Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 45 ✝ Vilborg Guð-jónsdóttir fyrr- um húsfreyja í Eystra Fróðholti fæddist hinn 1. októ- ber 1928 að Efri-Ey (Hól) í Meðallandi. Vilborg lést hinn 16. ágúst 2007 að Hjúkr- unarheimilinu Lundi á Hellu. Vilborg var dóttir hjónanna Guðjóns Bjarnasonar, f. 23.3. 1901 í Efri-Ey og Kristínar Sveins- dóttur, f. 2.8. 1902 á Melhól í sömu sveit. Vilborg var elst systkina sinna, sem eru Sveinn, f. 1930, bóndi á Uxahrygg á Rangárvöll- um, Bjarni, f. 1931, fyrrum sókn- arprestur á Valþjófsstað í Fljóts- dal, Óskar, f. 1933, fyrrum verka- maður, heimilismaður á hjúkr- unarheimilinu Lundi á Hellu og Gróa, f. 1935, verkakona á Uxa- hrygg. Vilborg ólst upp hjá foreldrum sínum í Meðallandi, fyrst í Hól, þá á Efri-Steinsmýri og síðan í Sand- aseli. Árið 1944 fluttist hún með foreldrum sínum að Galtarholti á Rangárvöllum og síðan að Uxa- hrygg í sömu sveit. Árið 1950 giftist hún Sigurgeiri Valmundssyni, f. 30.11. 1919, frá Móeiðarhvoli í Hvol- hreppi og sama ár hófu þau búskap í Eystra-Fróðholti á Rangárvöllum, þar sem þau bjuggu síð- an samfellt til ársins 1983, þegar þau brugðu búi og flutt- ust að Borgarsandi 1 á Hellu, þar sem þau bjuggu til æviloka. Sigurgeir lést 2. september 2002. Sonur Vilborgar og Sigurgeirs er Guðmundur Óli, f. 27.8. 1949, grunnskólakennari á Kirkjubæj- arklaustri. Eiginkona hans er Est- er Anna Ingólfsdóttir leikskóla- kennari, f. 11.1. 1951 í Kópavogi. Börn þeirra eru: a) Sigurborg Ýr, skrifstofumaður, f. 8.8. 1973. Sambýlismaður hennar er Odd- steinn Heiðar Árnason, húsasmið- ur, f. 21.10. 1975. Börn þeirra eru Árni Dagur, f. 29.9. 2004 og Ester Glóey, f. 7.2. 2007. Fyrir átti Sigur- borg Söru Arndísi Thorarensen, f. 2.6. 1999. Faðir hennar er Eiríkur Hrafn Thorarensen bókmennta- fræðingur. b) Bergrún Arna jarð- fræðingur, f. 31.10. 1978. Útför Vilborgar fer fram frá Oddakirkju í dag, laugardaginn 25. ágúst og hefst athöfnin kl. 14. „Amma í sveitinni“ kvaddi þennan heim þann 16. ágúst síðastliðinn eft- ir að hafa verið mikið veik í þó nokk- urn tíma. Það er meira af afspurn en að ég muni það sjálf að ég veit að fyrstu árin kallaði ég ömmu „amma namm namm“, með vísun í rúsínur og súkkulaði sem áttu sinn stað í hornskápnum í Eystra-Fróðholti. Síðar breyttist það í „amma í sveit- inni“ og hefur haldist þannig alla tíð, líka eftir að hún flutti að Hellu. Amma og afi fluttu frá Fróðholti þegar ég var 11 ára en af æskuminn- ingunum eru minningarnar frá Fróðholti ætíð hvað sterkastar. Þegar komið er að kveðjustund þá líða svipmyndir um hugann og mínar myndir af ömmu tengjast flestar sveitinni; amma í fjósinu að kenna mér að mjólka; amma í sauðburð- inum þar sem ég fékk stundum það ábyrgðarhlutverk að hjálpa kindun- um að bera þar sem ég var með minnstu hendurnar; amma í eldhús- inu að reiða fram hinar ýmsu kræs- ingar og alltaf grautur eða annar eftirmatur; amma að skikka mig til að fara nú og þvo stígvélin betur því það var ekki í boði að koma á þeim skítugum inn í bæ; amma í garðinum að kenna mér hvað er morgunfrú og hvað er fjóla og svo að tína rifs og taka upp radísur; amma í jeppanum á kvöldin að fara til kinda og þá sungu allir