Morgunblaðið - 18.07.2007, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sá yðar sem syndlaus er
kasti fyrsta steininum
Í FRÉTTUM Stöðvar 2 þann 10. júlí
var fréttahaukurinn Sölvi Tryggva-
son með mæðgur frá Úkraínu í skot-
línunni. Mæðgur þessar leggja allt í
sölurnar til að ná ákveðnu takmarki
varðandi frama dótturinnar. Ég ætla
ekki að fara í smáatriði varðandi
þessa fréttamennsku. Ég velti hins
vegar fyrir mér tilgangi frétta-
hauksins. Var tilgangurinn að ná inn
fórnarlömbum og fórna þeim á altari
meðalmennskunnar, sjálfum sér til
framdráttar, og þóknast lýðnum
sem á horfði og átti þá væntanlega
að gleðjast er þær mæðgur brotn-
uðu? Eða að setja upp krassandi
frétt sem höfðaði til Íslendinga svo
að við sem á horfðum gætum kjams-
að á neyð þeirra mæðgna?
Mæðgurnar báru af sér góðan
þokka og héldu höfði lengi vel eða
þangað til báðar brustu í grát, var
því drama gefinn góður tími svo
áhorfendur gætu vel notið. Ég trúi
ekki að við Íslendingar séum á svo
lágu plani að slík uppákoma og teg-
und fréttamennsku veki aðdáun
áhorfenda þar sem einstaklingar eru
hreinlega rifnir á hol. Skömm sé
þeim sem að stóðu.
Önnur uppákoma var þar sem
fræknir fréttamenn höfðu snuðrað
uppi að rússnesk stúlka ætlaði að
selja sig á hóteli hér í bæ. Væntan-
lega með velferð þessarar ógæfu-
sömu stúlku efst í huga fóru frétta-
menn á staðinn á fölskum forsend-
um, eflaust til að finna sambærilega
frétt og Sölvi fréttahaukur. Það sést
í fréttinni, þar sem fréttamaður
heldur hurðinni opinni og blessuð
stúlkan streitist við að loka í angist
sinni þar sem ruddar ráðast að
hennar friðhelgi.
Enn og aftur er fréttamennskan á
mjög lágkúrulegu plani og þeim sem
að stóðu til háðungar og skammar.
Eflaust hafa þeir klappað hver öðr-
um á bakið að loknu afreki og muldr-
að: „Miklir menn erum við Hrólfur
minn.“
Sigurður Ó. Halldórsson.
Týnd garðhúsgögn
SUNNUDAGSMORGUNINN 15.
júlí vöknuðum við íbúar á Njálsgötu
75 við að garðhúsgögn húsfélagsins,
sem keypt voru í fyrravor, voru
horfin. Um er að ræða tvo stóla og
borð og er þeirra sárt saknað.
Þeir sem gætu vitað um garð-
húsgögnin eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband í netföngin
ingai@simnet.is eða khk@hive.is.
Myndavélartaska í óskilum
FYRIR NOKKRU fannst mynda-
vélartaska nálægt Flugsafni Íslands
á Akureyri. Í töskunni voru nokkrir
minniskubbar og á þeim var all-
nokkuð af ljósmyndum, þ. á m. var
myndasyrpa af kynþokkafullri og
ögrandi konu. Eigandi töskunnar
getur vitjað hennar á Flugsafninu,
sem er opið alla daga kl. 13-17, gegn
t.d. símanúmeri fyrirsætunnar.
Páfagaukur fannst
UNGUR karlfugl fannst í Árbænum
17. júlí. Hann er grænn og gulur og
er mjög spakur. Upplýsingar í síma
557 5097 og 898 5097.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GOTT KVÖLD,
GÓÐIR GESTIR!
ÉG VEIT AÐ ÞIÐ ERUÐ ÞARNA...
ÉG HEYRI ANDARDRÁTTINN YKKAR
EINHVERJAR
ÓSKIR?
JÁ.
