Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 40

Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 40
40 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ALLT frá upphafi hefur mað- urinn verið að þreifa fyrir sér, kynna sér aðstæður, auka skilning sinn, mennta sig og vinna. Árang- urinn er umtalsverður á okkar mannlega mælikvarða og vonandi í flestum tilfellum mannkyninu til fram- fara, heilla og bless- unar. Hér á okkar kæra landi búum við flest við velmegun. Miklar og nánast ótrúlegar fram- farir hafa átt sér stað á nánast öllum sviðum á síðastliðnum hundrað árum. Þjóðin er al- mennt vel menntuð, þenslan í atvinnulífinu er mikil og næga at- vinnu virðist hafa. Við erum lánsöm Íslend- ingar og getum vissulega verið þakklát. Lítils virði ef umgjörðina og innihaldið vantar Þrátt fyrir aukna þekkingu, fram- farir, næga atvinnu og almenna vel- megun leynist á bak við hverja kennitölu flöktandi sál sem þráir ör- yggi, innri frið og varanlega ham- ingju. Það að menntast er að sjálfsögðu auðgandi og mannbætandi, okkur öllum hollt og nauðsynlegt. Það að stunda atvinnu gleður okkur og fær- ir björg í bú. Nauðsynlegir þættir eins og að borða og sofa, stunda lík- amsrækt og bóklestur og jafnvel það að horfa á sjónvarp, svo dæmi séu tekin, byggja okkur sannarlega upp og veita okkur ánægju og fyllingu að minnsta kosti um stund. En eru harla léttvæg ef innihaldið og um- gjörðina vantar. Ef við stöldrum ekki við og skoðum hvað það er sem við lifum fyrir. Hvað það raunveru- lega sé sem haldi okkur gangandi. Ef okkur skortir markmið í lífinu og höfum því ekki forsendur til að velja og hafna í ruglingslegu tilboðsflóð- inu. Að vera snortinn af ást Guðs Getur verið að hin varanlega ham- ingja sé eftir allt saman fólgin í upp- lifuninni af þeirri uppgötvun að maður sé óendanlega dýrmætur í augum Guðs og skapaður til sam- félags við hann með háleit markmið með lífinu og í tilver- unni? Þegar það upplýkst fyrir manni að maður sé hluti af áætlun Guðs. Ráðsmaður hans á jörðinni. Ákvarðaður af honum til góðra verka, til að bera ávöxt, sam- félaginu til heilla og Guði til dýrðar? Meðtekur þannig ást Guðs og tileinkar sér lífgjöfina, lærir að njóta hennar og lifa henni í þakklæti svo farvegur kærleikans fái að umbreyta okkur og streyma frá hjörtum okkar til að lita og auðga umhverfið, samferðafólki til góðs? Fyllumst við þá fyrst ekki til- gangi svo vellíðan tekur um okkur að streyma? Tilgangi sem helgast af því að vera snortin af kærleika sem spyr ekki um sitt eigið og krefst ekki endurgjalds. Ást Guðs fylgir nefnilega sam- hjálp og umhyggja. Ylur sem vermir og veitir okkur innri frið og var- anlega vellíðan. Kostar þjálfun og þolinmæði, úthald og aga Þegar öllu er á botninn hvolft er nefnilega fátt dýrmætara og gefur meira en að geta gengið út í daginn fylltur af innri friði. Friði Guðs, sem er æðri öllum mannlegum skilningi. Friði sem við getum samt meðtekið, upplifað og notið í ríku mæli. Þegar allt kemur til alls gefur það nefnilega meira að vera jákvæður og uppörvandi, sígefandi í samskiptum, heldur en að olnbogast áfram, heimta, hrifsa og græða og vera stöðugt að telja sér trú um að maður eigi rétt á einhverju og eigi hitt og þetta skilið. Sú jákvæðni, umhyggja og upp- örvun sem fylgir hinum fölskvalausa kærleika eru dyggðir sem skilja eitt- hvað svo óútskýranlega gott eftir sig þannig að manni tekur að líða betur. Þannig að andrúmsloftið í umhverf- inu verður léttara og svo miklu þægilegra. En það kostar að ganga í sig og vera ekki stöðugt að spyrja um sitt eigið. Það kostar hugarfarsbreyt- ingu, stöðuga þjálfun og þolinmæði, úthald og aga. Það að