Morgunblaðið - 01.09.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 01.09.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Sunnudagaskólinn í Hjallakirkju Sunnudagaskólinn eða barnaguðsþjónustur í Hjalla- kirkju, Kópavogi, hefjast á ný næsta sunnudag kl. 13. Þar fá börnin að heyra skemmtilegar og myndrænar sögur úr Biblíunni, við syngjum saman söngva og för- um í leiki. Þá koma brúður í heimsókn í hvert skipti. Öll börn fá kirkjubók þegar þau koma í sunnudagaskól- ann, að þessu sinni er þar að finna söguna af Danna og Birtu. Svo fá þau límmiða í bókina við hverja mætingu. Foreldrar eru velkomnir í Hjallakirkju á sunnudögum með börnum sínum. Stundin næsta sunnudag markar upphaf barna- og æskulýðsstarfsins í kirkjunni í vetur. Fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju Barnastarf Garðasóknar hefst með fjölskylduguðsþjón- ustu í Vídalínskirkju sunnudaginn 2. september kl. 11. Það er alltaf mikið tilhlökkunarefni að bjóða börnum og foreldrum þeirra til fyrstu samveru haustsins, því mun guðsþjónustan ilma af gleði og eftirvæntingu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina ásamt starfs- fólki sunnudagaskólans. Félagar úr Kór Vídalínskirkju munu leiða lofgjörðina undir stjórn Jóhanns Baldvins- sonar organista. Ennfremur verða kennd ný sunnu- dagaskólalög eftir Hafdísi Huld og barn borið til skírn- ar. Biblíufræðslan verður á sínum stað og svo munu Rebbi refur og Tinna trúður reka inn nefið. Eftir guðs- þjónustuna verður boðið upp á hressingu í safnaðar- heimilinu. Sjá www.gardasokn.is. Allir velkomnir. Gospelkór Jóns Vídalíns Gospelkór Jóns Vídalíns var stofnaður haustið 2006 fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára. Kórinn er sam- starfsverkefni Garðaprestakalls og FG. Þar sem verk- efnið tókst með miklum ágætum verður haldið áfram veturinn 2007-2008. Kórinn er valfag í FG og þau sem taka þátt fá einingar sem nýtist öllum sem eru í fram- haldsskólanámi. Kórinn mun í vetur koma fram einu sinni mánuði í kvöldvökum Vídalínskirkju þar sem þau bæði syngja fyrir söfnuðinn og leiða almennan safn- aðarsöng. Einnig verða stórir jólatónleikar 20. desem- ber kl. 20 í hátíðarsal FG. Kórinn syngur einnig við skólaslit í FG bæði fyrir jól og að vori. Æfingar eru alla þriðjudaga í Vídalínskirkju kl. 19.30 og þátttaka hefur verið glimrandi góð af hálfu stúlknanna en það má bæta við fleiri herrum. Umhverfissjóður hefur styrkt verkefnið á þessu hausti. Hægt er að leggja inn fyrir- spurnir á netfangið jonahronn@gardasokn.is. Sjá www.gardasokn.is Mannræktarstarf í Laugarneskirkju Nú hefjast að nýju morgunmessur með sunnudagaskóla hvern sunnudag kl. 11 í Laugarneskirkju. Sem fyrr státum við af afburða sunnudagaskólakennurum og er það sérstakt metnaðarmál safnaðarins að messa sunnu- dagsins sé ánægjuleg reynsla fyrir yngri sem eldri. Mannræktarkvöld safnaðarins hefjast þriðjudaginn 4. september, og byrja jafnan á kvöldsöng kl. 20 þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir sálmasöng en sóknar- pestur fer með guðsorð og bæn, áður en 12 spora starf- ið og trúfræðslan taka við kl. 20.30. 