Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 34

Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 34
34 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR hálfu ári birtist viðtal við Ólaf H. Sigurðsson, bæjarstjóra Seyðisfjarðar, sem vekur spurn- ingar um hvort tímabært sé að flýta undirbúningsrannsóknum á jarð- gangagerð undir Gagnheiði eða Fjarðarheiði áður en framkvæmdir við ný göng í stað gömlu Odds- skarðsganganna geta hafist eftir tvö ár. Þeir sem ákvarðanir tóku um að bæta hafnaraðstöð- una fyrir Norrænu iðr- ast þess nú að hafa ekki kannað þörfina á veggöngum sem tengt hefðu Seyðisfjörð við Egilsstaði og Austur- Hérað. Eftir öðrum leiðum verður aldrei komið í veg fyrir að út- lendingar sem þurfa að komast heim til sín missi af ferjunni frá Seyðisfirði þegar Fjarðarheiði lokast vegna blindbyls og snjóþyngsla. Til eru alltof mörg dæmi af þessu tagi án þess að þingmenn Norðaust- urkjördæmis hafi tekið þetta mál upp í samgöngunefnd Alþingis þeg- ar fyrrverandi samgönguráðherra stakk höfðinu í sandinn og reyndi um leið að afskræma þessar stað- reyndir til að sníða allar samgöngu- bætur eftir hagsmunum Siglfirð- inga og Ólafsfirðinga. Spurningin er hvort Seyðfirðingar vilji missa ferj- una eða fá strax tengingu við Egils- staði í formi jarðganga. Heyrt hef ég að stjórnendur Alcoa í Banda- ríkjunum hafi tilkynnt að þeir vilji aðstoða við fjármögnun veggang- anna á Mið-Austurlandi eftir að stofnað var félag áhugafólks um jarðgöng í Fjarðarbyggð og til Seyðisfjarðar. Valið stendur um tvennt, það er að fresta Mjóafjarð- argöngum tímabundið og flýta jarð- gangagerð milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða áður en framkvæmdum við ný veggöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar lýkur. Of mikil er um- ferðin yfir Fjarðarheiði til þess að tenging Seyðisfjarðar við Egilsstaði í formi jarðganga geti beðið öllu lengur. Kjörnir þingmenn og sveit- arstjórnirnar sem að þessu máli koma skulu svara því strax hvort það sé forsvaranlegt að göng úr Mjóafirði og frá Egils- stöðum til Seyð- isfjarðar bíði í þrjá áratugi ef Fjarða- byggð á að mynda eina heild sem öflugt at- vinnu-, þjónustu-, sam- göngu- og skólasvæði. Flutningur fæðing- ardeildarinnar frá Eg- ilsstöðum til Neskaup- staðar var ein vitlausasta hugmyndin sem ég hef heyrt um þegar Austfirðingar sitja uppi með Odds- skarðsgöngin sem eitt versta vandamál heilbrigðisþjón- ustunnar. Ekki eru Seyðfirðingar betur settir með annað vandræða- málið sem er Fjarðarheiði í 640 m.y.s. Annaðhvort fylgja kjörnir þingmenn Austfirðinga þessu máli eftir í samgöngunefnd Alþingis eða þeir glata trausti heimamanna fyrir fullt og allt. Eftir jarðgöngum geta Seyðfirðingar ekki beðið öllu lengur vegna fiskflutninganna sem hafa aukist alltof mikið yfir heiðina. Á meðan eykst slysahættan af þessum flutningum sem eru að eyðileggja veginn yfir Fjarðarheiði. Í þessu máli er þolinmæði bæjarstjórnar Seyðisfjarðar á þrotum. Upp í 640 m hæð keyra Seyðfirðingar aldrei 200 km báðar leiðir til að treysta á stóra Fjórðungssjúkrahúsið í Nes- kaupstað án þess að sjá fyrir hvort vegirnir upp að Oddsskarðsgöng- unum lokist vegna blindbyls, snjó- þyngsla og snjóflóða í 620 m.y.s. Þá láta heimamenn á Djúpavogi og víð- ar ekki bjóða sér að þurfa að keyra 400 km báðar leiðir vegna slysa- hættunnar í Kambanesskriðum. Að loknum framkvæmdum við Héðins- fjarðargöng mæla nú öll rök með því að ný göng í stað gömlu