Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
678
678!
9
9
678
"*8
9
9
0:; /
9
9
1,
028
9
9
678#=>
678$?@
9
9
! "##$
%&
' ('
2& !
* !
A &
15 !
&
. ( ! B-
CD !
!E
5 -
7 D1
&(3*1%
,(
)
*& +
FG>
2D& !
2 D
2&& D+&(+
1
*
1 !
1H*
CD D !
7
/I%
, ( &
) &
% $, -.
J&2( (J
.*
.(! %
/ 0
) !&
, $K
!
?LM @N@ ==@
=L@ F== >=M
>?@ F=L =L=
?MF G@L F>G
?MF G=O N@O
=O GN> >L?
=? ??= @LG
F G>> FOL LL>
= ==@ GMF MLM
3
>MG FM> =G@
=O? ONO NOF
=G L== LOM
= >>@ @@@
3
>@F @GL
N ML> @?G
= =M@ ?LO
N>N =>@
LOM =MO
=GG M@@
=@ @>G OL=
=F> >FL
? @@@ @@@
3
N=O NNO G@@
3
3
LPN?
GGPF@
F>P>>
NGPG@
NMPM@
?@PO>
NMPG>
==>=P@@
FLPO@
N@P?>
>PM?
=@>P@@
FP@M
>PMN
==@>P@@
O=NP@@
=PGL
N?>P@@
>PL>
L>PF@
N@P@@
FLPM@
F@N>P@@
LPNL
GGPM@
F>PG@
NGPM@
NMPM>
?=P@@
NMPM>
==>MP@@
FLPM@
N@P>>
>PL@
=@GP>@
FP==
MGPF@
>PM?
==NFP@@
O=>P@@
=PO=
NG@P@@
GP@N
L>PO@
N=PL@
?@PN@
F@G>P@@
==PM@
GPO>
1%
!&
=F
=?
>G
F>
GN
M
N
=M=
MG
3
G>
=F
NF
=
3
=
M
N
>
M
N
=F
N
=
3
N>
3
3
0&
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
F@ O N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
N@ O N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
L M N@@O
N> O N@@O
L M N@@O
=M O N@@O
N@ G N@@O
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
RAUÐAR tölur gáfu til kynna fall á
öllum helstu hlutabréfavísitölum
heims í gær þegar fjárfestar flúðu
áhættusamar fjárfestingar af ótta
við alþjóðlegt hrun á lánamörkuðum.
Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um
1,6% og krónan um 2%. Vísitölur á
Norðurlöndunum lækkuðu um allt
að 3% og sama var með aðrar evr-
ópskar vísitölur. Þær tóku dýfu þeg-
ar evrópski Seðlabankinn tilkynnti
að hann myndi veita nær 95 millj-
örðum evra inn á evrópska banka-
markaðinn til að draga úr óróleik-
anum og koma í veg fyrir lausa-
fjárskort. Tilkynningin fylgdi í kjöl-
far ákvörðunar franska bankans
BNP Paribas að frysta innistæður í
þremur sjóðum sem höfðu fjárfest í
áhættusömum húsnæðislánum í
Bandaríkjunum. Taldi bankinn
ómögulegt að verðmeta ákveðnar
eignir á ótryggum markaði. Þetta
kom fram í frétt hjá Financial Times
sem bendir á að upphæð seðlabank-
ans sé hærri en sú upphæð sem
bankinn setti á markað eftir hryðju-
verkaárásirnar 11. september 2001.
Keðjuverkunin hélt síðan áfram til
Bandaríkjanna en þar féll Dow
Jones um 1,5%, S&P um 1,7% og
Nasdaq um 1,4%.
Óveruleg áhrif á Íslandi
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
sagði í RÚV að ólga á fjármálamörk-
uðum væri helst til komin vegna al-
þjóðlegs titrings. Krónan hefði verið
óvenju sterk að undanförnu og
hlutabréf hækkað meira á Íslandi
undanfarna mánuði heldur en ann-
ars staðar og því væri ekki hægt að
tala um hrun. Undir þetta tekur
Katrín Friðriksdóttir, forstöðumað-
ur greiningardeildar Landsbankans.
Hún segir lækkanir úrvalsvísitöl-
unnar undanfarið einfaldlega mega
skýra með því að markaðurinn sé að
leiðrétta verð. Áhrifin erlendis frá
smiti út frá sér á markaðinn þó þau
hafi ekki veruleg áhrif á rekstur
skráðra fyrirtækja.
Rauður dagur á
mörkuðum í gær
Í HNOTSKURN
»Upphaf óróleikans márekja til Bandaríkjanna
þar sem vogunarsjóðir veittu
svokölluð áhættusöm húsnæð-
islán til lántakenda sem alla
jafna nutu ekki lánstrausts.
»Lánin sem vogunarsjóð-irnir höfðu fengið að láni
hjá öðrum lánastofnunum
hafa nú unnvörpum komist í
vanskil með ófyrirséðum
snjóboltaáhrifum um allan
heim.