hástöfum; amma með kisuna, sem hét aldrei neitt, voru að ég held þó nokkrir kettir í gegnum tíðina sem allir gegndu sama nafn- inu eða kallinu öllu heldur; amma á Land Rover um allar sveitir áður en hún tók bílpróf. Svona mætti halda áfram endalaust en ég læt hér stað- ar numið og veit að allir sem þekktu hana eiga sínar góðu minningar og munu halda í þær hver fyrir sig. Það er með söknuði sem við kveðj- um ömmu, vitandi þó það að hún fer á góðan stað og að þar bíður „afi í sveitinni“ eftir henni, en með gleði sem við minnumst hennar og í minn- ingunni er amma í sveitinni í Eystra- Fróðholti þar sem pabbi ólst upp og þar sem ég lærði að umgangast dýr- in í sveitinni, bera virðingu fyrir líf- inu og líka fyrir dauðanum. Sigurborg Ýr Óladóttir. Elsku Bogga okkar hefur nú feng- ið hvíldina og langar okkur systkinin frá Ármóti að kveðja hana með nokkrum orðum, en hún reyndist okkur sem hin besta amma í sveit- inni. Það var gott að eiga Boggu og Sigurgeir sem nágranna, en stutt er á milli bæja þar sem Fróðholt er næsti bær við Ármót. Við krakkarnir heimsóttum þau hjónin oft og var Bogga alveg sér- staklega gestrisin. Alltaf var gaman og gott að koma í Fróðholt, ilmur af flatkökum, kleinum, eða rjómapöns- um fannst ósjaldan út á hlað. Oftar en ekki báðum við Boggu að gera fyrir okkur karamellur sem hún svo töfraði fram. Hún stjanaði sífellt við okkur og lét sem fyrirhöfn væri eng- in og alltaf nægur tími fyrir okkur krakkana. Bogga hafði sérstaklega gaman af börnum og sóttum við til hennar einstaka hvatningu og hlýju. Okkur leið sem við værum merkileg- ustu manneskjur í heimi nálægt Boggu og það sem við höfðum að segja væri eitt það merkilegasta sem sagt hefur verið. Hvort heldur sögurnar okkar væru sannar eða lognar hlustaði Bogga af mikilli þol- inmæði og innlifun. Bogga var mikill dýravinur og hafði sérstaklega gaman af öllu ung- viði þá ekki síst kettlingum sem hún kallaðir á með alveg sérsöku hljóði (dririririn). Hún var sífellt að passa upp á að vel færi um dýrin og að þau hefðu nóg að borða rétt eins og með okkur krakkana. Þegar vora tók var gaman að fá að fara með Boggu og Sigurgeiri til kinda. Þá var gjarnan sungið í Landróvernum milli þess sem við krakkarnir stukkum út til að gá hvort lömb væru komin. Það er okkur mikils virði að hafa kynnst svo jákvæðri og hjartahlýrri konu sem alltaf vildi ná öllu því besta fram í okkur krökkunum, það er ómetanleg gjöf. Gott er ein með guði að vaka gráta hljótt og minnast þín, þegar annar ylur dvín. Seiða liðið líf til baka og láta huggast systir mín. Örugg var ég alla daga er ég dvaldi næri þér – bestu gullin gafstu mér. Þá var lífið sælust saga sem er til á jörðu hér. (Páll Ólafsson.) Hér kveð ég þig í hinsta sinn hjartans ástkæri vinur minn. Hryggur sem barn ég þakka þér þína handleiðslu og ást á mér. (Jóhannes úr Kötlum.) Elsku Óli, Ester, Sigurborg, Bergrún, Gróa, Sveinn, Óskar, Bjarni og fjölskyldur ykkur sendum við hugheilar samúðarkveðjur Bergþóra, Benedikt, Hekla og Rán. Af þaki gömlu hlöðunnar í Fróð- holti gat hrafninn með hátterni sínu sagt Boggu til um hvort eitthvað væri að úti í mýri. Hún skildi tákn- mál hans, án þess að notað væri