Morgunblaðið - 25.08.2007, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.08.2007, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FRIÐRIK Ólafsson vann Hol- lendinginn Vincent Rothuis í magn- aðri skák í sjöundu umferð Hvatn- ingarmóts dr. Max Euwe í Arnhem í Hollandi í gær. Með þessum sigri náði Friðrik að laga stöðu sína og er nú jafn Oscar Panno með 3 vinninga. Zambíumaðurinn Amon Zumu- towe var efstur með 5½ vinning úr sex skákum og var með heldur betri stöðu í skákinni í sjöundu umferð. Eins og áður hefur komið fram er þetta mót hið fyrsta sem Friðrik tek- ur þátt í í mörg ár. Venjulega tekur það skákmenn nokkurn tíma að end- urheimta fyrri styrk. Friðrik hefur tapað öllum skákum sínum með hvítu. Vængtöfl og einhliða svæð- anudd dugði honum stundum vel á árunum í kringum 1970 en ekki leng- ur. Það er eins og það sé allt annar maður að sitji tafli þegar Friðrik er með svart. Það er alls ekki óþekkt að mönnum gangi betur með svörtu á skákmótum. Svo dæmi sé tekið má nefna að Paul Keres hlaut 12 vinn- inga af 14 með svörtu í áskorenda- mótinu 1959 en 6½ v. með hvítu. Sigurskák Friðriks yfir Helga Dam Ziska í þriðju umferð var tefld með miklum glæsibrag og ber öll helstu stíleinkenni Friðriks frá því hann var upp á sitt besta. Paulsen-afbrigið í sikileyjarvörn með 4. …Bc5 sem Friðrik dregur úr pússi sínu er svo sjaldgæft að gagna- grunnur greinarhöfundar gefur þá niðurstöðu að eftir nokkrar skákir sem Louis Paulsen tefldi við við Paul Morphy í New York árið 1857 líða meira en 100 ár þar til afbrigðið sést næst á opinberu mótum. Hvort Friðrik hafi með þessu vilj- að koma hinum unga andstæðingi sínum út úr teoríunni, eins það er stundum orðað skal ósagt látið. Hitt er svo annað mál að það lætur hon- um ágætlega að dusta rykið af byrj- unum sem gömlu meistararnir tefldu. Það eru þó sviptingarnar í miðtafl- inu sem gefa skákinni fyrst og fremst gildi. Helgi Dam fær ágæta stöðu eftir byrjunina en nær aldrei að kom höggi á Friðrik, hann er sennilega of bráðlátur þegar hann leikur 19 f5, og b7-peðið sem hann hirðir í 26. leik er baneitrað. Friðrik notfærir sér veikleikann upp í borði með 27. … Dg4 og síðan kemur 28. … Bc4. Oft dugar að tefla með hrók og léttum gegn drottningu og þess vegna er lokahnykkurinn, 39. … Dc8! og 40. … Be4 skemmtilegur endir á vel tefldri skák: Hvatningarmót Max Euwe; 3. umferð: Helgi Dam Ziska – Friðrik Ólafs- son Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Bc5 5. Rb3 Bb6 6. Rc3 Re7 7. Bd3 0–0 8. Dh5 Rbc6 9. Bg5 f6 10. Bh4 Re5 11. 0–0–0 d6 12. De2 a6 13. f4 Rxd3+ 14. Hxd3 Dc7 15. Bg3 f5 16. Hhd1 fxe4 17. Rxe4 d5 18. Hc3 Rc6 19. f5 e5 20. Hxd5 Bxf5 21. Rd6 Be6 22. Hd1 De7 23. Rc5 Bxc5 24. Hxc5 Dg5+ 25. Kb1 Had8 26. Rxb7 Hxd1+ 27. Dxd1 Dg4 28. De1 Bc4 29. Hxc6 Hf1 30. Dxf1 Bxf1 31. Hd6 Bxg2 32. Rc5 e4 33. b3 h5 34. Hd8+ Kh7 35. Rd7 h4 36. Rf8+ Kh6 37. Hd6+ Kh5 38. Be5 e3 39. Bc3 Dc8 40. Bxg7 Be4 41. Hh6+ Kg4 - og hvítur gafst upp. Skákin sem Friðrik vann í gær gegn heimamanninum Vincent Rothuis var tefld í stórkostlegum kaffíhúsastíl. Það er eins hver einasti taflmaður á borðinu vilji reka sitt einkaerindi á