Reuters
Fall Verðbréfamiðlari í kauphöllinni á Wall Street í öngum sínum í gær þegar hlutabréf tóku að falla í verði.
● „VIÐ birtum al-
mennt nöfn aðila
sem fá stjórn-
valdssektir en
þegar málum er
vísað til lögreglu
er nafnbirting
háð því að gefin
verði út ákæra.
Brot eru send
áfram ef við teljum þau það alvarleg
að þau varði ákæru. Í þessum mál-
um ákvað lögreglan af einhverjum
ástæðum að fara ekki í refsimál og
heimta fésektir,“ segir Jónas Fr.
Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
(FME), um þá ákvörðun að birta ekki
nöfn aðila þegar upplýst var um brot
þeirra og sektargreiðslur. Eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í gær
sendi FME þrjú alvarleg brot á flögg-
unarskyldu í Kauphöll Íslands til Rík-
islögreglustjóra (RLS) og lauk þeim
með sektargreiðslum án ákæru.
Áttu von á ákæru
vegna flöggunarbrota
● NORSKA tryggingafélagið Store-
brand, sem Exista og Kaupþing eiga
samtals fjórðungshlut í, hagnaðist
um 599 milljónir norskra króna fyrir
skatta, eða 6,5 milljarða íslenskra
króna, á nýliðnum ársfjórðungi. Á
sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn
355 milljónum norskra króna og er
því um 69% aukningu að ræða.
Mestur var hagnaðurinn af líftrygg-
ingum, 463 milljónir, en hann var
282 milljónir í fyrra. Hagnaður af
eignastýringu tvöfaldaðist og var nú
64 milljónir. Heildareignir Store-
brand námu 40 milljörðum norskra
króna í lok júnímánaðar.
Afkoma Storebrand
yfir væntingum
● HAGNAÐUR Sampo í Finnlandi,
sem Exista á tæp 20% í, var 289
milljónir evra fyrir skatta á öðrum
fjórðungi þessa árs. Upphæðin sam-
svarar rúmum 25 milljörðum króna
og er 30% aukning frá sama tímabili í
fyrra. Hagnaður fyrir skatta af trygg-
ingastarfsemi nær þrefaldaðist, úr
53 milljónum evra í 142 milljónir.
Tekjur af fjárfestingum námu nú 61
milljón evra, samanborið við 15 millj-
óna evra tap í fyrra.
Á fyrri árshelmingi nam hagnaður-
inn fyrir skatta 3,4 milljörðum evra,
þar af voru 2,8 milljarðar vegna sölu
bankastarfsemi Sampo til Danske
Bank.
Hagnaður Sampo
eykst um 20%
REKSTRARTAP 365 miðla eftir
skatta á öðrum ársfjórðungi nemur
um 45 milljónum króna samanborið
við 1.327 milljónir á sama tíma í
fyrra, en þá var 365 enn hluti af
Dagsbrúnarsamstæðunni. Alls nem-
ur tap 365 á fyrri helmingi ársins um
80 milljónum á móti 1.522 milljónum
á sama tíma í fyrra.
Rekstrartekjur félagsins á fyrri
hluta ársins námu um 5.495 milljón-
um á móti 5.368 milljónum fyrir
sama tímabil 2006. Rekstrarkostnað-
ur lækkar úr 3.809 milljónum í 3.482
milljónir á fyrri helmingi þessa árs.
Handbært fé og markaðsverðbréf
námu 733 milljónum í lok tímabils-
ins. Eigið fé var rúmir 6 milljarðar
Minna tap hjá 365
og eiginfjárhlutfall var 35,3%. Veltu-
fjárhlutfallið var 1,08% en var um
síðustu áramót 0,62% .
Ari Edwald forstjóri segir í til-
kynningu rekstrarárangur á fyrri
helmingi ársins vera vel viðunandi
og staðfesta umskipti á rekstri fé-
lagsins. Hann segir stjórnendur fé-
lagsins telja að afþreyingarhluti fé-
lagsins geti gert enn betur en
niðurstöður annars ársfjórðungs
sýni. Jafnframt hafi mikilvægt skref
verið stigið til að styrkja stöðu fé-
lagsins til framtíðar, með sölu á eign-
um og endurfjármögnun sem lauk
nýlega.
Helstu rekstrareiningar 365 hf.
eru 365 miðlar ehf., Sena ehf., Saga-
film ehf., D3 ehf. og Innn hf.
Uppgjör
365 hf.
sigrunrosa@mbl.is
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í hjá
öllum úrvalsvísitölufélögunum í
Kauphöll OMX á Íslandi. Úrvals-
vísitala OMXI15 endaði í 8.280 stig-
um og hafði þá lækkað um 1,61%.
Mest lækkuðu bréf í FL Group, um
2,2%. Bréf Kaupþings lækkuðu um
2% en viðskipti með þau námu ríf-
lega helmingi hlutabréfaviðskipta
dagsins. Heildarvelta dagsins var
nálægt 21 milljarði og voru um tveir
þriðju með skuldabréf.
