Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 33 Undanfarið ár hafa kom-ið fram fjölmargarnýjar spár um nei-kvæð áhrif loftslags- breytinga. Samkvæmt þeim mun upphitun jarðar hafa víðtækar og alvarlegar afleiðingar fyrir okkur öll. Sem betur fer er enn tæki- færi til að draga úr losun og þar með að koma í veg fyrir að svart- sýnustu spárnar verði að veru- leika. Frá sjötta áratug síðustu aldar hafa norrænu þjóðirnar byggt upp einstakt og árangursríkt samstarf. Árið 1952 var lagður grunnur að samstarfi þjóð- þinga landanna með stofnun Norð- urlandaráðs og árið 1971 hófu rík- isstjórnirnar form- legt samstarf með stofnun Norrænu ráðherranefnd- arinnar. Þetta sam- starf hefur átt sinn hlut í því að stuðla að hagsæld og vel- ferð á Norð- urlöndum sem á flesta mælikvarða er meiri en finna má í öðrum heimshlutum. Í krafti góðs sam- starfs hafa Norð- urlönd allar for- sendur til að vera í fararbroddi í þeirri baráttu sem nú er hafin til að sporna við loftslagsbreyt- ingum af manna- völdum. Norrænu ríkin búa yfir þeirri þekkingu og tækni og þeim póli- tíska vilja sem nauðsynlegur er. Sem framkvæmdastjóri Nor- rænu ráðherranefndarinnar sat ég sumar fund forsætisráðherra Norðurlanda í Punkaharju í Finnlandi í júní síðastliðnum. Eitt helsta viðfangsefni fundarins var að ræða hvernig Norðurlönd geti í sameiningu tekist á við þau verkefni sem fylgja vaxandi hnattvæðingu, og þá ekki síst hvað varðar loftslagsbreytingar af mannavöldum. Forsætisráðherrarnir lýstu á þessum fundi yfir áhuga á að efla samstarf um verkefni sem tengj- ast hnattvæðingunni og ákváðu jafnframt að leggja megináherslu á loftslagsbreytingar, umhverf- isvernd og orkumál. Löndin vinna þegar mikilvægt starf hvert í sínu lagi, en á vissum sviðum, til að mynda hvað varðar loftslagsbreytingar, má efla sam- starfið og þannig ná enn frekari árangri. Það má ef til vill segja að sam- þykkt forsætisráðherrana marki tímamót í norrænu samstarfi þar sem lögð verður enn meiri áhersla en áður á að nýta þann styrk sem felst í því að starfa saman. Norræna ráðherra- nefndin gegnir lykilhlutverki og mun stýra starfinu og leggja fram tillögur að verkefnum. Loftslagsbreytingarnar eru krefjandi viðfangsefni í þessari vinnu. Forsætisráðherrarnir vilja að Norðurlönd verði í far- arbroddi við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nú þeg- ar hafa öll norrænu ríkin sett sér framsækin markmið hvað þetta varðar. Nýlega gaf Ráðherranefndin út skýrslu þar sem fjallað var um leiðir til að draga umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum og um kostnaðinn sem því fylgir. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að það sé ger- legt að draga úr losum um 60% fram til ársins 2050 án þess að það bitni umtalsvert á hagvexti, það er að segja að hagrænt heild- artap vegna þessara aðgerða yrði innan við 1% af þjóðarfram- leiðslu. Með því að sýna gott fordæmi og með því að móta framsækna stefnu sem byggist á jöfn- uði og réttlæti geta Norðurlönd haft já- kvæð áhrif á samn- ingaviðræður um nýjan sáttmála sem leysa skal Kyótó- bókunina af hólmi árið 2013. Fyr- irhugað er að ljúka samningaviðræðum um sáttmálann á leiðtogafundi Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem haldinn verður í Kaupmannahöfn árið 