Morgunblaðið - 25.08.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 25.08.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 41 FÆÐINGUM hefur fjölgað tölu- vert í Reykjavík tvö undanfarin ár. Árgangurinn sem nú er á rétt á leikskólavistun er því rúmum tvö hundruð börnum stærri en sá sem er að hefja grunnskólagöngu. Í nokkur ár hefur verið miðað við að öllum reykvískum börnum sem orð- in eru 18 mánaða í september sé boðin leikskóladvöl. Samkvæmt töl- um frá Hagstofu Íslands eru leik- skólabörn í Reykjavík samkvæmt þessari skilgreiningu 6.770. Þegar öll pláss sem í boði eru á leikskólum í Reykja- vík eru tekin saman kemur í ljós að þau eru 6.680 og er þá búið að gera ráð fyrir nýj- um deildum við leik- skólanna Álftaborg og Rofaborg. Þannig vantar því um 90 pláss á leikskólanna í Reykjavík nú í haust, væru allar stöður full- mannaðar og öll pláss fullnýtt. Gera má ráð fyrir að nú í ár verði fjöldi fæðinga svipaður, eða um 1.700 börn. Hinsvegar er sá ár- gangur sem á næsta ári hefur grunnskólagöngu í Reykjavík tölu- vert minni eða um 1.500 nemendur. Þannig er ljóst að fjölga þarf pláss- um um 300 fyrir haustið 2008, ef standa á vörð um það viðmið að öll börn sem orðin eru 18 mánaða í september eigi kost á leikskóladvöl. Uppbygging smábarnadeilda Við þetta bætist svo að fyrir síð- ustu kosningar var kjósendum í Reykjavík lofað áframhaldandi upp- byggingu leikskóla, m.a. sérstakra smábarnadeilda. Því lofuðu allir, ekki síst frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins. Ef taka ætti inn öll börn sem orð- in eru ársgömul í september ár hvert, þyrfti að fjölga plássum til viðbótar við þessi 300 um 850 eða heildar fjölgun um 1.150 pláss. Sem samsvara einum 13 leikskólum. Einhverjum finnst það kannski mikið í lagt að öll börn sem orðin eru ársgömul í september komist inn á leikskóla en þá ber að hafa í huga að börn eru að öllu jöfnu tekin inn einu sinni á ári, þegar pláss losna við upphaf grunnskóla. Þann- ig að börn sem fædd eru í október væru þrátt fyrir þessar breytingar ekki að komast inn á leikskóla fyrr en við 23 mánaða aldur. Varla finnst nokkrum það of mikið í lagt í samfélagi þar sem fæðingarorlof er 6-9 mánuðir og jafnvel þó það væri lengt í 1 ár. Mannekla Því er ljóst að verulega þarf að spýta í lófana í uppbyggingu leik- skóla ætli meirihlutinn sér að efna loforð um uppbyggingu smá- barnadeilda. Ekki dugir að skýla sér á bak við manneklu, að ekki sé hægt að byggja leikskóla því það fáist ekkert fólk til að vinna í þeim. Það þarf miklu fremur að leita allra leiða til að laða starfsfólk að störfum á leikskólum borgarinnar. Ég man ekki eftir því hausti að ekki hafi verið óráðið í einhverjar stöður á leikskólum, þrátt fyrir að svo hafi verið, hélt fyrri meirihluti upp- byggingu leikskóla áfram. Nýr meirihluti hefur einnig lofað áframhaldandi uppbyggingu, bæði fyrir kosningar og í málefnasamn- ingi. Ef fólk sem vill og þarf að vinna kemst ekki út á vinnumarkaðinn vegna skorts á leikskólaplássum er það bara til að auka enn á þá spennu sem fyrir er á vinnumark- aðnum og auka skort á vinnuafli. Það hlýtur að vera liður í að leysa mannekluvandann að fólk fái leik- skóladvöl eða