12 sporahópar safnaðarins verða opnaðir nýjum þátttakendum í byrj- un janúar, en trúfræðsla safnaðarins er öllum alltaf opin en þar mun Bjarni Karlsson sóknarprestur annast kennslu. Í haust mun hann fjalla um gæði náinna tengsla og leiða áheyrendur sína til móts við þau grundvallargildi sem kristin kynlífssiðfræði hlýtur að hafa í farteskinu eigi henni að reynast unnt að tala við samtíma sinn og bæta heilbrigði samfélagsins. Byggir hann kennslu sína á meistaraprófsritgerð sem hann er um þessar mundir að skila af sér við guðfræðideild HÍ. Tímunum lýkur kl. 21.30. Eins eru kyrrðarstundir í hádegi komnar á sinn stað alla fimmtudaga kl. 12 og fyrsta samvera eldri borgara verður haldin fimmtudaginn 13. september kl. 14, er þar margt á döfinni og áhugavert að koma og njóta góðrar samveru með hverfisbúum. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur í sínar vikulegu göngur frá kirkju- dyrum hvern miðvikudagsmorgun kl. 10.30 á sama tíma og foreldramorgnar safnaðarins eru á fullum snúningi, auk þess sem kvenfélag kirkjunnar heldur sína góðu fundi fyrsta mánudag í hverjum mánuði kl. 20. Eins eru reglubundnar messur, súpueldhús og gospelkvöld ásamt fleiru undir handleiðslu Guðrúnar K. Þórsdóttur djákna í Hátúni 10 og 12. Fjölþætt barna- og unglingastarf er svo á vegum safnaðarins undir stjórn sr. Hildar Eirar Bolladóttur, má nálgast allar upplýsingar um það og annað sem safnaðarlífinu viðkemur á heimasíðunni laugarnes- kirkja.is, en barna- og unglingafjölskyldur í hverfinu fá upplýsingar eftir ýmsum fleiri leiðum. Inntak allra starfsþátta Laugarneskirkju er virðing. Það er trú okkar að kristið safnaðarstarf geri mest gagn og fæst mistök með því að vera vettvangur virð- ingar fyrir öllu lífi. Það göngulag hafði Jesús frá Nasaret í mannlegum samskiptum og er það einlæg löngun þeirra mörgu sem leggja hönd á plóginn í Laugarneskirkju að mega feta í fótsporin hans svo að hverfisbúar og annað safnaðarfólk finni frelsi og öryggi fyrir sig og sína innan vébanda kirkjunnar. Verið velkomin í Laugarneskirkju. Vetrarstarf Seltjarnarneskirkju Sunnudaginn 2. september verður fjölskylduguðsþjón- usta í Seltjarnarneskirkju, kl. 11. Fjölskylduguðsþjón- usturnar eru uppbyggðar þannig að börnin og hinir fullorðnu geti átt saman gleðiríka stund í kirkjunni þar sem lofgjörð og bæn eru í forgrunni. Fjölskylduguðs- þjónusturnar verða fastur punktur í kirkjunni í vetur fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Þetta er sá tími ársins sem kirkjan iðar af lífi. Sunnudaginn 9. september er kynningarguðsþjónusta fyrir fermingarbörn og for- eldra og kynning á fræðsluefni vetrarins. Messur í eru alla sunnudaga kl. 11 og sunnudagaskólinn er á sama tíma. Starf fyrir 6- 8 ára börn er á miðvikudögum kl. 14.30-15.30 og fyrir 9-11 ára börn á miðvikudögum kl. 15.30-16.30. Æskulýðsfélagið fyrir 8-10 bekk er á sunnudagskvöldum kl. 20. Foreldramorgnar verða eins og undanfarin ár á þriðjudagsmorgnum kl. 10. Þar er gott tækifæri fyrir foreldra ungra barna að koma sam- an og deila af reynslu sinni í uppeldi barnanna. Kyrrð- arstundir verða í kirkjunni á miðvikudögum kl. 12. Þær stundir eru góður vettvangur til að koma til kirkju, staldra við í dagsins önn, setjast inn í kyrrðina og eiga samfélag. Starfsfólk Seltjarnarneskirkju horfir fram í gleði til verkefna vetrarins og býður ykkur hjartanlega velkomin. Upphaf barnastarfs og breyttur messutími í Bústaðakirkju Næstkomandi