2009. Fund- urinn er gott tæki- færi til að sameina krafta Norðurlanda í þessu viðamikla verkefni. Norðurlönd njóta góðrar samkeppn- isstöðu meðal ann- ars á sviði orku- nýtni og endurnýjanlegrar orku. Þá er unnið að því í öllum ríkj- um Norðurlanda að þróa tækni og aðferðir til að fanga og farga koltvíoxíði. Nú þarf að meta meta á hvaða svið- um er upplagt að efla samstarfið í þeim tilgangi að ná enn meiri árangri. Öflugt rannsókna- og þróun- arstarf skiptir sköpum ef Norð- urlönd eiga að vera leiðandi í að þróa tækni sem gagnast til að draga úr uppsöfnun gróðurhúsa- lofttegunda. Við eigum að reyna að hafa jákvæð áhrif á alþjóð- legar samningaviðræður með því að vera í fremstu röð þeirra sem beita umhverfistækni sem skilar raunverulegum árangri. Loftslagsbreytingar eiga eftir að hafa mikil áhrif á lífrænar náttúruauðlindir Norðurlanda. Við þurfum þess vegna að vinna saman að því að varpa ljósi á áhrif loftslagsbreytinga á land- búnað, skógrækt, hafstrauma og lífríki hafsins. Það er jafnframt mikilvægt að átta sig betur á af- leiðingum aukinnar framleiðslu á lífeldsneyti. Norðurlönd eiga að vera í far- arbroddi í baráttunni gegn lofts- lagsbreytingum. Til þess að það geti orðið þurfa margir ólíkir að- ilar að koma að málinu af fullum krafti. Umhverfisráðherrar Norðurlanda koma saman til fundar nú í lok ágúst í bænum Borgå í Finnlandi. Þar verða þessi mál til umræðu og ég er sannfærður um að þar muni áform forsætisráðherrana um að styrkja samstarfið til að berjast gegn loftslagsbreytingum fá byr undir báða vængi. Norðurlönd í baráttu við loftslags- breytingar Eftir Halldór Ásgrímsson Halldór Ásgrímsson »Norðurlönd-in geta haft góð áhrif á samninga- viðræður um loftslagsbreyt- ingar með því sýna gott for- dæmi í orku- nýtni og nýtingu endurnýj- anlegra orku- gjafa. Höfundur er framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. tríði, Rússland Pútíns er ekki það Sovétríkin. Það hefur enga hern- burði til átaka, hernaðarútgjöldin ileg á pappírnum en peningarnir vasana á einkavinum Pútíns. gahagsmunirnir ráða ferðinni, fjöl- træn fyrirtæki hafa grætt hressi- sslandi og vilja gera meira af slíku. fjármálafyrirtæki aðstoða líka a ólígarka og aðra ráðamenn við að ningum undan til Vesturlanda. Við nnan auð birtast með ýmsum hætti erandi í London, í Þýskalandi, ystrasaltsríkjunum, Frakklandi og ð einhver hefur veitt aðstoð. Um er marga tugi milljarða dollara sem hafa verið á Vesturlöndum, rúss- ankar annast þessar tilfærslur með um samstarfsaðilum. Þetta er því niss og hverjum er þá ekki sama nréttindi?“ arf af hörku útín talar um að stöðva sölu á gasi bóginn er hann að minna á að mikl- ar séu í húfi. Ef vestrænir leiðtogar rkir og ákveðnir myndu þeir segja æri komið. En það er ekki að ger- jóðlegu risafyrirtækin hafa mikil enginn vill valda viðskiptalífinu segi alltaf að ef Vesturveldin eru að Pútín sendi vopn til Sýrlands og um kjarnorkuver verði þau að ð því að valda honum tjóni. verður að skilja að ef hann grípur mlegra aðgerða verður goldið í nt. Ég held að vestæn ríki viti al- um bankainnistæður rússneskra na í London, þau vita hvar á að leita þessum mönnum vandræðum. En pólitísk ákvörðun sem mun auðvit- alda tjóni hjá fyrirtækjum á Vest- urlöndum. Ég held að margt af því sem vestræn fyrirtæki hafi verið að gera þegar þau annast hlutabréfaútboð fyrir aðila í Rússlandi geti kallast peningaþvætti.