Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
ÍBÚAR í nágrenni Keilugranda 1 hafa sent borg-
arstjóra og borgarfulltrúa bréf vegna fyrirhug-
aðrar uppbyggingar allt að níu hæða íbúðarhúsa-
hverfis á reitnum. Þá hafa 437 íbúar hverfisins
skrifað undir athugasemdir við tillögur að aðal- og
deiliskipulagi á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að á Keilugrandareitnum, þar
sem SÍF hafði aðsetur á árum áður, rísi allt að níu
hæða hús og bílakjallari á tveimur hæðum. Íbú-
arnir gerðu athugasemdir við hugmyndir um bygg-
inguna í ársbyrjun og ítreka þær nú. Andmæl-
endum fyrirhugaðra framkvæmda hefur hins vegar
vaxið ásmegin síðan í janúar; þá skrifuðu 99 ná-
grannar sameiginlega undir athugasemdir við
bygginguna, en á fimmta hundrað skrifa undir
bréfin nú.
Byggðin er þéttbýl fyrir
Íbúar í nágrenni reitsins telja sjálfsagt og eðli-
legt að lóðarhafi nýti sér ákvæði gildandi að-
alskipulags Reykjavíkur og reisi íbúðir á lóðinni, en
hins vegar hafi engin rök komið fram sem styðji þá
ákvörðun að þar eigi að rísa byggð sem er mun um-
fangsmeiri en sú sem fyrir er í nágrenninu, bæði
hvað varðar nýtingarhlutfall og yfirbragð. Bent er
á að Grandahverfi sé nú þegar þéttbýlt og vel nýtt.
Um 43 íbúðir séu á hvern hektara í hverfinu, en til
samanburðar er 41 íbúð á hvern hektara í Hlíða-
hverfi. Sama tala er 15,4 í Fossvoginum og 12,7 í
Foldahverfi. Þá benda íbúar á að byggðin á
Grandasvæðinu fari ekki yfir 4-5 hæðir nema í
nokkrum undartekningartilvikum sem rýri ásýnd
hverfisins. Mikið skuggavarp hljótist því af jafn-
hárri byggð og fyrirhuguð er, auk þess sem háhýs-
in komi óhjákvæmilega til með að hafa áhrif á veður
og vinda á jafnvindasömu svæði. „Við drögum ekki í
efa réttinn til að byggja á reitnum Keilugranda 1.
Það má hins vegar ekki gerast á kostnað öryggis
barna sem og lífsgæða og verðmætis húsnæðis íbúa
í nágrenninu. Skipulagsyfirvöld borgarinnar verða
að fylgja þeim reglum sem þau hafa sjálf sett sér,
en ekki gera á þeim geðþóttabreytingar, sem að-
eins þjóna væntingum og hagnaðarsjónarmiðum
eiganda reitsins. Við gerum þá lágmarkskröfu að
kjörnir fulltrúar okkar og embættismenn fari eftir
þessu í störfum sínum en svo virðist sem aðeins
minnihluti borgarstjórnar hafi gert það í þessu
máli,“ segir í bréfinu.
Athugasemdum íbúa lítill
gaumur gefinn fram að þessu
Í bréfi íbúanna til borgarstjóra er hann hvattur
til að virða hag hins almenna borgara og gæta þess
að borginni sé stjórnað á sönnum og traustum lýð-
ræðisgrundvelli. Fyrri athugasemdum íbúa til
Skipulagsráðs Reykjavíkur og skipulagsfulltrúa
borgarinnar hafi hingað til lítill gaumur verið gef-
inn og ekkert orðið úr yfirlýsingum borgaryfirvalda
um frekara samráð við nágranna framkvæmdanna.
Íbúar telja að svo yfirgripsmiklar framkvæmdir í
rótgrónu hverfi muni valda verðmætarýrnun hús-
eigna í næsta nágrenni, meðal annars sökum
skuggavarps, stórskerts útsýnis, sjónmengunar og
umferðarþunga er leiði til aukins óöryggis barna á
leið til skóla eða íþróttaiðkunar. Í næsta nágrenni
reitsins eru tveir skólar, Grandaskóli og Granda-
borg, auk íþróttafélagsins KR, með aðstöðu.
„Eigendur þessara húseigna, sem byggðu þær
eða keyptu í trausti þess að borgin myndi virða sitt
eigið skipulag, munu að sjálfsögðu leita réttar síns
og setja fram bótakröfur fyrir þeim verðmætamissi
sem aðgerðir borgarinnar hefðu í för með sér,“ seg-
ir undir lokin í athugasemdabréfi íbúanna vegna til-
lögu að breytingu á deiliskipulagi Keilugranda 1.
Mikil alda reiði og undrun-
ar hefur risið meðal íbúa
Þrætueplið Áætlanir um uppbyggingu allt að níu hæða fjölbýlishúsakjarna við Keilugranda 1 falla í
grýttan jarðveg meðal íbúa í nágrenninu sem segja Grandahverfi nú þegar þéttbýlt og vel nýtt.
