Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 230. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
VINSÆLASTUR
FEIMNI SVEITASTRÁKURINN MAGNI
GAGNRÝNIR GAGNRÝNENDUR >> 56
SVÍAR MÁLA OG
MYNDA Í ÞÓRSMÖRK
ÖÐRUVÍSI
FERÐAÞJÓNUSTA >> 25
GARRÍ Kasparov, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, líkir í
samtali við Morgunblaðið
stjórn Vladímírs Pútíns Rúss-
landsforseta við mafíuklíku og
segir hana eingöngu hafa pen-
inga og völd að leiðarljósi.
Mafíuhópar sem ráði öllu í
Kreml hafi náð meiri árangri
en hliðstæðir hópar í öðrum
löndum því KGB-mennirnir í
liði forsetans hafi „einkavætt“ sjálft ríkisvaldið.
Það þjóni nú eingöngu hagsmunum nokkurra
gírugra einstaklinga sem svífist einskis.
Kasparov er hættur að tefla opinberlega og
hefur snúið sér að stjórnmálum. Hann er þekkt-
hverjum þeim sem verður forsetaefni okkar.
Sjálfur hef ég engan áhuga á að bjóða mig
fram en verð að reyna að tryggja að við verðum
raunveruleg ógn við stjórn Pútíns. Ég mun gera
allt sem þarf til að það gerist. Ég hef ekki áhuga
sjálfur á að fara fram af því að ég veit að eins og
staðan er get ég ekki sigrað og ég vil ekki stofna
möguleikum okkar í hættu.
En ef enginn gefur sig fram getur farið svo að
ég verði að endurskoða afstöðu mína. Það er ekki
sennilegt að svo fari en, enn og aftur, þetta snýst
um að berjast gegn þeim og ég ætla að berjast
gegn þeim fram í rauðan dauðann. Staðan er hins
vegar enn mjög óljós, við vitum ekki enn hver
verður í framboði fyrir valdaklíku Pútíns, þótt
aðeins séu sex mánuðir til kosninga.“ | Miðopna
asti leiðtogi regnhlífarsamtaka
er nefnast Annað Rússland og
setja lýðræði og mannréttindi á
oddinn. Forsetakosningar verða
á næsta ári og má Pútín ekki
bjóða sig fram þar sem hann
hefur nú verið við völd tvö
kjörtímabil í röð. „Við erum að
reyna að finna forsetafram-
bjóðanda sem gæti valdið stjórn
Pútíns miklum vandræðum,“
segir Kasparov. „En það er margt óljóst ennþá,
þingkosningar verða í desember og ég efast um
að við getum náð samkomulagi um forsetaefni
fyrr en í vetur. Það verður mikið reiptog í hreyf-
ingu okkar en við munum standa þétt að baki
Útilokar ekki forsetaframboð
Garrí Kasparov segist ekki vilja verða forsetaefni hreyfingar sinnar
í Rússlandi á næsta ári en svo geti þó farið að hann endurskoði þá afstöðu
Í heimsókn Kasparov og eig-
inkonan, Daría Kasparova.
UMGENGNI um miðborg
Reykjavíkur hefur hríðversnað í
ár, að mati Ernu Valdísar Valdi-
marsdóttur, íbúa í Þingholtunum.
Margir tali um að sóðaskapur, há-
vaði og skrílslæti í miðbænum hafi
keyrt um þverbak í sumar.
Nefndar eru ýmsar orsakir
þess, svo sem reykingabann og
langur opnunartími skemmtistaða.
Nýlega stóð Erna fyrir undir-
skriftasöfnun og lagði formlegt er-
indi fyrir borgarráð vegna hávaða
og ónæðis sem hlýst af bar í ná-
grenni hennar. Íbúar í hverfinu
hafa oft látið bóka kvartanir vegna
barsins hjá lögreglunni.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, segir allar
slíkar kvartanir og athugasemdir
vera skoðaðar þegar rekstrarleyfi
eru endurnýjuð. Gildandi leyfi séu
afturkölluð þyki ástæða til.
Opnunartími veitinga- og
skemmtistaða sé aftur á móti á
ábyrgð borgaryfirvalda og þau geti
takmarkað opnunartímann. | 6
Sóðaskapur og skrílslæti
Sífellt verri umgengni er um miðbæ Reykjavíkur að margra mati
Meðal orsaka er nefnt reykingabann og langur opnunartími skemmtistaða
Í HNOTSKURN
»Íbúar í Þingholtunum hafakvartað yfir bar sem breytti
um rekstrarform í ársbyrjun.