sunnudag, 2. september, breytist messu- tími í Bústaðakirkju og markar upphaf vetrarstarfsins. Barnamessur verða klukkan 11.00 og almennar guðs- þjónustur kl. 14.00. Þannig breytir starf kirkjunnar um takt, þegar haustar, og fleiri liðir verða virkir í safn- aðarstarfinu. Þannig koma ungir sem aldnir saman til ólíkra þátta starfsins. Þannig færist meira líf í kirkjuna okkar og margvíslegir þættir starfsins vakna á ný eftir hæglátt sumar. Það er hvetjandi að vita, að fólk bíður eftir starfinu og spyr gjarnan hvenær það hefjist. Þessi áhugi og umhyggja fyrir starfi í kirkjunni okkar er sannarlega hvetjandi. Löngunin til þess að koma og taka þátt í safnaðarstarfinu og verða þannig virk er til staðar og saman ætlum við að syngja Guði til dýrðar. Kirkjan er sameiningartákn hverfisins og er opin öll- um íbúum og eru sóknarbörnin hvött til þess að taka þátt í starfi hennar. Pálmi Matthíasson. Morgunblaðið/Ómar Seltjarnarneskirkja. FRÉTTIR HANNES Hlífar Stefánsson vann Braga Þorfinnsson í þriðju umferð Íslandsmótsins í skák sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Hannes komst við það einn í efsta sæti mótsins sem Bragi vermdi fyrir umferðina eftir sigra í tveim fyrstu umferðunum. Eins og áður hefur komi fram hefur Hannes unnið í hvert einasta skipti sem hann verið með síðan 1988. Fram að því var hann oft í baráttunni um efsta sætið en hann tefldi fyrst í landsliðsflokkn- um á frægu móti í Grundarfirði 1986. Er þetta í tuttugasta skiptið sem hann teflir í landsliðsflokki á Skák- þingi Íslands. Þröstur Þórhallsson hefur einnig teflt látlaust á þessu móti síðan ’86; enn ekki hampað Ís- landsmeistaratitlinum. Margir þeirra ungu skákmanna sem tefla á mótinu hafa tekið miklum framför- um undanfarið. Bragi Þorfinnsson hefur náð prýðilegum árangri og Jón Viktor Gunnarsson náði sínum fyrsta áfanga að stórmeistaratitli í vor. Stefán Kristjánsson hefur lítið teflt á þessu ári en ásamt Braga og Þresti er hann manna líklegastur eru til að veita Hannesi keppni. Staðan á mótinu eftir þrjár um- ferðir er þessi: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 2½ v. 2.–4. Þröstur Þórhallsson, Bragi Þorfinnsson og Stefán Kristjánson 2 v. 5.–7. Davíð Kjartansson, Lenka Ptacnikova og Snorri Bergsson 1½ v. 8.–12. Dagur Arngrímsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Jón Viktor Gunnarsson, Ingvar Þ. Jóhannesson og Róbert Harðarson 1 v. Í landsliðsflokki kvenna tefla níu skákonur, þar af þrír fyrrverandi Ís- landsmeistarar. Allar líkur eru á því að baráttan muni standa á milli Hörpu Ingólfsdóttur og Guðlaugar Þorsteinsdóttur, en Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, sem varð í þriðja sæti á síðasta móti, hefur unn- ið þrjár fyrstu skákir sínar og er til alls líkleg. Staðan: 1.–2. Harpa Ingólfsdóttir og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 3 v. 3. Guðlaug Þorsteinsdóttir 2 v. (af 2) 4. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 1½ v. (af 2) 5. Tinna Kristín Finnbogadóttir 1½ v. 6. Elsa María Þorfinnsdóttir 1 v. 7. Sigríður Björg Helgadóttir 0 v. (af 2) 8.