Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 42
Morgunblaðið/G.Rúnar
Breyting Arna segir Samtökin ’78 eiga mikinn
heiður að því hversu margt hefur breyst til batn-
aðar hvað hagi samkynhneigðra varðar.
UMRÆÐAN um samkynhneigð hefur
breyst mikið á undanförnum árum og með
aukinni umræðu í samfélaginu reynist það
vonandi mörgum auðveldara að sætta sig
við kynhneigð sína og koma út úr skápnum.
Þrjú eru síðan Arna Arinbjarnardóttir
kom út úr skápnum.
„Það var fyrst og fremst erfitt fyrir sjálfa
mig að sætta mig við hvernig ég er en þegar
ég svo loksins kom út var þetta ekkert mál,“
segir Arna og segir það ekkert tiltökumál
að vera samkynhneigður Íslendingur í dag.
„Það er í raun rosa lítið mál að vera lesbía
í dag. Ég verð næstum aldrei fyrir neinum
fordómum, nema kannski einstaka leið-
inlegum ummælum á djamminu, eitthvað
sem á að vera fyndið en er það ekki,“ segir
Arna.
Hún tekur undir að mikið hafi breyst í
málefnum samkynhneigðra undanfarna
áratugi hér á landi. „Reyndar hefur mjög
mikið breyst bara á undanförnum fimm ár-
um,“ segir hún.
En hverju þakkar Arna þessar breyt-
ingar?
„Það eru auðvitað fyrst og fremst Sam-
tökin ’78 og allt þeirra góða starf sem og all-
ir hinir sem hafa verið að berjast fyrir rétt-
indum okkar samkynhneigðra,“ segir Arna
en hún lætur sitt ekki eftir liggja í barátt-
unni, verandi einn umsjónarmanna Ung-
liðahóps Samtakanna.
Hópurinn er vettvangur fyrir samkyn-
hneigð ungmenni, á aldrinum 14 til 20 ára
til að hittast. Fundir eru haldnir einu sinni í
viku auk þess sem hópurinn skipuleggur
skemmtanir þess á milli.
Arna segir mikið af fólki leita til þeirra.
„Við erum með 40 til 50 manns á póstlista
og erum 25 til 30 sem tökum þátt í göngunni
á morgun. Það eru svipað margir sem mæta
á sunnudagskvöldum,“ segir hún.
Hinsegin dagar fyrir okkur
Um mikilvægi Hinsegin daga segir Arna:
„Mér finnst þeir mjög mikilvægir fyrir
okkur. Þetta er skemmtilegasti tími ársins
því þessa nokkra daga eigum við sjálf og
fáum að vera sýnileg. Ég veit ekki hvort
Hinsegin dagar hjálpa mikið í réttindabar-
áttunni. Ég hef heyrt gagnkynhneigt fólk
halda því fram að Gleðigangan veki meiri
fordóma hjá fólki en ekki en það finnst mér
mikið bull,“ segir Arna að lokum.
Hinsegin dagar
Arna Arinbjarnardóttir kom
út úr skápnum fyrir þremur árum
Lítið mál að vera lesbía
42 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*The Transformers kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára
The Transformers kl. 5 - 8 - 11 LÚXUS
The Simpsons m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10
The Simpsons m/ísl. tali kl. 4 - 6 - 8 - 10
Evan Almighty kl. 4 - 6
Die Hard 4.0 kl. 8 - 10.45 B.i. 14 ára
eee
- Þ.Þ., Mannlíf
eeee
- T.S.K., Blaðið
eee
- S.V., MBL
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
„Gerir þig æstan fyrir kvikmyndum á nýjan leik.“
- Peter Travers, Rolling Stone
Frá leikstjóra Sin City
BRUCE WILLIS ROSE MCGOWAN FERGIE
STÆRSTA MYND SUMARSINS
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
eee
- ROGER EBERT
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eee
- R.V.E., FBL
EIN BESTA ÁSTARSAGA ALLRA TÍMA BYGGÐ
Á ÆVI RITHÖFUNDARINS JANE AUSTEN
BAKVIÐ ALLAR
GÓÐAR ÁSTAR-
MYNDIR ER
FRÁBÆR SAGA
42.000
G
ESTIR
Á
10
DÖ
G
UM
33
.0
00
G
ES
TI
R
Sýnd í
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Planet Terror kl. 10 B.i. 16 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
The Simpsons m/ísl. tali kl. 6
The Invisible kl. 10
Becoming Jane kl. 5:30 - 8 - 10:30
Planet Terror kl. 5:20 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 6:30 - 8:30 - 10:30
Death Proof kl. 5:20 - 10 B.i. 16 ára
1408 kl. 8 B.i. 16 ára
V.I.J. – Blaðið
Í DAG, FÖSTUDAG
20.00 - Opnunarhátíð fer fram í Loftkastalan-
um. Indverski dansarinn Sonny, Miss Vicky,
Magga Stína, Pay TV og Q-Boy.
00.00 - Stelpnaball á Q-Bar: DJ Eva María og
Birna Hrönn.
Strákaball á Barnum: DJ Fairyboy.
Á MORGUN, LAUGARDAG
10.00 - Upphitun á Q-Bar, klúbbi Hinsegin
daga.
12.30 - Gleðigöngunni stillt upp á Hlemmi.
14.00 - Gleðigangan leggur af stað frá Hlemmi
eftir Laugavegi og niður í Lækjargötu.
15.15 - Hinsegin hátíð í Lækjargötu. Fram
koma Sarah Greenwood, QBoy, Pay TV, Frið-
rik Ómar, Tommi Tomm og hljómsveit, Hara-
systur og fleiri.
23.00 - Hátíðardansleikur á Nasa þar sem DJ
Páll Óskar þeytir skífum.
SUNNUDAGUR
10.00 - Upphitun á Q-Bar.
17.30 - Sérstök forsýning á kvikmyndinni
Hairspray.
20.00 - Guðsþjónusta í Laugarneskirkju. Sr.
Bjarni Karlsson og sr. Hildur Eir Bolladóttir
predika.
Dagskrá Hinsegin daga