Morgunblaðið - 18.07.2007, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 199. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Háskerpa er framtíðin
Háskerpa er mesta bylting á
sviði sjónvarpssendinga frá því lita-
sjónvarpið kom til sögunnar.
Að mati sérfræðinga sjónvarps-
stöðvanna er háskerpa það sem
koma skal í sjónvarpsútsendingum.
» Forsíða
Fundaði með Peres
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra átti í gær fund með
Shimon Peres, forseta Ísraels. Hún
segir ferðina ekki standa í beinum
tengslum við kosningabaráttu
vegna framboðs Íslands til örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna, en
bendir á að ætli Íslendingar að
taka það hlutverk alvarlega verði
menn að kynna sér beint og milli-
liðalaust ástand mála á þeim svæð-
um sem helst eru til umfjöllunar í
öryggisráðinu. Ferðin ljái framboð-
inu þannig ákveðna dýpt. » 2
TF-SIF komin á þurrt
Rannsóknarstjóri RNF staðfestir
að til skoðunar sé af hverju loft
hafi ekki verið á öllum lofthólfum
þyrlunnar TF-SIF. Loft tók að
leka úr neyðarflotum um hálftíma
eftir að þyrlan lenti á sjónum með
þeim afleiðingum að henni hvolfdi.
» 6
Rússar og Bretar deila
Rússar taka því illa að Bretar
skuli hafa rekið fjóra rússneska
diplómata úr landi. »14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Sjónvarpsleysi bernsku
Staksteinar: Traustvekjandi
Forystugreinar: Áhugi ESB á Ís-
landi | „Mannleg mistök“
UMRÆÐAN»
Um rekstur og eignir lífeyrissjóða
Listin að nota innsæið
Morgunblaðið og mansal
Er Rio Tinto versta fyrirtækið?
2% !8"
,) !
9 1
3
3 3 3 3 3 3 3
3
3
3 +
:'6 "
3 3 3 3 3 3
3
3
;<==4>?
"@A>=?B9"CDB;
:4B4;4;<==4>?
;EB"::>FB4
B<>"::>FB4
"GB"::>FB4
"7?""B1->4B:?
H4C4B":@HAB
";>
A7>4
9AB9?"7)"?@4=4
Heitast 20 °C | Kaldast 13 °C
Hæg, suðvestlæg átt.
Skýjað allra vestast en
annars léttskýjað.
Hlýjast inn til landsins.
» 10
Bókin Freakon-
omics er af mörgum
talin innblástur og
skemmtileg lesning
fyrir sauðsvartan al-
múgann. » 40
BÓKMENNTIR»
Hagfræði
almúgans
KVIKMYNDIR»
Galdrastrákurinn er á
toppi bíólistans. » 37
Myndin Death Proof
fjallar um ökuníð-
inginn Stuntman
Mike og samskipti
hans við tvo vin-
kvennahópa. » 38
KVIKMYNDIR»
Death Proof
frumsýnd
FÓLK»
Frú Beckham dýrkar
sjálfa sig. » 41
TÓNLIST»
Jónas er á leið í tónleika-
ferð um landið. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Emilía hættir í Nylon
2. Aniston sögð ógna Jolie
3.Nafn manns, sem lést í umf.slysi
4. Sjónv.þ. Viktoríu sjálfsdýrkun
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
BÓNDINN á Finnastöðum, Gunnbjörn Ketilsson,
er farinn að finna fyrir þurrkunum. Túnin spretta
lítið sem ekkert og nýræktin er moldarflag eitt.
Því eru góð ráð dýr og þessa dagana hefur hann
Mána Jóhannesson hjá sér í vinnu við að vökva
túnin – með einni stærstu haugsugu landsins.
„Þetta er einhver mesta þurrkatíð í langan
tíma,“ segir Gunnbjörn. „Menn þurfa að fara aft-
ur til ársins 1994 til að muna annað eins.“
Finnastaðir eru innarlega í Eyjafirði en næsti
bær er Torfur, þar sem er veðurathugunarstöð.
