Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 43

Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 43 ✝ BjörgmundurBragason var fæddur á Fæðing- arheimili Reykja- víkur 31.12. 1964. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu, Vitastíg 15 í Bolungarvík.19.8. 2007, fjörutíu og tveggja ára að aldri. Foreldrar Björg- mundar eru hjónin Guðrún Jóhanns- dóttir frá Patreks- firði, f. 25.11. 1942, og Bragi Björgmundsson frá Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundarfirði, f. 20.6. 1943. Systkini Björgmundar eru: 1) Fríða, f. 1963, sambýlismaður Kristján S., Kristjánsson, f. 1957, þeirra börn eru Hulda Guðrún (1977), Kristján Þór (1981), Bragi Rúnar (1984), Brynhildur Helga (1992), og Þormóður Bessi (1994), og barnabarn Vanda Sólrún (2006). 2) Jóhann, f. 1967, eiginkona Dorota Rutkowska, f. 1967, þeirra dæt- ur eru Lovísa Anna (1993) og Alex- andra (2003). Lovísa Loftsdóttir, f. 1922, lifir sonar- son sinn. Björgmundur fluttist til Svíþjóð- ar með foreldrum sínum árið 1969 og heim aftur 1974. Árið 1976 fluttist hann með for- eldrum sínum og systkinum til Bolungarvíkur og gekk þar í grunnskóla. Björg- mundur lauk sveinsprófi í kjöt- iðn frá Síld og fiski 1991. Hann vann í iðn sinni í Reykjavík, á Ísafirði og í Bolungarvík. Síð- ustu æviár sín vann hann hjá fiskmarkaði Bolungarvíkur og hjá Landflutningum/Samskipum til dauðadags. Útför Björgmundar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, laugardaginn 25. ágúst, kl. 14. „Hún er ekki tilbúin,“ sagði Björgmundur um Vöndu Sólrúnu þegar hann rétti stórar hendur sínar til hennar, hún sneri vang- anum að, vildi ekki sitja hjá Begga. Eitthvað var gefið í fullyrðingunni „hún er ekki tilbúin“. Og það sem gefið var að í rúma tvo áratugi höfðu systkinabörn hans og fleiri átt sinn stað á hné hans eða legið á stóra maganum hans og lúrt. Nú var komið að næstu kynslóð á hnéð og í fjórðu tilraun var Vanda Sól- rún tilbúin. Þegar þangað var komið sneri hann yfirleitt máli sínu til nærstaddra um málefni líðandi stundar, stundaði lítt grettur eða tæpitungu við barnið. Það var ró og friður við hjarta hans og næg verkefni fyrir snáða að skoða putt- ana, lófann, horfa á vangann, toga í bolinn eða senda nærstöddum sig- urbros. Við erum ekki tilbúin. Við snú- um vanganum við þessari köldu kvöl. Ekkert er í heimi hér eldra og ófrumlegra en dauði manns, en ekkert er eins frumlegt eða nýrra í veröldinni en líf og dauði þessa manns, af því að það sem hann lifði hefur enginn annar lifað eða mun lifa. Og svarið þegar við neyðumst til að snúa sjónum okkar að dauð- ans staðreynd er líka fornt og ófrumlegt en þó nýtt og einstakt: Grátur, ósjálfráður, ómótstæðileg- ur. Enginn hefur grátið þessum tárum áður, og hver er sá meðal manna sem skilur tárin þín til fulls. Og til hvers þá að gráta einn út í myrka auðn? Grátur er ósjálfrátt ákall, bæn, sem ofin er í kjarna mannsins óháð þroska trú eða viti, er þá ekki líka ofið öðrum þræði að einhver heyri sjái og skilji til fulls? Björgmundur var miklu stærri og sverari en aðrir menn og var það honum byrði og fótakefli, sjálf- sagt andlega líka. Því miður er oft slíkra manna háttur og hlutskipti að einangrast. En hann gekk fram í trú og vissu um að hann þarfn- aðist annarra og aðrir þörfnuðust hans. Allt sem hann gerði öðrum var eðlilegt, hiklaust og án tilgerð- ar. Ræktarsemi