Morgunblaðið - 03.09.2007, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SAMIÐ VIÐ NORÐUR-KÓREU
Tilkynnt var um helgina aðBandaríkjamenn hefðu náðsamkomulagi við Norður-Kór-
eumenn um að allri smíði kjarnorku-
vopna verði hætt í Norður-Kóreu fyr-
ir árslok og jafnframt veiti
norður-kóresk stjórnvöld aðgang að
öllum sínum kjarnorkuáætlunum.
Norður-Kórea er eitt þeirra ríkja,
sem George Bush Bandaríkjaforseti
kallaði öxulveldi hins illa í frægri
ræðu. Nú ætla Bandaríkjamenn að
taka Norður-Kóreu af listanum yfir
þau ríki, sem styðja hryðjuverka-
starfsemi, og koma á eðlilegum sam-
skiptum milli landanna. Jafnframt er í
samkomulaginu loforð um að öryggi
Norður-Kóreu verði ekki ógnað og
veitt verði efnahagsleg aðstoð.
Í stjórnartíð Bush hefur fremur
verið til siðs að beita óvinveitt ríki
hótunum, meðal annars um fyrir-
byggjandi árásir, fremur en að leita
friðsamlegra lausna. Með þessum
hætti hefur meðal annars átt að koma
í veg fyrir útbreiðslu kjarnorku-
vopna. Deilt hefur verið um það hvort
þessi stefna beri tilætluð áhrif og því
meðal annars haldið fram að ríki, sem
ættu innrás frá Bandaríkjunum yfir
höfði sér, myndu leggja allt kapp á að
koma sér upp kjarnorkuvopnum og
öðlast þannig fælingarmátt gegn öfl-
ugasta herveldi heims. Þótti ýmsum
að þetta hefði sýnt sig þegar Norður-
Kórea sprengdi kjarnorkusprengju í
október árið 2006 og vakti það nokkr-
un ugg í Asíu. Í Japan heyrðust meira
að segja raddir um að nú yrðu Jap-
anar að koma sér upp kjarnorkuvopn-
um þar sem kjarnorkuvopn Norður-
Kóreu gætu dregið þangað.
Stefnt er að því að samkomulagið
verði frágengið í lok september á
fundi þeirra sex ríkja, sem tekið hafa
þátt í viðræðum um kjarnorkuáætlun
Norður-Kóreu, en þau eru, auk
Bandaríkjanna og Norður-Kóreu,
Japan, Kína, Rússland og Suður-Kó-
rea. Gangi það eftir munu margir
varpa öndinni léttar yfir því að ein-
angrun Norður-Kóreu verði rofin,
þótt langt sé í að þar muni ríkja eðli-
legt ástand og áfram verði ástæða til
að sýna forustu landsins aðhald, með-
al annars í mannréttindamálum.
Fréttin af samkomulaginu við
Norður-Kóreu beinir athyglinni
óneitanlega að öðru ríki, sem er með
kjarnorkuáætlun og haldið er fram að
hyggist koma sér upp kjarnorkuvopn-
um. Í gær lýsti Mahmoud Ahmad-
inedjad, forseti Írans, yfir því að Ír-
anar hefðu nú komið sér upp þrjú
þúsund skilvindum til að auðga úran,
sem bæði er hægt að nota í kjarnorku-
ver og kjarnorkuvopn. Mikill þrýst-
ingur er á Írana að láta af kjarnorku-
áætlun sinni og hefur Bush sagt að
yfir Mið-Austurlöndum hvíli skuggi
kjarnorkuhelfarar. Ahmadinedjad
segir hins vegar að Írönum vaxi ás-
megin við hverja ályktun Sameinuðu
þjóðanna gegn sér. Hvort er nú væn-
legra til árangurs, að laða Írana að
samningaborðinu, eða lemja á þeim
með hótunum? Hvað segir reynslan
frá Norður-Kóreu?