pláss á frístunda- heimilum fyrir börnin sín svo það geti öruggt farið út á vinnumark- aðinn vitandi af börnum sínum í öfl- ugu og þroskandi starfi. Því ætti það að vera forgangsverkefni að manna leikskóla og frístundaheimili með öllum tiltækum ráðum. Hvað er til ráða En hvers vegna gengur svona illa að ráða fólk til starfa, á leikskólum, í grunnskólum og á frístundaheim- ilum. Er svona leiðinlegt að vinna á þessum vinnustöðum? Nei, alls ekki. Vinnustaðagreiningar sýna að þeir sem vinna þessi störf njóta þess. Samkvæmt sömu vinnustaða- greiningum er það einkum tvennt sem slær á hamingjuna, laun og álag. Það er löngu orðið ljóst að það verður að hækka laun þeirra stétta sem sinna menntun og umönnun barna og það sama á við um að- hlynningu aldraðra og sjúkra. Alla tíð og endalaust hefur verið talað um að ekki megi hækka laun þessara stétta því þá „fari allt af stað“, „fylgi allir í kjölfarið“, „hækki verðbólga“ og guð veit hvaða hörmungar munu ekki dynja yfir. Þetta var kannski raunin ein- hvern tímann, en hverjir fylgja í dag í kjölfar launa mennta og umönnunarstétta? Hverjir eru það sem elta þessar stéttir í átt að mannsæmandi laun- um? Menntun og umönnun í for- gang Í borgarstjóratíð Steinunnar Val- dísar voru stigin mikilvæg skref í þá átt að hækka laun umönn- unarstétta, án þess að það kollvarp- aði íslensku viðskiptalífi. Nú þarf að stiga fleiri skref. Þegar laun þess- ara starfsmanna verða hækkuð verður það til að fylgja í kjölfarið á hækkunum annarra í samfélaginu. Það er sorglegt, en eins og staðan er í dag, eru engir í launalegu kjöl- fari þessarar stétta. Það má færa fyrir því ágæt rök að þetta þjóðfélag fari mun frekar á annan endann ef framboð á vinnu- afli fer ekki að aukast. Aukið fram- boð á leikskólaplássum og plássum í frístundaheimilum væri til þess að slá á spennu á vinnumarkaði. Því fyrir hvern starfsmann sem ráðinn er inn á leikskóla komast fjórir for- eldrar út á vinnumarkaðinn. Því hlýtur það að vera forgangs- verkefni og hagur okkar allra að uppbygging og mönnunarmál leik- skóla verði leyst. Það er á ábyrgð meirihlutans í Reykjavík að leysa þessi mál og standa við gefin loforð. Uppbygging leikskóla er nauðsynleg Sigrún Elsa Smáradóttir skrif- ar um uppbyggingu og mönnun leikskóla í Reykjavík » Aukið framboð áleikskólaplássum og plássum í frístunda- heimilum væri til þess að slá á spennu á vinnu- markaði Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Aðstoðarmaður viðskiptaráðherra fjallar um bankamál í grein í Morg- unblaðinu 18. ágúst sl. Greinin er greinilega skrifuð til varnar ráð- herra viðskipta- og neytendamála. Í grein þessari segir hann m.a.: „ Hið opinbera hefur eitt vald til þess að fram- fylgja refsi- ákvæðum laga.“ Mikið rétt en er þá ekki kominn tími til þess að bankakerfið verði losað undan bæði dóms- og framkvæmdavaldi. Þann kaleik verður ráðherra að bera ásamt fulltrúum hins opinbera. Einnig segir í grein aðstoð- armannsins; „Þar af leiðandi er fjármálafyrirtækjum heimilt að inn- heimta svokallaðan FIT kostnað svo lengi sem hann er grundvall- aður á samningi á milli banka og viðskiptamanna.