við vini vanda- menn og fólk var honum algert for- gangsatriði, að aka 2.000 kílómetra á viku til að gleðja vin eða fjöl- skyldu á tímamótum var ekki mál til tala um. Ekki er foreldrum aufúsa að aðrir hirti börn þeirra. Á sama hátt og hann tók þau í fangið gat hann hirt son minn og fósturson með háum hvellum rómi beint fyrir framan nefið á foreldrunum ef hann taldi þörf á án þess að líta við uppalendunum. Einnig þetta var svo eðlilegt að piltunum datt ekki í hug að gjóa á foreldra sína til að athuga hvort eðlilegt væri að hann hirti þá. Þá sjaldan ég spurði þá hver ástæðan hefði verið var svar- ið: „Æ, Beggi fór í falsettu“. Ógn var óhugsandi frá Begga. Eitt er þó óeðlilegt, yfir moldum hans standa ekki einungis foreldr- ar heldur líka amma. Kristján Sig. Kristjánsson. Það er erfitt að horfast í augu við óvænt fráfall manns á miðjum aldri sem maður man aðeins eftir með bros á vör og blik í auga. Að- eins eru nokkrar vikur síðan hann sá af færni fagmannsins um veit- ingar í eftirminnilegri fermingar- veislu þar sem Bolungarvík skart- aði sínu fegursta og hann var hrókur alls fagnaðar. Eftir situr sár söknuður, samúð og þökk fyrir tilvist þessa ljúflings, frænda og vinar. Ljúfur Drottinn lífið gefur, – líka misjöfn kjör og í sinni hendi hefur happ á tæpri skör. Feigðin grimm um fjörið krefur, – fátt er oft um svör. Enginn veit hver annan grefur, – örlög ráða för. En óendanleikinn er lykillinn að lífsins hringrás í sérhvert sinn. Vættir mannlífs vef þótt spinni og velji örlög hörð eiga hlut í eilífðinni allir hér á jörð. Það sem var það verður aftur víst í lengd og bráð. Endalaus er alvalds kraftur og hans hjálp og náð. Helga og Ómar. Kveðja til míns besta vinar. Kæri vinur! Það var um þetta leyti fyrir 31 ári sem við hittumst fyrst, þú þá nýfluttur úr Kópavogi með fjölskyldu þinni hingað til Bolung- arvíkur. Allar götur síðan höfum við ver- ið bestu vinir. Traustari og betri vinar var ekki hægt að óska sér. Alltaf boðinn og búinn til að að- stoða hvort sem var í einhverjum veislum eða hjálpa mér að dytta að húsinu mínu. Eitt símtal og þú varst kominn. Síðustu daga hef ég verið að rifja upp gamlar minningar með sjálfum mér og er óhætt að segja að það eru góðar minningar. Sunnudagskvöldin voru okkar kvöld. Þá komst þú oft í heimsókn til okkar Önnu á Hjallastrætið í kaffispjall, eins og við kölluðum það. Það var einmitt á sunnudags- kvöldið síðasta, þegar við fjöl- skyldan vorum nýkomin heim úr ferðalagi, að móðir þín hringdi og tilkynnti um andlát þitt. Ég hafði hugsað um það á leiðinni að mikið væri gott að komast heim og eiga von á að þú kíktir í heimsókn í kaffispjall. Það er sárt til þess að hugsa að sunnudagskvöldin okkar verða ekki fleiri að sinni, kæri vin- ur. Ég hef oft hugsað það, Beggi minn, að ef einhver ætti það skilið að eignast börn, þá væri það þú, því barngóður varstu með afbrigð- um og því fengu synir mínir að kynnast. Því miður varðstu ekki þeirrar gæfu aðnjótandi. Við rædd- um þetta stundum en þú varst van- ur að segja að það skipti þig ekki svo miklu máli því systkinabörn þín væru sama sem þín eigin. Elsku Bragi, Gunna, Fríða, Jói og fjölskyldur. Ykkar missir er mikill en megi minningin um góðan dreng lifa um ókomna tíð. Að síðustu vil ég segja við þig, Beggi minn. Við eigum vonandi eftir að hittast fyrir hinum megin og eiga gott kaffispjall. Góða ferð, minn