Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 51
Á AÐALFUNDI Skógræktarfélags
Íslands, sem haldinn var á Egils-
stöðum 17.–19. ágúst síðastliðinn
urðu þau tímamót að Magnús Jó-
hannesson, formaður félagsins,
ákvað að gefa ekki áfram kost á sér
til stjórnarstarfa. Magnús hefur ver-
ið formaður félagsins undanfarin
átta ár og setið í stjórn þess um tólf
ára skeið.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Avant, kjörinn nýr
formaður félagsins. Hann er 9. for-
maður Skógræktarfélags Íslands frá
stofnun þess árið 1930.
Aðrar breytingar á stjórn voru
þær að Sigríður Jóhannsdóttir
ákvað að gefa ekki áfram kost á sér
til stjórnarsetu og komu því inn tveir
nýir stjórnarmenn. Það voru þau
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
stöðumaður Rannsóknastöðvar
skógræktar á Mógilsá, og Jónína
Stefánsdóttir, sérfræðingur á Mat-
vælasviði Umhverfisstofnunar.
Páll Ingþór Kristinsson og Vil-
hjálmur Lúðvíksson gáfu áfram kost
á sér í varastjórn og voru báðir end-
urkjörnir. Út úr varastjórn gekk Jón
Kr. Arnarson, en í hans stað var kos-
in Sigrún Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Akureyri.
Magnús Gunnarsson kjörinn formaður
Skógræktarfélags Íslands
Forysta Nýkjörin stjórn Skógræktarfélags Íslands. F.v. Þuríður Yngvadóttir, Ólafía Jakobsdóttir, Sigrún Stef-
ánsdóttir, Magnús Gunnarsson, Jónína Stefánsdóttir, Páll Ingþór Kristinsson, Guðbrandur Brynjúlfsson, Að-
alsteinn Sigurgeirsson og Vilhjálmur Lúðvíksson. Á myndina vantar Þorvald S. Þorvaldsson.
VW Golf Comfort Line árg. ‘03 á
1.190 þús. Golf 1600cc Lítið út og
lítið á mánuði. Áhvílandi 980 þ. 22 þ.
á mán. Sumar&vetrardekk á felgum,
ný tímareim, rafmagn í rúðum, CD
spilari o.fl. Uppl. í s. 860 5218.
Toyota árg. '01, ek. 113 þús. km. 38"
breyttur, læstur fr., aft., aukatankur,
box á hlera, kastarar og kastaragrind,
ný At dekk og felgur, VHF,CB,NMT.
Tilbúinn á fjöll. S. 698 3468.
Toyota Avensis.
Reyklaus og fallegur. Beinskipting,
árg. ‘02. Ek. 90 þús. km. Nýyfirfarinn
af Toyota. Ný dekk fylgja. Ásett verð
990 þús. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 698 9808.
VW Golf árg. '97, ekinn 73 þús. km.
Lítið ekinn VW Golf til sölu. Mjög
sparneytinn, lítið ekinn og lítur mjög
vel út. Ásett verð 320.000, TILBOÐ
óskast. Verður að seljast strax. Uppl.
í síma 659 9966.
Toyota Corolla 1300 XLi '95, ek.
158 þús. Góður sjálfskiptur bíll sem
hefur gengið í gegnum nokkra end-
urnýjun. Er á góðum sumardekkjum
og fylgir góður gangur af nagladekkj-
um á felgum. Verð hugmynd 230 þús.
Uppl. veitir Magnús í síma 660 3913.
Til sölu Pajero Sport GLS
diesel árg. 2000, ek. 152 þús. km,
breyttur f. 35" dekk, er á 33" nýlegum
dekkjum, dráttarkúla, skoðaður ´08,
verð 1.590 þús. Skipti möguleg á
ódýrari. Uppl. í síma 694 8710.
Bílar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna:
„SUS harmar það aga- og ráð-
deildarleysi forstöðumanna alltof
margra ríkisstofnana, sem birtist í
nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar
um framkvæmd fjárlaga síðasta árs,
og lýsir sér í því að þeir eyða meiru
en þeim er heimilt samkvæmt fjár-
lögum. Fram kemur í skýrslunni að
fjárlög hafi mælt fyrir um 315,1
milljarðs útgjöld í fyrra en endanleg
fjárheimild hækkaði um nálægt 12%
og var 352 milljarðar. Þá eru dæmi
um að stofnanir séu reknar með við-
varandi og jafnvel vaxandi halla ár-
um saman án þess að gripið sé í
taumana. SUS krefst þess af for-
stöðumönnum ríkisstofnana að þeir
reki stofnanir sínar innan fjárheim-
ilda og að ráðuneyti beiti ella þeim
úrræðum sem að lögum eru tæk
gagnvart þeim, svo sem áminningu
eða lausn frá störfum. Þá áréttar
SUS þá ábyrgð sem á ráðherrum og
ráðuneytum hvílir gagnvart Alþingi
að búa svo um hnúta að fjárlögum sé
fylgt og að látið sé af því óásættan-
lega umburðarlyndi sem ríkjandi
hefur verið í stjórnkerfinu gagnvart
brotum gegn þeim lögum.“
SUS harmar aga-
og ráðdeildarleysi
LJÓSIÐ og Hreyfing byrja nýtt námskeið fyrir fólk
sem hefur greinst með krabbamein og hefst það 3. sept-
ember næstkomandi.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir
krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.
Í Ljósinu er fólk sem vill fara á almennar líkams-
ræktarstöðvar til að byggja sig upp, en oft reynist erf-
itt að stíga fyrsta skrefið. Þess vegna eru Ljósið og
Hreyfing í samvinnu og er þetta annað námskeiðið sem
farið er af stað með. Námskeiðið gengur út á uppbyggj-
andi og styrkjandi æfingar undir leiðsögn Guðbjargar
Finnsdóttur íþróttafræðings. „Þetta er kærkomin við-
bót við þá starfsemi sem fyrir er og nú er boðið upp á í
Ljósinu, en þar er starfsemi alla virka daga milli kl. 8-
16,“ segir í fréttatilkynningu.
Hóparnir verða á mánudögum og miðvikudögum kl.
13 í húsnæði Hreyfingar Faxafeni 14 en skráning í hóp-
ana fer fram í Ljósinu í síma 561-3770.www.ljosid.org
Leikfimi Ljósið og Hreyfing byrja nýtt námskeið fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein.
Ljósið býður upp á námskeið í líkamsrækt
Fréttir á SMS