Morgunblaðið - 10.08.2007, Page 4

Morgunblaðið - 10.08.2007, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKIPULAGSSTOFNUN mun í framtíðinni skoða mál virkjana á vegum einkaaðila með tilliti til þess að reglur um þær eru ekki með sama hætti og um virkjanir á vegum opinberra aðila. Svo virðist sem að í tilfellum Fjarðarárvirkjunar og Múlavirkjun- ar, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að und- anförnu, hafi verið talið að ekki þyrfti bygging- arleyfi vegna framkvæmdanna, ef frá eru talin stöðvarhúsin. Hefur nú komið í ljós að sá skiln- ingur var ekki réttur. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær gerðu starfsmenn Orkustofnunar, sem skoðuðu Fjarð- arárvirkjun í fyrradag, athugasemdir við að ekki hefði verið gerð krafa um byggingarleyfi vegna allra þátta virkjunarinnar. Sagði bæjarstjóri Seyðisfjarðar að hvorki sveitarfélagið né Skipu- lagsstofnun hefðu gert sér grein fyrir því að slíkt væri nauðsynlegt nema vegna ákveðinna verk- þátta. Í skipulags- og byggingarlögum er tilgreint að byggingarleyfi þurfi fyrir hvers konar mann- virkjagerð bæði ofan jarðar og neðan. Það sem valdið hefur misskilningi er að undanþága er í lög- um vegna mannvirkjagerðar opinberra aðila. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, segir að ábendingar Orkustofnunar séu gagnlegar og að Skipulagsstofnun muni skoða mál annarra virkj- ana á vegum einkaaðila m.t.t. þess hvaða áhrif þessar upplýsingar hafi. Skoða þurfi í ljósi þessa hvaða aðrar framkvæmdir séu ekki undanskildar byggingarleyfi. Síðan skipulagslög voru sett árið 1997 hefur Skipulagsstofnun úrskurðað um mats- skyldu 21 smávirkjunar. Elín Smáradóttir, lögfræðingur Orkustofnunar, segir að starfshópurinn sem fór til Seyðisfjarðar og fundaði með bæjaryfirvöldum og framkvæmda- aðila Fjarðarárvirkjunar muni skila minnisblaði til ráðherra á næstu dögum, en efni þess verði ein- ungis kynnt, kjósi ráðherra að gera það. Samkvæmt upplýsingum frá Jökli Helgasyni, byggingafulltrúa í Eyja- og Miklaholtshreppi, taldi sveitarfélagið sig bera eftirlitsskyldu með öll- um verkþáttum Múlavirkjunar, þrátt fyrir að sveitarfélagið hefði talið suma þeirra einungis framkvæmdaleyfisskylda en ekki byggingarleyf- isskylda, eins og þeir í raun voru. Aðrar reglur um virkjanir einkaaðila en opinberra Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Virkjanaframkvæmdir Lagarammi virkj- anaframkvæmda virðist óljós. Ósamræmi í lögum sem ekki er alltaf farið eftir VÍSINDAMENN Íslenskrar erfða- greiningar (ÍE) og samstarfsaðilar þeirra á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi, læknadeild Háskóla Ís- lands og háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð hafa fundið stökkbreytingu sem veldur í öllum tilfellum flögn- unargláku, sem er illvígt afbrigði sjúkdómsins. Vísindamennirnir birtu niður- stöður rannsóknar á gláku í net- útgáfu tímaritsins Science í gær. Í frétt frá ÍE segir að vinna við rann- sóknirnar hafi staðið yfir síðustu tvö árin og leitt til tímamótaupp- götvana á erfðafræði sjúkdómsins sem er ein af algengustu orsökum blindu. „Gláka er samnefni yfir nokkra sjúkdóma sem allir valda skemmd- um á sjóntaug. Afbrigðið sem hér um ræðir kallast flögn- unargláka og kemur hún fram í einstaklingum sem eru með svo- kallað