“ – Er virkt dómskerfi í Rússlandi? „Það er ekki neitt virkt dómskerfi. Ekk- ert dómsvald, ekkert löggjafarvald, aðeins framkvæmdavald. Allir hlýða fram- kvæmdavaldinu, ríkisstjórninni. Þetta á við hvort sem um er að ræða yfirtöku stórfyr- irtækja eins og Yukos eða handtökur á and- ófsmönnum í mótmælum. Dómarar fylgja bara fyrirmælum ráðamanna. Yfirmenn mafíunnar gefa skipanir og þeim er hlýtt. Allt hitt er bara eins og skreyting. Mafíuforingjarnir í Rússlandi náðu miklu lengra en í öðum ríkjum, þeir einkavæddu ríkið. Í Bandaríkjunum hræðast mafíufor- ingjar ríkisvaldið, þar geta þeir stundum mútað spilltum embættismönnum en alltaf er sú hætta fyrir hendi að þeir verði lög- sóttir. Bæði Al Capone og Lucky Luciano enduðu í fangelsi. Stofnanir eins og leyni- þjónustan, arftaki KGB, í Rússlandi þjóna heldur ekki landinu heldur mafíunni.“ – Samtök þín standa ekki fyrir fjölmenn- um mótmælum en samt er beitt harkalegum aðgerðum gegn ykkur. Hvers vegna? „Þetta er hættulegt fyrir þá. Hvenær sem það sést að fólk er ósátt og tjáir andstöðu sína með orðum er það hættulegt og verður að brjóta það á bak aftur. Það verður alltaf að láta líta út fyrir að stjórnin hafi full- komna stjórn á öllu. Að sumu leyti er það hughreystandi að þeir skuli beita sér svona hart gegn okkur, það sýnir að ráðamenn eru hræddir við sannleikann og við öðlumst auk- inn trúverðugleika.“ Kasparov segir ráðamenn hafa stofnað ungliðasveitir sem minni nokkuð á Hitlers- æskuna [Hitlerjugend] sem beitt sé meðal annars gegn andófsfólki. „Við köllum þetta Pútínjúgend, það er fullt af þeim. Stjórnvöld úthluta þeim fé en aðallega er þarna um að ræða gróðauppsprettu fyrir þá sem stjórna sveitunum. En um leið og þær hætta að fá peninga munu þær gufa upp. Ég lít ekki á þessar sveitir sem alvarlegt mál. En þetta sýnir að unga fólkið í Rúss- landi er líka orðið spillt vegna aðgangs að auðfengnu fé. Þó að sennilega sé meira um þjófnað í landinu en í flestum Afríkulöndum er enn nóg afgangs hjá stjórnvöldum til að kaupa sér þjónustu af þessu tagi hjá ungu fólki.“ – Þú styður Viktor Geratsénko, 69 ára gamlan, fyrrverandi seðlabankastjóra Jelts- íns, í forsetakosningunum á næsta ári. Er þetta ekki bara gamall kerfiskarl sem þar að auki er sakaður um gyðingahatur? „Samtökin mín, Annað Rússland, hafa ekki enn ákveðið hvaða frambjóðanda þau muni styðja. Við viljum tryggja að allir sem vilji verða í framboði fyrir okkur standi frá upphafi jafnt að vígi. Sem stendur held ég að Geratsénko geti verið besta forsetaefnið. Ég veit ekki til þess að hann sé andvígur gyðingum, trúi því ekki. En hér verður að huga að ýmsu. Það að vera aldraður gæti í raun verið gagnlegt af því að þörf er á frambjóðanda sem ekki mun verða allt of lengi við völd. Forsetatíð hans verður millibilsástand.