Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 37
FIMMTA myndin um galdrastrák-
inn Harry Potter var langvinsælasta
bíómyndin í íslenskum kvikmynda-
húsum um helgina en rúmlega
10.000 manns sáu Harry Potter og
Fönixregluna fyrstu sýningarhelg-
ina. Alls hafa um 15.000 manns séð
myndina frá því hún var frumsýnd
hér á landi fyrir réttri viku og hafa
færri komist að en vilja því uppselt
hefur verið á einhverjar sýningar.
Það dugði því ekkert minna en yf-
irnáttúruleg öfl til þess að koma
harðjaxlinum John McClane af
toppnum, en Die Hard 4.0 hefur set-
ið í efsta sæti íslenska bíólistans í
tvær vikur og er nú svo komið að
meira en 20.000 manns hafa séð
Bruce Willis bjarga heiminum eins
og honum einum er lagið.
Hrollvekjan 1408 sem byggð er á
samnefndri smásögu eftir meistara
Stephen King stekkur beint í fjórða
sætið. Sagan þykir minna um margt
á eldra verk Kings, hina mögnuðu
The Shining sem Stanley Kubrick
kvikmyndaði árið 1980. Heiðu Jó-
hannsdóttur, kvikmyndagagnrýn-
anda Morgunblaðsins, þótti 1408
hins vegar ekki eins góð og The
Shining og gaf henni bara tvær
stjörnur af fimm mögulegum.
Fjórða myndin í franska mynda-
flokknum Taxi fer beint í sjötta sæt-
ið, en myndin segir frá æsilegum
bílaeltingaleik um götur hafnarborg-
arinnar Marseille. Líkt og í fyrri
myndunum þremur er Luc Besson
höfundur handrits, en hann er þó
trúlega þekktari sem leikstjóri
mynda á borð við Leon og The Fifth
Element.
Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Galdrastrákurinn ýtti
John McClane af toppnum
)($)
!"
#
$
%&
'( )
"
( * +
,
- . (
# / 0
Vinsæll Áhugi Íslendinga, og raunar heimsbyggðarinnar allrar á galdra-
stráknum Harry Potter virðist nánast óþrjótandi.
HLJÓMSVEITIN Arctic Monkeys
á eina þeirra 12 platna sem til-
nefndar eru sem besta plata ársins,
en ein þeirra kemur til með að
hljóta Mercury-verðlaunin svo-
nefndu.
Standi sveitin uppi sem sig-
urvegari verður það í fyrsta sinn í
sögu verðlaunanna sem sama
hljómsveitin hampar verðlaunum
tvö ár í röð.
Það eru samtök breska plötuiðn-
aðarins sem standa að verðlaun-
unum, sem veitt eru fyrir bestu
breiðskífu síðustu 12 mánaða, og
hafa þau verið veitt frá árinu 1992.
Það eru sérfróðir menn og konur í
iðnaðnum auk tónlistarmanna sem
hafa atkvæðisrétt.
Þær plötur sem tilefndar eru til
verðlaunanna að þessu sinni eru:
Arctic Monkeys - Favourite Worst
Nightmare
Klaxons - Myths Of The Near Fut-
ure
Amy Winehouse - Back To Black
Maps - We Can Create
The View - Hats Off To The Bu-
skers
Jamie T - Panic Prevention
Dizzee Rascal - Maths & English
Bat For Lashes - Fur And Gold
Young Knives - Voices of Animals
And Men
Fionn Regan - The End Of History
New Young Pony Club - Fantastic
Playroom
Basquiat Strings - Basquiat
Strings
Mercury-verðlaunin verða afhent á
Grosvenor-hótelinu í London í
september.
Meira Mercury fyrir Arctic Monkeys?
Arctic Monkeys Fengu Mercury-verðlaunin í fyrra fyrir fyrstu plötuna
sína og eru nú tilnefndir til verðlaunanna í annað sinn.
HLJÓMSVEITIN Dr. Spock ætlar
að vera landi og þjóð til sóma á tón-
listarhátíðinni G! Festival sem fram
fer í Færeyjum um helgina.
Til að hita upp fyrir tónleikana
fyrir frændur okkar í suðri ætlar
Dr. Spock að halda tónleika á Dil-
lon í kvöld.
Hljómsveitin Lada Sport kemur
einnig fram á tónleikunum sem
hefjast klukkan 22.