elska og vera elskaður gef- ur því alltaf mest þegar til lengri tíma er litið. Lífsfyllingu sem ekki verður metin til fulls eða toppuð. Eftir þinn dag man enginn hvaða titla þú barst og hvað þú græddir mikið. Menn rifja heldur upp hvað þú gafst mikið af þér. Hvernig þú reyndist í samskiptum. Hvort þú varst raunverulegur mannvinur og hvaðan orkan var fengin til að vera gæddur þeim ómetanlegu dyggðum að geta sinnt svo innihaldsríkum og gefandi samskiptum. Varanleg hamingja Hin hugarfarslega gleði skemmt- unarinnar er yfirborðskennd, stund- leg og skammvinn. En hin raunveru- lega hamingja hjartans veitir sanna gleði sem eykur lífsgæðin til muna. Því hún byggist á djúpri alvöru sem veitir innri frið. Varanleg hamingja Hin raunverulega hamingja hjartans veitir sanna gleði sem eykur lífsgæðin til muna segir Sigurbjörn Þorkelsson » Gleði skemmtunar-innar er yfirborðs- kennd og skammvinn en hin raunverulega ham- ingja hjartans veitir sanna gleði, eykur lífs- gæðin og veitir innri frið. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur. ELLEFTA þessa mánaðar fór ég í kirkju þar sem vinir mínir, maður og kona voru gefin saman. Á eftir var boðið til veislu að sið fornu höfðingjanna. Það sem einkenndi samfagnaðinn var vinsemdin sem þar sveif yfir. Þar af leiðandi var ekkert hnútukast andlegs né lík- amlegs eðlis. Mikill ættarhöfðingi hélt þar skörulega ræðu og lagði út af vinsemd, kærleika og heilbrigðri sál í hraustum líkama og tókst eindæma vel að skila því til við- staddra. Það var ekki aðeins að hann kæmi til skila hve vinsemdin er okkur mikilvæg. Hann hætti sér hik- laust á Hinsegin degi inn á hálar brautir. Það þarf kjark og snilld til að spinna saman samkynhneigð og húmor eins og ég kýs að túlka orð hans. Vegna ofurviðkvæmni sem í þeim efnum er langt yfir eðli- legum mörkum, þora fáir að tjá sig að ótta við afleiðingarnar. Þar má fátt tvírætt segja, því sjúklega mörgu er snúið á verri veginn. Þó ólíku sé saman að jafna má taka dæmi af umönnunarfólki á heimilum fatlaðra. Ég veit um tilfelli þar sem útlend starfskona kemst upp með að fá útrás fyrir slæmt innræti sitt í skjóli manneklu. Í þessu dæmi væri aðfinnsla rasismi en eðlileg ábend- ing ef Íslendingur ætti í hlut. Löngu er vitað að engin ræður sinni kyn- hneigð og stórir sem smáir hafa goldið fyrir það sem var þeim eðli- legt. Þar á meðal Tchaikovsky og Michelangelo. Heilbrigð skynsemi gerir ljóst að svartur maður er þeim hvíta í engu síðri. Fara má um víðan völl og færa rök fyrir að trú gyðinga er hvorki betri né verri en múslima, þar sem grein úr heiðni sem við af- lögðum árið þúsund á því miður af- gerandi sess. Þar á ég við tilvitnun í Gamla testamentið og Kóraninn um heiðursvíg, sem rekja má til trúarsetningar beggja sem útleggst, auga fyrir auga og tönn fyrir tönn og kristnir réttilega kalla morð. Allt er þetta samofið því sem minn kæri vinur þuldi yfir hundrað og fjörutíu vinum og vandamönn- um í veislunni góðu. Eftir að hafa farið fögrum orðum um mannval íslensku þjóð- arinnar og hvað það skipti miklu máli sagði hann að þar skorti á að tvær konur, eða tveir karlar skiluðu sínu í afkomendum. Augljóslega var hann að setja dag homma og lesbía í glettið samhengi við nútíð og framtíð. Ef mæl- endaskrá hefði ekki fyllst svo fljótt sem raun varð á, hefði ég gjarnan bent viðstöddum á að Bolvíkingar hafi ekki uppskorið svo mikið sem þeir töldu sáð til með fyrirfram ákveðinni ástarnótt. Til örlítils mótvægis má nefna að tvö af aðalvandamálum heims- byggðarinnar eru hlýnun jarðar og fólksfjölgunin. Í öðru má ætla að samkynhneigðin spili stóra jákvæða rullu. Viðbót við brúðkaups og af- mælisveislur eru