flögn- unarheilkenni. Í kringum 10-20% einstaklinga yfir 60 ára hafa flögn- unarheilkenni, sem þróast yfir í flögnunargláku í allt að helmingi þeirra. Flögnunarheilkenni lýsir sér í því að trefjaagnir setjast inn í fremri hluta augans, stífla frá- rennslisgöng augnvatns og valda hækkuðum augnþrýstingi sem leið- ir til skaða á sjóntaug. Rannsóknin leiddi í ljós að allir sjúklingar með þessa gerð gláku hafa sömu afbrigði ákveðins erfða- vísis. Fram að þessu var lítið sem ekkert vitað um það hvaða erfða- þættir kæmu við sögu í sjúkdóm- inum en telja má að erfðir hans séu fullskýrðar í ljósi þessara niður- staðna. Flögnunargláka er illvígari en önnur afbrigði sjúkdómsins. Læknismeðferð hefur minni áhrif og leiðir hún því frekar til alvar- legrar sjónskerðingar eða blindu,“ segir m.a. í frétt ÍE. Haft er eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagrein- ingar, að þeim þyki þessi uppgötv- un spennandi fyrir ýmsar sakir. Fundist hafi stökkbreytingar sem skýra öll tilfelli sjúkdóms sem get- ur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem af honum þjást. Þá segir Kári að þegar sé hafin vinna sem miðar að því að kanna hvernig best megi nýta þessa þekk- ingu til þess að þróa greiningarpróf og til lyfjaþróunar. Einstaklingar með stökkbreyt- ingar sem mest auka áhættu á flögnunargláku eru meira en hundraðfalt líklegri til þess að fá sjúkdóminn en þeir sem hafa þær ekki. Uppgötvunin er talin geta hraðað framþróun á sviði meðferðar en hefðbundin notkun augndropa dregur minna úr einkennum flögn- unargláku en annarra gerða gláku og hefur ekki áhrif á orsök sjúk- dómsins. Fundu orsök flögnunargláku Kári Stefánsson Morgunblaðið/Þorkell Gláka Flögnunargláka er illvígari en önnur afbrigði gláku. Íslensk erfðagreining MÁLNINGU var slett á sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn í fyrri- nótt. Málið er í rannsókn en ekki lá ljóst fyrir síðdegis í gær hverjir hefðu staðið að skemmdarverkinu. Samkvæmt upplýsingum frá Svavari Gestssyni, sendiherra Ís- lands í Kaupmannahöfn, voru slag- orð gegn áliðnaðinum letruð á sendi- ráðið. Svavar sagðist ekki hafa séð áletrunina sjálfur, þar sem hann er staddur hér á landi, en eftir því sem hægt hefði verið að greina mót- mælatextann sjálfan þá hefði hann á danskri tungu verið „Áliðnaðinn burt af Íslandi. Þið drepið náttúr- una“. Lögreglunni í Kaupmannahöfn var gert viðvart og jafnframt siða- regluskrifstofu danska utanríkis- ráðuneytisins. Svavar segir engan einstakling eða samtök hafa lýst yfir ábyrgð á mótmælunum en rannsókn standi yfir. Munu myndir hafa náðst af einhverjum að athafna sig við sendiráðið um nóttina en óljóst sé hvort þar hafi skemmdarverka- mennirnir verið á ferð. Aðspurður hvort skoðað verði hvort auka eigi eftirlit með sendiráðinu vegna þessa segir Svavar að slíkt sé metið af danska utanríkisráðuneytinu enda beri það ábyrgð á atriðum sem varða erlend sendiráð í Kaup- mannahöfn. Málningu slett á sendiráð „VIÐ erum að hugsa til framtíðar, við erum ekki búin að mynda okkur neinar fastmótaðar skoðanir um það hvað við ætlum að gera við lóðina,“ segir Sigurður Egill Ragnarsson, framkvæmdastjóri byggingarsviðs BYKO. