Morgunblaðið - 10.08.2007, Page 19
mælt með
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 19
BÖRN HLAUPAFYRIR BÖRN 18. ÁGÚST
18. ÁGÚST 2007
GLITNIS
REYKJAVÍKURMARAÞON
Nú er skráning hafin í Latabæjarhlaupið sem verður haldið
18. ágúst fyrir framan Háskóla Íslands. Hlaupið er 1 km
að lengd og sérstaklega ætlað börnum 9 ára og yngri.Þátttökugjald í Latabæjarhlaupinu rennur óskipt
til UNICEF – Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.Nánari upplýsingar og skráning á www.glitnir.is.Allir sigra 18. ágúst!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Hinsegin dagar
Í gær hófust hinsegin dagar og er
þessi hátíð samkynhneigðra jafnan
vel sótt enda er mannlífið fjölbreytt
og litadýrðin á varla nokkurn sinn
líka. Q-bar mun verða áberandi um
helgina en þar verður klúbbur hin-
segin daga alla helgina en einnig
verður hellingur af öðrum við-
burðum eins og stelpna- og stráka-
ball á föstudegi, gleðigangan sem
margir vilja sjá verður farin frá
Hlemmi klukkan 14 á laugardaginn
og á sunnudag verður forsýning á
kvikmyndinni Hairspray í Háskóla-
bíói.
Hátíð hjartans
Í níunda sinn verður haldið lista-
sumar í Súðavík og stendur hátíðin
fram á sunnudag. Hátíðin hefur ver-
ið vel sótt síðustu ár og ætti að henta
vel fjölskyldufólki. Áherslan er lögð
á lista- og menningarviðburði og
verða af því tilefni margir þekktir
listamenn í Súðavík; Andrea Gylfa-
dóttir og Blúsmennirnir þeir Guð-
mundur Pétursson á gítar, Einar
Rúnarsson á Hammond orgeli, Har-
aldur Þorsteinsson á bassa og Jó-
hann Hjörleifsson á trommum. Gít-
aristar, tenórar og hin þekkta
hljómsveit Todmobile verða líka í
Súðavík.
Það ætti að finnast eitthvað við
allra hæfi í fjölbreyttri dagskránni
því hún spannar allt frá gönguferð-
um til kraftakeppna.
Millarnir með spariball
Á laugardaginn verður hinn árlegi
sparidansleikur Milljónamæring-
anna á Broadway og verður þar
haldið upp á 15 ára afmæli Millanna.
Stefán Hilmarson, Raggi Bjarna,
Bjarni Ara og Bogomil Font verða
allir með ásamt Ladda sem verður
heiðursgestur enda á hann ásamt
millunum einn af sumarsmellum árs-
ins.
Vatnsleysuströnd á
Reykjanesi
Á sunnudeginum verður menning-
ar- og sögutengd gönguferð um
Vatnsleysuströnd á Reykjanesi en
gangan á að vera fræðandi fyrir alla
fjölskylduna og ætti ekki að taka
meira en 2-3 tíma. Gönguferðin hefst
við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu-
strönd og verður genginn hringur
frá Kálfatjörn um Þórustaðastíg
sem er gömul þjóðleið, að Þóru-
staðaborg og Staðarborg sem eru
gamlar fjárborgir og endað á Kálfa-
tjörn. Á svæðinu er mikið af minjum
og mun leiðsögumaður segja magn-
aðar sögur á leiðinni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Morgunblaðið/Einar Falur
Morgunblaðið/ÞÖK
Hallmundur Kristinsson segistoft fyllast stolti yfir því hve
Akureyringar séu klárir og yrkir í
tilefni af því að gripið var til
aldurstakmarkana á tjaldstæði um
verslunarmannahelgina:
Hinir meira en meðalsnjöllu
missa oft af lestunum.
Haldin verður ein með öllu
öðru en veislugestunum.
Hjálmar Freysteinsson læknir
fyrir norðan bætir við í sama dúr:
Svo í bænum styttra staldri
til stórra bóta þætti mér,
að fólk sem er undir fimmtugsaldri
fengi ekki að tjalda hér.
Og þetta:
Veginn fram til góðs við gengum
með gáfulegum bönnum,
á hátíðinni „Ein með engum“
(utanbæjarmönnum).
Davíð Hjálmar Haraldsson
svarar:
Víst er hér í bænum frekar fátt,
friðurinn er tekinn við af sollinum.
Hvergi riðlast drukkin börn við drátt
en Drottins andi svífur yfir Pollinum.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af útihátíð
með öllu
KALORÍUSKERTAR útgáfur af
matartegundum sem venjulega eru
kaloríuríkar
kunna að leiða til
þess að börn
borði of mikið án
þess að gera sér
grein fyrir því
segir í rannsókn
sem greint var
frá á vefmiðli
BBC í vikunni.
Rannsóknin, sem
unnin var við háskólann í Alberta,
var framkvæmd á ungum rottum og
sýndi sig þar að þeim dýrum sem
fengu kaloríusnauða fæðu var hætt-
ar til að borða meira en þau þurftu,
hvort sem þau voru grönn eða of feit.
Telja vísindamennirnir, sem birtu
niðurstöður rannsóknar sinnar í
tímaritinu Obesity, að kaloríusnauð
útgáfa af kaloríuríkri fæðu dragi úr
hæfni líkamans til að nota bragð-
skynið til að stjórna kaloríuþörf lík-
amans.
„Samkvæmt því sem við sjáum þá
er betra fyrir börn að borða hollan
mat úr fjölbreyttri fæðu sem gefur
þeim nóg að brenna í stað kaloríus-
nauðs snarls,“ segir prófessor David
Pierce sem fór fyrir rannsókninni.
Eldri rottur brugðust hins vegar
ekki við kaloríusnauðu fæðunni með
sama hætti og börnin og telja vís-
indamennirnir ástæðu þess að þeir
sem eldri séu treysti á fleiri þætti en
bragðskyn þegar kemur að orkuþörf
dagsins.
Megrunar-
fæði fitandi?