Morgunblaðið - 01.09.2007, Síða 21

Morgunblaðið - 01.09.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 21 MENNING RANNVEIG Fríða Bragadóttir, mezzósópran, og Gerrit Schuil, píanóleikari, halda ljóðatónleika í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Ví- dalínskirkju í Garðabæ, í dag kl. 17. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tónleikaröðinni „Ljóðasöngur á hausti“, þar sem fimm íslenskir einsöngvarar syngja með Gerrit. Þema tónleikanna í dag er kven- myndir Goethes eins og sex tón- skáld hafa tjáð þær og túlkað í söngljóðum sínum, þeir Beethoven, Mendelssohn, Schumann, Liszt, Schubert og Wolf. . Tónlist Rannveig Fríða og Gerrit í Kirkjuhvoli Rannveig Fríða Bragadóttir HJÁLMAR Sveinsson út- varpsmaður leiðir gesti Lista- safns Íslands um sumarsýn- inguna Ó - Náttúru á morgun kl. 14. Hjálmar ætlar að viðra hugrenningar sínar um einstök verk á sýningunni, en hann segir listina vera ónáttúru frá hlýskeiði: „Forsenda listsköp- unar er að láta ekki stjórnast af blindum öflum og hvötum nátt- úrunnar heldur hefja sig yfir hana. Listsköpun felst meðal annars í því að búa eitthvað til sem náttúran getur ekki búið til sjálf. Listsköpun er eitt af því sem greinir manninn frá náttúrunni.“ Myndlist Hjálmar Sveinsson fer um Ónáttúru Hjálmar Sveinsson FJÖLMARGAR myndlistarsýn- ingar verða opnaðar í dag. Meðal þeirra er sýning átta ungra lista- manna frá Íslandi, Finnlandi, Sviss og Bandaríkjunum sem öll eiga það sameiginlegt að vinna dægurmenn- ingu samtímans í hið forna form málverksins. Sýningin ber yfirskriftina Nói wáy out, en það eru gullpenslarnir ungu Ragnar Jónasson, sem jafn- framt er sýningarstjóri; Davíð Örn og Guðmundur Thoroddsen sem stefna saman þessum alþjóðlega hópi. Þeir segja; hafið þið haldið að haustið væri komið – gleymið því! „Vorið springur út í málverkum í Nýlistasafninu, sjónin verður gráð- ug í litadýrð. Þessi sýning fangar skilningarvitin eins og angar kol- krabbans. Margir armar hans fanga ólíkar stefnur og strauma í mál- verkinu, blekið lekur og skilur eftir skynörvandi bletti á bol listarinnar. Málverkið fylgist alltaf með okkur.“ Opnað verður á litadýrðina í Nýló kl. 17. Teikningar og innsetningar Listasafn ASÍ verður með svolítið forskot á Nýló, því tvær sýningar verða opnaðar þar ögn fyrr, eða kl. 15. Aðra sýninguna prýða mynd- verk Kjartans Ólasonar; stórar blý- antsteikningar, málverk og innsetn- ingar. Kjartan er menntaður við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands og Empire State College í New York. Strax í upphafi ferils síns vakti Kjartan athygli fyrir verk sín og hefur hann síðan haldið einkasýn- ingar og tekið þátt í mörgum sam- sýningum. Í list sinni fjallar hann um lífið og dauðann og stöðu mannsins í samfélaginu. Hin sýningin sem opnuð verður í ASÍ kl. 15 er á verkum Hildar Bjarnadóttur. Hildur beinir sjónum sínum að grunnhugmyndum mynd- listar og hefðum textílhandverksins. Hún vitnar í málverkshefðina en er jafnframt að skoða handverk kvenna á fyrri tímum. Útkoman eru verk sem virðast bera keim af naumhyggju, en hafa víðtæka skír- skotun þegar nánar er gáð. Verk eftir Hildi eru m.a í eigu Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur og hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Tvær sýningar verða opnaðar í Start Art kl. 14; annars vegar „On Sale Now“ ljósmyndasýning Önnu Maríu Sigurjónsdóttur, sem end- urspeglar hugrenningar ljósmynd- arans um Íslendinga í dag, og hins vegar sýning Ástríðar Ólafsdóttur á myndum máluðum með gvass- og vatnslitum á pappír. Loks má geta sýningar Unnars Arnar J. Auðarsonar sem opnuð var í