Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 26
úr bæjarlífinu
26 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjanesbær er enginn eftirbátur
annarra sveitarfélaga á landinu þegar
kemur að bæjarhátíðum. Ljósanótt
verður haldin í 8. sinn dagana 30.
ágúst til 2. september með hápunkti 1.
september. Undanfarna daga hefur
bæjarbragurinn borið þess merki að
Ljósanótt sé í nánd. Búið er að hengja
upp Ljósanæturfána víðsvegar um
bæinn, umhverfisátak hófst sl. mánu-
dag með þátttöku Veraldarvina og
vinna hefur staðið við fjögur hringtorg
í bænum. Á einu þeirra, Reykjavík-
urtorgi, verður afhjúpað listaverk eft-
ir Ásmund Sveinsson á föstudag.
Rúmlega 100 manns standa að þeim
fjölmörgu listsýningum sem verða í
öllu nýtanlegu plássi í húsakynnum
bæjarins og fjölbreytileiki dagskrár-
atriða er mikill. Það gleður mitt
mömmuhjarta að meira er í boði fyrir
börnin í ár en fyrri ár og því fyrirséð
að foreldrar munu gera fleira með
börnum sínum en bíða í biðröð við
leiktæki. Það gleður mig ekki síður að
ein af mín uppáhaldshljómsveitum,
Hjálmar, mun stíga á svið á föstu-
dagskvöld, en einmitt á Ljósanótt í
fyrra harmaði ég það við Hjálma-
manninn Guðmund Kristin að hljóm-
sveitin skyldi vera hætt. Ég hlýt að
hafa verið bænheyrð.
Í bland við Ljósanæturborðana hanga
nú litskrúðugir umferðarborðar á
ljósastaurum víðsvegar um bæinn.
Umferðarborðarnir eru til að minna
ökumenn á að nú í skólabyrjun er mik-
ill fjöldi barna í umferðinni, margir að
stíga sín fyrstu skref í skólana, að ekki
sé talað um þá fjölmörgu ungu öku-
menn sem eru að aka sínar fyrstu
ferðir í umferðinni. Með umferð-
arátakinu vilja bæjaryfirvöld draga
úr hraðakstri í íbúðarhverfum og við
gönguleiðir og ókeypis strætisvagnar
minnka umferðarálag og draga úr
slysahættu í umferðinni.
Allir skólarnir í Reykjanesbæ hófust
á fimmtudag og föstudag og í flóruna
eru að bætast bæði nýir skólar og
leikskólar. Í Innri-Njarðvík tekur
Akursel til starfa í næsta mánuði og
Völlur heitir nýr leikskóli á háskóla-
svæðinu. Þeir eru báðir Hjallastefnu-
leikskólar en Hjallastefnan mun einn-
ig reka barnaskóla á Vallarheiði fyrir
börn á aldrinum 6 til 9 ára. Þau börn
sem eldri eru munu stunda nám í ein-
hverjum hinna grunnskólanna 5 í
Reykjanesbæ, flest í Akurskóla í
Innri-Njarðvík.
Af þessu má sjá að Reykjanesbær er
í stöðugum vexti. 12.400 íbúar og
fjölgar stöðugt, segir á skilti við
Reykjanesbraut. Þar spilar háskóla-
svæðið á Vallarheiði stórt hlutverk og
vaxandi fólksfjöldi kallar á vaxandi
þjónustu. Ný strætóskýli spretta nú
upp eins og gorkúlur um allan bæ,
reyndar endurnýtt skýli ofan af velli
sem er vel, með tilheyrandi fjölgun
leiða og ferða. Strætó gengur nú einn-
ig um helgar og að sögn forsvars-
manna Strætó Reykjaness var helg-
arnýting góð fyrstu helgina, sem var
18. og 19. ágúst.
Einn af framtíðaríbúum Reykjanes-
bæjar verður skessan hennar Her-
dísar Egilsdóttur sem hefur glatt ís-
lensk börn í marga áratugi.
Framtíðarheimili hennar verður
hellisskúti við smábátahöfnina, en að
sögn Árna Sigfússonar bæjarstjóra
verður hlaðinn annar eins á móti til að
búa til lokaðan helli. Þá verður hægt
að kíkja á skessuna í gegnum glugga,
enda eins gott að hafa hana í hæfilegri
fjarlægð.
REYKJANESBÆR
Svanhildur Eiríksdóttir blaðamaður
Morgunblaðið/ Svanhildur Eiríksdóttir
Skessubær Í þessum hellisskúta við smábátahöfnina í Gróf mun skessan
hennar Herdísar Egilsdóttur fá varanlegt heimili.
neytendur
DÖNSKU neytendasamtökin hafa
nýverið sent frá sér fréttatilkynn-
ingu þar sem mælst er til þess að
foreldrar vari börn sín við duldum
skilaboðum í auglýsingum.
Ástæða þessa eru miðlar eins og
veraldarvefurinn sem eru sér-
staklega hentugir til þess að koma
duldum auglýsingum á framfæri.
Sem dæmi eru nefndar SMS-
keppnir þar sem ákveðnu vörumerki
er komið á framfæri undir yfirskyni
keppni sem í fyrstu virðist ekki
tengjast seljanda vörunnar. Í tölvu-
leikjum má finna auglýsingar sem
eru hannaðar þannig að þær virka
sem hluti af leiknum og nýjasta æðið
eru stuttar myndbandsklippur þar
sem auglýsingar eru gerðir þannig
að það líti út fyrir að viðvaningur eða
einhver ótengdur fyrirtækinu eða
vörunni hafi búið myndbandsklipp-
una til og sett sjálfur á netið.
Sex góð ráð
Hjá dönsku neytendasamtök-
unum kemur fram að börn séu stór-
notendur af netmiðlum og því í sér-
stakri hættu á að verða fyrir barðinu
á auglýsingum af þessu tagi.
Þannig getur verið erfitt fyrir for-
eldra að sjá hvort reynt sé að ná til
barnanna með duldum auglýsingum
og hefur því verið stungið upp á sex
einföldum aðferðum til þess að
stemma stigu við þróuninni.
Ráðin eiga sérstaklega við um gos
og sælgæti en þær vörur eru oft aug-
lýstar með áðurnefndum hætti í
Danmörku.
Fylgstu með því hvaða vörur eru
auglýstar á uppáhaldsvefsíðum
barnsins þíns.
Útskýrið fyrir barninu hvar aug-
lýsingar geta komið fyrir og hver
tilgangur þeirra er t.d. í SMS-
skeytum, á vefsíðum, sjónvarpinu
o.s.frv.
Horfið á sjónvarpið eða farið á
veraldarvefinn saman og spjallið
um auglýsingarnar sem þið sjáið.
Reynið að finna duldar auglýs-
ingar t.d. í tölvuleik til að útskýra
fyrir barninu hvernig reynt sé að
ná til þess sem markaðshóps.
Ræðið við barnið um hvort það
láti stjórnast að einhverju leyti af
auglýsingum og hvernig það ráð-
stafi t.d. vasapeningum.
Verið meðvituð um að börn geta
rekist á auglýsingar þar sem síst
skyldi, t.d. í spjallforritum eða á
spjallsíðum fyrir börn.
Útskýrið duldar auglýs-
ingar fyrir börnunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Girnilegt Í Danmörku er sælgæti
og gos iðulega auglýst með duldum
auglýsingum t.d. á veraldarvefnum.