gleðisamkundur nýja aðalsins sem sjást á skjáum landsmanna fagna þegar millj- arðafúlgur eru boðnar velkomnar úr vasa þjóðarinnar í þeirra. Almenn- ingur er þjakaður af vaxandi skuldahala, auk þess sem hann líður fyrir okur af flestum gerðum og fær ekki lengur að byggja eigin hús. Nú svigna veisluborð þeirra sem eiga bankana, sjávarútveginn og þeirra sem fá byggingalóðirnar til að braska og okra. Nú er húsnæði yfirleitt helmingi dýrara en fyrir fáum árum og samhliða hækka fast- eignagjöld, húsaleiga, lán og vextir. Engin furða þó mennirnir sem gera út á almenning, geti keypt sér þyrl- ur. Undarlegra er að þeir skuli leggja sig fram við að trufla svefn- frið þeirra sem gera þeim þetta mögulegt. Almenningur hugsar vart hlýlega til þingmannanna sem skópu misréttið sem gegnsýrir þjóðfélagið í dag. Mér koma í hug orð N.N. sem sagði að stjórn- málamenn væru eins og bleyjur. Það þyrfti að skipta um þá reglu- lega og af sömu ástæðu. Boðið til veislu Albert Jensen skrifar í tilefni af ræðu ættarhöfðingja » Löngu er vitað aðengin ræður sinni kynhneigð og stórir sem smáir hafa goldið fyrir það sem var þeim eðli- legt. Albert Jensen Höfundur er trésmíðameistari. ÍSLENSKT MÁL Jón G. Friðjónsson 109. þáttur Sem og aftur sem Tilvísunarorðin sem og ervísa í íslensku jafnan tilnafnliðar, t.d.: Þettaeru skórnir sem ég keypti. Í ensku og dönsku geta samsvarandi tilvísunarorð einnig vísað til sagnorða og jafnvel heilla setninga. Í nútímamáli gætir nokkuð enskra eða danskra áhrifa á notkun tilvísunarorða, t.d.: við töpuðum leiknum á ellefu mínútum sem voru gríðarleg von- brigði [og voru það … ; en það voru … ] (7.6.07); Um allt sam- félagið eru því menjar hins forna misréttis í fullu gildi sem er mið- ur [og er það miður] (19.6.07); Sameinuðu þjóðirnar vilja að gæsluliðið verði undir stjórn samtakanna sem þýðir að [en í því felst] (17.11. 06); Spurn- ingakeppni fjöl- miðlanna er hefðbundin á RÚV um páska. Sem er gott mál [Það er gott/ágætt] (7.4. 07); spurn- ingar séu talsvert léttari en verið hefur. Sem er varhugaverð þróun (7.4. 07) og Og þá er þjóðfélagið hætt að geta slappað af yfir höfuð sem er afskaplega vont (7.4. 07). Þetta fyrirbrigði er fremur nýtt af nálinni, umsjónarmaður hefur aðeins rekist á það í nútímamáli (einkum fjölmiðlum). Orðfræði Umsjónarmaður hefur gaman af að leita skýringa á þeim am- bögum sem upp koma enda má oftast finna hliðstæður sem toga í ef svo má að orði komast. Stund- um stendur hann þó ráðþrota frammi fyrir málblómunum, sbr. eftirfarandi: á þessum degi fyrir 38 árum gáfust Frakkar upp en Þjóðverjar höfðu brunað í gegn- um Frakkland eins og hnífur í gegnum heitt smjör (21.6. 07). – Dæmalaust rugl er þetta! Í mörgum tilvikum blasir þó við að um samslátt er að ræða, tveimur orðatiltækjum er ruglað saman eða búið er til ‘nýtt’ orða- tiltæki með því að afbaka annað. Flestir munu t.d. þekkja orða- tiltækið skríða undir pilsfald e-s ‘leita skjóls hjá e-m (notað í háði, niðrandi)’ en hitt er nýtt að unnt sé að hlaupa eftir pilsfaldi e-s: Við erum að gagnrýna [svo] alla pró- fessorana í sagnfræði sem hlaupa eftir pilsfaldi ríkisstjórnarinnar (16.5. 06). Orðatiltækið e-ð fær byr undir báða vængi er eldfornt og flestir munu kannast við orðasambandið brakandi þerrir. Þessu má ekki rugla saman eins og gert er í eft- irfarandi dæmi: Airbus fær brak- andi byr undir báða vængi í bar- áttunni við Boeing (28.6. 07). Íturvaxinn Árni Björnsson skrifar (19.7. 