Í HNOTSKURN
»Drög að deiliskipulagi lóðarinnarKeilugranda 1 voru kynnt hlutaðeig-
andi í ársbyrjun.
» Í fyrstu tillögu var gert ráð fyrir 12hæða húsum á lóðinni, en horfið var frá
því og húsin takmörkuð við 9 hæðir.
» Íbúðar þáðu þó ekki sættir og hefurþeim sem líta framkvæmdirnar horn-
auga fjölgað mjög.
Á fimmta hundrað íbúa í nágrenni Keilugranda andmælir skipulagstillögum
Skuggavarp, sviptivindar og aukinn umferðarþungi meðal afleiðinga
HANNA Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs Reykjavíkur-
borgar, segir að verið sé að vinna úr
þeim athuga-
semdum sem inn
hafa borist vegna
skipulags
Keilugranda-
reitsins. Skipu-
lagssvið vinni úr
athugasemdun-
um og leggi þær
að því loknu fyrir
skipulagsráð til
umfjöllunar og
afgreiðslu.
Hanna Birna segist því ekki geta
tjáð sig efnislega um athugasemd-
irnar áður en yfirferð þeirra er lok-
ið. „Þessar athugasemdir verða
skoðaðar á vettvangi skipulagsráðs
þar sem farið verður yfir hverja og
eina þeirra.“
Hanna segir að sú skipulagstil-
laga sem nú liggi fyrir hafi tekið
talsvert mið af sjónarmiðum íbúa á
svæðinu sem fram komu fyrr á
árinu. Þannig hafi húsin verið lækk-
uð, nýtingin minnkuð og tekið mið
af athugasemdum um grunnvatns-
stöðu, svo eitthvað sé nefnt.
Skipulag íbúðasvæða geti
alltaf tekið breytingum
Spurð hvort eðlilegt sé að breyta
reit, sem samkvæmt aðalskipulagi
var undir 50 íbúðir, í 130 íbúða
kjarna, segir Hanna Birna að það
hafi verið til umræðu að breyta
skipulagi á þessu svæði í langan
tíma. „Eðli máls samkvæmt getur
skipulag á íbúasvæðum alltaf tekið
breytingum. Þetta er mjög eftir-
sóknarvert svæði og við teljum að
þær hugmyndir sem settar voru í
auglýsingu hafi falið í sér góða
lausn fyrir það,“ segir Hanna.
Eðlilegt að
skipulagið taki
breytingum
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
ÞEIR íbúar í nágrenni Keilu-
granda 1 sem Morgunblaðið ræddi
við vegna málsins telja framkomu
borgaryfirvalda í málinu fela í sér
yfirgang og valdníðslu. Þegar reit-
urinn hafi verið keyptur gerði að-
alskipulag ráð fyrir 50 íbúðum á
reitnum og því verði lóðarhafi að
una. Óeðlilegt sé að hans vænt-
ingar eða gróðasjónarmið ráði för
á kostnað lífsgæða og umferðar-
öryggis á svæðinu. „Þegar ég
keypti raðhús hérna skoðaði ég að-
alskipulag svæðisins og sá að hér
væri gert ráð fyrir 50 íbúðum. Ég
taldi það ásættanlegt, enda svipað
og sú byggð sem hér er fyrir. Svo
verður þetta, eins og hendi væri
veifað, að 130 íbúðum, húsin allt að
30 metra há og Fjörugranda, sem
var botnlangi þegar ég keypti hús-
ið, breytt í gegnumakstursgötu
fyrir nýju húsin. Þetta er ansi
mikil breyting fyrir þá sem hafa
keypt sér hús hérna og ætluðu að
vera í rólegheitunum,“ segir íbúi
við Fjörugranda.
Það er eins og einn hagsmuna-
aðili sem á í hlut geti gert það að
verkum að almennt skipulag er
virt að vettugi. Þetta er bara
glórulaust,“ segir íbúi við Keilu-
granda.
Breytti öllum lífs-
skilyrðum íbúanna
Ása S. Þórðardóttir, íbúi við
Fjörugranda, segir að miklir vind-
strengir séu nú þegar meðfram
húsunum og hún er sannfærð um
það að jafnhátt hús og til stendur
að reisa auki sviptivindana. „Ég
get ekki hugsað til þess að þeir
geri þetta. Þetta breytir öllum lífs-
skilyrðum okkar sem hér búum,“
segir Ása. Fyrir utan breytt veð-
urfar óttast hún að aukin hætta
skapist í kjölfar framkvæmda fyrir
þau fjölmörgu börn sem ýmist eru
á leið til leikskóla, skóla eða fé-
lagsstarfs í KR-heimilinu.
„Þetta er bara
glórulaust“