Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KAUPÞINGS MÓTARÖÐIN 2007 ÍSLANDSMÓTIÐ í holukeppni um helgina á URRIÐAVELLI AÐEINS fjórar lundapysjur hafa verið vigtaðar í þessum mánuði í Vestmannaeyjum. Ljóst er að pysjutímabilið verður með svipuðu móti og það hefur verið undanfarin þrjú ár, en ætisskortur í sjónum hefur haft áhrif á varp lundans líkt og hjá fleiri sjófuglum. Að sögn Kristjáns Egilssonar, forstöðumanns Náttúrugripasafns- ins í Vestmannaeyjum, ætti hátind- ur pysjutímabilsins að vera núna, þ.e. seinni hluta ágústmánaðar. Hann segir að ef allt væri með eðli- legu móti myndu á bilinu 5.000- 6.000 lundapysjur koma í þessum mánuði í bæinn. Kristján segir að lundinn hafi orpið seinna í ár líkt og síðustu ár. „Það verður bæði seint og lítið sem kemur af pysju,“ segir Kristján og bætir því við að ef meira komi af pysju þá megi búast við því í byrjun september. „Það verður hinsvegar aldrei mikið því lundinn fer svo að fara […] Í byrjun september fer hann bara, en þá er tímaklukkan komin á hann að koma sér í burtu.“ Hann segir þær pysjur sem hafi verið vigtaðar líti vel út. Þær vega á bilinu 250-260 grömm, sem sé ágætt. Hefð er fyrir því að börn á öllum aldri vigti og skrái pysj- urnar. Morgunblaðið/Sigurgeir Bjargvættur Kristín Edda Valsdóttir, 10 ára, með eina af fyrstu pysjunum. „Það verður bæði seint og lítið sem kemur af pysju“ TALSMAÐUR neytenda segir að flugfélagið Iceland Express hafi neitað að verða við tilmælum um að neytendur velji sjálfir sérstaklega hvort þeir vilji greiða forfallagjald. Talsmaður neytenda segir að auka- gjöld samkvæmt forvali feli í sér neikvæða samningsgerð sem sé óheimil. Mælst var til þess að framvegis yrðu netsíður seljenda flugferða þannig að neytandi þyrfti ekki að taka burt hak í valreit vildi hann ekki greiða forfallagjald til við- bótar við flugmiðaverð. Því var hafnað. Sama gilti um aðra viðbót- arþjónustu sem fyrirtækið vill rukka neytendur aukalega fyrir. Morgunblaðið/Kristinn Neituðu að verða við tilmælum FÉLAG leiðsögumanna á Íslandi hefur verulegar áhyggjur af því að erlendir hópar ferðamanna komi hingað til lands án leiðsagnar leið- sögumanna. Oft eru hópar útlendra ferðamanna hér á ferð undir forystu svokallaðra hópstjóra sem eru jafn ókunnir landinu og ferðamennirnir sjálfir. Formaður Félags leiðsögu- manna telur að slíkt fyrirkomulag hafi færst í vöxt hér á landi. Ragnheiður Björnsdóttir, leið- sögumaður og formaður Félags leið- sögumanna, segir að félagið hafi reynt að gera athugasemdir við þann hátt sem margar erlendar ferða- skrifstofur hafi haft á stjórn hópa á þeirra vegum hér á landi. „Hópstjór- ar stjórna því einungis hvert er farið, hvenær og hvar sé stoppað. Leið- sögumenn sjá hins vegar um fræðsluþáttinn og fara þá líka með fararstjórnina,“ segir Ragnheiður. Hún segir að þetta eitt og sér hafi ekki áhrif á öryggi hópanna en hins vegar sé það svo að oft biðji erlendar ferðaskrifstofur einfaldlega einn við- skiptavina sinna um að gegna starfi hópstjóra gegn því að fá ferðina fría og einhverja þóknun. „Hann hefur þá kannski aldrei komið til landsins og þekkir ekkert til íslenskra að- stæðna. Það er einkum þetta sem við höfum verið að fetta fingur út í og gagnrýna. Yfirleitt er auðvelt að ferðast um Ísland en það er ýmislegt hér á landi sem ber að varast og út- lendingar átta sig ekki á og íslenskir leiðsögumenn eru þjálfaðir til bregð- ast við.“ Félagið mun beita sér fyrir löggildingu starfsheitisins Félagið hefur viljað að erlendir hópar þurfi að vera í fylgd íslenskra leiðsögumanna sem hafi menntun til þess að fara um landið og leiðbeina. „Það mun hins vegar ekki gerast á meðan starfsheitið er ekki lögvernd- að. Þangað til það gerist þá höfum við engin réttindi,“ segir Ragnheið- ur. Hún vísar til þess að í mörgum löndum Suður-Evrópu sé hópum skylt að vera í fylgd viðurkennds leiðsögumanns. „Og þar er nú ekki um miklar hættur að ræða eins og hér er.