»Þeir hafa kvartað oft til lög-reglunnar en þykir á bratt-
ann að sækja.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
MIKIL leit að tveim-
ur ungum Þjóðverj-
um á Svínafellsjökli
og í grennd við hann
og raunar önnur
dæmi um fólk í vanda
uppi á hálendinu
hafa vakið athygli og
umræðu um þær
hættur, sem bíða
þeirra, ekki síst út-
lendinga, sem leggja
leið sína inn á íslensk
öræfi. Þar takast
þeir á við hættuleg
vatnsföll, erfiða fjall-
vegi og jafnvel marg-
sprungna jökulsporða og oft án þess að hafa
þá reynslu og þann búnað, sem til þarf.
Ekki þarf að hafa mörg orð um nauðsyn
þess, að fólk sýni eðlilega fyrirhyggju áður
en lagt er á fjöll. Örlygur Sigurjónsson hjá
Íslenska Alpaklúbbnum leggur til dæmis
mikla áherslu á, að fólk byrji á því að leita
upplýsinga um það, sem kann að bíða þess í
ferðinni, hjá Ferðafélagi Íslands, Alpa-
klúbbnum eða öðrum staðkunnugum, og
vandi síðan vel til búnaðarins.
Búnaðurinn getur verið af ýmsu tagi, allt
eftir því hvert ferðinni er heitið, en nefna má
mannbrodda, ísöxi, fjallalínur, hjálma og
fleira. Að sjálfsögðu þarf að huga vel að
tjöldum þegar þau eru notuð og réttir skór
og annar fatnaður geta stundum skilið á milli
feigs og ófeigs.
Það er gamalt máltæki, að fáir kunni sig í
góðu veðri heiman að búa en vanir fjalla-
menn láta það aldrei á sig sannast. Þeir vita
sem er, að á fjöllum er allra veðra von og
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu segir, að það sé
ekki nóg að leggja eyrun við veðurspánni,
heldur verði að taka fullt mark á henni.
Mikilvægt að skilja eftir ferðaáætlun
Ólöf segir, að atburðir síðustu daga og
vikna sýni hve mikilvægt er, að fólk gangi
frá ferðaáætlun þar sem fram komi hvert
fara eigi og hvenær fyrirhugað sé, að ferð-
inni ljúki. Þessa áætlun eigi að skilja eftir í
höndum ættingja eða annarra, sem láti þá
strax vita ef fólk skilar sér ekki á réttum
tíma. Segir Ólöf, að Landsbjörg bjóði ein-
mitt upp á þjónustu af þessu tagi. Fólk geti
komið ferðaáætlunum sínum til félagsins og
þannig tryggt, að enginn dráttur verði á leit
eða annarri aðstoð ef þörf verður fyrir slíkt.
Þeir, sem fara um hálendið, vita trúlega
flestir, að þar er ekki hægt að reiða sig á
GSM-samband. Öðru máli gegnir auðvitað
um GPS-staðsetningartæki og NMT-síma,
gervihnattasíma, og þá að því tilskildu, að
fólk kunni með tækin að fara. Hér er hins
vegar um að ræða frekar dýran búnað, sem
fæstir fjárfesta í.
Þarf að
sýna fyr-
irhyggju
Ferðamenn á fjöllum
gangi frá ferðaáætlun
Ísklifur Réttur búnaður
er nauðsynlegur.
Morgunblaðið/Frikki
Svo djúpar sprungur að ekki sést ofan í þær
„VIÐ sjáum mjög lítið fram á við, þessar
sprungur eru það djúpar að ekki er hægt að
sjá ofan í þær – þær eru botnlausar,“ sagði Ró-
bert Þór Haraldsson úr Flugbjörgunarsveit-
inni í Reykjavík sem kom niður af Svínafells-
jökli á tíunda tímanum í gærkvöldi eftir um
tólf tíma við leit að Þjóðverjunum tveimur,
Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt. Leitað var
fram í myrkur og búist var við að leit yrði fram
haldið um leið og birta tæki.
Róbert segir aðstæður hafa verið heppilegar
í gær þar sem skyggni hafi verið betra en und-
anfarna daga. Leit gengur þó hægt en á svæð-
inu eru stórar sprungur og jökullinn sleipur.
„Það er hægt að brjótast í gegnum þetta en
það tekur mjög langan tíma. Þetta er ekki leið
sem fjallgöngumenn myndu velja sér, en við
vitum svo sem lítið um hvað þeir ætluðu sér.“
Á myndinni eru þeir Jónas Gunnarsson, Þor-
steinn Þorkelsson og Friðrik Jónas Friðriks-
son, við stjórn aðgerða í Skaftafelli í gær. | 4