Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 25
|laugardagur|25. 8. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Duldar auglýsingar færast sí-
fellt í vöxt og ættu foreldrar að
taka sér tíma í að gera börn sín
meðvituð um þær. » 26
neytendur
Svartir og brúnir litir ásamt
fjólubláum tónum og jafnvel
bleikum verða áberandi í
dömutískunni í vetur. » 28
tíska
Í húsi einu í Kleppsholtinu er að
finna hús þar sem að íbúarnir
hafa tvinnað gamla og nýja tím-
ann skemmtilega saman. » 30
innlit
Nína kennir myndlist í lýðháskól-anum en með henni í för voru aðauki Gudrun Romeborn semkennir ljósmyndun og Monica
Schultz sem kennir málun. Þátttakendur í
námskeiðinu voru 13 talsins á aldrinum 27
til 87 ára, konur jafnt sem karlar. Hópurinn
kom saman í Hafnarfirði þar sem farið var
yfir markmið námskeiðsins, síðan var haldið
í Þórsmörk og í námskeiðslok var aftur
dvalist í Hafnarfirði og árangur metinn.
Íslenskur kennari
Nína Þorgeirsdóttir fluttist til Svíþjóðar
með foreldrum sínum 1979 og ákvað að
verða eftir þegar þau fluttust heim aftur,
enda var hún komin í myndlistarskóla.
„Fyrir nokkrum árum spurði skólastjór-
inn í lýðháskólanum hvort ég gæti skipulagt
ferð fyrir kennara og starfslið skólans til
Íslands. Ég sagðist að sjálfsögðu skyldi
gera það. Ferðin heppnaðist mjög vel og
allir voru ákaflega ánægðir. Aftur bað hann
mig að skipuleggja aðra ferð og nú fyrir
hátt í hundrað skólastjóra. Þetta var bæði
spennandi og skemmtilegt verkefni. Á Ís-
landi naut ég aðstoðar Jörundar bróður
míns sem er bílstjóri og býr á Akureyri og
Guðmundar bróður míns sem kom frá Ír-
landi til að aðstoða okkur.“ Eftir þessar vel
heppnuðu Íslandsferðir fékk Nína þá snjöllu
hugmynd að skipuleggja námskeið á vegum
lýðháskólans sem haldið skyldi á Íslandi.
Hver sem er getur sótt um að komast á
námskeið og Nína segir að eina skilyrðið sé
að skólinn tapi ekki á námskeiðshaldinu en
ekki skipti öllu þótt hagnaðurinn verði ekki
mikill. Þýðingarmest sé að fólk njóti nám-
skeiðsins og læri sem mest og ekki síður að
skólinn geti boðið upp á eitthvað nýtt sem
gerir hann að betri menntastofnun.
Samstarf milli íslenskra og sænskra
„Mig langar að bjóða upp á annað Ís-
landsnámskeið næsta ár og reyna jafnvel að
koma á samvinnu milli Sörängens-lýðhá-
skólans og skóla hér á landi. Þetta er fyrsta
skrefið og við ætlum að halda áfram. Í
næsta skipti mætti t.d. bæta skapandi skrif-
um við kennsluna í vatnslitamálun og ljós-
myndun en við kennum einmitt skapandi
skrif í skólanum.“
Ekki er ósennilegt að Íslendingar hefðu
gaman af að bregða sér á námskeið í Sör-
ängens-lýðháskólanum sem er á yndislegum
stað í Svíþjóð að sögn Nínu.
„Grænir akrar, tré og ótrúlega fallegt
umhverfi ætti án efa eftir að falla Íslend-
ingum vel ekki síður en Svíunum að kynn-
ast íslenskri náttúru. Ég hef búið lengi í
Svíþjóð og sé löndin með augum beggja
þjóða og veit hvað fólki finnst fallegt og
hvað það kann að meta á báðum stöðum,“
segir Nína Þorgeirsdóttir.
Mögnuð tilfinning og
stórbrotin náttúra
Sylvia Kjellberg, sem er blaðamaður í
Falun í Svíþjóð, tók þátt í vatnslita- og ljós-
myndanámskeiðinu í Þórsmörk. Þetta var
hennar fyrsta ferð til Íslands og hún segir
dvölina í Þórsmörk hafa verið sérlega gef-
andi og námskeiðið ekki síður. Henni fund-
ust bergmyndanir, jöklar og ský, hraun-
breiður, ár og ekki síst græni liturinn í og
utan Þórsmerkur, stórkostleg upplifun.
„Maður fann kraftinn sem býr í nátt-
úrunni!“ segir hún.„Við gátum valið milli
þess að mála eða taka myndir en ég endaði
með að gera hvort tveggja. Ég hafði nú
ekki hugsað mér að taka mikið af myndum
en það var ómögulegt annað en mynda, fyr-
irmyndirnar voru svo stórkostlegar. Því
miður var veðrið ekki alltaf sem best, en
þegar rigndi sátum við bara við gluggana
og máluðum útsýnið. Einn daginn sat ég og
málaði í djúpu gili. Það var ótrúlega mögn-
uð tilfinning.
Í Húsadal, þar sem við dvöldumst, voru
íslenskir hestar á beit sem gaman var að
mynda og mála og bregða sér svo á bak.
Þessir fáu dagar voru uppfullir af ævintýr-
um og gaman var að koma aftur til Íslands.
Og hver veit, það var rætt um að efna til
annars námskeiðs að ári.“
Hjálpar er þörf Hér hjálpar Nina nemanda yfir farartálma í Þórsmörk. Bergmyndanirnar,
jöklarnir, skýin, hraunbreiðurnar, árnar og svo síðast en ekki síst græni liturinn í og utan
Þórsmerkur, allt þótti þetta vera stórkostleg upplifun.
Ljósmynd/G. Romeborn
Aldursforsetinn Gunilla Westerstähl er 87 ára en málar enn af miklum krafti og snilld.
Í fjallgöngu Víða var farið í Þórsmörk.
Málað og mynd-
að í Þórsmörk
Nýjar hugmyndir í ferðaþjónustu eru margar hverjar athyglis-
verðar. Það vakti því undrun Fríðu Björnsdóttur þegar hún heyrði
af hópi Svía á námskeiði í vatnslitamálun og ljósmyndun inni í Þórs-
mörk. Hún brá sér á fund Svíanna og fékk að vita að fyrir hópnum
fór Íslendingurinn Nína Þorgeirsdóttir sem kennir við Sörängens-
lýðháskólann í Jönköping-léni.
Myndað af kappi Monica Schultz, kennari í vatnslitamálun, t.v., og tveir nemendur mynda af
kappi en Nína Þorgeirsdóttir námskeiðsstjóri fylgist með. Gudrun Romeborn ljósmyndakenn-
ari skoðar hins vegar kort með einum þátttakenda.
Maður fann kraftinn sem býr
í náttúrunni! ... Við gátum
valið milli þess að mála eða
taka myndir en ég endaði
með að gera hvort tveggja.