Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 54

Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 54
54 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand EKKI KREMJA MIG BÍDDU... SAGÐIR ÞÚ, „EKKI“? ÉG HELD AÐ ÞAÐ SKIPTI NÚ EKKI MIKLU MÁLI NÚNA, ER ÞAÐ? ÉG ÆTLA AÐ STELA HÖFNINNI OG VERÐA HETJA ÉG FER EKKI FET VERÐ AÐ VERA TILBÚINN... HÉR KEM ÉG... EKKI VERA SKRÆFA... NÚNA... AF STAÐ MEÐ ÞIG... NÚNA... HLAUPTU... EKKI VERA SKRÆFA... HLAUPTU BARA SJÁÐU ALLA HEIMAVINNUNA SEM ÉG ÞARF AÐ GERA! MIG LANGAR EKKI AÐ KLÁRA ALLT ÞETTA RUSL! MIG LANGAR ÚT AÐ LEIKA! ÉG NENNI EKKI AÐ LÆRA AÐ TAKA ÁBYRGÐ STRAX MENNIRNIR VILJA VITA AF HVERJU ÞEIR ÞURFA AÐ VERA ÚTI Í ÞESSUM STORMI ÞAÐ ER VEGNA ÞESS AÐ VIÐ ÆTLUM AÐ FARA SEM STORMUR UM ÞENNAN KASTALA! EHH... ÉG HELD AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ SEGJA ÞEIM ÞETTA GRÍMUR! STÓÐST ÞÚ FYRIR ÞESSU?!? ÉG GET EKKI TJÁÐ MIG UM MÁLIÐ ÞAR SEM ÞAÐ ER ENN Í RANNSÓKN ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ KLÆÐA ÞIG? ÉG ÞARF EKKERT AÐ DRÍFA MIG. ÉG BYRJA AÐ VINNA HEIMA Í DAG NÚNA GET ÉG NOTAÐ ÞANN TÍMA SEM ÉG HEFÐI ANNARS EYTT Í AÐ KEYRA Í VINNUNA Í AÐ SLAPPA AF OG LESA BLAÐIÐ ADDA? MIKIÐ KEMUR ÞÚ SNEMMA... ÞANNIG AÐ ÞÚ ERT HETJA DAGSINS NEI, ÉG KOM BARA Á SÍÐUSTU STUNDU HANN ER SÁ SEM FANN VATNSPÍPURNAR Í TÆKA TÍÐ! HANN ER KANNSKI EKKI KÓNGULÓARMAÐURINN EN HANN ER SAMT HETJA! dagbók|velvakandi Unglingar og sóðaskapur í Reykjavík ÉG ER ungur maður sem býr í Reykjavík. Stundum þarf ég að skreppa út í búð á kvöldin eftir mjólkurpotti eða morgunkorni. Þeg- ar ég kem að búðinni sem er í hverf- inu standa um 15-20 unglingar, kannski 13-14 ára, saman í hóp fyrir utan búðina. Mjög oft hef ég lent í að vera beðinn um að kaupa sígarettur fyrir þau eða beðinn um hundrað krónur fyrir mat. Að sjálfsögðu segi ég alltaf nei. Það þarf því ekki að sæta undrum að ég er byrjaður að forðast búðir þar sem hópur ung- linga stendur. Hvernig er það eigin- lega með tómstundir og annað hjá þessum krökkum? Er virkilega ekk- ert annað í boði fyrir þessa krakka en að hanga úti í sjoppu að reykja og drekka gos? Og annað, hvar eru for- eldrarnir? Annað sem fer rosalega í taugarnar á mér er að sjá fullorðið fólk ganga sóðalega um. Það gerist alltof oft þegar ég er að keyra að sá sem er í bílnum á undan mér hendir einhverju út um gluggann, allt frá tyggjóklessu og sígarettustubb upp í pappírsrusl af heilli skyndimáltíð. Hvað er að gerast með fólk í dag? Kann enginn að bera virðingu fyrir umhverfinu? Sama með eigur ann- arra. Það virðist gerast alltof oft að fólk skelli utan í hurðir á bílum sem aðrir eiga eða keyri utan í þá, kæri sig kollótt um og keyri í burtu. Hvað er eiginlega að gerast? Skipta eigur náungans engu máli lengur? Íbúi Reykjavíkur, fæddur ’83. Optical Studio ÉG VIL koma á framfæri þökkum fyrir góða þjónustu hjá Optical Stud- io, bæði í Smáralind og á Keflavíkur- flugvelli. Maðurinn minn keypti fyrst gler- augu og fékk frábæra þjónustu og sjóngler í sólgleraugu með. Ég fékk linsur sem prufulinsur og þurfti ekki að borga fyrir þær. Svo fékk ég sól- gleraugu með sjóngleri en var of sein til að fá þau á Keflavíkurflug- velli þegar ég fór til útlanda. En ég fékk þau þegar ég kom heim úr ferðalagi. Fluginu seinkaði hins veg- ar, en þá beið maður eftir mér til að afhenda gleraugun Þetta kalla ég einstaka þjónustu. Jóhanna. Er Bónusskór lokuð? ÉG HEF ítrekað reynt að versla í skóversluninni Bónusskóm á Hverfisgötunni en á dyrunum hefur staðið „Lokað í dag“ í langan tíma. Ég vil beina þeirri spurningu til að- standenda verslunarinnar hvort þessi búð sé hætt? Viðskiptavinur. Týnd úr SVART karlmannstölvuúr tapaðist við Ofanleiti í Reykjavík laugadag- inn 11. ágúst. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 865 4583. Kvenúr tapaðist KVENÚR tapaðist 18. ágúst, Menn- ingarnótt, sennilega í Lækjargötu eða á túninu þar sem Latabæjar- hlaupið fór fram. Úrið er með ílangri skífu og svartri ól. Finnandi vinsam- legast hafi samband í síma 694 4590. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is FRÉTTIR VARMÁRSAMTÖKIN, íbúa- og umhverfissamtök í Mosfellsbæ, standa fyrir útimarkaði í Álafoss- kvos í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima, í dag, laugardag, 25. ágúst , kl. 12-16. Samtökin stóðu fyrir útimark- aði í fyrra sem heppnaðist afar vel. Fór aðsóknin fram úr björt- ustu vonum en talið er að hátt í 5000 manns hafi komið á svæðið, segir í fréttatilkynningu. Mark- aðurinn verður með svipuðu sniði og í fyrra. Að þessu sinni verður þó sérstök áhersla lögð á mat- vöru, svo sem lífrænt ræktað grænmeti, kartöflur, allar teg- undir tómata, söl, vestfirskan harðfisk, heimagerðar sultur og mauk o.fl., o.fl. Blóm og handverk verður til sýnis og sölu og kaffi- hús opið í Ásgarði þar sem boðið verður upp á gómsætar veitingar og lifandi tónlist. Útimarkaður Varmársamtakanna MIKILL úrhellir gekk yfir höfuðborgina fyrir helgi. Ljósmyndari flúði inn í verslunina Vísi á Laugaveginum þar sem hann smellti af þessari mynd. Morgunblaðið/G.Rúnar Úrhellir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.