kæri vinur. Kristján Arnarson. Mig langar í fátæklegum orðum að minnast vinar míns, Björg- mundar Bragasonar. Begga kynnt- ist ég þegar hann flutti í Víkina sem unglingur. Small beint í bekk- inn okkar sem einn af hópnum þar sem hann lagði ríka áherslu á að allir væru jafnir og enginn yfir aðra hafinn. Man eftir stoltum hesteiganda, baldinn hestur Blær. Bjart sumarkvöld, Beggi, Helgi og ég að labba heim eftir bíó, stoppað við Traðarstíg 8, setið á girðing- unni, spjallað, hlegið og hermt eft- ir samferðafólki. Beggi hafði ein- staka frásagnargáfu, fór hægt af stað en svo stigmagnaðist frásögn- in og endaði með hnyttinni og leik- rænni tjáningu sem uppskar mikil hlátrasköll. Það er dýrmætt að fá að vera samferða svo góðri mann- eskju sem Beggi var, sem af svo miklu æðruleysi gekk lífsins götu. Það er sárt og nístir inn að dýpstu hjartarótum að kveðja bróður úr ’64-árgangnum langt um aldur fram. Þín er sárt saknað, kæri vin- ur. Foreldrum, systkinum og öllum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Davíð Gestsson. Í minningunni skein sól á sumrin í Bolungarvík. Fjöllin, Traðar- hyrna, Ernir og Óshyrna, sveipuð sólskini og Ísafjarðardjúpið speg- ilslétt. Eitt slíkt sumar birtist Björgmundur, eða Beggi eins og hann var kallaður. Hann flutti vestur ásamt foreldrum sínum, Braga og Gunnu, og systkinum sínum, þeim Fríðu og Jóa. Hann var forvitnilegur strákur, hafði bú- ið í Svíþjóð og Kópavogi. Var lífs- reyndari en við hin sem aldrei höfðum farið lengra en inn á Ísa- fjörð. Hann var umsvifalaust um- lukinn stóði stráka sem vildu kynna honum leyndardóma þessa litla sjávarpláss, norður við ysta haf. Við tóku ævintýraferðir á öskuhaugana, fjöruskoðun, kofa- byggingar og kannski fikt með stolnar sígarettur bak við stein. Beggi varð strax Bolvíkingur og vinur okkar. Um haustið settist hann í engla- bekkinn, eins og sumir kölluðu bekkinn okkar. Auðvitað vorum við engir englar. Við vorum hins vegar svo heppin að hópurinn var ein- staklega vel saman settur. Þar mættust ólíkir einstaklingar, hóg- værir, háværir og allt þar á milli. Beggi var rólegur og yfirvegaður. Hann sat gjarnan með strákunum aftast í bekknum og var þar hrók- ur alls fagnaðar. Í upphafi var hann kannski feiminn við stelpurn- ar, sem kannski var von, en það leið hjá er tímar liðu. Hann setti sannarlega svip sinn á hópinn, var hlýr og spaugsamur og umfram allt traustur. Eins og vera ber fór hver sína leið eftir að grunnskóla lauk. Böndin á milli okkar bekkjarsystk- inanna hafa hins vegar ekki rofnað og frekar styrkst með árunum. Síðast er við hittumst á æskuslóð- um í Bolungarvík fyrir fjórum ár- um urðu fagnaðarfundir. Beggi var í móttökunefndinni og stóð við grillið er við mættum, hvert úr sinni áttinni. Þarna áttum við hlýj- ar samverustundir sem ylja okkur nú. Beggi greindi okkur frá heilsu- bresti sínum og baráttu sinni við að sigrast á veikindum sem hann höfðu hrjáð. Það var engu að síður bjart yfir honum og hann ánægður með lífið og tilveruna. En nú er skarð fyrir skildi. Drengurinn með stóra nafnið, sá yngsti okkar, sá stærsti og sterk- asti hefur verið kallaður af velli. Minningin um góðan dreng mun fylgja okkur og við munum minn- ast hans er englabekkurinn kemur saman á ný. Hugur okkar er hjá foreldum hans, systkinum og þeirra fjölskyldum. Þeirra missir er mestur og þeirra sorg er sárust. Guð blessi