Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þið kannski röltið yfir til mín á næstu „Ein með öllu“, Stefán minn?
VEÐUR
Það er til marks um hvað íslenzkfjármálafyrirtæki eru orðin al-
þjóðleg, að skuldabréfavafning-
arnir, sem svo eru kallaðir, sem
sett hafa fjármálamarkaði um
heimsbyggðina alla á annan end-
ann á síðustu vikum ná til Íslands.
Þetta kom fram í Morgunblaðinuí gær, þar sem skýrt var frá
því, að íslenzk fjármálafyrirtæki
tengdust um 30 milljörðum í
áhættusömum lánum.
Fram kom, að hvorki Lands-banki, Glitnir né Straumur-
Burðarás ættu hlut að máli.
Hins vegar staðfesti talsmaðurKaupþings banka, að sá banki
tengdist þessum lánum í gegnum
dótturfélag í London. Ekki var
upplýst um hve háar fjárhæðir er
að ræða.
Ennfremur kom fram að nýttfjármálafyrirtæki Aska Capi-
tal ætti um 6 milljónir Bandaríkja-
dala í áhættusömum húsnæð-
islánum.
Talið er að fleiri aðilar á fjár-
málamarkaði hér kunni að koma
við sögu.
Talsmaður Kaupþings bankasagði í samtali við Morg-
unblaðið, að bankinn hefði sagt
samstarfsaðilum og viðskiptavin-
um að ef tap yrði á þessum lánum
mundi það hafa óveruleg áhrif á
rekstur bankans. Ennfremur að
lánin væru með hæsta mat, sem
hægt væri að fá.
En það er einmitt forvitnilegurþáttur þessa máls, að hin al-
þjóðlegu matsfyrirtæki liggja und-
ir þungri gagnrýni á þeirri for-
sendu, að lítið hafi verið að marka
mat þeirra á þessum lánum.
STAKSTEINAR
Vafningar ná til Íslands
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
#
$$ %
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
#
# $$ &$
&
:
*$;< $$
! " #$%
& *!
$$; *!
'( ) $ $( $ *
=2
=! =2
=! =2
') $+ %,$- .
<>;
?
'(
(
%
)&
* #$ ;
"2
+
(
%
),
$ -
*
.
( /!
-
),
/0 $$11 $ $2 $+ %
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
!& !3
!3"
& !& &""
&"!
!&"
&!"
"& "& "& "& &!
!& &!"
!& 3
3
3
3"
3
!3
!3
!3
3
3
3
3
3
!3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
TómasHa | 24. ágúst 2007
Dýr lággjalda-
flugfélög
Það er merkilegt
hversu Express hefur
sloppið vel úr umræðu
um flugfélögin. Oft á
tíðum er verð þess
mun hærra en verð
Iceland Air, svo ekki
sé talað um skort á þjónustu. Það
kostar líka að fara langan veg vegna
þess að þeir lenda á flugvöllum sem
eru ekki einu sinni í þeim borgum
sem þeir auglýsa, eins og Frank-
furt.
Meira: tomasha.blog.is
Harpa Heimisdóttir | 24. ágúst 2007
Leikskólalög
Þetta er sáraeinfalt.
Þótt við gerumst brot-
leg má lögreglan ekki
beita okkur ofbeldi og
pyntingum. Þótt það
geti kallast ofbeldi að
setjast drukkin undir
stýri þá réttlætir það ekki að konan
sé beitt ofbeldi.
Eða getum við núna bara farið að
segja „hún byrjaði“ og réttlætt
gjörðir lögreglunnar með því? Var
okkur ekki kennt í leikskóla að það
mætti ekki?
Meira: harpaheimis.blog.is
Palli Pé | 24. ágúst 2007
Ruby Ruby Ruby Ruby
Sú nýjasta sem ég hjó
eyrum mínum í er aug-
lýsing frá Ruby
Tuesday. Þar segir að
hamborgararnir frá
Ruby Tuesday séu eld-
aðir af alúð. Kannski er
það minn pervertismi sem hefur
áhrif á þessa skoðun mína, en samt
sem áður vil ég að borgarinn minn sé
bara eldaður eðlilega. Þegar ég
hugsa um að sýna einhverju al-
úð … tja þá vil ég helst ekki að því
sem ég er að éta sé sýnd slík alúð.
Meira: stundinokkar.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson |
23. ágúst 2007
Borgarstjórinn talar
sig frá vínkælinum
Það er svolítið kostu-
legt að sjá hvernig Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri er nú
byrjaður að reyna að
tala sig frá vandræða-
ganginum sem fylgdi
kælinum í vínbúðinni í Austurstræti
sem hann vildi að yrði fjarlægður.