Odds- skarðsganganna verði boðin út sem allra fyrst. Fyrr verður einangrun heilbrigðisþjónustunnar í fjórð- ungnum aldrei rofin. Vitað er að margir heimamenn á Stöðvarfirði hafa sótt vinnu til Reyðarfjarðar eftir að samningar um stór- iðjuframkvæmdir voru undirritaðir fyrir fjórum árum. Fyrr á þessu ári kynnti Sturla Böðvarsson á Alþingi nýja samgönguáætlun fyrir næstu 12 árin á fréttamannafundi vestur á Ísafirði. Á fundinum fullyrti ráð- herrann að verja ætti um 380 millj- örðum kr. til samgöngumála fyrir allt landið næsta áratuginn. Þarna viðurkennir samgönguráðherra að allar rangfærslur um að vonlaust sé að fjármagna fjölmörg styttri göng á Vestfjörðum, Austurlandi og fyrir norðan hafi nú verið kveðnar niður þegar mokað verður meira en 10 til 15 milljörðum í Héðinsfjarð- argöngin. Jarðgöng til Seyðisfjarðar Guðmundur Karl Jónsson skrifar um jarðgöng » Að loknum fram-kvæmdum við Héð- insfjarðargöng mæla nú öll rök með því að ný göng í stað gömlu Odds- skarðsganganna verði boðin út sem allra fyrst. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. AFSTAÐA stjórnvalda á hinum Norðurlöndunum til hagsmunamála aldraðra er jákvæð. Stjórnvöld þar kappkosta að hafa sem best sam- starf við hagsmunasamtök eldri borgara og taka já- kvætt óskum þeirra um kjarabætur og bætta aðstöðu. Þessu er öfugt farið hér. Sl. 12 ár hefur afstaða stjórnvalda til kjara- baráttu aldraðra verið neikvæð. Hagsmuna- samtök eldri borgara hafa þurft að knýja (neyða) stjórnvöld til þess að láta eitthvað af hendi rakna við eldri borgara. Það, sem náðst hefur fram, hef- ur ávallt verið of lítið og of seint. Óbreytt stefna? Svo virðist sem framald verði á þessari furðulegu stefnu stjórnvalda gagnvart eldri borgurum. Báðir stjórnarflokkarnir lofuðu eldri borg- urum verulegum kjarabótum og bættri aðstöðu í síðustu kosningum. Það hefði því mátt ætla að þeir mundu nota fyrsta tækifæri til þess að efna þessi kosningaloforð. En svo er ekki. Þvert á móti virðist hugs- unin vera sú að draga efndir eins lengi og unnt sé. Ráðamenn virðast halda að kjósendur gleymi kosninga- loforðunum strax. En svo er ekki. Alþingi var kallað saman strax eftir kosningar og þá gafst tækifæri til þess að efna kosningaloforðin um bætt kjör eldri borgara. En engin tillaga kom fram um það. Eina til- lagan sem kom fram og var sam- þykkt var að 70 ára ellilífeyrisþegar og eldri, sem væru á vinnumarkaði, skyldu ekki lengur sæta skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna. Ellilífeyrisþegar á aldrinum 67-70 ára skyldu áfram sæta skerðingu tryggingabóta. Þetta er sama stefna og áður, þ.e. of lítið og of seint. Kjörin skyldu ekki bætt. Það á að bíða með það eins lengi og mögulegt er! Ef til vill ætlar ríkisstjórnin nú að skjóta sér á bak við það að Jóhanna Sig- urðardóttir taki við líf- eyrismálum almanna- trygginga um næstu áramót og ekkert liggi á fyrr en þá að huga að kjaramálum ellilífeyr- isþega. En það er mis- skilningur. Þessi mál þola enga bið og ellilíf- eyrisþegar vilja efndir á kosninga- loforðum strax. Nógir peningar til Stjórnvöld tóku að skerða kjör eldri borgara árið 1995, þegar rofin voru sjálfvirk tengsl milli lægstu launa á almennum vinnumarkaði og tryggingabóta eldri borgara. Síðan hefur lífeyrir eldri borgara frá al- mannatryggingum stöðugt dregist aftur úr í almennri launaþróun. Aldrei hefur fengist nein skýring á því hvers vegna tekið var upp á þessu 1995. En nærtækast er að álykta að þetta hafi verið gert í