eitt- hvert það tungumál sem við hin þurfum að nota. Hún þurfti heldur ekki alltaf orðin til að móta mig sem ungan dreng í hennar umsjá. Það andrúmsloft, frelsi en samt agi er ríkti hjá Boggu og Sigurgeiri miðl- aði því sem þurfti. Að lesa í umhverfið, skynja og afla sér þekkingar og reynslu var ekki bara í samskiptum við hrafninn. Bogga bjó yfir þroskuðum persónu- leika og var kjarnakona. Oft kom mér á óvart hve vel hún var upplýst og gat sýnt öðrum góðan skilning. Þannig gat hún alveg fram á efri ár sýnt það og sannað að hún bjó ekki bara yfir reynslu og skoðunum „gamla skólans“, heldur fylgdi tíð- arandanum. Bogga ræktaði garð sinn vel. Við- urkenning frá sveitarstjórn hefði ekki bara sómt sér vel fyrir snyrti- mennskuna í Fróðholti, ekki síður mætti heiðra hana fyrir allt það góða sem af ræktarsemi hennar hefur sprottið. Aldrei minnist ég þess að hún hafi látið styggðaryrði falla í garð nokkurs manns. Hún skilaði sínu hlutverki sem barn guðs með miklum sóma og um hana eiga margir fagrar minningar. Efst er mér í huga þakklæti fyrir allt það sem Bogga hefur veitt mér í mínum uppvexti og minningum. Eiginleikum sem ég get með stolti sagt að hún hafi mótað minn per- sónuleika af og ég get nú miðlað af öryggi til minna barna sem ábyrgur uppalandi komandi kynslóðar. Bogga hafði, og veitti kannski ekki af, nægan tíma til uppeldisins. Aðeins fimm ára gamall fór ég að venja komur mínar í Fróðholt og urðu sumrin samtals tíu auk ótelj- andi helga, páska- og jólaleyfa. Fengið var leyfi frá skólasundinu til að komast í sauðburðinn og jafnvel komið beint úr sláturhúsbílnum í skólann að hausti. Ég nefni þetta til að lýsa því hversu gott og kært mér þótti að vera hjá þeim hjónum. Það voru fleiri krakkar en ég sem fengu að njóta sveitaverunnar í Fróðholti. Uppátækin voru því mörg og gat Bogga oft hlegið að vitleys- unni í okkur krökkunum eða verið þátttakandi í fjörinu. Ég vil kveðja hana Boggu mína, rifjandi upp gleðistundir þar sem við böðuðum okkur í ánni, slettum skyr- inu í bókstaflegri merkingu, tókum á móti goti kattarins eða litum eftir skepnunum. Björgvin Filippusson. Það er skrýtið með dauðann, hann er stundum óhugnanlegur og ljótur og stundum fallegur, rétt eins og upphaf lífs. Tvö náttúrufyrirbæri, ætíð samofin og óræður tíminn á milli. Það var mér léttir þegar hún Bogga fékk að deyja, öðlaðist frelsi frá slitnum, veikum líkama sem mér fannst hún vera fangi í. Á svona stundum leita minning- arnar fram. Það er vor og við krakk- arnir finnum kleinuilminn þegar við komum inn. „Dustið af ykkur heyið úti, annars kem ég með kústinn.“ Það er glettni í röddinni, „súrmjólk- ina fyrst og svo megið þið fá ykkur kleinu og mjólk á eftir“. Þær voru vinsælar kleinurnar hennar Boggu eins og reyndar allt matarkyns sem hún útbjó. Hún var aldrei nógu ánægð með holdafarið á okkur og reyndi að troða í okkur eins og hún gat. Eitt sinn ætlaði hún að gefa okkur skyrhræring en við neituðum að éta þann óþverra. Nokkru seinna bakaði hún bráðgott brauð sem við átum með bestu lyst. Á eftir upplýsti hún að þarna væri skyrhræringur- inn kominn ofan í okkur og hló að öllu saman. Það var ótrúlegt hvað þessi kona gat