07): ,,Fyrir nokkrum árum var einhver feitlagin kona í fram- haldsþætti í sjónvarpinu. Ég kem ekki fyrir mig hvað hún hét en í sjónvarpskynningunni var hún sögð ‘íturvaxin’. Ég hélt þá að hér væri um vísvitandi grín að ræða: fólk væri að snúa út úr þessu fal- lega lýsingarorði. Í gærkveldi sá ég orðið hinsvegar notað um hina digru sjónvarpsfígúru Homer Samper eða hvað hann heitir. Mér flaug í hug hvort fólk væri virkilega farið að tengja ‘ítur’ við ‘ístru’?“ Umsjónarmaður þakkar Árna kærlega fyrir ábendinguna. Hann telur sig alloft hafa heyrt lo. ítur ‘fagur’ notað í öfugri merkingu eins og Árni bendir á en hins vegar þykir honum með ólíkindum ef sú merking hefur náð að festa rætur sem eðlilegt mál. Sallarólegur Í 107. þætti var vikið að orð- unum sallafínn og sallarólegur. Helgi Skúli Kjartansson skrifar þættinum efnismikið bréf um það efni. Hann segir: ,,Beinu merkinguna í sallafínn þekki ég ekki af eigin raun. En Blöndal tilfærir hana með dæm- inu sallafínn sandur og undir hana falla þrjú dæmi af 15 í rit- málssafninu [ritmálssafni Orða- bókar Háskólans]. Ég hef ein- ungis vanist óbeinu merkingunni, og þá einkum um fólk (‘prúðbúinn’) og kannski föt (‘sparilegur, viðhafnarmikill’). Það er útvíkkun á þessari merk- ingu þegar Þráinn teygir hana yfir skáldverk (‘prýðilegur’). Sú útvíkkun er mér ekki beint fram- andi en þó þykist ég ekki alinn upp við hana. Enda er ekki dæmi um hana í ritmálssafni, hins veg- ar nokkur (4 held ég) í textasafni. Úr því að sallafínn þekkist (eða hefur þekkst) í beinni merk- ingu, þá mætti ætla að hún sé upprunaleg, sú óbeina afleidd, og hún sé fyrirmynd furðuorðsins sallarólegur. En á því orði lærði ég einhvern tíma allt aðra skýr- ingu sem líka hlýtur að vera nokkuð til í. Nefnilega að það sé myndað eftir danska orða- sambandinu salig rolig. Þetta heyrði ég einhvern tíma (líklega í skóla) bent á og líkt við það hvernig danska orðið fuldskæg (‘alskegg’) hafi getið af sér sam- setninguna fúlskeggjaður. Salig rolig er reyndar orðalag sem ég hef ekki vanist á dönsku. Frekar kannast ég við að sagt sé salig og rolig. … Um hitt, salig rolig, finn ég dæmi á norsku og sænsku, og þannig trúi ég það hafi verið í dönskunni áður, kom- ið inn í málið úr sálmi Kingos: Sov da, sov i JEsu arme, Viger alle Verdens larme, Jeg er i min JEsu skiød! Hand mig skal af Mørket føre, Hand min sidste Søfn vil giøre Salig, rolig, sagt og sød. (Thomas Kingo) Þaðan hafa Íslendingar tekið það. Fyrst með slettunni salí. Ég finn á vefnum (mest bloggsíðum) 16 ólík dæmi um orðasambandið alveg salí. Þar af 7 með sam- bandinu salí rólegur. Sem kemur heim við mína tilfinningu fyrir orðinu. Ég hef tæplega notað það sjálfur en heyrt það notað og finnst það ekki eiga heima nema í þessu sambandi. Ef ég heyri salí eitt sér, þá finnst mér það vera stytting þar sem rólegur er und- anskilið. Það má vera að þessi til- finning mín sé orðin gamaldags og aðrir skilji salí sem sjálfstætt hugtak. (Þannig er það skýrt í ÍO). En upprunalega hefur orðið verið tekið upp úr dönsku til að nota í þessu ákveðna sambandi. Sem getur svo af sér, með eins konar alþýðuskýringu, aðlagað tökuorð: sallarólegur. Ég hef ímyndað mér að það hafi orðið fyrirmyndin að sallafínn. En lík- lega er það þvert á móti, þannig að fyrirmyndin sallafínn hafi ýtt undir breytinguna: salí rólegur > sallarólegur‘‘. Umsjónarmaður þakkar Helga kærlega fyrir skemmti- legan pistil. Skýringar hans virð- ast traustar enda eru elstu dæmi í ritmálsskrá Orðabókar Háskól- ans um lo. sallafínn talsvert eldri en um sallarólegur. Framlag Helga sýnir svo að ekki verður um villst það sem flestir vita: Ís- lensk tunga er margbrotin og á akri hennar er að finna óþrjót- andi og áhugaverð verkefni. Flestir munu t.d. þekkja orðatiltækið skríða undir pilsfald e-s jonf@rhi.hi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.