Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 64

Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 64
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 237. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Óttast að mennirnir hafi lent í grjót- eða íshruni  Leitin heldur áfram að Þjóðverj- unum tveimur en leitarmenn segja vonina veika því langt sé um liðið síðan þeir hurfu og spor þeirra hafi máðst út af regni og snjó. » 4 Sigldi á leku fiskikari  Dreng var bjargað um hádegisbil í gær, en hann hafði rekið út á mitt Skorradalsvatn í leku fiskikari. » 3 Ekki meiri hvalveiði í bili  Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra segir ný leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni ekki verða gefin út fyrr en markaðir opnist fyr- ir hvalkjöt. »2 Ásaka Rússa í þriðja sinn  Georgíumenn skutu í gær á her- flugvél í lofthelgi landsins og segjast telja hana rússneska. Rússar neita því að vélin hafi verið rússnesk. » 18 SKOÐANIR» Staksteinar: Vafningar ná til Íslands Forystugreinar: Mjór er mikils vísir | Skynsamleg ákvörðun UMRÆÐAN» Hví er Taívan ekki í SÞ? Jarðgöng til Seyðisfjarðar Bakstur orkumálastjóra Sannleikur, réttlæti og fiskur Börn: Verðlaunaleikur vikunnar Er í fimm tíma á dag á golfvellinum Lesbók: Hamingja og hagkerfi Eivör með heimþrá BÖRN | LESBÓK» 4  %5$' . $+ % 6   $$&$ # $!!   3 3" 3 3! 3 "3  !3"!" 3  "3! !3  3 3 3 "3! !3" 3   3"!! - 71 ' "3 !3" 3  3 3"! 3 " !3" 3  89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'7$7<D@; @9<'7$7<D@; 'E@'7$7<D@; '2=''@&$F<;@7= G;A;@'7>$G?@ '8< ?2<; 6?@6='2+'=>;:; Heitast 16 °C | Kaldast 8 °C  A- og NA 5-10 m/s um austanvert landið fram eftir morgni, annars NV 5-10 og létt- ir til, fyrst fyrir vestan. »10 Jakob Frímann Magnússon segist ekki eiga Stuð- mannanafnið en þakkar Agli Ólafs- syni gjöfina. » 58 TÓNLIST» Jakob á ekki Stuðmenn TÍSKA» Í dag er góður dagur fyr- ir tískuunnendur. » 60 Mikil plötusnúða- veisla verður á Nasa í kvöld. Þar koma fram sextán íslenskir skífu- þeytarar. » 59 TÓNLIST» Sextán plötusnúðar TÓNLIST» Feðgar halda útgáfu- tónleika í Flatey. » 56 DANS» Vetrardagskrá Íslenska dansflokksins. » 57 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Skildu ársgamla stúlku eftir í bíl 2. Ganga í tvo skóla vegna skilnaðar 3. Sleppt lausri eftir 82 mínútur … 4. Dýrt að skilja með látum NOKKRIR kristnir bloggarar á mbl.is efna til samverustundar í húsi KFUM & K í Reykjavík kl. 14 í dag og kalla það bloggkirkju. Guðrún Sæmundsdóttir sagði þetta ávöxt bloggsins á mbl.is. Þar væri fjörug trúmálaumræða og þar hittust bloggarar úr ýmsum kirkjum og trú- félögum. Á dagskrá fyrstu samverustundar bloggkirkjunnar er bakstur hjóna- bandssælu og kennsla í Manga, sem eru japanskar teiknimyndir. Guðrún sagði að í næstu samverustund yrði m.a. kennsla í línudansi og eþíóp- ískri matargerð, auk framhalds- kennslu í Manga. Bloggkirkj- an bakar MÁL og menning – Heimskringla bókmenntafélag mun kaupa allar bókaútgáfur Eddu utan Almenna bókafélagsins. Edda mun í kjölfarið einbeita sér að rekstri bókaklúbba. Auk þess hyggjast kaupendurnir selja húsnæði Bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi. Í kjölfarið mun svo Tímarit Máls og menningar aftur komast undir væng útgáfunnar sem það dregur nafn af. | 20 Hræringar hjá Eddu „ÉG ÁTTI skellinöðru þegar ég var ungur. Ég hef ekki verið á hjóli síðan, en fyrir þremur árum skildi sonur minn eftir hjólið sitt í Reykjavík. Ég setti það skilyrði að hann skildi lykilinn eftir líka. Ég fór að fikta með hjólið og áður en hann sótti það var ég búinn að fá mér annað. Þetta er smitandi sport. Þegar menn eru komn- ir á þennan aldur hafa þeir bara gott af því að verða krakkar eða unglingar aftur,“ sagði Guðmundur Gests- son sem nú ferðast