minningu Björgmundar Bragasonar. Bekkjarsystkini. Hann Beggi vinur okkar er lát- inn, enn einn snillingurinn fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Æ, Beggi, það er sárt að þurfa að koma til Bolungarvíkur og þurfa að kveðja þig í hinsta sinn. Vildum við miklu frekar vera að koma í heimsókn til þín eins og við gerðum hér um árið og borðuðum góðan mat, drukkum góð vín og skemmtum okkur vel, hlógum, og þú sýndir okkur fram á að það er alveg hægt að búa annars staðar en í Reykjavík. Ógleymanlegt var að fara á sérvestfirskt „pöbbarölt“ inn á Ísafjörð og Flateyri, svaka- lega var það gaman. Alltaf stóð til að endurtaka leikinn og töldum við að nægur tími yrði til þess en svo var því miður ekki. Þetta var alveg einstök ferð þar sem hlustað var á Megas kyrja smekklegar vísur og rætt var allt frá byggðastefnu ríkisstjórnarinnar til hvort gin- blandan væri of dauf. Alltaf var tómlegt í Reykjavík eftir að þú fórst aftur vestur en við vorum að vinna saman á tveimur stöðum og vorum eins og stórir Dalton-bræður, við vorum sem ein heild og þar sem einn ætlaði að fara frá Ali fórum við allir, ekkert gat rofið klíkuna. En við hittumst oft þegar þú komst í bæinn því einhvern veginn var styttra fyrir þig að koma suður en fyrir okkur að koma vestur. Þó að við hittumst sjaldan var alltaf eins og við værum daglega inni á gafli hver hjá öðrum og hittumst á hverjum degi. Já, Beggi, þú varst hreinn og beinn og þú sagðir hlut- ina eins og þér fannst og var alveg sama hvort aðrir væru á öðru máli, og alltaf samkvæmur sjálfum þér. Beggi, þú varst frábær maður sem við gleymum aldrei á meðan við lifum. Fyrsta hugsun þegar maður sá þig fyrst var að þú mundir borða mann í morgunmat, stór maður sem mundi ekki víla fyrir sér að úrbeina kjöt berhentur með engan hníf en þegar þú byrj- aðir að tala komst maður að því að þú varst einhver ljúfasti maður sem til var. Svolítið hlédrægur sem tróð sér ekkert upp á fólk en varst sannur vinur sem var gott að eiga. Já, Beggi, eins og við ræddum einu sinni um árið, þá væri gaman að vera þannig maður að fólk þyrfti ekki að ljúga um mann í minning- argreininni, en þá áttum við ekki von á því að þurfa að skrifa til þín, kæri vinur, hér er allt satt. Sjáumst kannski síðar hinum megin, vonandi endum við allir á sama stað. Þínir vinir, Jóhannes Geir Númason. Sigurður Finnur Kristjánsson. Björgmundur Bragason ✝ Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR, áður til heimilis á Skógtjörn, Álftanesi, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 22. ágúst. Auðbjörg Eggertsdóttir, Sigurður Eggertsson, Klemenz Eggertsson, Erla Stringer og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS KARELSSON, lést í Malmö, Svíþjóð, miðvikudaginn 15. ágúst. Auður Matthea Matthíasdóttir, Aldís Hugbjört Matthíasdóttir, Guðrún Matthíasdóttir, Karel Matthías Matthíasson, Hugrún Valdimarsdóttir, Jörundur Sveinn Matthíasson, Sigrún Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ROLF JOHANSEN stórkaupmaður, lést fimmtudaginn 23. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Ásgeirsdóttir Johansen, Agnes Johansen, Thulin Johansen, Guðrún Þorleifsdóttir, Svava Johansen, Björn Sveinbjörnsson, Berglind Johansen, Pétur A. Haraldsson, Ásgeir Johansen, Aki Isishe Johansen, Kristín Johansen, Halldór Harðarson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.