Hann segir nú það vera sér að
meinalausu að hann verði settur á
sinn stað og í samband. Sennilega
eru pólitískir ráðgjafar borgarstjór-
ans farnir að átta sig á því að þetta
mál er í alla staði hið vandræðaleg-
asta fyrir mann sem vill kenna sig
við leiðtogastöðu í hægriflokki.
Borgarstjórinn í Reykjavík segir
nú kælinn vera algjört aukaatriði
málsins. Hvers vegna fór hann þá
fram á að hann yrði fjarlægður og
gekk skrefi lengra með því að krefj-
ast líka að bjór yrði ekki seldur í
stykkjatali. Nú er búið að snúa við
blaðinu, það er leitað af eftiráskýr-
ingum til að koma sér út úr klúðr-
inu. Þeir eru ekki margir sem
leggja í það að verja talanda borg-
arstjórans og það sem hann kom
með upphaflega. Hann er auðvitað
bara orðinn algjört aðhlátursefni
eins og nakti keisarinn í gamla góða
ævintýrinu. Þetta er svona týpískur
vandræðagangur sem vekur enn
meiri athygli en ella vegna þess að
um er að ræða kjörinn sveit-
arstjórnarfulltrúa í vel á þriðja ára-
tug og formann sambands sveitar-
félaga í hartnær tvo áratugi.
Þetta mál er allt hið kostuleg-
asta. Það að láta sér detta í hug að
einn kælir í vínbúð leiki lykilhlut-
verk í drykkjuvenjum þeirra sem
koma til að kaupa sér léttar veigar
er eiginlega hlægilegt í besta falli
sagt. Eða hvort bjór sé seldur í
stykkjatali. Þetta mál með kælinn
hefur hinsvegar opnað á margar
spurningar um stjórnmálamanninn
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og hvar
hann sé staddur á sinni pólitísku
vegferð. Í svo miklu klúðri er skilj-
anlegt að reynt sé að bakka en
spurningin er hvort að það sé ekki
orðið of seint. Hvort borgarstjórinn
sé ekki orðinn of pólitískt volgur til
að slá í gegn.
Það er mikið verkefni að vera
borgarstjóri.
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI Helga-
fellsbygginga hf. segir umræðuna
um vinnuveg vegna lagnafram-
kvæmda í Helgafellslandi vera á
villigötum. Það sé ekki í þágu mikils
meirihluta íbúa á svæðinu að lokað
hafi verið fyrir almenna umferð um
veginn.
Varmársamtökin hafa mótmælt
vinnuveginum á þeim grunni að í
raun hafi umdeild tengibraut úr
Helgafellslandi í Mosfellsbæ verið
lögð án þess að sú framkvæmd hafi
verið samþykkt á deiliskipulagi. Um-
ferð sem ekki er tengd lagnafram-
kvæmdunum hefur farið um veginn
en nýlega ákváðu bæjaryfirvöld að
um veginn mættu einungis keyra
farartæki vegna lagnaframkvæmd-
anna sjálfra.
Skilur að Mosfellsbær hafi
brugðist við gagnrýnisröddum
Hannes Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Helgafellsbygginga
hf, segist ekki sjá mun á því að þessi
vinnuvegur sé notaður eða aðrir.
Með því að beina umferðinni á þenn-
an tiltekna vinnuveg megi beina um-
ferð frá íbúðahverfum, eins og Ás-
landshverfinu, þar sem umferðin
valdi íbúum ama. „Ég get alveg skil-
ið viðbrögð Mosfellsbæjar því bær-
inn hefur alltaf viljað gæta að um-
hverfinu þarna í kring. Mér finnst
samt of langt gengið að loka veginum
og beina umferðinni í gegnum íbúa-
byggð í staðinn. Betra er þá að nota
þessa vinnuvegi, jafnvel þótt þeir séu
ekki samþykktir.“ Hann bendir á að
vinnuvegurinn, sem nú hefur verið
lokað fyrir almennri umferð, sé afar
góð tenging við Vesturlandsveg og
með honum skapist mun minni hætta
vegna þeirra þungaflutninga sem
fari inn og út úr Helgafellslandinu.
Hannes segir að sá hópur fólks
sem mótmæli framkvæmdunum sé
lítill. „Mér finnst að það hafi gleymst
að spyrja hinn þögla meirihluta en
ég veit að hann hefur áhuga á að
byggja upp öflugt bæjarfélag þarna.
Það er ekki verið að níðast á neinum
með því að nota þennan veg, við höf-
um bara gert það til að vernda íbúa
fyrir ónæði.“
Ekki í samræmi
við vilja íbúa
Framkvæmdastjóri Helgafellsbygginga
telur lokun vinnuvegar óskynsamlega