–9. Sigurlaug Friðþjófsdóttir og Hrund Hauksdóttir 0 v. Í áskorendaflokki er keppnin einnig afar athyglisverð. Þar eru efstir Þorvarður Fannar Ólafsson og Einar Valdimarsson með 3 vinn- inga af þrem mögulegum. Keppni í áskorendaflokki kvenna hófst í gær en keppendur eru: Hildur Berglind Jóhannsdóttir, Auður Eiðsdóttir, Stefanía Bergljót Stefánsdóttir, Hulda Rún Finnboga- dóttir, Ulker Gasanova og Geirþrúð- ur Anna Guðmundsdóttir. Margar skemmtilegar skákir hafa verið tefldar. Þannig vann Bragi Þorfinnsson félaga sinn Jón Viktor Gunnarsson í „eitraða peðs-afbrigð- inu“ sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga og er í mikilli tísku um þessar mundir: Skákþing Íslands 2007; 1. umferð: Jón Viktor Gunnarsson – Bragi Þorfinnsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Dd2 Dxb2 9. Hb1 Da3 10. e5 dxe5 11. fxe5 Rfd7 12. Re4 Dxa2 13. Hd1 Dd5 14. De3 Dxe5 15. Be2 h6 16. Bh4 Bc5 17. Bg3 Bxd4 18. Hxd4 Da5+ 19. Hd2 0-0 20. Bd6 Hd8 21. Dg3 Rc6 20. 0-0 f5 23. Bc7 Db4 24. Dg6 Dxe4 25. Bxd8 De3+ 26. Kh1 Rf8 27. Dg3 Dxd2 28. Bf6 Dd7 29. Bh5 e5 30. Hxf5 Dc7 31. Hf3 Be6 32. Dh4 Rh7 33. Hg3 Hf8 – og hvítur gafst upp. Hannes Hlífar tekur forustuna á Íslandsmótinu SKÁK Skákþing Íslands 28. ágúst–8. september helol@simnet.is Helgi Ólafsson. MEÐFYLGJANDI yfirlýsing var samþykkt samhljóða á starfsmanna- fundi stjórnsýsluskrifstofa Seltjarn- arnesbæjar hinn 31. ágúst sl., og send Morgunblaðinu til birtingar: „Í tilefni af umfjöllun DV um meintan trúnaðarbrest innan meiri- hluta bæjarstjórnar og ávirðingar á hendur Jónmundi Guðmarssyni, bæjarstjóra Seltjarnarness, dagana 29. og 30. ágúst vilja starfsmenn stjórnsýsluskrifstofa Seltjarnarnes- bæjar koma eftirfarandi á framfæri: Í umfjöllun Trausta Hafsteinsson- ar er ítrekað talað um „kvartanir lykilstarfsmanna“ vegna bæjar- stjóra í sumar. Starfsmenn stjórn- sýsluskrifstofa kannast ekki við slík- ar kvartanir né að eðlilegt orlof bæjarstjóra hafi með einhverjum hætti haft áhrif á starfsemi bæjar- ins. Samstarf bæjarstjóra við starfs- menn bæjarins hefur verið einkar gott og bera starfsmenn nú sem fyrr fullt traust til bæjarstjóra og starfa hans. Starfsmenn stjórnsýsluskrifstofa harma umfjöllun blaðsins, telja hana ósanngjarna og meiðandi fyrir starfsmenn og bæjarstjóra og hafna henni með öllu.“ Hafna um- fjöllun um bæjarstjóra FORELDRAR barna á Skaga- strönd geta nú fengið 15 þúsund króna styrk fyrir hvert barn, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðs- starfi. Frístundakortin taka gildi 1. september og gilda í eitt ár. Bæjar- stjórn Skagastrandar hefur tekið ákvörðun þessa efnis. Til þess að hvetja börn og ung- linga til þátttöku í hvers konar íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur sveitarstjórn Skagastrandar sam- þykkt að taka upp styrkjakerfi, í formi frístundakorta. Kortin, sem verða ígildi 15 þúsund króna, munu gilda í eitt ár. Frístundakortin ná til starfsemi íþróttafélaga auk hverskonar skipu- lagðs félags- og tómstundastarfs sem stendur í sex vikur eða lengur og greitt er fyrir með þátttökugjaldi. Þar að auki gildir kortið fyrir aðra tómstundaiðkun, s.s. tónlistar- og listnám. Einu skilyrðin við notkun frí- stundakortsins eru þau að starfsem- in sé viðurkennd af sveitarstjórn og um hana séu veittar allar þær upp- lýsingar sem óskað er eftir, segir í tilkynningu frá sveitarstjórn Skaga- strandar. Frístundakort fyrir 15 þúsund á Skagaströnd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.