borðinu án tillits til annarra. Fyrst geisar mikil orrusta peða sem kóngsriddarinn svarti grípur inn í. Þegar hvíta drottning fer á stjá missir Friðrik mann en ýmsar hættur steðja að kóngi Hol- lendingsins. Eftir rólega liðskipan á drottningarvæng skellir Friðrik riddaranum á d4 í 18. leik. Þá taka varnir hvíts að riðlast enda menn- irnir sérkennilega sambandslausir og stjórnandi þeirra merkilega úr- ræðalaus. Hrókaranir á a1 og a8 ná aldrei að kveðja sér hljóðs en sá svarti var á leið í leikinn hefði hvítur rambað á 26. Kf3 sem var betri vörn en þó ófullnægjandi eftir 26. .. Hg8. Það er hrein skemmtun að fara yf- ir þessa skák: Hvatningarmót Max Euwe; 7. umferð: Vincent Routhuis - Friðrik Ólafs- son Pirc vörn 1. e4 g6 2. h4 h6 3. f4 Rf6 4. e5 Rh5 5. f5 d6 6. e6 fxe6 7. fxg6 Rg3 8. Hh3 Rxf1 9. Df3 Kd7 10. Df7 Rc6 11. g7 Bxg7 12. Dxg7 Hg8 13. Dc3 Hxg2 14. Kxf1 Dg8 15. Re2 Hg4 16. d3 b6 17. Bxh7 Bb7 18. Rd2 Rd4 19. Re4 Rxe2 20. Kxe2 Bxe4 21. dxe4 Hxe4+ 22. Kd3 Dg2 23. Dd2 Dxh3+ 24. Kxe4 d5+ 25. Kf4 Dxh4+ 26. Ke5 Df6 mát! Skákþing Íslands 2007 hefst á þriðjudaginn Keppni í landsliðsflokki á Skák- þingi hefst nk. þriðjudag. Keppend- ur í landsliðsflokki eru samkvæmt hef 12 talsins og eru: Hannes Hlífar Stefánsson, Þröst- ur Þórhallsson, Stefán Kristjáns- son, Jón Viktor Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson, Ingvar Þór Jóhannes- son, Davíð Kjartansson, Dagur Arn- grímsson, Róbert Harðarson, Snorri G. Bergsson, Lenka Ptácni- kova og Hjörvar Steinn Grétarsson. Núverandi Íslandsmeistari Hann- es Hlífar Stefánsson hefur teflt nán- ast óslitið á Íslandsmótinu frá árinu 1986. Hann hefur orðið Íslands- meistari átta sinnum síðustu níu árin og telst því langsigurstranglegasti keppandinn. Í kvennaflokki sem hefst hefur þegar verið dregið um töfluröð: 1. Sigríður Björg Helgadóttir 2. Guðlaug Þorsteinsdóttir 3. Harpa Ingólfsdóttir 4. Hallgerður Þorsteinsdóttir 5. Hrund Hauksdóttir 6. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 7. Tinna Kristín Finnbogadóttir 8. Elsa María Þorfinnsdóttir 9. Sigurlaug Friðþjófsdóttir Það er til marks um uppgang skáklistar kvenna hér á landi að sex af níu keppendum eru undir tvítugu. Guðlaug, Harpa og Sigurlaug hafa allar orðið Íslandsmeistarar. Jafnhliða þessum mótum verður teflt í áskorendaflokki. Íslandsmótið 2007 fer fram Skákheimili TR að Faxafeni 12 og hefst kl. 17. Morgunblaðið/Ómar Titilvörn Hannes Hlífar Stefánsson hefur orðið Íslandsmeistari átta sinnum á síðustu níu árum og stefnir að því að bæta við enn einum titli. Hér teflir hann við Magnús Carlsen á Hraðskákmóti Glitnis í fyrra. Kaffihúsastíll Friðriks Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Hvatningarmót Max Euwe 17.