“ Er það já, af hverju voru olíufélögin sektuð á sínum tíma? Var það ekki fyrir samstilltar aðgerðir og samráð? Er í dag nægilegt að stilla neytendum upp við vegg og gera þeim að vera beinir þátttakendur í samráðs- aðgerðum kerfisins? Er þetta leiðin til þess að sniðganga samkeppn- islög? Samráðsfundir í Öskjuhlíð- inni verða þá væntanlega óþarfir eða hvað? Bankamenn, stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn fagna margir óg- urlega þegar bankarnir birta af- komutölur sínar. En það eru tvær hliðar á peningunum. Stór hluti al- mennings kvartar sáran undan fargi vaxta, stýrirvaxta, þjónustu- gjalda margskonar, hvort þau heita skúffugjald, FIT kostnaður eða seðilgjald skiptir ekki máli. Al- menningur er mergsoginn af kerf- inu. Örfáir einstaklingar sjá í gegnum þá svikamyllu sem bankakerfið hef- ur byggt upp með því að snúa við- skiptalögmálum á hvolf, hag- fræðikenningum á haus, svína á siðfræðilögmálum og brjóta lög. Hvort kerfið hefur stjórn- málamennina í vasanum eða ekki veit ég ekki fyrir víst. Hitt veit ég. Kerfið hefur efni á því að múta. Á meðan banka- og fjármálakerfið er jafn spillt og raun ber vitni um munu þeir menn sem ábyrgð bera á viðskiptaumhverfi þessa lands og að farið sé að settum lögum ávallt liggja undir ámæli um óheiðarleika. Bankarnir hafa verið einkavæddir en þeir hafa ekki verið markaðs- væddir. Á þessu tvennu er mikill munur. Skorað er á nýskipaðan við- skiptaráðherra að hann taki nú við kaleiknum. Honum er jafnframt óskað velfarnaðar í starfi. SIGURÐUR LÁRUSSON kaupmaður. Innistæða fyrir ávirðingum Frá Sigurði Lárussyni Sigurður Lárusson SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Mikið endurnýjuð 98 fm hæð í myndarlegu steinhúsi í vesturbæn- um. Íbúðin er björt með góðri lofthæð. Tvær stórar stofur og tvö rúmgóð svefnherbergi. Útsýni út á sundin. Verð 29,5 millj. Upplýsingar veita Ólafur og Guðrún í símum 899 7365 og 693 9656. VESTURGATA 56 - OPIÐ HÚS HINN 1. ágúst sl. var viðtal við Þorkel Helgason orkumálastjóra í Spegli Ríkisútvarpsins. Spurt var út í markaðsvæðingu orkugeirans og af- leiðingar hér innanlands og erlendis. Margoft hefur komið fram að orku- málastjóri er þessari þróun afar hlið- hollur. Í Spegilsviðtalinu við hann koma mjög við sögu hugtök á borð við mis- túlkun, misskilningur og hugtak- aruglingur. Við sem erum gagnrýnin á markaðsvæðingu orkugeirans erum jafnan sögð á villigötum þegar við færum rök fyrir máli okkar og til- greinum dæmi úr raunveruleikanum. Um afleiðingar markaðsvæðingarinnar segir Þorkell í fyrr- greindu viðtali: „Holt og bolt held ég að menn séu samt sammála um það að þetta hefur leitt til hagræðingar og ein- hverrar lækkunar á orkuverði. Það hefur kannski einkum komið fram hjá stærri neyt- endum, kannski í minna mæli hjá almenningi. Hér á landi hefur verið vísir að samkeppni, t.d. einstaka fyrirtæki eða fyrirtækjahóp- ar hafa gert góð kaup á raforkumark- aðinum. Ég held t.d. að bakarar hafi samið við einn orkusalann um verð sem þeir eru vonandi ánægðir með. En ég hygg að hvort sem samkeppni verður mikil eða ekki – og vonandi verður hún mikil … “. Vandinn er hins vegar sá að stöð- ugt berast okkur fréttir, ekki síst frá Evrópusambandinu, af fákeppni, samráði og öðrum tilheyrandi