Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 20
matur
20 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Steingrímur Sigurgeirsson
gagnrýnir veitingastaðinn
Kínamúrinn við Vesturgötuna.
Kínamúrinn
Vesturgötu 6-8
Pöntunarsími: 552 1900
Það voru vissulega tíðindiþegar tilkynnt var að tilstæði að opna hágæða kín-verskt veitingahús við
Vesturgötu í því húsnæði sem ára-
tugum saman var þekkt sem aðsetur
veitingahússins Naustið. Ekki ein-
ungis vegna þess að skortur hefur
verið á slíku veitingahúsi heldur ekki
síður sökum þess að varla var hægt
að hugsa sér „þjóðlegra“ veitingahús
en Naustið.
Húsið var á sínum tíma innréttað
með þeim hætti að það ætti að minna
á skip og var lengi eitt vinsælasta
veitingahús landsins. Það er hins
vegar löngu liðin tíð og tilraunir til
að endurreisa Naustið í sinni fornu
reisn hafa ekki borið árangur.
Nú má líklega ætla að Naustið til-
heyri endanlega sögunni því þvílíkar
breytingar hafa verið gerðar á hús-
næðinu að það er fátt ef nokkuð eftir
sem minnir á gamla tíma. Meira að
segja gömlu og hringlóttu skips-
gluggarnir, sem gáfu húsinu sinn
sérstæða svip, eru horfnir og hefð-
bundnir gluggar komnir í þeirra stað
sem óneitanlega hefur mjög jákvæð
áhrif á birtuskilyrði innandyra.
Þarna opnaði fyrir skömmu veit-
ingastaðurinn Kínamúrinn og það
leynir sér ekki þegar komið er að
húsinu að þar er nú starfræktur kín-
verskur veitingastaður. Meira að
segja þakskeggið hefur tekið á sig
kínverskan blæ. Það verður að segj-
ast eins og er að allar þessar breyt-
ingar eru ágætlega vel heppnaðar
þótt mörgum hafi reynst erfitt að
ímynda sér kínverskt veitingahús á
þessum stað.
Þegar inn er komið sést hvílíkar
breytingar hafa verið gerðar. Veit-
ingasalurinn er stór, bjartur og
smekklegur með þykku teppi á gólfi
og ljósum veggjum. Austurlenskur
bragur er á innréttingum en hóf-
stilltur þó, engir plastdrekar hanga
niður úr loftunum.
Allur borðbúnaður er sömuleiðis
vandaður og yfirbragð staðarins allt
hið fágaðasta.
Það sem veldur hins vegar því
miður vonbrigðum er maturinn sjálf-
ur. Hann bætir litlu við það sem þeg-
ar hefur verið á boðstólum í bænum
á minni og látlausari kínverskum
veitingahúsum.
Matseðillinn er hefðbundinn, úr-
val forrétta og svo fjölmargir réttir
þar sem mismunandi aðferðum er
beitt við eldun á kjúkling, nauti,
lambakjöti önd auk úrvals núðlu- og
hrísgrjónarétta.
Forréttirnir voru flestir djúp-
steiktir og skammtastærðir litlar, að
minnsta kosti miðað við það sem
maður átti von á miðað við verðlagn-
ingu. Tvær smáar kínarúllur voru
ágætar en djúpsteikt wonton lítið
annað en nokkrir bitar af djúp-
steiktu deigi með sýnishorni af fyll-
ingu. Satay-kjúklingur voru nokkrir
steiktir bitar á pinna með sérstæðu,
allt að því fráhrindandi bragði þar
sem engan vott var af finna af jarð-
hnetum sem þó eru yfirleitt alfa og
omega satay-rétta, hvort sem um er
að ræða hina upprunalegu suðaust-
urasísku útgáfu eða hina kínversku.
Fyrsti aðalrétturinn var kjúklingur
með hvítlauk og engifer og reyndist
það vera diskur af húðuðum og
djúpsteiktum bitum, ansi bragðlitl-
um og óspennandi. Þarna mátti með
góðum vilja greina dauft hvítlauks-
bragð en engifer tókst engum að
finna.
Singapore-núðlur hins vegar
ágætar ljósar núðlur með kjúklinga-
bitum og rækjum þótt fara hefði
mátt sparlegar með soja-sósuna áð-
ur en hann kom á borðið.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Austrænn Það leynir sér ekki er inn er komið að kínverskur veitingastaður hefur tekið við af Naustinu.