Fleiri Íslendingar koma fram á
G! Festival að þessu sinni en auk
Dr. Spock ætla Ultra Mega Tecno-
bandið Stefán og Pétur Ben að
trylla lýðinn.
Upphitun fyrir Færeyjar
Morgunblaðið/Ómar
Dr. Spock Það er vonandi að Óttarr
Proppé sé búinn að pakka bleiku
buxunum til ferðarinnar.
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
19. júlí kl. 12.00:
Jörg Sondermann, orgel
21. júlí kl. 12.00:
Hannfried Lucke, orgel
22. júlí kl. 20.00:
Hannfried Lucke, prófessor í orgelleik
við Mozarteum, leikur verk eftir
Buxtehude, Bach, Brahms,
Mendelssohn, Duruflé og Vierne.
www.listvinafelag.is
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
SÍMI 5 900 800Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
FELLAHVARF VIÐ ELLIÐAVATN
GLÆSILEG EIGN - LAUS STRAX
Erum með í sölu glæsilega
120 fm 4ra herb. íbúð á 2.
hæð í 5 íbúða húsi. Húsið
stendur innst í botnlanga
með útsýni yfir Elliðavatn
og Heiðmörk. 3 herb. Rúm-
góð og björt stofa, sjón-
varpshol, glæsilegt bað-
herb. og eldhús. Allar innr.
hvítlakkaðar Suðursvalir.
Vönduð eign.
LAUS STRAX. VERÐ 34,9
MILLJ.
STRANDVEGUR - SJÁLAND
LAUS STRAX. Glæsileg
ÚTSÝNISÍBÚÐ á 2. hæð í
lyftuhúsi, 123 fm, ásamt
stæði í bílskýli. Frábært
skipulag, 3 herbergi, stór
stofa, glæsilegt eldhús og
baðherb. Stórar svalir
meðfram allri íbúð og
óviðjafnanlegt óhindrað
sjávarútsýni. SJÓN ER
SÖGU RÍKARI.
SÓLHEIMAR - SÉRHÆÐ
Mjög falleg og mikið end-
urn. neðri sérhæð, 137 fm
ásamt 25 fm bílskúr. Nýtt
glæsilegt eldhús og bað-
herb. Nýtt eikarparket.
Tvennar svalir. Nýtt steypt
og hellulagt bílaplan með
hitalögnum. TOPPEIGN Á
GÓÐUM STAÐ. Verð
41,4 millj.
GOÐHEIMAR - LAUS STRAX
Mjög björt og falleg mikið
endurnýjuð 121 fm hæð í
þríbýli ásamt 30 fm bílskúr.
Endurn. gólfefni, eldhús,
lagnir o.fl. Tvennar svalir,
stórar stofur. Toppeign á
rólegum og góðum stað.
LAUS STRAX. Verð 36,9
millj.
GNITAHEIÐI - SUÐURHLÍÐUM KÓPAV.
Glæsilegt 175 fm raðhús á
þessum eftirsótta útsýnis-
stað í suðurhlíðum Kópa-
vogs. Húsið er allt hið
vandaðasta, glæsilegar
innréttingar, tæki og gólf-
efni. Suðursvalir og suð-
urgarður m. skjólgirðing-
um. SJÓN ER SÖGU
RÍKARI. Verð 47,9 millj.
STÓRAR EIGNARLÓÐIR F. SUMARHÚS
MARKARFLÖT VIÐ GALTAFELL -
HRUNAMANNAHREPPI
Vorum að fá í sölu 17 lóðir
á frábærum stað í 5 mín.
fjarlægð frá Flúðum. Lóð-
irnar eru 6.300-9.300 fm á
einstaklega fallegum stað.
Heitt og kalt vatn á svæð-
inu. Mjög fallegt útivistar-
svæði og stutt í alla þjón-
ustu. Einstök staðsetning í
aðeins 60 mín. akstursfjar-
lægð frá Reykjavík.
LEIFSGATA
Glæsileg og mjög rúmgóð
4ra herbergja íbúð á
tveimur efstu hæðunum í
þessu húsi ásamt 27 fm
bílskúr. Íbúðin var öll end-
urnýjuð á smekklegan hátt
fyrir nokkrum árum, m.a.
eldhús, bað og fl.. Vönduð
gólfefni og innréttingar.
Suðursvalir og glæsilegt
útsýni. SJÓN ER SÖGU
RÍKARI.
Ólafur
Blöndal