Gengisvísitala krónunnar stóð í
119,72 stigum og hafði krónan því
lækkað um tæp 1,9% í gær.
Lækkanir í kauphöll
KAUPHÖLLIN í Dubai hefur á ný
sýnt sænska félaginu OMX áhuga,
sem m.a. rekur kauphöllina hér á
landi. Fregnir bárust af því í gær að
tilboð í allt að 25% hlutabréf OMX
væri væntanlegt frá Dubai og við það
hækkuðu bréfin í kauphallarfélaginu
snarlega. Í lok dags höfðu bréfin
hækkað um 6,5% og talið að kauphöll-
inni í Dubai hafi tekist að kaupa 4,9%
hlut í OMX í fyrstu atrennu. Sem kunnugt er hefur stjórn
OMX samþykkt 3,7 milljarða dollara yfirtökutilboð frá
bandaríska verðbréfamarkaðnum Nasdaq. Í frásögn
Dagens Industri í gær kom fram að Dubai vildi freista
þess að yfirbjóða Nasdaq og kaupa bréf á genginu 230
krónur sænskar. Tilboð Bandaríkjamanna hafði hljóðað
upp á 201 krónu á hlut. Segir DI að ekki sé algjör ein-
hugur meðal helstu hluthafa OMX um tilboð Nasdaq.
Þegar viðskiptum lauk í gær var gengi bréfa OMX komið
í ríflega 231 krónu, sem er 6,5% hækkun frá miðvikudegi.
Kauphöllin í Dubai kaupir í OMX
HAGNAÐUR
Actavis á fyrri
helmingi ársins
nam 56,3 millj-
ónum evra (um
fimm milljörðum
króna), saman-
borið við 61,9
milljarða hagnað
á sama tímabili í
fyrra. Tekjur
námu 744,2 milljónum evra, en voru
684,3 milljónir fyrstu sex mánuði
ársins 2006. Mun á hagnaði má að
hluta rekja til aukins fjármagns-
kostnaðar, en hreinn fjármagns-
kostnaður á fyrri helmingi árs 2006
nam 24,5 milljónum evra, en 39,1
milljón á sama tíma í ár. Vaxta-
greiðslur af lánum jukust um 15
milljónir evra á milli ára.
Þynntur hagnaður á hlut nam
0,00990 evrum á fyrri hluta ársins,
en 0,01188 evrum á í fyrra. Eignir
samstæðunnar jukust um tæpar 360
milljónir evra og voru í lok tíma-
bilsins 2.937,7 milljónir.
Alls voru markaðssett 145 sam-
heitalyf í fjórðungnum og alls 225 á
fyrri helmingi ársins.
Róbert Wessman, forstjóri Actav-
is, segir í tilkynningu að staða fyr-
irtækisins í Austur-Evrópu haldi
áfram að styrkjast og enn sjáist
góður árangur í V-Evrópu. Þróun-
arstarf hafi gengið sérlega vel og
skráningar á nýjum lyfjum hafi
aldrei verið fleiri, sem styðja muni
við vöxt félagsins þar á næsta ári.
Félagið sé því vel í stakk búið til að
auka markaðshlutdeild sína.
Aukinn
kostnaður
Uppgjör
Actavis
bjarni@mbl.is
Róbert Wessman
ÞÝSKI bankinn Commerzbank,
sem FL Group á 3,24% hlut í, birti í
gær uppgjör sitt fyrir annan árs-
fjórðung, sem var mun betra en
greiningardeildir banka höfðu
spáð. Hagnaður hluthafa á fjórð-
ungnum nam 768 milljónum evra,
jafnvirði um 68 milljarða króna.
Hagnaður á fyrri helmingi ársins
nam 1.377 milljónum evra og mun
þetta vera besti árangur bankans
frá upphafi. Í Morgunkorni Glitnis
segir að sterkur innri vöxtur sé
meginskýring aukins hagnaðar en
góður gangur í þýska hagkerfinu
hafi stutt vel við starfsemi bankans.
Vegna afskrifta af áhættusömum
húsnæðislánum í Bandaríkjunum
hefur gengi bréfa bankans hins
vegar lækkað síðustu daga.
Commerzbank
með methagnað
● STRAUMUR-Burðarás Fjárfest-
ingabanki hefur selt öll hlutabréf sín
í Teymi; móðurfélagi Vodafone,
Skýrr, EJS, Kögunar og fleiri fyrir-
tækja í fjarskiptum og upplýsinga-
tækni.
Um var að ræða 5,6% hlut, nærri
200 milljónir hluta, og söluandvirðið
nemur rúmum milljarði króna. Í til-
kynningum til kauphallar má ráða að
stærstan hluta bréfanna keypti
Teymi sjálft, eða 100 milljónir hluta.
Fyrir kaupin átti Teymi 3,3% hlut í
sjálfu sér en fer nú upp í 6,06% af
heildarhlutafé félagsins.
Straumur úr Teymi
♦♦♦