áorkað, orðin léleg í skrokknum, þó að hún væri aðeins rúmlega fertug þegar okkar leiðir lágu saman. Sennilega aldrei hlíft sér. Hún sagði oft við mig að ég skyldi ekki fara með líkamann minn eins og hún hefði farið með sinn. Bogga var sérfræðingur í að byggja okkur upp. Við vorum svo dugleg að hennar sögn og einhvern veginn varð þessi jákvæða hvatning til þess og við fórum alltaf út staðráðin í að gera enn betur, ekkert var leiðin- legt, allt mögulegt. Uppáhaldsstað- ur Boggu var garðurinn. Þar var hún allar stundir sem lausar voru, „alltaf að slá“, sagði Sigurgeir. Garðurinn bar líka eigandanum vitni, fallegur og vel hirtur og þegar gesti bar að garði var farinn einn rúntur um garðinn. Á eftir var farið inn þar sem Bogga reiddi fram steikur og grauta og hinar frægu rjómapönnukökur sem voru hvergi betri. Það var vani okkar krakkanna að koma austur á veturna í fríum. Í jólafríunum var oft glatt á hjalla, setið á kvöldin, spilað og borðaðar smákökur. Oft var mikil spenna, Bogga var djörf í spilamennskunni og ótrúlegt hvað henni tókst að bjarga sér. Ef hún tapaði yrði það bara unnið upp seinna. Þegar heils- an fór að gefa sig og Bogga og Sig- urgeir fluttu á Hellu hélt Bogga samt uppteknum hætti í garðrækt og gestrisni. Þau voru einstaklega heppin með nágranna og ófáar voru ferðirnar hennar Dýrfinnu að hjálpa þeim. Hún studdi þau dyggilega og fylgdi Boggu síðan allt þar til yfir lauk. Slík tryggð er ómetanleg. Hafi Dýrfinna mínar bestu þakkir fyrir. Einnig koma upp í hugann þakkir til starfsfólks Lundar fyrir góða umönnun og sérstaka alúð í Boggu garð. Nú hefur þessi glaðlynda, já- kvæða kona lokið lífsgöngunni. Eftir sitja minningar sem ylja og eigin- leikar sem lifa. Hún unir sér nú í annarri veröld sem er okkur hulin innan um ilmandi blóm og ástvini. Ég hlakka til þegar hún tekur á móti mér seinna með pönnukökurnar góðu og hlýjan faðminn tilbúin að hvetja mig og styrkja þar sem áður. Stefanía Geirsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Vilborg Guðjónsdóttir ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför okkar ástkæra sonar, bróður og vinar, GUNNLAUGS BJÖRNSSONAR, Bjarkarheiði 13, Hveragerði. Stuðningur ykkar og hjálpsemi er okkur ómetanleg. Ásta Gunnlaugsdóttir, Björn Guðjónsson, Guðjón Hugberg Björnsson, Hafþór Vilberg Björnsson, Valdís Ösp Árnadóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, BERGÞÓRU SIGMARSDÓTTUR, Skipasundi 57, Reykjavík. Sveinn Karlsson, Ásdís Karlsdóttir, Maríus J. Lund, Sigmar Karlsson, Elke Amend, Sigríður Karlsdóttir, Pétur H. Ísleifsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SVANHILDAR JÓNSDÓTTUR, Melhaga 18. Einar Magnússon, Steinunn Stefánsdóttir, Sigrún Brynja Einarsdóttir, Magnús Rannver Rafnsson. ✝ Okkar ástkæri, JÓHANNES ÖRN GUÐMUNDSSON, lést mánudaginn 13. ágúst sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns, föður, tengdaföður og afa, JÓNASAR JÓNSSONAR frá Ystafelli. Sigurveig Erlingsdóttir, Sigrún Jónasdóttir, Björn Erling Johannessen, Helga Jónasdóttir, Tómas Þór Tómasson, Jón Erlingur Jónasson, Védís Jónsdóttir, Úlfhildur Jónasdóttir, Þorsteinn S. Karlsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.