ÁHRIF ÍBÚA Á ÁKVARÐANIR
Hvert málið kemur nú upp á fæturöðru þar sem skerst í odda milli
íbúa og yfirvalda um framkvæmdir. Í
Morgunblaðinu í gær birtist frétta-
skýring eftir Pétur Blöndal um deil-
urnar í Mosfellsbæ um framkvæmdir
í Álafosskvos við fyrirhugaða tengi-
braut frá Vesturlandsvegi inn í
Helgafellsbyggð. Eitt deiluefnið er
aðgengi að gögnum um framkvæmd-
ina og kynningin á henni.
Forsvarsmenn Varmársamtakanna
segja að leikurinn sé ójafn og íbúar
hafi engin úrræði vilji yfirvöld ekki
hlusta á þá. Berglind Björgúlfsdóttir,
formaður samtakanna, kvartar undan
því í greininni að sveitarstjórnar-
menn hafi öll tromp á sinni hendi,
völd, fjármuni og starfsfólk.
En fulltrúar Mosfellsbæjar og
verktaka segja fáar framkvæmdir
hafa verið kynntar jafn vel, bæði á
fundum og með því að margauglýsa
skipulag. „Mér er til efs að fram-
kvæmdin við Kárahnjúka hafi verið
kynnt betur en þessi tengibraut,“
segir Hannes Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Helgafellsbygginga.
Hér verður ekki skorið úr þessari
deilu, en athygli vekur ábending frá
Sigrúnu Pálsdóttur hjá Varmársam-
tökunum. „Við teljum að það myndi
hjálpa gríðarlega mikið ef Árósa-
samningurinn yrði innleiddur, sem
Íslendingar hafa þegar samþykkt að
fullgilda,“ segir Sigrún. „Í honum
felst réttur almennings til að taka
þátt í ákvarðanatöku og réttur til
upplýsinga. Það er lýðræðislegur
samningur sem eflir íbúalýðræði og í
raun þann rétt íbúa að mega hafa af-
skipti. Ef skýrt væri kveðið á um
þetta væru skipulagsmál ekki svona
mikið vandamál af því að fólk vill hafa
áhrif á sitt nánasta umhverfi og það er
óeðlilegt að það fái ekki að hafa áhrif
eins og annars staðar á Norðurlönd-
um.“
Árósasamningurinn er frá 1998 og
snýst um aðgang að upplýsingum, að-
komu almennings að ákvörðunum og
réttláta meðferð umhverfismála. Evr-
ópusambandið fullgilti Árósasamn-
inginn árið 2003, en Alþingi hefur enn
ekki veitt honum löggildingu. Þegar
þingsályktunartillaga var lögð fram
2001 um að löggilda samninginn
strandaði það á að breyta þyrfti lög-
um. Óformlegum starfshópi þriggja
ráðuneyta var falið að skoða stöðu Ár-
ósasamningsins gagnvart íslenskum
lögum. Nokkrum sinnum hefur verið
kallað eftir löggildingu samningsins
og má nefna að það hafa t.d. bæði
Katrín Fjeldsted, Sjálfstæðisflokki,
og Atli Gíslason, Vinstri grænum,
gert í greinum í Morgunblaðinu.
Þróun lýðræðisins er stöðug vinna.
Markmiðið er að nálgast beint og
milliliðalaust lýðræði eins og kostur
er, m.a. með atkvæðagreiðslum um
tiltekin mál og auknu aðgengi al-
mennings að upplýsingum og áhrifum
á ákvarðanir. Löggilding Árósasamn-
ingsins er hluti af því margslungna
ferli að færa valdið til íbúanna.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Það fer ekki á milli mála aðfleiri af mínum skjól-stæðingum eru farnir aðnota Rivotril en áður.
Það liggur við að hægt sé að segja
að þeir noti það allir. Þeir fara í rán
og alls konar þjófnaði, hótanir og
ofbeldisverk meðal annars, undir
áhrifum þessa lyfs. Það má segja að
það sé orðið ófremdarástand hvað
þetta lyf varðar.“
Þetta segir Aðalsteinn Aðal-
steinsson, rannsóknarlögreglu-
maður í auðgunarbrotadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hann hefur starfað við rannsókn
innbrota, þjófnaða og rána í að
verða áratug. Í langflestum til-
fellum taka afbrotamennirnir sem
Aðalsteinn er að fást við í sínu
starfi fleiri en eitt lyf og segir hann
augljóst að vinsælt sé meðal fíkni-
efnaneytenda að nota Rivotril með
öðrum lyfjum. Hins vegar geri auð-
velt aðgengi að þessu tiltekna lyfi
sem og lágt verð það að verkum að
lyfið virðist vera orðið mun algeng-
ara meðal þessa hóps en önnur lyf-
seðilsskyld lyf, sem sumir kalla
„læknadóp“.
