Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 22

Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 22
22 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Benidorm í september. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað. Bjóðum örfá herbergi á Hotel Melia með hálfu fæði á frábærum kjörum. Glæsileg fjögurra stjörnu hótel með góðri sameiginlegri aðstöðu. Skelltu þér til Benidorm og njóttu lífsins á einum af vinsælustu gististöðum Heimsferða. Benidorm 30. ágúst Sértilboð á Hotel Melia****m/hálfu fæði frá kr. 59.990 Aðeins örfá herbergi í boði! Verð kr. 59.990 Netverð á mann með sköttum, m.v. 2 í tví- býli með hálfu fæði í viku. Munið Mastercard ferðaávísunina Akureyrarvaka var sett íhauströkkrinu í Lystigarð-inum í gær. Í dag tekur við þétt dagskrá frá morgni til kvölds með viðburðum allt frá Hlíðarfjalli og niður á höfn. Það er reyndar það margt um að vera að hver og einn verður að velja og hafna og móta dagskrána eftir sínu höfði.    Það gæti orðið góð byrjun á deg-inum að rölta niður á torg og skoða markaðinn sem stendur á milli kl. 10 og 16. Þeir sem eru hins vegar gefnir fyrir fjallahjól geta fylgst með fjórða bikarmóti Íslands kl. 10 og Íslandsmeistaramóti í fjallabruni kl. 14, en bæði mótin fara fram uppi í Hlíðarfjalli.    Sjálfur ætla ég að halda migfjarri Lúkasarbyggð í bili. Nær mannabyggðum. Á ráðhústorginu er til dæmis fínt að hefja stuttan myndlistarrúnt eftir markaðinn. Í Amaróhúsinu er sýning Lilju Guð- mundsdóttur frá kl. 10 og í Penn- anum ætlar Hlynur Hallsson að spreyja textaverk á milli kl. 13 og 14. Gestir mega taka þátt og bæta við verkið að vild, þannig að í stað þess að sitja með hendur í skauti er um að gera að grípa penna eða pensil og taka þátt í verkinu.    Eftir það er hægt að skreppaniður að Polli og fylgjast með einni athyglisverðustu samvinnu dagsins, þegar Anna Richards og Benedikt Lafleur fiska eftir haf- meyjum á svæðinu. Í leiðinni er kjörið að taka stöðuna á Steina Kristjánssyni sem setur upp nýtt VeggVerk frá kl. 12 og þar til fer að rökkva.    Ef menn hins vegar hafa lítiðmyndlistaróþol er best að halda sig í Gilinu og missa ekki af opnununum þar; annars vegar á sýningu á verkum þeirra sem eru tilnefndir til Sjónlistaverðlaunanna í ár og hins vegar samsýningu verka eftir 21 listamenn unnum út frá Jónasi sjálfum Hallgrímssyni. Eftir sýningarnar eru síðan hæg heimatökin að rölta um í gall- eríunum í kring: Það verður opið hjá Jónasi Viðar, í Deiglunni og í Galleríi BOXI. Á síðastnefnda staðnum verður vídeóvaka og sýnd verða 24 alþjóðleg vídeóverk.    Tónleikar verða víða um bæ. ÍKaupþingi verður leikinn djass síðdegis, og tvenn tækifæri gefast til að sjá VilHelm kynna nýju plöt- una, The Midnight Circus, annars vegar fyrir utan Símann kl. 15 og hins vegar í Deiglunni á milli kl. 20 og 21. Kl. 21 verða hins vegar heljar- innar útitónleikar með stórsveit Samúels J. Samúelssonar í Gilinu, en tónleikunum verður útvarpað í beinni á Rás 2. Í fyrra var smekk- fullt á tónleikum á sama stað og því er ráðlegt að mæta snemma. Þeir sem hins vegar kjósa frekar að hlusta á klassíska tónlist fá eitt- hvað við sitt hæfi í íþróttahúsi Gler- árskóla kl. 16 þar sem óperan La Traviata verður flutt.    