargóníur, bæði beinvaxnar og hengipelargóníur, orðnar vin- sælar hér sem sumarblóm en hvergi sjást þær þó nærri því jafn- margar saman í hóp eins og utan á bjálkahúsunum í Ölpunum. Annað sem mikið ber á þarna suðurfrá eru óvenjuleg ílát og um- búnaður utan um blómin. Þar láta menn sér að jafnaði ekki nægja hversdagslega blómapotta. Gamlar töskur, pottar sem eitt sinn hafa verið notaðir á eldstæðum, og ótalmargt fleira verður á vegi blómaáhugamannsins. Sumir nýta einnig trjábolina sem fallið hafa fyrir öxi skógarhöggsmannsins. Bolirnir eru sagaðir í hæfilegar lengdir, holaðir út og blómum komið fyrir í þeim. Nú þegar menn fella hér aspir, grenitré og önnur hávaxin tré í gríð og erg væri ekki úr vegi að huga að því hvort ekki mætti nota trjábolina til að lífga upp á garðinn. Kannski geta einhverjir fengið góða hug- mynd eftir að hafa skoðað mynd- irnar af nokkrum óvenjulegum „blómapottum“ sem urðu á vegi ferðalangs í austurrísku Ölpunum. Blóm í skrítnum pottum Litrík blóm gefa lífinu lit í margfaldri merkingu. Góðu sumri fylgja líka falleg blóm og gróður. Stundum má gefa þessum gróðri aukið gildi með því að koma blómum og trjám fyrir á svolítið óvenjulegan hátt eins og Fríða Björnsdóttir sá í ferð um Alpana. Ljósmynd/ Fríða Björnsdóttir Grautarpottur eða hvað Eitthvað hefur líklega verið eldað í þessum potti fyrir margt löngu. Pósttaskan góða Skyldi þetta vera taska þorpspóstsins sem hér heldur utan um flauelsblóm og eina kanínu. Hátt í austurrískum Ölpum Það er ekki bara til fjalla í Ölpunum sem svalir eru skrýddar með pelargóníum þótt það sé algengast þar. Fellum tré og nýtum Þegar höggva þarf tré í garðinum er hægðarleikur að nýta bolinn undir sumarblómin eins og hér er gert. Úr snjó í garð Það má svo sannarlega koma litlu sætu barrtré fyrir á skemmtilegan hátt í kassa á gömlum sleða. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.