um á mótorhjóli ásamt syni sínum, Daníel, og 8 ára barnabarni, Guðmundi Smára. Sjálfur er hann 68 ára. Feðgarnir Daníel og Guðmundur Smári búa í Eyja- firði og eru á hringferð um landið á mótorhjóli. Guð- mundur Gestsson ók á móts við þá til Hafnar í Horna- firði og í dag óku þeir saman til Reykjavíkur. Áður en Daníel og Guðmundur Smári halda áfram norður ætla þeir að fara með afanum á hjólunum á Ljósanótt í Keflavík. Guðmundur sagði mikinn áhuga landsmanna á mótorhjólum eðlilegan því þetta væri mjög skemmti- legt sport. Hann sagði að sonarsonurinn, Guðmundur Smári, væri efnilegur. Hann væri búinn að koma sér upp galla af fínustu sort, með skeljum á baki og hnjám. „Gott að verða unglingur aftur“ Afinn á mótorhjóli með syninum og barnabarni Morgunblaðið/Sigurður Mar UNG stúlka frá Ólafsvík hefur síð- ustu daga þurft að gista á heimilum ýmissa vina og vandamanna á höf- uðborgarsvæðinu en hún er heim- ilislaus. Hún taldi sig hafa skrifað undir leigusamning um stúdenta- íbúð hjá Keili en fékk þau svör við afhendingu að hún fengi ekki íbúð- ina vegna aldurs. Karen Ýr Þórarinsdóttir er 16 ára gömul en í úthlutunarreglum Keilis er tilgreint að einungis nem- endur eldri en 20 ára geti fengið út- hlutaða íbúð. Umsókn Karenar fór hins vegar í gegnum umsóknarferli Keilis og þann 24. júlí fékk hún tölvuskeyti þar sem henni var út- hlutað tiltekinni íbúð. Segist hún í kjölfarið hafa í góðri trú skrifað undir leigusamning á skrifstofu Keilis og enginn hafi gert athuga- semd við aldur hennar við það tæki- færi. „Þetta var auglýst fyrir fólk í verk- eða háskólanámi og þar sem ég er að byrja í Iðnskólanum þá hélt ég að þetta myndi ganga.“ Hún segir það skrýtið að umsóknin hafi farið í gegnum allt ferlið án þess að nokkur gerði athugasemd fyrr en afhenda átti íbúðina. Hinn 15. ágúst síðastliðinn átti Karen síðan að fá íbúðina afhenta en var þá sagt að svo yrði ekki vegna aldurs hennar. Við það tæki- færi átti hún að fá sitt eintak af leigusamningnum afhent en af því varð aldrei. „Ég hefði ábyggilega verið búin að útvega íbúð hefði ég vitað það strax í júlí að ég fengi ekki íbúðina.“ Karen hefur í engin önnur hús að venda og enga op- inbera hjálp er að fá. „Það er lúa- legt að unglingar sem ekki eru í óreglu geti ekki fengið neina að- stoð.“ Tjáir sig ekki um einstök mál Runólfur Ágústsson, fram- kvæmdastjóri Keilis, segist ekki vilja tjá sig um einstök mál, en út- hlutunarreglurnar séu skýrar. Hann segir fleiri slík mál ekki hafa komið upp og engir leigusamningar séu gerðir við fólk yngra en 20 ára. Fær ekki stúdentaíbúð 16 ára stúlku var úthlutað stúdentaíbúð hjá Keili en var síðan synjað um íbúðina við afhendingu vegna ungs aldurs Morgunblaðið/G. Rúnar Iðnskólanemi Karen Ýr var synjað um íbúð hjá Keili sem hún taldi sig vera búna að semja um leigu á. ♦♦♦ FRIÐRIK Ólafs- son stórmeistari vann Hollend- inginn Vincent Rothuis í 7. umferð Max Euwe-hvatning- arskákmótsins í Hollandi í gær. Skákin í gær „var tefld í stór- kostlegum kaffihúsastíl. Það er eins og hver einasti taflmaður á borðinu vilji reka sitt einkaerindi á borðinu án tillits til annarra,“ skrifar Helgi Ólafsson. Hann segir og að sig- urskák Friðriks gegn Ziska beri öll stílkenni Friðriks frá því hann var upp á sitt besta. | 48 Friðrik vann Friðrik Ólafsson ÓLAFUR Elíasson lagði nú í vik- unni lokahönd á nýja seríu mynda, sem hann nefnir Jökulsvelgjaser- íuna, fyrir nútímalistasafnið í San Francisco. Fyrirhuguð yfirlitssýn- ing á verkum hans þar verður opnuð þann 8. september næstkomandi. Í samtali við Morgunblaðið lýsir Ólaf- ur aðstæðum við myndatökuna sem „hrikalega draugalegum“ og segir jafnframt frá hugmyndafræðinni á bak við verkið. | Lesbók Ný mynda- sería Ólafs ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.