sparnaðarskyni. Fjármál ríkisins hafa hins vegar batnað svo mikið síðustu árin að ríkið gæti af fjár- hagsástæðum gert vel við eldri borgara og hefði átt að gera það fyr- ir löngu. Ríkisreikningurinn fyrir árið 2006 leiðir í ljós að tekju- afgangur nam 82 milljörðum króna. Er afgangur af venjubundinni starf- semi meiri en árið áður. Skattar á tekjur einstaklinga nema 81 millj- arði og hækka um 12,8% frá fyrra ári. Skattheimtan eykst því stöðugt. Ríkið tekur meira og meira af borg- urunum. En tímir ekki að veita eldri borgurum sómasamleg kjör. Það eru nægir peningar til í því skyni að bæta kjör ellilífeyrisþega. Þær raddir heyrast oft að margir eldri borgarar séu vel staddir og þurfi ekki hærri lífeyri frá almanna- tryggingum. Það er rétt að ákveðinn hópur eldri borgara hefur það gott. En hitt er einnig staðreynd að meira en 10 þúsund eldri borgarar hafa það „mjög skítt“. Þeir geta ekki veitt sér neitt. Þeir hafa rétt fyrir fæði og húsnæði. Þessi hópur er með rúmar 100 þúsund á mánuði. Það lifir eng- inn mannsæmandi lífi af þeirri fjár- hæð. Húsnæðiskostnaður er mjög mismunandi hjá eldri borgurum eins og öðrum. En ef eldri borgari (borg- arar) þarf að leigja húsnæði fer mik- ill meirihluti af þessum peningum í húsnæðiskostnað. Krafan er því sú að kjör eldri borgara verði leiðrétt strax. Það er ekki eftir neinu að bíða. Afstaða stjórnvalda hér til eldri borgara er neikvæð Björgvin Guðmundsson skrifar um kjör eldri borgara »Ríkið tekur meira ogmeira af borg- urunum. En tímir ekki að veita eldri borgurum sómasamleg kjör. Það eru nægir peningar til … Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. SÁTTMÁLI Sameinuðu þjóð- anna tryggir öllum ríkjum aðild- arrétt. Hví í ósköpunum útiloka SÞ þá þjóð, Taívan, sem fullnægir öllum skilyrðum um að teljast ríki skv. Montevideo-sáttmálanum frá 1933 og er fjölmennari en 80% að- ildarríkja SÞ? Ein stofnregla SÞ er um stuðn- ing við frelsi og lýðræði. Hví skella SÞ þá skollaeyrum við þjóð, Taívana, sem talin er sú frjálsasta í Asíu skv. mati Freedom House frá 2006? Önnur grundvallaregla SÞ er um stuðning við efnahagslegar og félagslegar framfarir og um bar- áttu gegn fátækt og sjúkdómum. Hví hafna stofnanir SÞ þá þeim mannauði og fjárhagsauði sem hið háþróaða land, Taívan, hefur upp á að bjóða: land sem er á lista yfir 20 fremstu lönd heims á sviði þjóð- arframleiðslu, við- skipta og fjárfestinga í öðrum löndum? Sameinuðu þjóð- irnar hampa mann- réttindum. Mannrétt- indayfirlýsingin fræga boðar: að „allir eigi að njóta þeirra réttinda og þess frelsis sem yfirlýsingin kveður á um … enginn íbúi skuli undanskilinn vegna pólitískra yf- irráða eða alþjóðlegrar stöðu lands hans eða landsvæðis“. Hví hunsa stofnanir SÞ þá réttindi 23 milljóna Taívana? Mestu varðar að SÞ voru stofn- aðar til að fyrirbyggja stríð og stuðla að friði. Hví loka SÞ þá eyrum fyrir kalli Taívans um við- ræður og aðstoð á sama tíma og Taívanssund er talið stöðug ógn við heimsfriðinn? Svarið við öllum ofangreindum spurningum er hið sama: Rík- isstjórnir heims og fulltrúar þeirra í alþjóðastofnunum hafa látið und- an þrýstingi frá stjórnvöldum í Kínverska alþýðulýðveldinu (PRC) með hinn sívaxandi efnahagslega og hernaðarlega mátt sinn. Stjórn- völd þar staðhæfa að Taívan sé hérað í Alþýðulýðveldinu og megi því ekki veita aðild að stofnunum sem einungis ríki geti átt aðild að. Þótt fá lönd hafi opinberlega tekið undir þessa staðhæfingu virðast fá hafa þor til að andæfa