Morgunblaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
HLJÓÐ OG MYND
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
"Ekki aðeins besta Potter-myndin til þessa,
heldur bara stórkostleg fantasía
útá alla kanta. Ég stórefa að jafnvel
hörðustu aðdáendur verði fyrir vonbrigðum!"
eeee
Tommi - kvikmyndir.is
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 3:30 - 5 - 6:30 - 8 - 9:30 - 11 B.i.10.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára DIGITAL
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 LÚXUS VIP
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 5:15 - 7 - 8:15 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
HVORT er hættulegra, byssa eða sundlaug? Hvað eiga
grunnskólakennarar og súmóglímukappar sameiginlegt?
Af hverju búa eiturlyfjasalar enn hjá mömmum sínum?
Þessara spurninga og fleiri spyrja höfundar metsölu-
bókarinnar Freakonomics.
Með fullri virðingu fyrir hagfræði hefur hún hingað til
ekki verið af mörgum talinn innblástur skemmtilegrar
lesningar fyrir sauðsvartan almúgann.
Þeim Steven D. Lewitt og Stephen J. Dubner tókst
hins vegar að setja saman stórskemmtilega bók sem
byggir á ýmsum hagfræðilegum upplýsingum um ýmsa
mannfræðilega þætti bandarísks samfélags.
Bókin sat á metsölulistum víða í Bandaríkjunum eftir
að hún kom út árið 2005.
Þeir félagar halda einnig úti heimasíðu þar sem þeir
blogga reglulega á svipuðum nótum.
Þáttur Normu McCorvey
Ein athyglisverðasta pæling bókarinnar eru bein áhrif
ungu konunnar Normu McCorvey á minnkandi glæpa-
tíðni í Bandaríkjunum á níunda áratugnum.
Nú þarf fólk ekki að skammast sín fyrir að þekkja ekki
nafn McCorvey enda er hún ekki háttsettur embætt-
ismaður eða önnur þekkt persóna í bandarísku stjórn-
kerfi.
Hún var 21 árs, tveggja barna móðir, sem árið 1970 var
ófrísk af sínu þriðja barni. Sem fátækur fíkniefnaneytandi
á götunni sá hún ekki fram á að geta alið önn fyrir barni
sínu og krafðist þess að fá að fara í fóstureyðingu, sem
voru bannaðar í heimaríki hennar, Texas. Henni valda-
meira fólk tók málið að sér og mál hennar sem endaði fyr-
ir hæstarétti Bandaríkjanna. Þar varð úrskurðað árið
1973 að hún hefði rétt á að fara í fóstureyðingu. Það var að
sjálfsögðu orðið of seint fyrir McCorvey, en hún hafði gef-
ið barn sitt til ættleiðingar. En nú var komið prófmál sem
margar verðandi mæður í sporum McCorvey gátu nýtt
sér.
Og hvað kemur þetta minnkandi glæpatíðni við?
Jú, höfundar Freakonomics fullyrða að ekki öll börn
séu fædd jöfn og hafi ungar, fátækar mæður, sem jafnvel
eru í eiturlyfjaneyslu, tækifæri til að fara í fóstureyðingu
kemur það í veg fyrir fæðingu fjölda barna sem sam-
kvæmt tölfræðinni eiga langmestar líkur á að feta glæpa-
brautina síðar á lífsleiðinni. Í kjölfar máls McCorvey var
komið í veg fyrir fæðingu fjölda barna sem annars hefðu
lagt lóð sitt á vogarskálar glæpastarfsemi í Bandaríkj-
unum.
Þetta fullyrða þeir Lewitt og Dubner vera orsök
minnkandi glæpatíðni í bandarísku samfélagi, ekki sterk-
ara efnahagskerfi eða aukið eftirlit með skotvopnaeign.