“ Kasparov segist hafa myndað bandalag með ólíklegustu öflum á vinstri og hægri væng rússneskra stjórnmála en sett það skilyrði að um væri að ræða fólk sem ekki væri tilbúið að semja við Pútín og menn hans til að komast að kjötkötlum valdanna. Sameiginlegi grundvöllurinn yrði að vera að þátttakendur samþykktu að lýðræði og mannréttindi yrðu höfð í hávegum þótt menn gætu síðan verið algerlega ósammála til dæmis um efnahagsmál. „Það var engin skyndiákvörðun að fara út í stjórnmál og margt réð þeirri ákvörðun. En einkum var það ósk mín um að börnin mín þyrftu ekki að alast upp í alræðisríki eins og ég varð að gera. Allar vinstrihreyf- ingarnar sem við vinnum núna með vilja að kosningar séu frjálsar, fjölmiðlar sæti ekki ritskoðun og önnur mannréttindi séu tryggð. Sergei Kovaljov, sem var þekktur andófsmaður í tíð kommúnista, sagði á ráð- stefnu okkar að hóparnir okkar myndu ekki sitja saman á lýðræðislega kjörnu þingi en það sem skipti máli væri að þeir gætu setið á slíku þingi! Samtökin okkar eru eins konar tilraunaþing, módel fyrir raunverulegt lýð- ræðisþing í Rússlandi. Við leysum ekki öll vandamál en ég tel að samtökin okkar hafi þegar unnið mikið afrek með því að fá hóp- ana á jaðrinum til þátttöku í samstarfi af þessu tagi. Þetta snýst ekki um vinstri eða hægri heldur lýðræði.“ Pólitísk skák og lífshætta Kasparov er spurður hvort pólitíkin sé erf- iðari en skákin. „Þetta er leikur þar sem ekki gilda reglur,“ svarar hann. „Þegar ég tefldi skák vissi ég að það var alltaf frammi- staða mín sem skipti sköpum. Ef ég lék vel vann ég, vondur leikur olli tapi. Ég hafði eingöngu við sjálfan mig að sakast. En þetta er flóknari leikur, þátttakendur allt öðru vísu, reglurnar breytast og ég get ekki endi- lega reiknað leikina fram í tímann eins og ég gerði við skákborðið. En ég held að ég hafi góðan málstað, sé að gera þjóð minni gagn og mun halda áfram þótt þetta sé mikil áskorun fyrir fjölskyldu mína af því að þetta er hættulegt.“ – Þú hefur séð ummæli gamals njósnara KGB, Kalúgíns, sem segir að líklega sért þú núna hættulegasti andstæðingur ráða- manna í Kreml. Þú sért efstur á aftökulista þeirra... „Já, ég hef séð þetta. Við vitum hver örlög Polítkovskaju urðu, einnig Lítvínenkos og við vitum að þetta er hættuleg veröld.“ – Þú gætir einfaldlega flúið frá Rússlandi, er það ekki? „Jú, en það er andstætt eðli mínu. Ég barðist fyrir mína eigin þjóð þegar ég tefldi og núna berst ég fyrir hana gegn einræði þessara KGB-manna. Kannski töpum við, Rússland er hættulegt og framtíð landsins gæti orðið hræðileg. Ríkið gæti hrunið af því að það er mjög fátt sem heldur því saman. En þetta stjórnarfar er eins og hættuleg veira, ef hún verður ekki fjarlægð mun þjóð- in deyja.“ rða breytingar í samfélagið hrynur Morgunblaðið/Sverrir tari í skák: „Nú er svo komið að meira að segja fólk sem var hliðhollt Pútín er tjórnar landinu eins og þetta sé þeirra eigið fyrirtæki.“ » Það verður alltaf að látalíta út fyrir að stjórnin hafi fullkomna stjórn á öllu. Að sumu leyti er það hug- hreystandi að þeir skuli beita sér svona hart gegn okkur, það sýnir að ráðamenn eru hræddir við sannleikann og við öðlumst aukinn trúverð- ugleika. OTSKURN arrí Kasparov er sonur menskrar móður og rússnesks gs, faðirinn lést er Kasparov var a. Kasparov varð yngsti heims- ari sögunnar þegar hann sigraði lí Karpov í einvígi 1985, aðeins að aldri. Kasparov hætti að pinberlega fyrir tveim árum en enn meðal allra öflugustu manna heims. Enginn maður hef- gið jafn mörg Elo-stig og Kasp- n stigin mæla hlutfallslegan skákmeistara. kjon@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.