Suðsuðvestur í Reykjanesbæ í gær. „Coup d’Etat“ er heiti sýning- arinnar, en Unnar Örn hefur leitað sér efniviðar í Byggðasafni Reykja- nesbæjar og vinnur sýninguna í samstarfi við safnið, undir vökulu auga safnamanna bæjarins. Alþjóðleg málverkasýning í Nýló; textíl, blýantur og málverk í ASÍ og ljósmyndir og vatnslitir í Start Art Vorið springur út Litagleði Eitt af verkum Ragnars Jónassonar á málverkasýningunni í Nýló DÍVAN og djassmaðurinn koma fram á tónleikum í Laug- arborg í Eyjafirði á morgun kl. 15, en bak við það heiti eru Sól- rún Bragadóttir sópr- ansöngkona og Sigurður Flosason saxófónleikari. Á tón- leikunum, sem marka upphaf tónleikvetrar Laugarborgar, hljóma sígild íslensk sönglög í útsetningum flytjenda. Vetr- ardagskrá Laugarborgar hefur frá upphafi hafist með svokölluðum kaffitónleikum og verður svo einnig nú. Að tónlistarflutningnum loknum reiða kvenfélagskonur í Iðunni fram kaffiveitingar. Tónlist Dívan og djassmað- urinn í Laugarborg Sigurður og Sólrún ÞAÐ mætti kalla það leikhús dauð- ans; en lífsýni úr tveimur banda- rískum forsetamorðingjum verða höfð til sýnis þegar söngleikurinn Assassins, eða Morðingjar, eftir Stephen Sondheim, verður frum- sýndur þar 19. september. Vefur úr John Wilkes Booth, þeim er myrti Abraham Lincoln, verður gestum til sýnis í vel varinni glerkrús, en einnig heilabiti úr Charles Guiteau, er myrti forsetann James A. Gar- field. Söngleikur Sondheims fjallar um þær níu manneskjur sem hafa spreytt sig á að koma forsetum Bandaríkjanna fyrir kattarnef. Vér morðingjar Líkamsleifar látinna forsetamorðingja til sýnis í leikhúsi Viltu komast í form? Fagleg heilsurækt Frábær a›sta›a Frábær lífsstíls námskei› Frábær sta›setning Nánari uppl‡singar um fleiri námskei› og stundaskrá fyrir hausti› 2007 á www.hreyfigreining.is Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T N‡ námskei› eru a› hefjast Bak- leikfimi Í formi til framtí›ar* Skráning er hafin í flessi vinsælu a›halds- og lífsstílsnámskei› fyrir konur. 8 vikna námskei›. Rope Joga hjá Örnu Ara. Námskei› eru a› hefjast. Skráning í síma 511 1575. Talya og Gu›mundur kynna grunnhreyfingar flar sem öndun og hreyfing fara saman. Engin flekking á jóga er nau›synleg og hentar öllum. Betri lí›an í hálsi, her›um og baki. Skráning á harpahe@hi.is. www.bakleikfimi.is Vigtar- rá›gjafarnir Bumban burt* Loku› námskei› fyrir karla sem vilja ná árangri. 8 vikna námskei›. Mó›ir og barn Skráning er hafin í fimm vikna námskei› Söndru Daggar Árnadóttur. Líkamsrækt Frábær a›sta›a til a› æfa á eigin vegum á flægi- legum sta›. Opnir tímar. Stundaskrá: www.hreyfigreining.is Íslensku vigtarrá›gjafarnir vigta alla flri›judaga kl. 11.30-12.30. Fundur kl. 12.30. *Vi› erum í samstarfi vi› íslensku vigtarrá›gjafana. Vi› tökum hressilega bæ›i á hreyfingu og mataræ›i. Birkir Már Kristinsson, sjúkra- fljálfunarnemi Arna Hrönn Aradóttir, Rope Joga kennari Sævar Kristjánsson, íflróttafræ›ingur BSc Sandra Dögg Árnadóttir, sjúkrafljálfari BSc Harpa Helgadóttir, sjúkrafljálfari BSc, MTc, MHSc Talya Freeman, Jógakennari Hólmfrí›ur B. fiorsteinsdóttir, sjúkrafljálfari BSc, MTc Jóga fyrir stir›a og byrjendur Kór, kór kvennakór Kyrjurnar eru skemmtilegur og góður kvennakór sem getur nú bætt við sig nýjum kór- félögum. Markmiðið okkar er að vera með um 40-45 kvenna kór. Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir og sér hún einnig um raddþjálfun. Láttu nú drauminn rætast, hafðu samband og það verður tekið vel á móti þér. Upplýsingar veitir Sigurbjörg kórstjóri í síma 865 5503 eða Inga formaður í síma 825 5070.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.