Morgunblaðið - 03.09.2007, Side 21

Morgunblaðið - 03.09.2007, Side 21
fyrir gjöfinni og þannig aukið enn meir við skuldasúpu okkar erum við í raun og veru að gefa eignir annarra. Hér hefur því verið slegið föstu að Íslendingar séu ekki rík þjóð vegna þeirra ofurskulda sem á okkur hvíla. Hafa þeir þá aldrei verið ríkir? Jú reyndar. Í seinni heimsstyrjöldinni voru utanrík- isviðskipti Íslendinga svo hagstæð að gjaldeyrisforði þeirra jafngilti tvöföldum fjárlögum ríkisins. En þessi miklu auðæfi okkar entust ekki lengi, því að þegar Nýsköp- unarstjórnin fór frá árið 1947 eftir að hafa setið rúmlega tvö ár að völdum kom í ljós að hún hafði eytt öllum stríðsgróðanum eins og hann lagði sig. Fyrir nokkrum árum reiknaði ég lauslega út hve háa fjárhæð þyrfti til að greiða allar skuldir Ís- lendinga. Komst ég að þeirri nið- urstöðu að þótt öll samgöngu- og flutningatæki okkar væru seld á fullu verði, allar bifreiðar, fiski- skipafloti, farmskip og flugvélar, nægði söluverðið ekki til að greiða upp skuldir okkar erlendis. Og ég dreg í efa að útkoman yrði hag- stæðari ef slík athugun færi fram nú. Og ósköp værum við nú fátæk og umkomulaus ef við þyrftum að láta öll þessi mikilvægu tæki af hendi til þess að standa í skilum. Vonandi kemur aldrei til þess. En þá verðum við líka að taka okkur á og breyta um lífsstíl og hugs- unarhátt, því að áframhaldandi lífsþægindagræðgi hlýtur að enda með gjaldþroti. Í þessu mikilvæga máli þarf ríkisstjórnin að hafa for- ystu og sýna gott fordæmi. Hún þarf að setja þjóðinni skynsamleg markmið og hvetja hana til ráð- deildar og sparnaðar. » Það skiptir gríð-arlega miklu máli fyrir velferð þjóð- arinnar, hvort ríkidæmi okkar fær staðist eða ekki. Höfundur er fyrrverandi kennari og skólastjóri. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 21 MINNINGAR ✝ Eiríkur Björg-vin Eiríksson fæddist í Dagverð- argerði í Tungu- hreppi, N- Múlasýslu, 16. des- ember 1928. Hann lést á elliheimilinu Grund 25. ágúst sl. Hann var yngstur í hópi fjögurra systkina en tvö komust til fullorð- insára. Systir Eiríks var Málfríður, ábú- andi og skáldkona í Dagverðargerði, f. 3. 2. 1922, d. 25. 11. 2000. Foreldrar Eiríks voru Anna Gunnarsdóttir húsfreyja og Eiríkur Sigfússon bóndi í Dag- verðargerði. ur svo til Reykjavíkur og gerðist bókavörður hjá Alþingi. Þeim starfa hélt hann fram til ársins 1995 er hann hætti fyrir aldurs sakir. Eiríkur var fræðimaður af Guðs náð og sinnti ýmsum rit- störfum og menningarsýsli. Hann var nafntogaður hagyrðingur og vel að sér um sagnfræði og bók- menntir; gat sér m.a. gott orð fyr- ir frammistöðu í spurningakeppni í sjónvarpi árið 1972. Þá ritaði hann ábúendatal og sveitarlýs- ingar í ritið „Sveitir og jarðir í Múlaþingi“, tók saman hinar ít- arlegu nafnaskrár og skýringar við seinni útgáfu Þjóðsagna Sig- fúsar Sigfússonar er út kom 1980– 1985 og er höfundur að mörgum tímaritsgreinum og útvarps- þáttum um austfirskan fróðleik af ýmsu tagi. Eiríkur var ókvæntur og barn- laus. Útför Eiríks Björgvins fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 3. september og hefst athöfnin kl. 11. Eiríkur naut heimakennslu hjá föður sínum í Dag- verðargerði en hélt í Eiðaskóla 1946 og stundaði nám þar í tvo vetur. Í veik- indum föður síns gerðist Eiríkur síðan fyrirvinna heimilis- ins