Samkvæmt mælingum þar rigndi einungis 0,7
millimetra í júní, sem segir sitthvað um árferðið.
„Ég hafði ætlað mér að slá þessi tún um miðj-
an ágúst,“ segir Gunnbjörn og bendir á nýrækt-
ina sem verið var að vökva. „En það verður ein-
hver bið á því. Ég er að vonast til að ná að slá þau
í september, ef ég næ því þá nokkuð.“
Bændur bregðast við afleiðingum þurrkanna
Haugsugan notuð í að vökva nýræktina
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
NYLON-stúlkan
Emilía Björg
Óskarsdóttir hef-
ur sagt skilið við
sveitina, en hún
hefur verið með-
limur Nylon frá
stofnun hennar
árið 2004. Emilía
gekk í hjónaband
um helgina og
hana langar til
þess að verja meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni, en miklar annir eru
framundan hjá Nylon. Að sögn Ein-
ars Bárðarsonar, umboðsmanns
Nylon, er skilnaðurinn því í full-
kominni sátt. Leitin að arftaka Em-
ilíu hefst í lok ágúst og verður hún
gerð að sjónvarpsþætti. | 36
Emilía hætt
í Nylon
Emilía Björg
Óskarsdóttir
HELGI Sigurðsson, framherji Vals,
er efstur í einkunnagjöf Morg-
unblaðsins þegar 10 umferðum er
lokið í Landsbankadeild karla í
knattspyrnu. Helgi er jafnframt
markahæstur í deildinni. Þá er
Valsliðið efsta liðið í einkunnagjöf
liða og FH næst á eftir. | Íþróttir
Helgi efstur
ÚRSLITAKEPPNI Evrópumóts landsliða kvenna, 19
ára og yngri, hefst í Reykjavík í dag með fjórum leikjum.
Landslið átta þjóða eru samankomin hér á landi vegna
keppninnar sem lýkur 29. júlí með því að Evrópumeist-
arar verða krýndir að loknum úrslitaleik á Laugardals-
velli en þá mun forseti Knattspyrnusambands Evrópu,
Frakkinn Michel Platini, heiðra keppendur með nær-
veru sinni.
Talið er að um 100 manns komi að vinnu í kringum
mótið. Flautað verður til leiks á þremur völlum samtímis
klukkan 16 í dag; á Víkingsvelli þar sem Danir og Þjóð-
verjar leiða saman hesta sína, á Kaplakrikavelli þar sem
Spánverjar takast á við Frakka og loks munu Pólverjar
og Englendingar eigast við á Árbæjarvelli.
Formleg setning keppninnar verður síðan á Laug-
ardalsvelli kl. 19.15 áður en Íslendingar og Norðmenn
eigast við.
„Það er mikið mál að halda svona mót enda er þetta
stærsta verkefni sem KSÍ hefur ráðist í og mjög metn-
aðarfullt. Ég er líka mjög ánægð með að það skuli vera
kvennafótbolti sem verður hápunkturinn á 60 ára afmæl-
isfagnaði sambandsins. Það er vel við hæfi enda hefur
vaxtarbroddurinn í íslenskri knattspyrnu síðustu árin
verið og er enn hjá stelpunum,“ segir Ingibjörg Hinriks-
dóttir, stjórnarmaður í KSÍ og formaður undirbúnings-
nefndar mótsins. Hún segir allt vera klappað og klárt og
þess eins beðið að flautað verði til leiks. | Íþróttir
Flautað til leiks á EM
Lokakeppni Evrópumóts 19 ára kvennalandsliða er há-
punktur á 60 ára afmæli Knattspyrnusambands Íslands
Morgunblaðið/ÞÖK
Tilbúnar Laufey Björnsdóttir, Rúna Sif Stefánsdóttir,
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir og Guðrún Erla Hilm-
arsdóttir eru hluti af íslenska landsliðinu á EM.