Um kvöldið verður svo boðiðupp á alls kyns atriði, til dæm- is draugagöngu frá Minjasafninu, en þá fara skuggaverur á stjá í inn- bænum. Öllu vinalegri hópur fylkir liði úr Frúnni í Hamborg og niður á torg. Frúin sjálf mætir á svæði með fylgdarliði, en sögusagnir herma að um sé að ræða einhvern hundrað manna gerning. Kl. 22.30 hefst síðan heljarinnar karnival þegar Don Kíkóti leiðir múginn í byltingu Fíflanna, sem endar með flugeldum og látum.    Þá er ótalið margt annað semhægt verður að upplifa á þess- ari síðustu hátíð sumarsins. Ef hún verður eitthvað í líkindum við þá sem ég man eftir má búast við af- slappaðri stemningu en fjölmenni. Þetta er dálítið eins og Þorláks- messa í ágúst, með tilheyrandi mið- bæjarrölti og mannlífsskoðun. Eða jafnvel uppskeru- og kveðjuhátíð – þar sem litið er yfir farinn veg og sumarið kvatt. Haustinu tekið opn- um örmum.    Þó, og þó. Ætli þetta sé ekkibara, þegar allt kemur til alls, fínasta leið til að drepa tímann og hafa gaman, rétt eins og á hátíðum yfirhöfuð. Og sem slík fær hún toppdóma, alveg heilan helling af stjörnum. … eins og Þorláksmessa í ágúst AF LISTUM Hjálmar Stefán Brynjólfsson » Þá fara skuggaver-urnar á stjá í inn- bænum en öllu vinalegri hópur fylkir liði úr Frúnni í Hamborg og niður á torg Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Jónas Hallgríms „Enginn étur sjálfan sig“ eftir Jónu Hlíf Halldórsdóttur. Morgunblaðið/Golli Jagúar Samúel Jón Samúelsson að- alsprauta fönksveitar Íslands. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson La Traviata Sinfóníuhljómsveit setur upp óperu ásamt Óperu Skagafjarðar. hsb@mbl.is Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is ANDANN má næra með ýmsum uppákomum á vegum Norræna hússins um helgina. Hér er les- endum bent á fáein sálarmeðöl. Fyrir tónelska Í dag og kvöld verður boðið upp á ýmsa tónlist í Glerskálanum. Finnski dúettinn KatiMatti leikur klukkan 17, en Elín Eyþórsdóttir stekkur á stokk klukkan 20. Sjálf- ur Megas skemmtir svo klukkan 21, en Minä Rakastan Sinua Elvis stígur fram til dáða með Diddu Jónsdóttur í broddi fylkingar, og spilar smelli Elvis nokkurs Pres- ley. Á morgun leika svo til að mynda Andrea Gylfa og Tríó Björns Thor- oddsen klukkan 21, en KK og tríó fylgja svo í kjölfar þeirra. Fyrir tápmikil börn Í dag gefst börnum kjörið tæki- færi til að læra flamenco-dans. Fer kennslan fram í Glerskálanum klukkan 13 og 14.45, en síðan verð- ur sýning klukkan 16. Á morgun, sunnudag, geta lítil kríli svo lært Bollywood-dans klukkan 13 í Glerskálanum, og loks séð uppfærslu Möguleikhússins á barnaleikritinu Landið Vifra klukkan 14.45 í Norræna húsinu. Er það unnið uppúr vinsælum ljóð- um Þórarins Eldjárns. Bundið mál, tónlist og leikur fléttast saman. Fyrir dansunnendur og matelska Í dag fer svo fram kínverskur sverðdans klukkan 13 í Glerskál- anum. Unnur Guðjónsdóttir dans- ar. Í dag og á morgun gefst fólki svo kostur á að sjá nýtt dansverk eftir Helenu Jónsdóttur og Höllu Ólafsdóttur klukkan 16. Klukkan 15 í dag verður svo fjallað um norræna matargerð í Glerskálanum. Umfjöllunin að ofan er engan veginn tæmandi úttekt á list- viðburðum Reyfis um helgina. Upplýsingar eru hafðar uppúr dag- skrárbæklingi hátíðarinnar. Téðan bækling auk frekari upplýsinga má nálgast á heimasíðu Norræna hússins, www.nordice.is. Eitthvað fyrir flesta Farið yfir viðburði helgarinnar á Reyfi, menningarhátíð Norræna hússins Morgunblaðið/RAX Norræn Tríó Björns Thoroddsen ásamt Andreu Gylfadóttur leikur í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.