Morgunblaðið - 03.09.2007, Page 15

Morgunblaðið - 03.09.2007, Page 15
matur MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 15                 !"##$ %"##%&'(   ( & ()*   !) & (      +   , &                     !" #   ! !!       $  %         !    & " "       &    $ '& !"   #     &"!%             ( +  , &     &)*! "!   +        , - .        $/ " "   &0   1 $ -  &" 2 3!2  4  &     & '5$        !    677%898: &  ; " < $ $ = &$>6??$% &1 "!        .  /0.   12   Morgunblaðið/ÞÖK Gott Erna og Guðrún Björg halda mikið upp á ostasalatið í bókinni.Ostasalat Klikkar ekki og er betra daginn eftir. Þessar hressu konur, semkalla sig Reykjakots-systur, starfa á leikskól-anum Reykjakoti í Mos- fellsbæ. Þær voru með söluborð á afmælishátíð Mosfellsbæjar um síð- ustu helgi til að fjármagna námsferð sem þær ætla í á næsta ári. Svunt- urnar sem þær eru að selja eru þrælsniðugar og uppskriftabókin þeirra vekur forvitni. „Við fengum smjörþefinn fyrir tveimur árum þegar við fórum í námsferð til Danmerkur og sú ferð heppnaðist frábærlega,“ segir Guð- rún Björg Pálsdóttir, leikskólakenn- ari í Reykjakoti. „Þá vorum við líka með fjáröflun og héldum til dæmis flóamarkað. Við þræddum geymslur og bílskúra hjá vinum og vanda- mönnum og fundum þar falda fjár- sjóði og auðvitað hjá okkur sjálfum líka og seldum svo það vel að við endurtókum leikinn.“ Reykjakotssystur Guðrún Björg segir að í Reykja- koti starfi eingöngu konur og því kalli þær sig Reykjakotssystur. „Við erum um þrjátíu talsins og andinn í hópnum er mjög góður. Við skemmtum okkur konunglega þegar við stöndum í fjáröflun og erum all- ar á kafi í því sem við erum að gera. Við bökum fyrir kökubasar, söfnum dóti á markað og svo komum við til dæmis allar með okkar uppáhalds- uppskriftir þegar við settum saman uppskriftabókina okkar. Þar að auki finnum við okkur ýmislegt til dund- urs, við göngum saman og föndrum fyrir jólin.“ Hún segir að í ferðinni til Dan- merkur hafi þær fengið ýmsar hug- myndir fyrir leikskólann en líka komist að því að starfið hjá þeim var bara nokkuð gott. „Við störfum í anda Hjallastefn- unnar og það gengur mjög vel. Markmiðið með svona vinnuferð- um er auðvitað að fá nýjar hug- myndir og kynnast aðferðum ann- arra en líka að þjappa okkur enn frekar í samhentan hóp.“ Svunturnar seldust upp – Og hvað ætla þær annað að gera í fjáröflunarskyni? „Við erum nýkomnar með svunt- urnar sem hún Gyða leikskólastjóri saumar og hannar að hluta. Þær seldust reyndar upp um síðustu helgi en við vonum að Gyða haldi áfram saumaskapnum. Á svuntun- um eru viskustykki sem fest eru á svunturnar með tölu og síðan er allt- af uppskrift á hverri svuntu og jafn- vel frasar á borð við Pabbi er besti kokkurinn eða Mamma eldar besta matinn. Svo bjóðum við uppskriftabókina áfram en þar eru bara margpróf- aðar uppáhaldsuppskriftir okkar sem vinnum í Reykjakoti. Það stendur reyndar til að bæta við upp- skriftum í bókina og hver veit nema það verði sérstakar hollustu- uppskriftir því Reykjakotssystur hafa undanfarið verið í holl- ustuátaki.“ – Og hvert á næst að halda? „Við stefnum á London.“ Reykjakotssystur gáfu að lokum góðfúslegt leyfi til að birta upp- skriftir úr bókinni. Við birtum hér uppskrift að ostasalati sem klikkar aldrei, beikonvöfðum kjúklinga- bringum og sælgætis-ostaköku. Ostasalat 1 rauð paprika, söxuð 1 græn paprika, söxuð ½ púrrulaukur, fínt skorinn 1 mexíkó-ostur í bitum 1 hvítlauks-ostur í bitum vínber að vild, bæði græn og blá skorin í fjóra parta, ½ dós ananaskurl, án safa sett saman við 1 dós sýrður rjómi 1 lítil dós mæjónes Allt sett saman í skál. Kælt. Þetta er líka gott daginn eftir, ef ekki betra. Berið fram með grófu brauði. Beikonvafðar kjúklingabringur kjúklingabringur beikon Kjúklingabringur eru skornar langsum í um 3 bita. Beikoni vafið utan um. Gott að tylla beikoninu með tannstöngli. Grillað á útigrill- inu. Einnig hægt að steikja eða setja í eldfast mót inn í ofn. Sósa: 1 laukur 2 hvítlauksrif 2 dl tómatsósa 1 dl HP-sósa sojasósa svartur pipar 2 msk. Worchestersósa um 2 dl appelsínusafi 1 msk. edik Léttsteikið lauk og bætið síðan öllu hinu hráefninu á pönnuna og hrærið saman. Berið fram með kjúklingabring- unum. Söfnuðu uppáhaldsuppskriftum í bók Hressar Vigdís, Erna, Guðrún Björg og Þorbjörg seldu grimmt upp- skriftabækur, svuntur og freistandi bakkelsi. Sælgætisostakaka 2 bollar Homeblest kex, mulið 75-100 g smjör (brætt) 500 g rjómaostur 6-8 msk. kaffilíkjör (Kahlúa) 150 g mulið Mars (má nota Dajm, Snickers eða Rommý) 5 dl þeyttur rjómi 2-3 matarlímsblöð Mylsnu og smjöri er blandað sam- an. Sett í form og þjappað vel í botn- inn. Rjómaostur þeyttur og líkjör settur út í. Mars brætt og sett út í þeyttan rjómann sem svo er kældur og að lokum sett út í rjómaostblönd- una. Kakan er mjúk og ef bætt er í matarlími verður hún stíf. Nokkrar konur standa við borð undir berum himni í Mosfellsbæn- um. Það geislar af þeim kátínan og þær hvetja Guðbjörgu R. Guð- mundsdóttur óspart til að kaupa svuntu, klein- ur og uppskriftabók.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.