„Þetta slær önnur lyf út vegna
þess hversu ódýrt það er,“ segir
Aðalsteinn en Tryggingastofnun
greiðir lyfið niður að verulegu leyti.
Sé viðkomandi flogaveikur og
framvísar lyfjaskírteini greiðir TR
lyfið að fullu en aðrir greiða að há-
marki 4.950 kr. af smásöluverði
þess. Elli- og örorkulífeyrisþegar
og börn með umönnunarmat greiða
að hámarki 1.375 kr. af smá-
söluverði.
Svo virðist sem auðvelt sé að fá
lyfinu ávísað hjá sérfræðingum og
sökum þess hversu ódýrt það er
freistast fólk til að versla með það á
svörtum markaði. Gangverð á einni
töflu, 200 mg, er um 200-300 kr. á
götunni en hæglega er hægt að fá
35-40 þúsund krónur fyrir pilluglas
með 100 stk. Í ofskömmtum veldur
lyfið „hörkuvímu“ eins og skjól-
stæðingar Aðalsteins hafa orðað
það. Vinsældir lyfsins skýrast af
öllum þessum þáttum saman-
lögðum og má því segja að hér sé á
ferðinni ódýr og aðgengilegur
vímugjafi.
Gott, kvíðastillandi lyf
Lyfið Rivotril kom á markað á
Íslandi fyrir áratugum og er það
eina lyfið hér á landi sem flokkað er
sérstaklega sem flogaveikilyf.
Reynslan sýndi síðar, eins og oft
gerist með lyf, að lyfið er kvíðastill-
andi og hefur undanfarin ár verið
mikið notað af þeim sem þjást af
kvíðaröskun. Að sögn geðlæknis er
talið að fáir kvíðasjúklingar, aðeins
um 1% þeirra sem fái lyfinu ávísað
og þurfi raunverulega á því að
halda sem slíku, misnoti það. En
neysla lyfsins getur valdið stór-
vandamáli hjá þeim sem glíma við
fíknivandamál. Fyrir það fólk er
lyfinu ávísað sem og kaupa
svörtum markaði. Þekkt er
selji lyf sín á svörtum mark
er Rivotril þar ekki undans
Þar sem lyfið er ódýrt fyrir
hafa lyfseðilsins er hægt að
gott upp úr því að selja það
Getur gróðinn verið tífaldu
nóg er af áhugasömum kau
endum.
„Maður á örvandi lyfjum
hvað sem er, hann vílar ekk
sér,“ segir Aðalsteinn. „Þa
að mínu mati mjög óábyrgt
einhverjum sem er háður ly
Rivotril.“
Önnur lyf fáanleg –
verri verkun
Á markaði eru önnur kví
andi lyf, t.d. Buspiron, sem
að vera ávanabindandi en þ
geðlæknum saman um að þ
ekki nægilega kvíðastilland
og sé því lítið notað. Í vissu
vikum virki hins vegar vel a
verkja- og flogaveikilyfið L
þótt ekki sé komin nægileg
á það þar sem það er fremu
og þar af leiðandi dýrt.
Að sögn geðlæknis sem M
unblaðið ræddi við er vand
einnig það að hafi sjúklingu
ast Rivotril á annað borð, s
erfitt fyrir viðkomandi að h
lyfið sérlega ávanabindandi. „Þann-
ig að við sjáum oft að fólk er að
taka þetta of mikið og misnota lyf-
ið. Og það er ekki auðvelt að fá fólk
til að hætta að nota það,“ segir geð-
læknirinn.
