Morgunblaðið - 10.08.2007, Page 48
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 222. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Komust lífs af þegar
flugvél brotlenti
Lítil tveggja sæta flugvél af gerð-
inni Cessna-152 brotlenti í hrauni
um sex kílómetra sunnan við álverið
í Straumsvík í gærkvöldi. Tveir
menn voru í vélinni og líðan þeirra
þótti furðu góð miðað við skemmd-
irnar sem urðu á vélinni. » Forsíða
Stefnir í samkeppni
Útlit er fyrir að samkeppni hefjist
um gagnaflutninga um sæstrengi til
og frá landinu undir lok næsta árs.
Tvö fyrirtæki hyggjast leggja nýja
sæstrengi. » 2
Óvissa um ratsjáreftirlit
Formaður utanríkismálanefndar
Alþingis telur að íslensk stjórnvöld
hafi verið of sein að taka til við að
svara spurningum um framtíð rat-
sjáreftirlits hér við land. » 2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Kurteisin kostar ekkert
Staksteinar: Uppskiptin á Eddu
Forystugreinar: Kauphöll og reglu-
verk | Leiðtogafundur á Kóreusk.
UMRÆÐAN»
Samvinna og ábyrgð í mále. innflytj.
Af ísl. og útl. stjórnmálastefnum
Á hvaða vegferð er formaður við-
skipta- og skattanefndar
Frá New Yoek til Los Angeles
Sýnishorn af Formúlunni
Svo miklu meira en bara sportbíll
Fjöldi tækninýjunga hjá BMW
BÍLAR»
2 #9$% -! $)
!#
: !
! ! $$ 1$ "
$
0
0 0 0 0 0 0
0 0 0 0 0 0
+ ;7 %
0 0 0
0 0 0
<=>>?@A
%BC@>A.:%DE.<
;?.?<?<=>>?@A
<F.%;$;@G.?
.=@%;$;@G.?
%H.%;$;@G.?
%8A%%.1$I@?.;A
J?D?.%;B$JC.
%<@
C8@?
:C.:A%8)%AB?>?
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
Suðaustan og austan
5–10 m/s, rigning eða
súld sunnan- og vest-
antil. Þurrt að mestu
norðanlands. » 10
Gunnar B. Guð-
mundsson leikstjóri
ræðir við Morgun-
blaðið um nýjustu
kvikmynd sína,
Astrópíu. » 40
KVIKMYNDIR»
Ævintýri
aulanna
KVIKMYNDIR»
Ný bíómynd um ástir og
örlög Jane Austen. » 45
Árni Matthíasson
fjallar um örðug-
leika og vandkvæði
sem jafnan rísa við
flokkun bókmennta.
» 41
BÓKMENNTIR»
Bækur rekn-
ar í réttir
SAMKYNHNEIGл
Stutt ágrip af sögu
samkynhneigðra. » 43
DRAGKEPPNI»
Hver er nýskipuð drag-
drottning Íslands? » 47
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Faðir stúlku, sem var rænt, látinn
2. Er sumarið búið?
3. Steini Díva dragdrottning
4. For. Madeleine funda með lögr.
TIL STENDUR að reisa útivistar-
og ævintýragarð í Mosfellsbæ á
svæði sem nefnist Hvammar og er á
milli Varmár og Köldukvíslar.
Tekin var ákvörðun um þetta á
sérstökum hátíðarfundi bæjar-
stjórnar Mosfellsbæjar í gær.
„Við Mosfellingar höfum fulla trú
á því að þetta verði einsdæmi a.m.k.
á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri.
„Við erum fjölskylduvænn bær og
þetta er í anda þess sem við erum að
vinna í.“
Leikjagarður
væntanlegur
%&'((%)*+
)('
)#
2
2
,
Q& &
" &I
$$. (((
VERSLUNARPLÁSS Máls og
menningar á Laugavegi 18 verður
boðið til sölu á næstu dögum. Hyggst
fyrirtækið selja
fasteignina
vegna kaupa á
Eddu útgáfu en
verslunin mun
engu að síður
verða í húsinu
a.m.k. til ársins
2010 þegar
leigusamningur
hennar rennur
út. Húsið var
teiknað af einum virtasta arkitekt Ís-
lendinga á síðustu öld, Sigvalda
Thordarson, en fáar verslanir hafa
verið reknar jafn lengi á sama stað og
Mál og menning. Húsið er til sölu hjá
Eignamiðlun fasteignasölu.
Hús Máls og
menningar selt
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
STJÓRN Handknattleikssambands
Íslands náði í gærkvöld endanlegu
samkomulagi við Alfreð Gíslason um
að hann haldi áfram störfum sem
þjálfari karlalandsliðs Íslands. Hann
mun stjórna liðinu framyfir úr-
slitakeppni Evrópumótsins sem
fram fer í Noregi í janúar á næsta
ári en þangað komst liðið með því að
leggja Serba að velli í hörkuspenn-
andi leik í Laugardalshöllinni á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Samningur Alfreðs rann út í lok
júní og þá var allt
útlit fyrir að hann
myndi hætta með
landsliðið. Alfreð
er einnig þjálfari
þýska stórliðsins
Gummersbach og
á því afar erfitt
með að stjórna
landsliðinu með-
fram því.
„Ég hugsaði málið í rólegheitum í
sumar. Síðan var dregið í riðla fyrir
keppnina og þá kom í ljós að liðið á
mjög erfitt verkefni fyrir höndum í
Noregi, það gæti í raun ekki verið
erfiðara, en það er jafnframt mjög
spennandi og það verður gaman að
takast á við það,“ sagði Alfreð við
Morgunblaðið í gærkvöld. | Íþróttir
Alfreð verður áfram
Samkomulag um að Alfreð Gíslason þjálfi landsliðið í hand-
knattleik framyfir úrslitakeppni EM í Noregi í janúar
Í HNOTSKURN
»Alfreð Gíslason tók við þjálf-un landsliðsins snemma árs
2006 og undir hans stjórn komst
það í 8-liða úrslit á HM í ár.
»Alfreð hefur þjálfað í Þýska-landi um árabil og er einn
virtasti handknattleiksþjálfarinn
þar í landi.Alfreð Gíslason
FJÖLDI manns fleytti kertum á Tjörninni í Reykjavík í
gærkvöldi í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á
japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. Athöfnin
fór fram á sama tíma við Minjasafnstjörnina á Akureyri.
Er þetta í tuttugasta og þriðja skiptið sem kertum er
fleytt á Tjörninni af þessu tilefni.
Morgunblaðið/Sverrir
Hörmunga minnst við Tjörnina