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær hefur BYKO óskað eftir að fá úthlutað allt að 100 þús- und fermetra lóð á Hólmsheiði við Suðurlandsveg. „Fyrst og fremst teljum við þetta vera góða staðsetningu til lengri tíma og erum að hugsa þetta út frá einhverri grófvörustarfsemi, þjón- ustu við verktaka og eitthvað í slík- um dúr en ekki verslunarstarfsemi. Við erum ekki að íhuga að loka neinu öðru ef við fáum lóðina,“ segir Sigurður og bætir við: „Við erum raunverulega ekki búin að sækja um lóð – við erum búin að lýsa áhuga okkar á því að sækja um lóð.“ Skipu- lagssvið Reykjavíkurborgar muni svo ákveða hvort að svo stór lóð verði innifalin í deiliskipulagi á Hólmsheiði. Lóðin á Hólmsheiði vel staðsett ♦♦♦ Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ÁHUGAHÓPUR um skipulagsmál við Nónhæð í Kópavogi boðaði íbúa til fundar um fyrirhugaðar skipulags- breytingar í hverfinu og stofnun íbúa- samtaka í íþróttahúsinu í Smáranum í gærkvöldi. Kópavogsbær kynnti í júnílok fyrirætlanir um aðalskipu- lagsbreytingu í hverfinu sem felur í sér að grænu svæði og þjónustusvæði efst á Nónhæð, við Arnarnesveg og Smárahvammsveg, verði breytt í íbúðahverfi. Þar er fjölbýlishúsum frá sjö til átta hæðum og allt upp í 12 og 14 hæðir ætlað að rísa, með tveggja hæða bílakjöllurum, en það telja íbúar í nágrenninu allt of mikið bygginga- magn á jafnlitlum reit. Þar að auki beinist umferð vegna bygginganna um rólegt íbúðahverfi, sem saman- stendur af raðhúsum, einbýlishúsum og þriggja hæða fjölbýlishúsum. Andstaða íbúa mjög mikil Harpa Gunnarsdóttir, talsmaður samtakanna, segir að kynningarfund- urinn í júní hafi verið mjög vel sóttur af íbúum og að þar hafi strax komið fram mjög kröftug andstaða við fyr- irætlanirnar, en bæjaryfirvöld hafa ekki breytt fyrirætlunum sínum síðan þá. Fundurinn í gær hafi verið til þess gerður að stilla saman strengi íbú- anna, en stofnendur samtakanna hafa undanfarið fundað með bæjarfulltrú- um og kynnt sér málin rækilega. Skipulag reitsins verði óbreytt Breytingarnar sem gera þarf á að- alskipulagi hafa ekki verið auglýstar, en frestur til að gera athugasemdir við áætlanirnar stendur til 20. ágúst næstkomandi. Að því loknu hyggjast bæjaryfirvöld aðlaga þær tillögum íbúa að einhverju leyti, áður en aug- lýsing á deiliskipulagi fer fram. Harpa segir málið í raun ekki snú- ast um hversu mikið magn bygginga eða hversu háar byggingar séu fyr- irhugaðar, vilji íbúa sé sá að skipulagi reitsins verði ekki breytt yfirleitt heldur verði hann áfram útivistarreit- ur og þjónustusvæði, en íbúðabyggð rísi þar ekki. Íbúar í mörgum hverfum hafa á undanförnum árum látið í sér heyra vegna hárra og mikilla bygginga sem fyrirhugað hefur verið að reisa, en þær geta skert útsýni og haft í för með sér aukinn umferðarnið svo eitt- hvað sé nefnt. Hefur oftar en ekki verið komið til móts við kröfur íbúa. Harpa segir ekki vanþörf á því fyrir íbúa að hafa vaðið fyrir neðan sig. „Það er eins gott fyrir íbúa að fylgjast vel með því sem er að gerast, því ann- ars er hætta á því að svona lagað læð- ist inn í bakgarðinn hjá manni. Sagan segir okkur að maður þarf að vera vel á verði.“ Stórhýsi á græna reitinn? Morgunblaðið/Sverrir Smárinn Fjölmenni var á fundi áhugahópsins vegna skipulagsmála á Nónhæð sem haldinn var í gærkvöldi. Þar áformar Kópavogsbær að reisa háhýsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.