henni af ótta við refsiaðgerðir, m.a. af efnahagslegu tagi. Óttinn við að styggja valdhafana í Beijing hrjáir ráðamenn í SÞ líka. Hinn 19. júlí sl. sendi Chen Shui-bian, forseti Taívans, aðild- arumsókn að SÞ til aðalritara þeirra, Ban Ki-moon, þar sem hann lagði enn og aftur áherslu á vilji Taívana til að taka sitt rétt- mæta sæti í SÞ og leggja lóð á vogarskál hinna háleitu markmiða samtakanna. Aðalskrifstofa SÞ sendi umsóknina til baka með vís- an til samþykktar Allsherjarþings- ins nr. 2758 um að „aðeins sé til eitt Kína“. Þessi aðgerð ber vitni um virð- ingarleysi gagnvart Sáttmála SÞ og reglum samtakanna sem mæla fyrir um að aðalritari skuli sjálf- krafa vísa öllum aðildarumsóknum til Öryggisráðsins og að lokum til Allsherjarþingsins. Aðalskrifstofan hefur tekið fram fyrir hendurnar á aðildarríkjunum og komið í veg fyrir að þau geti beitt umfjöll- unar- og ákvörðunarvaldi sínu. Aðgerð aðalskrifstofu SÞ er einnig forkastanleg vegna þess að í henni felst alvarleg mistúlkun á eðli aðildarumsóknar Taívans og inntaki samþykktar nr. 2758. Um- sóknin grefur á engan hátt undan lögmæti ríkisstjórnar Kínverska alþýðulýðveldisins (PRC) sem full- trúa Kína. Né heldur felur um- sóknin í sér að Taívan sé hluti af Kína. Af þessum ástæð- um, og einnig til að undirstrika að Taívan er ekki í neinni sam- keppni um að vera fulltrúi Kína á vett- vangi SÞ, þá höfum við farið fram á aðild að SÞ sem „Taívan“. Þetta er í samræmi við langa hefð um þátttöku í SÞ og öðr- um alþjóðastofnunum undir öðrum heitum en notuð eru í við- komandi heimalönd- um. Með ofangreint í huga sendi for- seti Taívans annað bréf til aðalrit- ara SÞ hinn 27. júlí þar sem skýrðar voru staðreyndir um þessa aðildarumsókn og þess farið á leit að umsóknin yrði send til Öryggisráðsins eins og reglur SÞ gera ráð fyrir. Fólk í Taívan og Kína er tengt sterkum menningarlegum og mál- farslegum böndum, hagkerfin eru orðin samslungin og hjónabönd milli íbúa Taívans og Kína algeng. Allt lofar þetta góðu um hægfara þróun í átt að farsælum sam- skiptum fyrir báða aðila. En rangt er að loka augum fyrir því að margt skilur enn á milli: Taívan er lýðræðissamfélag, byggt á virð- ingu fyrir mannréttindum, en Kína er stjórnað af alræðisstjórn sem fótumtreður mannréttindi. Taívan er friðsælt samfélag sem ekki ógnar neinum. Kína stefnir hins vegar þúsundum eldflauga í áttina að Taívan og er að byggja upp margslungna stríðsvél sem ætlað er að draga úr okkur dáð og hefta aðra í að koma okkur til bjargar. Taívan er tilbúið til viðræðna við hvaða þjóð sem er um hvaða efni sem er og vonast sérstaklega eftir bættri sambúð við Kína. Ráðamenn í Beijing neita hins vegar að eiga bein samskipti við stjórnvöld í Taipei og þvinga aðr- ar þjóðir og stofnanir til að ein- angra Taívan. Slík framkoma er váboði. Upp- lýstar þjóðir verða að gera sér grein fyrir þessu og styðja aðild- arumsókn Taívans að SÞ. Að minnsta kosti verða þær að nýta sér SÞ sem tæki til að efla sam- skipti við Taívan í því augnamiði að treysta og varðveita frið í Aust- ur-Asíu. Hví er Taívan ekki í Samein- uðu þjóðunum? Shieh Jhy-wey skrifar um að- ildarumsókn Taívans að SÞ Shieh Jhy-wey »… SÞ voru stofnaðartil að fyrirbyggja stríð og stuðla að friði. Hví loka SÞ þá eyrum fyrir kalli Taívans um viðræður og aðstoð á sama tíma og Taív- anssund er talið stöðug ógn við heimsfriðinn? Höfundur er ráðherra upplýsinga- mála í Taívan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.