einok- unartilburðum, nú síðast í Financial Times 31. júlí sl. um stórfyrirtæki í orkugeiranum (gasi), Eon og Gaz de France, sem sökuð eru um að hafa skipt með sér stórum markaðs- svæðum og sammælst um verðlag. Fréttir af þessu tagi hafa verið tíðar og koma vonbrigði manna einnig fram í hverri svörtu skýrslunni á fæt- ur annarri frá Evrópusambandinu. Í rannsóknarskýrslum um þróun raf- orkumarkaðarins hefur margoft komið fram að framleiðni hefur auk- ist í orkugeiranum á undanförnum áratugum óháð markaðsvæðingunni. Spurningin snýst hins vegar um hvað markaðsvæðingin hefur leitt af sér. Ég hef margoft vitnað í tölur frá að- skiljanlegum ríkjum, þar á meðal Norðurlöndunum, sem sýnt hafa fram á hve óhagstæð neytendum markaðsvæðingin hefur verið. Í tímaritinu Verktækni sem sam- tök íslenskra verkfræðinga gefa út er að finna afar athyglisverða umfjöllun um danska skýrslu sem segir mark- aðsvæðingu raforkugeirans hafa ver- ið „fíaskó“ fyrir notendur. Verð hafi hækkað um þriðjung, fyrirtækjum á markaði hafi fækkað með tilheyrandi fákeppni. Rakið er hvernig skýrslu- höfundarnir dönsku sýna fram á að raforkuverð hafi hækkað, miðað við fast verðlag, um 25% árin 2000-2005 til iðnfyrirtækja og um 33% til al- mennings. „Fullyrðingar um ávinn- ing af frjálsum raf- orkumarkaði standist einfaldlega ekki. Þeir leggja til að Danir beiti sér fyrir því [...] að ESB semji ný raforkulög frá grunni.“ Í fyrrnefndri grein í Verktækni, sem ég hef áður vísað til hér í Morgunblaðinu, kemur einnig fram að sam- keppnisyfirvöld innan Evrópusambandsins taki undir þessa gagn- rýni og má minna á að forsvarsmenn íslenskra raforkutækja höfðu uppi varnaðarorð um aukinn kostnað vegna markaðsvæðing- arinnar sem hafa gengið eftir. Guð- mundur Þóroddsson, forstjóri OR, lét t.d. þau orð falla áður en haldið var út á þessa braut að tilkostnaður við „samkeppnina sjálfa“ myndi nema um einum milljarði króna sem þá var einn tíundi hluti af heildarkostnaði raforkukerfisins! Nú er það gott mál ef íslenskir bak- arar hafa fengið hagstæðan raf- orkusamning svo vikið sé aftur að yf- irlýsingum orkumálastjóa. En væri ekki ráð að láta fleiri íslensk iðnfyr- irtæki fá raforku á góðum kjörum í stað þess að hygla erlendri stóriðju? Þetta geta eigendur íslenska raf- orkugeirans gert, nefnilega íslenska þjóðin. Til þess þarf hins vegar vilja hjá þeim sem þjóðin hefur kosið yfir sig til að gæta hagsmuna sinna. Ég skora á íslenska fjölmiðla að kafa ofan í þessi mál. Það hafa menn vissulega gert en í undantekningartilfellum. Það er helst í fréttaskýringarþætti Ríkisútvarpsins á laugardögum og í Útvarpi Sögu sem slíkir tilburðir hafa verið uppi nú í sumar. Með fullri virð- ingu fyrir íslenskum fjölmiðlum og Þorkeli Helgasyni: Ekki láta hlut- dræg yfirvöldin baka ofan í okkur einhvern veruleika sem byggist á óskhyggju en ekki staðreyndum. Staðreyndirnar upp á borðið! Bakstur orku- málastjóra Ögmundur Jónasson skrifar um markaðsvæðingu orkugeirans »Ekki láta hlutdrægyfirvöldin baka ofan í okkur einhvern veru- leika sem byggist á ósk- hyggju en ekki stað- reyndum. Ögmundur Jónasson Höfundur er alþingismaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.