Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 27
Séra Hjálmar Jónsson spilaði umdaginn golf á Úthlíðarvelli með
Arnari Jónssyni leikara. Arnar ku
vera mikill meistari í golfi. Á fyrsta
teig sló Hjálmar hálfa leiðina á flöt
en Arnars bolti sveif himinhátt og
langleiðina inn á flöt. Séra Hjálmar
orti:
Sé ég langt í fjarska flögg,
fátt mér tekst við golfið
en Arnar tekur upphafshögg
út í gufuhvolfið.
Séra Hjálmar var hins vegar
mjög kappsamur svo að Arnar orti
eftir að þeir höfðu farið framhjá
hrossahópi sem var rétt utan
brautar:
Blóðhlaupin augu, ákveðni í fasi,
ofurferð á prestinum
hann lemur kúlur, sem liggja í grasi
í lendina á hestinum.
Og þar sem Tungurnar eru
fæðingarsveit séra Hjálmars, sem
er fæddur og uppalinn í
Borgarholti, orti hann þarna á
túninu í Úthlíð sem breytt hefur
verið í golfvöll:
Margt er breytt í minni sveit,
munur á flestum holtum.
Þar sem áður Skjalda skeit
skýtur Arnar boltum.
VÍSNAHORNIÐ
Prestur, golf
og leikari
pebl@mbl.is
borgarhluta sem við-
komandi ætlar í. Hin
er sú að koma upp
lestarsamgöngum á
höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er ekki leng-
ur einhver framtíð-
armúsík. Ef fólki á að
vera líft í umferðinni
hér að fimm árum
liðnum, að ekki sé
talað um eftir áratug,
þarf að leggja línur
um slíkar stór-
framkvæmdir.
x x x
Hinir galvöskuforystumenn
Reykjavíkurborgar, gamli góði Villi
og Björn Ingi hljóta að eiga frum-
kvæði að slíkum umræðum. Geri
þeir það ekki er hætta á því fyrir
þá að athafnasamasti bæjarstjórinn
á höfuðborgarsvæðinu, Gunnar I.
Birgisson, taki frumkvæðið úr
þeirra höndum eins og hann gerði
þegar hann tilkynnti að frítt yrði í
strætó í Kópavogi en forystumenn
Reykjavíkurborgar sátu eftir með
sárt ennið.
Varla vill borgarstjórinn í
Reykjavík láta bæjarstjórann í
Kópavogi stela senunni aftur? Eða
hvað?
Það er ekki hægt að bíða með
þessar umræður lengur. Þær verða
að hefjast nú þegar. Sá sem tekur
frumkvæðið stendur eftir sem sig-
urvegari.
Umferðin á höf-uðborgarsvæð-
inu hefur verið æv-
intýraleg síðustu
daga. Og umferðin í
vesturbæ Kópavogs
hefur verið sérstakur
kapítuli í þeirri sögu.
Það er alveg ljóst að
um leið og skólarnir
hófu starfsemi sína á
nýjan leik snarversn-
aði ástandið á göt-
unum.
Öngþveitið í um-
ferðinni verður stöð-
ugt meira og skaps-
munir ökumanna
verða stöðugt verri.
Það liggur við að þyrlur þurfi að
vera á ferðinni á morgnana til þess
að leiðbeina ökumönnum eins og
sagt er að tíðkist úti í hinum stóra
heimi.
x x x
En hvað sem því líður er ekkihægt að láta reka á reiðanum
í umferðarmálum höfuðborg-
arsvæðisins. Þau eru að verða eitt
helzta þjóðfélagsvandamál á Ís-
landi.
Í stórum dráttum virðast vera til
tvær lausnir: önnur er sú að leggja
eins konar hringveg um þetta
svæði – eins og t.d. er í París –
þannig að fólk sem þarf að fara á
milli hverfa eða borgarhluta aki
upp á hringveginn og svo út af
honum þegar komið er að þeim
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn