Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 56
Ég veit eiginlega ekki
hvernig ég á að launa
honum [...], þetta er vöru-
merki upp á hundruð milljóna
… 58
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er mjög persónuleg plata og ég er
mjög stoltur af henni. Hún er eins og þeir segja,
„labor of love“,“ segir Magni Ásgeirsson um
sína nýjustu plötu sem heitir einfaldlega Magni
og kom út eftir verslunarmannahelgina.
Platan var að mestu tekin upp í Danmörku
sem Magni segir hafa verið skemmtilega
reynslu. „Við unnum bara eins og skepnur og
borðuðum smörrebröd,“ segir hann og hlær. Á
plötunni má finna 13 lög, 11 frumsamin og tvær
ábreiður. „Sumir vildu taka þetta sem menn
kalla „karókí-pakka“ sem sumir íslenskir söngv-
arar hafa lent í, með fullri virðingu fyrir þeim.
Ég hefði alveg eins getað tekið lögin úr Rock
Star-þáttunum, og það var jafnvel verið að biðja
mig um það. Við vorum alveg að hugsa um að
taka fleiri cover-lög en svo kom einhver lista-
maður upp í manni, og það gekk vel að semja,
þannig að við ákváðum að fara metnaðarfyllri
leið,“ segir Magni og bætir við að aldrei hafi
komið til greina að gera plötuna með Á móti sól.
„Ég vildi hafa alræði. Þetta átti að vera sóló-
plata og hana vildi ég ekki gera með hljómsveit-
inni minni.“
Í ónáð hjá gagnrýnendum
Nýja platan er sú mest selda á Íslandi í dag
og fyrsta lag hennar, „If I Promised You The
World“, er það vinsælasta. „Já, það er skrítið
maður. Ég bjóst ekki við þessu, en ég er nú
fremur lítillátur og feiminn sveitastrákur og
hefði verið ánægður með einhver þúsund seld
eintök,“ segir Magni, sem gerir sér þó fulla
grein fyrir vinsældum sínum. „Ég sá til dæmis
frétt um það í blaði um daginn að ég hefði farið í
bíó. Það er skrítið.“
Þótt Magni sé gríðarlega vinsæll meðal þjóð-
arinnar hefur hann ekki átt upp á pallborðið hjá
gagnrýnendum í gegnum tíðina. „Það hefur allt-
af verið skítkast út í sveitir á borð við Á móti
sól, Skítamóral og Írafár,“ segir hann. „Rock
Star-liðið hélt til dæmis tónleika í Laugardals-
höll, það mættu 14.000 manns á tvenna tónleika
og það er enn verið að tala um hvað það hafi ver-
ið gaman. En síðan birtist dómur í Mogganum
þar sem eiginlega ekkert var talað um tónlistina
yfir höfuð, en hins vegar var hraunað yfir fólkið
í salnum fyrir að mæta á svona samkomu og
horfa á brotna drauma sína uppi á sviði og eitt-
hvert svona helvítis kjaftæði. Þetta var þá ein-
hver skápafýlu-einstaklingur á Mogganum sem
ákvað að taka einhvern annan pól í hæðina sem
kom tónleikunum ekkert við,“ segir Magni.
„Þú getur ekki gagnrýnt tónlist, það er svo
einfalt. Ef einhver gefur út plötu og hún er fölsk
er alveg hægt að gagnrýna það en að einn mað-
ur sitji í einhverju hásæti og ákveði hvort ein-
hver tónlist sé góð eða ekki er algjört helvítis
kjaftæði. Og í hvert skipti sem hreytt er ónotum
í hljómsveitir sem ná gullsölu á Íslandi er verið
að segja við þessa fimm til sjö þúsund manns
sem keyptu plötuna; „þið eruð hálfvitar“, bara
af því að einhverjum skápaeinstaklingi sem
hlustar á Tom Waits fannst hún leiðinleg.“
Magni hefur nú þegar haldið óformlega út-
gáfutónleika á Borgarfirði eystri og í Skífunni
við Laugaveg en hann telur töluverðar líkur á
stærri útgáfutónleikum áður en langt um líður.
Vinsælastur á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn
Að slá í gegn „Ég bjóst ekki við þessu, en ég er nú fremur lítillátur og feiminn sveitastrákur.“
Magni Ásgeirsson á mest seldu plötu landsins og vinsælasta lagið um leið
www.myspace.com/magnirocks
að fyrir sér hafi það verið eðlilegt
samstarf enda séu þeir bestu vinir
og tali saman daglega. Þeir hafa
líka spilað saman opinberlega tvisv-
ar, flutt tónlist af plötunni sem
heppnaðist „fáránlega vel“, eins og
hann orðar það. Þeir eru líka að
spila saman í kvöld úti í Flatey, eins
og getið er, útgáfutónleikana.
„Product 8 hitar upp fyrir okkur,
Snorri Ásmundsson verður með
myndlistargjörning og svo ætla For
Tunes að spila, en það eru þær Rósa
Birgitta Ísfeld og Tanya Pollock.
Það verður fullt af liði í Flatey og
þetta verður örugglega skemmti-
legt.“ Þeir sem ekki hafa nennu til
að fara vestur geta svo séð sveitina
á Sirkus 5. september næstkom-
andi, en einnig hyggjast þeir feðgar
spila á Airwaves í október.
í mig og var á leið út í Flatey. Við
hittumst svo til að bera saman bæk-
ur okkar og skoða ljósmyndir úr
ferðunum og þær kveiktu með okk-
ur þá hugmynd að gera plötu sem
byggjast myndi á andanum í þeim.“
Bestu vinir
Vinna hófst svo við skífuna fyrir
um ári, þeir settum saman hug-
myndir og fóru síðan út í Flatey þar
sem grunnar að henni voru teknir
upp. Lögin voru svo unnin frekar í
vetur og þá bættust líka við lög.
Pan segir að platan sé hugsuð sem
samfellt ferðalag og þannig upp
byggð, lögin tengd saman, og að
best sé að hlusta á hana sem heild,
lífræna heild.
Það er ekki algengt að feðgar
séu saman í hljómsveit en Pan segir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
PAN Thorarensen hefur verið af-
kastamikill undanfarin ár, sent frá
sér sólóskífur undir ýmsum nöfnum
og tekið þátt í fjölda samstarfsverk-
efna. Eitt af þeim verkefnum er raf-
tónlistartvíeykið Stereo Hypnosis
sem hann rekur í samstarfi við Ósk-
ar föður sinn, sem er fyrrverandi
liðsmaður Inferno 5. Sú sveit hefur
lokið við sína fyrstu breiðskífu, Pa-
rallel Island, sem kom út í vikunni,
en útgáfutónleikar skífunnar eru í
Flatey í kvöld.
Pan segir að kveikjan að plötunni
hafi eiginlega verið tilviljun. „Ég
fór út í Flatey síðasta vor og var
með konunni á siglingu með Baldri
á leiðinni heim þegar pabbi hringdi
Feðgar í Flatey
Feðgar Óskar og Pan Thorarensen bjóða til raftónlistarveislu í Flatey.
Nýtt blað fyrir ungt fólk mun líta
dagsins ljós í september. Blaðið
hefur fengið nafnið Monitor og mun
koma út mánaðarlega. Því verður
dreift í skólum, verslunum og á öðr-
um fjölförnum stöðum.
Ritstjóri nýja blaðsins verður
Birgir Örn Steinarsson, betur
þekktur sem Biggi í Maus en Birgir
er nýkominn heim frá Lundúnum
þar sem hann vann að eigin tónlist
og skrifaði tónlistargagnrýni fyrir
Fréttablaðið.
Í blaðinu verður fjallað um ís-
lenska poppmenningu í víðum
skilningi. Nánari upplýsingar um
blaðið eru á www.blog.monitor.is
Biggi í Maus ritstýrir
blaði fyrir ungt fólk
Bubbi Mort-
hens kom fram
einn með kassa-
gítarinn á tón-
leikunum miklu á
Laugardalsvell
um daginn og
var í miklu stuði. Það stuð skilar
sér væntanlega rafmagnað á plötu
sem hann hefur í hyggju að hljóð-
rita en með honum á skífunni verða
þeir Jakob Smári Magnússon bassa-
leikari, Pétur Hallgrímsson gít-
arleikari og Arnar Geir Ómarsson
trommuleikari. Þeir hafa allir unn-
ið með Bubba áður. Af lögum verð-
ur nóg, enda á Bubbi víst lög á tvær
plötur hið minnsta. Ekki er alveg
ljóst hvenær von er á plötunni en
Bubba-aðdáendur ættu ekki að
þurfa að bíða fram yfir jól.
Þá hefur Bubbi einnig í smíðum
plötu þar sem heljarinnar blás-
arasveit kemur við sögu en það ku
víst vera gamall draumur Bubba að
gera slíka plötu.
Ný plata væntanleg frá
Bubba Morthens