“ Í Félagi leiðsögumanna eru um 600 félagsmenn og ætlar félagið í haust að beita sér fyrir því að starfs- heiti leiðsögumanna verði lögvernd- að. Hafa áhyggjur af öryggi ferðamanna 422 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 km leyfi- legan hámarkshraða á Hringbraut í Reykjavík. Umrædd vöktun stóð yfir í u.þ.b. 19 klukkustundir á miðviku- dag og fimmtudag. Brot ökumann- anna náðust á löggæslumyndavél en hinir brotlegu óku að jafnaði á lið- lega 75 km hraða. Fjórir óku á yfir 100 km/klst. Umferðarlagabrotin mynduð Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is NÝJU mannvirkin á íþróttasvæði Vals á Hlíðarenda verða vígð í dag og af því tilefni verður mikil dag- skrá í gangi hjá Valsmönnum. Miklar framkvæmdir hafa verið að Hlíðarenda undanfarin misseri og er íþrótta- og félagsaðstaðan nú sú besta hérlendis. Yngra íþrótta- húsið var rifið og nýtt og stærra hús byggt í staðinn. Aðal- leikvangur félagsins var færður yf- ir á fyrrverandi malarvöll og áhorfendastúka og búnings- klefaálma tengd nýja íþróttahús- inu. Byggð var viðbygging við nú- verandi tveggja hæða tengibyggingu sem tengir saman nýja íþróttahúsið og eldri bygg- ingar. Auk þess var meðal annars gengið frá æfingasvæðum, bíla- stæðum og girðingum. Fé- lagsaðstaðan rúmar allt að 2.000 manns. Sæti eru fyrir um 1.300 manns allan hringinn í íþróttahús- inu og koma má fyrir allt að 2.000 manns. Stúka knattspyrnuvallarins tekur um 1.200 manns í sæti og undir henni eru átta búningsklefar. Dagur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Vals, segir að í til- efni tímamótanna verði boðið upp á fjölbreytta dagskrá. „Þetta er stór dagur í sögu félagsins, einn af þeim merkustu,“ segir hann. Dagskráin hefst klukkan 13 með heimsókn Valsmanna á íþrótta- svæði skólanna í hverfinu, Hlíða- skóla, Austurbæjarskóla og Há- teigsskóla. Þar gefst nemendum skólanna tækifæri til að kynnast boltagreinunum, sem félagið er með á sinni könnu, og kl. 14 verður gengið saman frá skólunum að Hlíðarenda til að kynna krökk- unum gönguleiðirnar. Kl. 14.30 hefst fjölskylduhátíð á íþróttasvæð- inu, þar sem gestum gefst kostur á að skoða mannvirkin auk þess sem æfingar yngri flokka verða í gangi. Vígsla mannvirkjanna verður síðan klukkan 16. „Við erum að gera okkur sýnileg og bjóðum alla Valsmenn og íbúa hverfisins sérstaklega velkomna,“ segir Dagur. Morgunblaðið/Golli Mikil breyting Valssvæðið á Hlíðarenda hefur tekið miklum breytingum og er Dagur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Vals, ánægður með árangurinn. Nýju mannvirkin á íþróttasvæðinu verða vígð í dag. Einn af merkustu dögunum í sögu Vals Ný og glæsileg íþróttamannvirki vígð á Hlíðarenda FARÞEGAR flugvélar Iceland Ex- press sem urðu fyrir töfum á flugi frá Kaupmanna- höfn vegna eld- ingar, hinn 20. júlí síðastliðinn, fengu í vikunni sendar 8.000 króna inneign fyrir flugmið- akaupum sem bætur fyrir töf- ina frá fyrirtæk- inu. Flugfyrirtæki eru ekki bótaskyld í tilfellum sem þessum, en að sögn Matthíasar Imsland framkvæmda- stjóra Iceland Express voru þau ósátt við hvernig samstarfsaðili þeirra í Kaupmannahöfn stóð að málum farþega og vildu því bæta þeim það upp. „Við gefum okkur út fyrir að vera stundvíst flugfélag og viljum að fólk sé ánægt og fái góða þjónustu hjá okkur, sem var ekki í þessu tilfelli. Þess vegna ákváðum við að bregðast svona við.“ Matthías Imsland Gáfu farþeg- um inneign ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.