- 26. ágúst Nú þegar Magga Búa hefur kvatt þennan heim, stönd- um við skólasystur úr Húsmæðra- skóla Reykjavíkur eftir hljóðar. Við vorum saman veturinn 1952- ’53, stúlkur víða af landinu, kynnt- umst og urðum góðir félagar og nokkrar koma saman einu sinni í mánuði enn í dag, köllum það saumaklúbb. Magga lærði hjúkrunarfræði, starfaði við það lengst af. Magga kom fallega brún frá Akureyri, eft- ir sumarið 1955. Það fór aldrei mikið fyrir henni, var hæglát, en Magdalena Jórunn Búadóttir ✝ Magdalena Jór-unn Búadóttir fæddist í Hvera- gerði 19. mars 1934. Hún lést á Landspít- ala, Landakoti, 14. ágúst síðastliðinn. Útför Magdalenu Jórunnar Búadóttur var frá Grens- áskirkju 23. ágúst sl. glettnin skein úr aug- unum. Þó að við töl- uðum hver upp í aðra á góðri stund – sagði hún svo skemmtilega frá að við hinar hlust- uðum. Veturinn okkar leið furðu fljótt. Það var saumað, prjónað og í vefstofunni var sung- ið við vinnuna. Soðið – steikt – bakað – þvegið og lærðum að stífa m.a. skyrtur á tilvonandi eiginmann! En fyrst og fremst var þetta tími þroska, við lærðum að meta hver aðra, kynnumst viðhorfum frá ýmsum sjónarmiðum sem við allar lögðum til og kennarar okkar leið- beindu. Við kveðjum Möggu með þökk fyrir samfylgdina. Vottum Hösk- uldi Baldurssyni, eiginmanni henn- ar, og fjölskyldunni allri einlæga samúð. F.h. skólasystra, Anna Guðrún Bjarnadóttir. Mig langar í fáum orðum að minnast hér frænda míns, Stefáns Jónssonar sem lést þann 29. júlí síðastliðinn. Nokk- urra ára aldursmunur og dvöl okk- ar erlendis á ólíkum tíma gerði það að verkum að við höfðum ekki hist mjög lengi en við komu sína frá Bandaríkjunum bauð hann mér í svona „teiti“ eins og hann kallaði það, til að endurnýja kynni við gamla vini og fjölskyldumeðlimi. Ég hlakkaði til að hitta Stebba því að ég þekkti hann í raun ekki sem fullorðinn mann. Ég geri ekki sérstakar kröfur til manna hvað varðar fas og hátt en á móti mér tók alveg sérstaklega ljúfur og bjartur maður sem bar með sér frið og vinalegt yfirbragð. Stebbi var einmitt sú manngerð sem ég laðast að. Synir okkar eru á sama aldri og það að láta þá kynnast ýtti undir áform okkar Stebba um að vera í tíðara sambandi. Það er sér- Stefán Jónsson ✝ Stefán Jónssonfæddist í Reykjavík 12. júní 1972. Hann lést í Reykjavík 29. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholtskirkju 9. ágúst lega dapurlegt að svona mikill ljúfling- ur eins og Stebbi skyldi falla fyrir hendi annars manns en það sýnir okkur að þessi ólgusjór tilfinn- inga og misskilnings, sem jarðlífið er, get- ur á stöku stað og í skyndi breyst í skæð- ar öldur. Stebbi var ekki sérlega áhugasamur um trúarleg málefni og það hvort líf væri eftir þetta líf, held ég að hann hafi meira að segja hafnað slíkum hug- myndum mikið til. Ég virði og skil slíkar lífsskoðanir en sagt hefur verið, að engin trúarbrögð séu sannleikanum æðri og ég trúi því að svo sé í raun. Vísindamaðurinn Stefán Jónsson hefur nú hætt störfum á hinni jarð- nesku tilraunastofu og mér kæmi ekki á óvart ef hann væri nú, á nýj- um stað, farinn að fletta til í gagnagrunni eilífðarinnar í leit að þeim sannleika sem er trúarbrögð- unum æðri. Ég kveð þig kæri frændi með söknuði og ég held mig við áform okkar um að láta strákana okkar kynnast. Við spjöllum bara betur næst. Bjarni. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, fædd- ist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beð- ið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minning- argreina vita. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.