Kínamúrinn
í Naustinu
Það má eiginlega segja aðmataráhuginn hafi fylgtmér allt frá æsku,“ segirHallur Guðjónsson sál-
fræðingur sem galdraði fram fljót-
lega veislurétti fyrir lesendur Dag-
legs lífs. „Foreldrar mínir eru bæði
ágætis kokkar og ég held að ég hafi
erft áhugann frá þeim. Ég eldaði að
minnsta kosti stundum heima sem
unglingur og svo að sjálfsögðu í mat-
reiðslutímum í skólanum.“
Hallur lagði ekki eldamennskuna
á hilluna er hann flutti að heiman og
sér raunar, fjölskyldu sinni til
ánægju, að mestu um matseldina á
heimili sínu í dag. Þrettán ára dóttir
hans virðist svo hafa erft matreiðslu-
genið. „Hún hefur gaman af að
spreyta sig í eldhúsinu og ég reyni
að ýta undir það.“
Ítalskur matur er í töluverðu
uppáhaldi hjá fjölskyldunni og þá
sérstaklega heitir pastaréttir segir
Hallur og nefnir sem dæmi ofnbak-
aða rétti á borð við lasagna og svo
pasta með osta- og rjómasósum.
„Þetta kemur samt svolítið úr öll-
um áttum,“ bætir hann við og kveðst
nokkuð duglegur að prufa nýja rétti.
„Við höfum líka ferðast töluvert í
gegnum tíðina og á þeim ferðum
pikkar maður upp ýmsa rétti. Ítalía
hefur þannig reynst uppspretta
góðra mataruppskrifta og sömuleið-
is Frakkland, þar sem má finna
marga góða rétti.“
Skapandi skemmtun
Matreiðslubækur reynast Halli
líka vel við eldamennskuna og segist
hann til að mynda hafa gaman af því
að sitja með matreiðslubækur yfir
sjónvarpinu. Hann fylgir þó ekki
eingöngu uppskriftum annarra,
heldur breytir hann líka upp-
skriftum og þróar aðrar frá grunni.
„Oft er þetta eitthvað sem maður
hefur fengið einhvers staðar og
reynir síðan að skapa sjálfur, nú eða
þá að um er að ræða uppskrift af
rétti sem manni finnst ágætur en
sem samt megi bæta.“
Þó að pasta sé í miklu uppáhaldi
hjá fjölskyldunni er kjúklingur,
svínakjöt og fiskur þó ekki síður oft
á borðum. „Við bjuggum úti í Dan-
mörku um þriggja ára skeið og þeir
gera mikið af því að elda úr kjúklingi
og svínakjöti. Þar var þetta ódýr
matur og hentaði vel okkur fátæku
námsmönnunum,“ segir Hallur sem
hefur haldið áfram að nota þetta
hráefni. „Ég keypti mér líka mat-
reiðslubækur úti sem ég hef notað
mikið.“
Réttirnir sem Hallur gefur les-
endum uppskriftirnar að eiga líka
rætur sínar að rekja til Danmerk-
uráranna, þó hann segist gera lítið af
því að elda að dönskum sið.
„Kjúklingarétturinn er þó í
grunninn dönsk uppskrift sem ég
hef breytt og sósan með forréttinum
er sömuleiðis dönsk, eftirrétturinn
er hins vegar fenginn frá konunni
minni sem á heiðurinn að þessu sæta
ávaxtasalati.“
Rækjuforréttur
fyrir fjóra
400 g rækjur
Sósa:
50 g majónes
50 g sýrður rjómi
2 tsk. dijon sinnep
1 tsk. chili krydd
1-2 tsk. ferskt dill, smátt saxað
Rækjunum er raðað á ferskt
salatblað, tvær til þrjár teskeiðar af
sósu eru síðan settar yfir og skreytt
með dilli.
Borið fram með ristuðu brauði.
Hversdagsréttir í sparibúningi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kokkurinn Hallur Guðjónsson hefur gaman af góðum mat og sér að mestu leyti um eldamennskuna á sínu heimili.
Pastaréttir eru í miklu
uppáhaldi hjá fjölskyld-
unni, þó áhrifa frá Dan-
merkurdvöl gæti líka í
eldamennskunni. Anna
Sigríður Einarsdóttir
gægðist í pottana hjá
Halli Guðjónssyni, sem
hefur gaman af að galdra
fram góða rétti.