og annaðist bú- skapinn fram til 1967 samhliða aukastörf- um við vegavinnu og í sláturhúsi eystra. Sinnti hann ýmsum tilfallandi verkamanns- og rit- störfum eftir að heilsa hans leyfði ekki frekara búsýsl, þ. á m. skóg- ræktarstörfum á Hallormsstað á sumrum. Haustið 1975 hélt Eirík- Ljúft er mér að rita nokkur orð eftir vin minn og frænda, Eirík fræðimann Eiríksson frá Dagverð- argerði í Hróarstungu, sem nú hef- ur kvatt þennan heim, heilsuskertur og saddur lífdaga. Hann var af þeirri kynslóð sem ekki var mulið undir og ólst upp við þröngan kost sveitabúskapar í kreppunni miklu. Ekki var heldur langri skólagöngu fyrir að fara; að mestu naut hann fræðslu föður síns en nam þó tvo vetur í Eiðaskóla áður en heilsu- brestur föður hans og harðæri neyddi hann til að snúa heim í Dag- verðargerði og sinna búi foreldr- anna. Aldrei blundaði þó bóndinn í Eiríki; hann var pasturslítill til erf- iðisvinnu og kvaðst hafa orðið því fegnastur er hann gaf frá sér búst- ritið og fluttist til Reykjavíkur. Þar fann hann sig öllu betur í nánu sambýli við vini sína, bækurnar, jafnt á vinnustaðnum á Alþingi sem heima fyrir. Ekki fóru mildar ko- nuhendur um heimili hans né höfuð. En lífsfyllingu fann hann í bókum sínum og grúski. Bókasafn hans ber þekkingarþorsta hans og smekkvísi vitni og ötull var hann við að til- einka sér fróðleik og reynslu fyrri kynslóða. Námsgáfur hans og minni komu snemma í ljós og þekkingu hans á skáldskap var við brugðið. Sjálfan hann mátti kalla talandi skáld. Þá viðaði hann að sér fjölmörgum gripum úr búsháttum fyrri tíðar er vitni bera um virðingu hans fyrir gengnum kynslóðum. Skyldu menn minnast hlutdeildar hans í minn- isvörðum um Sigfús Sagna, Pál Ólafsson og Jóhann Magnús Bjarnason eystra. Þekkingu hans í ættfræði var við brugðið: Svo sagði mér maður er samferða varð honum frá Reykjavík austur á Hérað að framan af hefði Eiríkur kunnað nöfn allra bæja við veginn, en síðan – eftir því sem austar dró – einnig ættartölur ábú- enda! Svo minnugur var hann að hann blekkti augnlækni á sjónprófi með því að þylja viðstöðulaust alla stafina sem læknirinn bað hann lesa – eftir minni! Sjálfur sagði hann mér að er útgáfa safnritsins „Sveit- ir og jarðir í Múlaþingi“ stóð fyrir dyrum hefði hann komið til Bakka- fjarðar í fyrsta sinn á ævinni um hádegisbil dag nokkurn, notað síð- degið og kvöldið til spjalls við fróða heimamenn og ritað svo sveitarlýs- ingu Bakkafjarðar um nóttina! Þarf engu þar við að bæta, hvorki að orðfæri né innihaldi. Þá var Eiríkur áður fyrr ólatur við ýmis greina- skrif og þáttagerð. Ekki skal gleyma hinni ítarlegu nafnaskrá með útgáfunni á Þjóðsögum Sigfús- ar Sigfússonar. Ábúendatal Kirkju- bæjarsóknar er til í handriti en mun óprentað enn. Síðustu árin urðu Eiríki þung í skauti. Heilablóðfall rændi hann hreyfigetunni og varð hann að bregða búi sínu. Féll honum þungt að skiljast við bækurnar sínar og kjörgripi ýmsa. En nýtt athvarf fékk hann á Grund á ævikvöldinu og á það sómafólk er þar annaðist um hann heiður skilinn fyrir góðan aðbúnað hans þar. Fari nú Eiríkur frá Dagverðar- gerði ætíð vel. Ekki batt hann bagga sína sömu hnútum og sam- ferðarmenn en því eftirminnilegri verður hann þeim er honum kynnt- ust. Við sem eftir stöndum höfum í honum mikils misst – en mest þó