Morgunblaðið - 10.08.2007, Qupperneq 6
ÓLYMPÍUKEPPNIN í stærðfræði
fyrir framhaldsskólanemendur var
haldin í Hanoi í Víetnam síðustu vik-
una í júlí. Ísland átti fullskipað sex
manna lið í keppninni, en þar voru
520 keppendur frá um 90 löndum og
varð rússneska liðið hlutskarpast í
ár. Þrautirnar sem lagðar voru fyrir
ungmennin þóttu erfiðari nú en oft
áður því engum nemanda tókst að
leysa öll sex dæmin sem lögð voru
fyrir á tveimur dögum. Þau voru á
sviðum talnafræði, talningafræði, al-
gebru og rúmfræði. Íslenska liðið
fékk þjálfun fyrir keppnina með að-
stoð margra góðra stærðfræðinga.
Leysti dæmið fullkomlega
Guðmundur R. Gunnarsson, 18
ára nemi við eðlisfræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík, fékk heiðursvið-
urkenningu fyrir lausn sína á rúm-
fræðidæmi, en hann fékk fullt hús
stiga fyrir lausnina, sem var á fjórðu
blaðsíðu. Aðspurður segir hann sig
engan heimsmælikvarðamann í
stærðfræði, en ágætan þó. Guð-
mundi er greinilega margt til lista
lagt, en hann hélt rakleiðis heim til
Íslands eftir seinni keppnisdaginn til
þess að spila með meistaraflokki KR
í Evrópukeppninni í knattspyrnu á
móti sænska liðinu Hacken. Viku-
ferðalag hans til Asíu fól því í sér
fjögurra daga setu í flugvélum.
Að sögn Auðuns Sæmundssonar,
stærðfræðikennara og fararstjóra
íslenska liðsins, var aðbúnaður allur
mjög góður í Víetnam. Góð loftkæl-
ing skipti höfuðmáli enda 40 stiga
hiti í skugga og afar rakt. Öll örygg-
isgæsla var til fyrirmyndar. „Víet-
namar eru vinalegir og kurteisir í
framkomu og sú virðing sem eldra
fólki er sýnd er áberandi. Þjóðin er
ung, því um 60 prósent fólksins er 25
ára og yngra,“ segir Auðun. Þátt-
takendum var boðið í útsýnisferð til
Ha Long-flóa, þar sem siglt var um
nokkrar hinna tæplega 2.000 eyja
sem á honum eru.
Stóðu sig vel í ólympíukeppni í stærðfræði í Víetnam
Fullt hús stiga
fyrir lausn á
rúmfræðidæmi
Ljósmynd/Auðun Sæmundsson
Liðið Ögmundur Eiríksson, Jón Benediktsson, Guðmundur R. Gunnarsson,
Pétur Orri Ragnarsson og Einar A. Helgason. Fremst er Hlín Önnudóttir
ásamt víetnömskum leiðsögumanni..
Í HNOTSKURN
»18 ára Íslendingur fékk fullthús stiga fyrir lausn rúm-
fræðidæmis sem fæstum þátttak-
endum tókst að leysa.
»Öryggis þátttakenda var velgætt. Sjúkrabíll fylgdi þeim
eftir í öllum skoðunarferðum og
verðir voru við hótelin sem þeir
gistu.
»Dómnefndarfulltrúi fékkekki að fara út fyrir hótelið í
fyrstu vegna gæslu.
6 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LYFLÆKNINGASVIÐ 1 á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi (LSH)
verður væntanlega endurskipulagt
á næsta ári og
hluti af þjón-
ustunni fluttur
úr Fossvogi og
í sjúkrahúsið
við Hringbraut.
Niels Christian
Nielsen, settur
lækningafor-
stjóri Landspít-
ala – háskóla-
sjúkrahúss,
bindur vonir við
að þá verði hægt að fjölga gæsl-
urúmum vegna hjartaþræðinga.
Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að erfiðlega hefði gengið að
vinna á biðlistum eftir hjartaþræð-
ingum á spítalanum. Til þess
skorti tæki og fleiri rúm. Sjúkra-
húsið á nú tvö hjartaþræðingar-
tæki og er von á því þriðja á
næsta ári. „Við erum sífellt að
reyna að anna þessari gríðarlegu
þörf sem allstaðar er uppi,“ sagði
Niels. Hann sagði vissulega
óþægilegt að hafa langa biðlista,
en benti á að nú væri verið að
hjartaþræða um 150 sjúklinga í
hverjum mánuði. Á þessu ári
stefndi í að slíkum aðgerðum fjölg-
aði í 1.800, en þær voru 1.600 í
fyrra. Niels sagði að biðtími sjúk-
linga sem biðu hjartaþræðingar
væri tiltölulega stuttur að með-
altali eða einn og hálfur til tveir
mánuðir. Vegna forgangsröðunar
þyrftu þó einstaka sjúklingar að
bíða lengur.
Niels taldi að kaupin á hjarta-
þræðingartækinu yrðu ekki erf-
iðasti þröskuldurinn sem þyrfti að
yfirstíga. Stærsti vandinn yrði að
koma tækinu fyrir í þrengslunum
á sjúkrahúsinu. „Við viljum hafa
þessi þrjú tæki í nálægð hvert við
annað til þess að samnýta mann-
skap og annað. En þetta er ekki
auðvelt mál í þessum gríðarlegu
þrengslum,“ sagði Niels.
Niels sagði að oft þyrftu sjúk-
lingar sem fara í hjartaþræðingu
ekki að dvelja nema fram eftir
degi á sjúkrahúsinu eftir aðgerð,
þótt í sumum tilvikum væru þeir
yfir nótt. Því þyrfti ekki að bæta
við svo mörgum gæslurúmum.
Hann var vongóður um framhald-
ið. „Við aukum afköstin, það er
stefnt að því að bæta nýju tæki við
og ég vona að við getum leyst önn-
ur vandamál samhliða.“
Von um
fjölgun
gæslurúma
Niels Christian
Nielsen
Lítið pláss fyrir nýtt
hjartaþræðingartæki
KVIKUSTREYMI er frá kvikuhólfi
Öskju, sennilega niður á við, að sögn
Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings.
Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands eru nú við mælingar
og gagnasöfnun við Öskju, Upptypp-
inga, Kröflu, í Ódáðahrauni og munu
einnig mæla í kringum Hálslón.
Morgunblaðið náði tali af Páli í
gær þar sem hann var staddur í
Drekagili. Hann sagði að m.a. væri
verið að mæla landmælinganet yfir
flekaskilin kringum Öskju og Ódáða-
hraun. Þá hafa verið gerðar halla-
mælingar á Öskju, líkt og gert hefur
verið á hverju ári í 30 ár. Páll sagði
mælingarnar nú sýna „ótruflað og
venjulegt áframhald“ á kviku-
streyminu úr kvikuhólfi Öskju. Jarð-
skjálftavirknin við Upptyppinga
virðist ekki hafa haft áhrif á þetta.
Þéttu neti jarðskjálftamæla var
komið fyrir kringum Upptyppinga
fyrir þremur vikum, en þar hafa
mælst margir jarðskjálftar undan-
farið. Páll sagði það gera jarðskjálft-
ana við Upptyppinga óvenjulega
hvað þeir eru djúpir. „Þess vegna
eru þeir rannsóknarefni, annars
væru þeir það ekki. Jarðskjálftar
sem eru svona litlir eru algengir á Ís-
landi, en þetta dýpi á skjálftunum er
nýuppgötvað. Það þýðir að þeir eru
ekki tengdir venjulegum flekahreyf-
ingum, þótt þetta sé hér á flekaskil-
um. Þetta hlýtur að tengjast kviku-
hreyfingum í neðri hluta
jarðskorpunnar.“
Páll sagði að þessar kvikuhreyf-
ingar þyrftu ekki að boða eldgos.
