Morgunblaðið - 10.08.2007, Qupperneq 18
|föstudagur|10. 8. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Skammt frá smábænum Ebel-
toft á Jótlandi er Svava Svans-
dóttir og fjölskylda með hesta-
rækt og gistiheimili. » 22
daglegt
Kínamúrinn var nýlega opnaður
þar sem Naustið var áður.
Steingrímur Sigurgeirsson
kynnti sér staðinn. » 20
veitingahús
Mataráhuginn hefur fylgt Halli
Guðjónssyni frá því í æsku og
hann hefur gaman af að elda
fyrir fjölskylduna. » 20
matur
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Það verður mikið að gera um helgina hjá PálínuVagnsdóttur en hún stendur að listasumri íSúðavík ásamt Súðavíkurhrepp, Sumarbyggðehf. og Félagi íslenskra hljómlistarmanna en
hátíðin er nú haldin í níunda sinn og er ætlað að styrkja
mannlíf og menningarlíf í Súðavík og reyndar almennt á
Vestfjörðum.
Pálína heldur hátíðina í annað skiptið í eigin nafni en
fær til þess styrk frá hreppnum.
Það má því segja að helgin sé því nokkuð frábrugðin
hefðbundnum helgum hjá Pálínu þar sem hún verður á
kafi í hátíðahöldum að þessu sinni, en alla jafna fara helg-
arnar í að næra líkama og sál og kýs hún þá að eyða tím-
anum með börnunum og sínum nánustu.
„Ég eyði tíma með börnunum mínum tveimur, það
finnst mér mjög mikilvægt en ég vil líka komast í burtu
og hlusta einhvers staðar á lifandi tónlist – annaðhvort
með börnunum eða án, eftir því hvað er í boði. Minni
strákurinn minn er þrettán ára og er að læra á gítar og
því reyni ég að fara með börnin á menningarviðburði því
mér finnst það skipta miklu máli.“ segir Pálína sem aug-
ljóslega metur menningu mikils í einkalífinu líka.
Hreyfing skipar stærri sess
Pálína eyðir einnig drjúgum tíma í skipulagningu at-
burðar eins og listasumarsins í Súðavík en slík vinna get-
ur verið mjög krefjandi og því gott að vera í sem bestu
formi.
„Ég er allt í einu að fatta það, rúmlega fjörtíu ára göm-
ul, að það er mjög mikilvægt að fara út og hreyfa svolítið
á sér rassinn,“ segir Pálína og hlær. „Ég fór í fjallgöngu
fyrir tveimur helgum og gaf mér stóran plús fyrir það
þar sem ég er ekki alveg á þessari línu. Reyndar finnst
mér alveg eins gott að fara á almennilegt ball og dansa
aðeins – svo er náttúrulega mjög gott að hitta ástmann
sinn sem er í fjarlægð.“ Hún segir sínar helgar snúast því
almennt um það að hlúa dálítið að fjölskyldunni og sínum
innsta kjarna og ítrekar að þegar öllu er á botninn hvolft
þá séu það hennar nánustu sem skipta mestu máli.
Bolvíkingurinn Pálína á líka marga vini og stóra fjöl-
Listasumar Pálína
Vagnsdóttir ræður
ríkjum á listasumri í
Súðavík sem verður
haldið um helgina en
hátíðin er heimilisleg
list-, menningar- og
fjölskylduhátíð við
allra hæfi.
Kjarninn er að láta
hjartað ráða för
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Brekkusöngur Listahátíð í Súðavík hefur skapað sér sess meðal heima-
manna og sumarbúa og dregur að sér fjölda þekktra listamanna.
Hesteyri í Jökulsfjörðum: Þar sem maður
borðar þegar maður er svangur, sefur
þegar maður er þreyttur og þar er ekkert
rafmagn og enginn sími.
Cashew-hnetum: Í staðinn fyrir að nota
furuhnetur í salat má nota þurrsteiktar,
sírópslegnar og svo þurrkaðar cashew-
hnetur sem eru algjört sælgæti.
Landsbyggðinni: Þeir sem búa í borginni
ættu að taka púlsinn á landsbyggðinni.
Uppáhaldsbókin: Munkurinn sem seldi
sportbílinn sinn eftir Robin S. Sharma því
bókin getur hjálpað manni að stokka upp
líf sitt.
Tónlist: Tónlistin úr kvikmyndinni
Dreamgirls er alveg frábær.
Pálina mælir með
ÞAÐ verður ekki ann-
að sagt en að fágaður
glæsileiki einkenni
klæðnaðinn sem hér
ber fyrir augu. Píf-
urnar, glansefnin og
kvenlegu línurnar litu
að minnsta kosti vel út
á rauða dreglinum á
hvaða dívu sem væri,
ekki síður en fyrirsæt-
unum sem klæðin
bera.
Þessir glæsikjólar
voru meðal þess sem
fyrir augu bar við upp-
haf tískuvikunnar sem
hófst í Höfðaborg í
Suður-Afríku á mið-
vikudag. Vetrarlegt
litavalið fellur vel að
komandi árstíð og
minnir Frónbúa á
haustið sem óumflýj-
anlega er á næsta leiti.
Umvafin pífum Dempaðir
bláir litir frá hönnuðinum
Thula Sindi.
Reuters
Rautt á hvítu Kvenlegar línur einkenna
þennan kjól Thabani Mavundla.
Í anda fortíðar Fínlegur
hettukjóll á miðaldalegum
nótum frá Craig Jacobs. Vetrarleg Einfaldur og kvenlegur kjóll frá Craig Jacobs.
Fágun og kvenlegar línur
skyldu og mætti segja að hún næri andann í góðra vina
hópi en það er einmitt þema núverandi listasumars í
Súðavík – að láta hjartað ráða för. „Ég stýri hátíðinni
sem fer inn á menningu og listir, útiveru, íþróttir, sam-
vinnu, samveru og kærleikurinn ræður eiginlega bara
förinni.“ segir Pálína. „Það er heill hópur af fólki í félagi
sumarbúa sem kemur bara yfir sumarið til Súðavíkur og
sjálf gerist ég alltaf Súðvíkingur í fjóra daga á meðan há-
tíðin stendur og því nýtir maður þessar stundir alveg út í
ystu æsar.“
TENGLAR
..................................................................................
www.netheimar.com/listasumar