Bókin er full af viðlíka dæmum og er fyrir vikið mjög
skemmtileg lesning. Hún sýnir að tilveran er ekki svart-
hvít og ýmsir áhrifavaldar orsaka það að samfélagið er
eins og það er í dag.
Forsíða bókarinnar er einnig sniðug. Þar gefur að líta
girnilegan ávöxt, appelsínukjöt með eplahýði. Mig hefur
langað að smakka slíkan ávöxt alveg síðan ég sá bókina
fyrst.
Forvitnilegar bækur: Freakonimics
Appelsínukjöt með eplahýði
www.freakonomics.com
1. The Quickie - James Patterson
2. A Thousand Splendid Suns
- Khaled Hosseini
3. Lean Mean Thirteen
- Janet Evanovich
4. The Judas Strain - James Rollins
5. Bungalow 2 - Danielle Steel
6. Peony In Love - Lisa See.
7. Drop Dead Beautiful
- Jackie Collins
8. Double Take - Catherine Coulter
New York Times
1. Harry Potter and the Deathly
Hallows - J.K. Rowling
2. Harry Potter and the Deathly
Hallows - J.K. Rowling
3. The Memory Keeper’s Daughter
- Kim Edwards
4. Relentless - Simon Kernick
5. A Spot of Bother - Mark Haddon
6. The God Delusion - Richard
Dawkins
7. Gordon Ramsay’s Fast Food -
Gordon Ramsay
8. The House at Riverton - Kate
Morton
Waterstone’s
1. The Secret – Rhonda Byrne
2. The Bancroft Strategy
– Robert Ludlum
3. A Thousand Splendid Suns
– Khaled Hosseini
4. Like the Flowing River
– Paulo Coelho
5. Lisey’s Story – Stephen King
6. Beach Road James Patterson
& Peter de Jonge
7. Second Sight - Amanda Quick
8. The Naming of the Dead
– Ian Rankin
9. Nature Girl - Carl Hiaasen
10. The Thirteenth Tale
- Diane Setterfield
Eymundsson
METSÖLULISTAR»
ÞRÁTT fyrir að hafa starfað í
Bandaríkjunum megnið af ferlinum
voru skáldsögur ungverska rithöf-
undarins Sándor Márai ekki gefnar
út í enskri þýðingu á meðan hann
lifði en hann lést fyrir eigin hendi ár-
ið 1989. Við upphaf þessa árs hóf for-
lagið Kopf í New
York að gefa verk
Márai út í enskri
þýðingu George
Szirtes, ljóð-
skálds af ung-
verskum ættum.
Rebels heitir
þriðja bókin eftir
Márai sem Kopf
gefur út en hún
var skrifuð árið 1930. Hún gerist í
ungversku sveitaþorpi árið 1918,
þegar mjög er liðið á fyrri heims-
styrjöldina. Söghetjurnar eru fjórir
ungir menn sem eru að ljúka námi
við skólann á svæðinu. Áfanganum
fylgir þó lítil gleði heldur eru þeir
þvert á móti dauðhræddir við fram-
tíðina. Allir hafa þeir verið kvaddir í
herinn. Hin óumflýjanlegu örlög
leggjast þungt á drengina sem í
sameiningu leggja sig fram um að
nýta og njóta þá síðustu daga sem
þeir eru drengir og áður en þeir
verða karlmenn í stríði. Hefst þá
þeirra ungæðislega uppreisn, sprott-
in af gremju og hræðslu, gegn sam-
félaginu sem ætlar að senda þá út í
opinn dauðann.
Sagan er afskaplega vel ofin og
uppfull af alls kyns lífsspekilegum
vangaveltum. Bókinni mætti lýsa
sem eins konar þroskasögu fjögurra
einstaklinga í skugga yfirvofandi
hörmunga. Á heildina litið er bókin
prýðileg lesning sem skilur heil-
mikið eftir.
Uppreisn-
arseggir
Rebels eftir Sándor Márai. Kopf 2007.
Þormóður Dagsson
BÆKUR»