„Meðan kvika er á hreyfingu er alltaf
sá möguleiki að hún komi upp á yf-
irborð. Það eru margir aðrir mögu-
leikar, m.a. að hún sé að fara niður
eða út á hlið eða að koma sér þarna
fyrir.“
Djúpstæðir
jarðskjálftar
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Imp-
regilo er nú farið að fækka starfs-
mönnum sínum við Kára-
hnjúkavirkjun. Stefnt er að því að
þeir verði um 200 þegar líður á
haustið, en verkþætti Impregilo
lýkur þó ekki fyrr en í ársbyrjun
2009 ef að líkum lætur. Vinnubúðir
verktakans með aðstöðu fyrir um
1.300 manns hafa nú verið auglýst-
ar til sölu en þar ræðir um marga
tugi skála af öllum stærðum og
gerðum, allt frá aðstöðu fyrir einn
upp í 20 manns. Heilbrigðiseftirlit
Austurlands undirbýr nú fyr-
irspurn til umhverfisráðuneytis
vegna hugsanlegrar óvissu um það
hver beri endanlega ábyrgð á að
fjarlægja búðirnar og á öllum
grunnum og lögnum sem þeim
tengjast, hvort sérstakt starfsleyfi
þurfi frá Heilbrigðiseftirlitinu
vegna niðurrifsins eða hvort þess
þurfi ekki. Ómar R. Valdimarsson
segir, að það sé innifalið í samn-
ingi Impregilo við Landsvirkjun,
að fyrirtækið skilji við fram-
kvæmdasvæðið fullfrágengið og
með sem minnstum ummerkjum
um þá mannabyggð sem verið hef-
ur við hnjúkana á framkvæmda-
tímanum. Fullvíst sé að búðirnar
og allt sem þeim tengist verði fjar-
lægt áður en verki Impregilo lýkur
formlega, annaðhvort af fyrirtæk-
inu sjálfu, kaupendum búðanna
eða undirverktökum Impregilo
sem skipta tugum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landsvirkjun er séð
til þess að verktakar gangi frá eft-
ir sig með því að halda loka-
greiðslu eftir þar til öruggt er, að
frágangur sé fullnægjandi.
Til sölu Margar vinnubúðir við Kárahnjúka eru stærðarhús.
Spurt um frágang vegna
vinnuskála við Kárahnjúka
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
HÁTÍÐIN Uppskera og handverk 2007 verður
sett í dag kl. 10 við Hrafnagilsskóla. Hátíðin er
haldin í tengslum við Húllumhæ – viðburðaviku
sem stendur yfir í Eyjafirði.
„Að þessu sinni er korn þema hátíðarinnar,“
segir Dóróthea Jónsdóttir framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar, „og ýmislegt korntengt er til sýnis á
hátíðinni“.
„Til dæmis verður kynning á kornrækt á Ís-
landi á vegum Landssambands kornbænda og Bú-
garðs,“ segir Elmar Sigurgeirsson, sem er í Hand-
verkshátíðarnefndinni.
Þau hafa frá ýmsu að segja sem verður til sýnis
í ár, til dæmis mótorhjóli í fullri stærð sem smíða-
hópurinn Einstakir skáru í tré, auk þess sem Grá-
listarhópurinn verður með myndlistarsýningu
undir berum himni í Galleríi Víðáttu 601.
Dimmuborgajóla-
sveinarnir líta við
Á meðal þess sem gefur að líta í dag eru
Dimmuborgajólasveinarnir sem eru stundvísir og
líta við kl. 15. „Þeir ætla að koma og tralla á svæð-
inu. Á eftir rölta þeir yfir í Jólagarðinn og hitta
þar kannski fyrir Grýlu,“ segir Dóróthea. Kl. 17
fer svo fram tískusýning.
Á morgun mun Valgerður Bjarnadóttir halda
fyrirlestur um kornið og ástina kl. 14 og Ljótu
hálfvitarnir spila um kvöldið í Laugarborg.
Auk þessa verða ýmis verðlaun veitt: Hand-
verksmaður ársins 2007 verður valinn og einnig
fallegasti landnámshaninn og -hænan á sýning-
unni. Námskeið eru í boði fyrir áhugasama, t.d. í
eldsmíði, leðursaumi, hálmfléttingu og þæfingu.
Sjá nánar á www.handverkshatid.is
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Korn Dóróthea, Elmar og kornöx en Dimmuborgajólasveinarnir líta við á hátíðinni í dag.
Uppskeru- og handverkshátíð við Hrafnagil