FARÐU
HEIM
ÉG SKIL AF
HVERJU ÞÚ ERT
HRÆDDUR VIÐ
BÓKASÖFN...
OKKUR
LÍÐUR ÖLLUM
ILLA SUMS
STAÐAR
Ó? HVAR
LÍÐUR
ÞÉR ILLA,
KALLI?
Á JÖRÐINNI!AÐ VERA HRÆDDUR VIÐ
BÓKASÖFN ER EINS OG ÖLL
ÖNNUR HRÆÐSLA... ÞÉR
LÍÐUR ILLA VEGNA ÞESS AÐ
ÞÚ ÞEKKIR ÞAÐ EKKI...
VIÐ GETUM
EKKI SETT
ÞESSAR
MYNDIR Á
JÓLAKORTIN
OKKAR...
ÞETTA
LÍTUR
SAMT ÚT
EINS OG
KALVIN.
FYRIR
UTAN
HÁRIÐ
HVENÆR
ER MATUR?
ÞÚ FÆRÐ AÐ
BORÐA
EINHVERN
TÍMANN ÁÐUR
EN ÞÚ FERÐ
AÐ SOFA!
HELGA VILL EKKI
AÐ ÉG BIÐJI UM
MAT ÞEGAR HÚN
ER AÐ ÞRÍFA
ÞEIR ERU ALLTAF
SAMAN... ÉG HELD
AÐ ÞEIM FINNIST
ÞEIR VERA EITTHVAÐ
BETRI EN VIÐ
KANNSKI ÆTTUM VIÐ AÐ SELJA
STÓLINN SEM LANGAMMA ÁTTI.
OKKAR VANTAR PENING
ÞAÐ
VÆRI
SNIÐUGT
ÞAÐ VERÐUR SAMT ERFITT.
ÉG VILDI AÐ KRAKKARNIR
FENGJU AÐ EIGA EITTHVAÐ
SEM HÚN ÁTTI
HVAÐ MEÐ TVÖ ÁR AF
HÁSKÓLA?
HÚN HEFÐI VERIÐ ÁNÆGÐ
MEÐ ÞAÐ. SÉRSTAKLEGA EF
ÞAU VERÐA LÆKNAR
AF HVERJU
LAGÐIR
ÞÚ Á JONAH
JAMESON?
ÉG KOM TIL
ÞESS AÐ HITTA ÞIG
EN EKKI TIL AÐ
TAKA MYNDIR AF
ÞESSUM BAR-
DAGAMANNI
SÉRSTAKLEGA
VEGNA ÞESS AÐ
ÉG ER BARDAGA-
MAÐURINN
GLEYMUM BARA JAMESON! VIÐ
GETUM BÆÐI LIFAÐ Á PENINGNUM
SEM ÉG FÆ FYRIR MYNDINA
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞESSI krúttlegi hvutti gætti lappa eiganda síns á Austurvelli á mánudag-
inn. Eigandinn flatmagaði hins vegar í blíðskaparveðrinu sem glatt hefur
landann undanfarið.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Varðhundur
Bjarkarás 27 A Garðabæ - Opið hús
Falleg efri sérhæð með miklu útsýni. Lýsing eignar: Rúmgott anddyri. Stof-
an sem er rúmgóð er með útgengi út á stórar suðvestursvalir, eldhús með
glæsilegri innréttingu og borðkrók, granítborðplötur, mikið skápapláss, öll
tæki frá HTH. Baðherbergi er afar glæsilegt með fallegri innréttingu og
baðkeri. Svefnherbergi eru tvö og eru mjög rúmgóð með skápum. Granít
er í sólbekkjum og í stofu og eldhúsi. Sérlega vönduð eign sem vert er að
skoða. Laus við kaupsamning. Verð 47,9 millj.
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Páll Höskuldsson sölustjóri Fasteignakaupa (sími 864 0500) tekur á móti
gestum á milli kl 18 og 19 í dag, miðvikudaginn 18. júlí.