Í réttum skömmtum, yfirleitt 2-4
töflur á sólarhring, hefur lyfið ró-
andi áhrif. Sé þess hins vegar neytt
í ofskömmtum, t.d. teknar 6-8 töfl-
ur í einu, verkar það örvandi og
veldur svipaðri vímu og mikil
áfengisneysla. „Séu notuð önnur
fíkniefni með Rivotrili þá hefur það
svokölluð sturlunaráhrif,“ segir Að-
alsteinn. „Fólk getur hreinlega
sturlast undir áhrifum þessara
lyfja og misst allt veruleikaskyn.
Neytendurnir gera hvað sem er og
gera sér enga grein fyrir hvað þeir
eru að gera.“
Aðrar alvarlegar aukaverkanir
lyfsins í ofskömmtum eru m.a.
svartnætti, vanlíðan, hræðsla og
minnisleysi. „Neytendur hafa oft
lýst þessu fyrir mér á þann veg að
eftir að hafi verið handteknir um
nótt og færðir í fangageymslur,
hafi þeir ekki hugmynd um hvers
vegna þeir voru teknir þegar þeir
vakna morguninn eftir. Lyfið vekur
ótta hjá neytendum en þeir verða
samt svo háðir því að þeir vilja
frekar nota lyfið en vera án þess,
þrátt fyrir slæm eftirköst. Þeir
gera sér ekki alltaf grein fyrir
hversu veruleikafirrtir þeir eru eft-
ir neyslu lyfsins og því hættulegir
umhverfi sínu við ofneyslu og mis-
notkun þess.“
Eitur fyrir áfengissjúklinga
Á vef Lyfjastofnunar kemur
fram að Rivotril eigi að nota mjög
varlega hjá sjúklingum sem hafa
átt við misnotkun áfengis eða eitur-
lyfja að stríða. Þar segir einnig að
lyfið geti leitt til líkamlegrar og
andlegrar ávanabindingar. Hættan
á ávanabindingu aukist með aukn-
um skömmtum og löngum meðferð-
artíma. Þá hefur því einnig verið
haldið fram að benzódíazepín-lyf,
sem Rivotril tilheyrir, verði áhrifa-
laus sem meðal við kvíða eftir að
þau hafi verið gefin samfleytt í 1-4
mánuði. Slík lyf geta truflað ýmsa
heilastarfsemi, m.a. minni, þótt þau
séu aðeins gefin í litlum skömmt-
um. Fyrst og fremst trufla þau
skammtímaminni en geta þó trufl-
að langtímaminni ef þau eru tekin
stöðugt í langan tíma.
„Menn virðast fljótt verða mjög
háðir lyfinu og svífast einskis, hvort
heldur er að hóta líkamsmeiðingum
til að komast yfir næsta skammt,
fara í innbrot, þjófnaði eða rán,“
segir Aðalsteinn um Rivotril.
Þekkt er að afbrotamenn niður í
fimmtán ára aldur misnota lyfið og
neysla þess meðal ungra afbrota-
manna er mjög algeng. Fjármagna
þeir neyslu sína, Rivotrils sem ann-
arra vímugefandi efna, með inn-
brotum og þjófnuðum. „Við erum
að missa ungt fólk í neyslu þessa
lyfs og það rænir síðan og ræðst á
fólk undir áhrifum þess,“ segir Að-
alsteinn. Neytendur fá bæði sjálfir
Fremja ódæ
áhrifum flog
Hvað er lítið, bleikt og kringlótt og getur valdið
„hörkuvímu“ í stórum skömmtum? Flogaveiki-
lyfið Rivotril sem síbrotamenn neyta áður en
þeir fara í rán, innbrot, þjófnaði og ofbeldisverk.
Rivotril er áhrifaríkt, kvíðastillandi lyf en sé það
tekið í stórum skömmtum getur það m.a. valdið
uppnámi og árásargirni. Hættulegast er lyfið
þegar það er notað ásamt öðrum vímuefnum.
Þá virðist sem djöfullinn verði laus.
Varasamt „Við erum að m
þess,“ segir Aðalsteinn Að
!"#
!"
Mannfjölgun Fjöldi einsta
4,6% frá árinu 2003. Á sam
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/