Austurland, fræði þess og fortíð öll. Jón B. Guðlaugsson. Góður maður og gegn er genginn til feðra sinna, Eiríkur Björgvin Ei- ríksson frá Dagverðargerði í Hró- arstungu. Hann átti til merkra að telja austur þar, vandaðra og vinnu- samra. Eiríkur átti heima í Dagverðar- gerði til ársins 1975 að hann flutti til Reykjavíkur og gerðist bóka- vörður við bókasafn Alþingis, en búi hafði hann brugðið 1967, níu árum eftir að hann tók við búforráðum með móður sinni að föður sínum liðnum. Hann stundaði nám á Eið- um og má raunar segja, að upp frá því hafi bækur og ritstörf hverskon- ar verið hans ær og kýr. Líka vegna þess að heilsa hans leyfði raunar ekki bústang. Sótti t.d. á hann hey- mæði illvíg frá unga aldri. Var því kannski ekki gaumur gefinn sem skyldi; unglingnum haldið fast að vinnu, enda vinnusemi í Dagverð- argerði mikil, þótt ekki sé við hæfi að segja að Eiríkur hafi verið barnlúinn, eins og haft var á orði í minni sveit um fólk, sem var ofþjak- að af vinnu í bernsku. Um Eirík þyrfti að rita langt mál, ef ná ætti fram lýsingu sem honum hæfði. Sá, sem hér heldur á penna, treystir sér ekki til þess að þessu sinni, enda er hætt við að þeir, sem ekki þekktu Eirík vel, myndu kannski telja að farið væri með dár og spé, enda batt hann ekki bagga sína sömu hnútum og samferða- menn. Eiríkur var í mörgu sér á kvisti. Á hann sótti þó engin minnimátt- arkennd, enda með öllu óþarft. Eiríkur var mjög vel gefinn mað- ur og minnið svo trútt sem tölva væri. Hans líf og yndi voru bækur, einkum og sér í lagi gamall fróð- leikur um menn og menntir. Hann var hagyrðingur ágætur, svo sem þulur hans í veizlum starfsfólks Al- þingis bera gott vitni um. Bæði þá og eins í öðrum kveðskap var hann mjög pólitískur og níðskældinn þeg- ar Framsókn átti í hlut. Þótti hon- um verra að eiga sama afmælisdag og sá flokkur, en betra þegar Geir Hallgrímsson reyndist fæddur þann sama dag. Dagverðargerði var ekki mikil jörð né arðgefin. En hún var setin með slíkum ágætum af foreldrum Eiríks, Önnu og Eiríki og svo og syninum síðar að telja mátti þau efnafólk. Eiríkur þurfti til dæmis ekki að fara í innri vasann til að reiða af höndum kaupverð íbúðar að Brávallagötu árið eftir að hann flutti búferlum til Reykjavíkur. En vinnusemi, nýtni og ýtrustu sparsemi þurfti til, enda allt til staðar. Dró Eiríkur dám af því upp- eldi, enda var aðgát hans í fjár- málum einstök. Þar kom þó að brugðið var fyrir hann fæti í þeim efnum og var algjör undantekning sem sannaði hina regluna. Eiríkur reyndist bókasafni Al- þingis hinn nýtasti starfskraftur. Hann var einstaklega bókfróður og svo gjörkunnugur í fornbókavið- skiptum að furðu sætti. Átti hann því hægt um vik að afla ýmissa rita og fylla í eyður sem finna mátti í bókasafninu. Ég minnist þess að Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, gaf honum hið bezta orð, svo og aðrir sem honum kynntust í dagsins önn. En bezt undi hann sér með skræðum sínum heima og þurfti ekki annarra tómstunda við. Til dæmis festi hann aldrei kaup á sjónvarpi og taldi slíkt aðeins til truflunar. Fyrstu árin hirti hann heldur ekki um að sími væri nær- hendis. Þeim, sem nú á dögum telja eðli- legast að allir séu steyptir í sama mótið, mun hafa þótt Eiríkur kyn- legur kvistur í ýmsum háttum sín- um. Það vissi hann mætavel en gaf ekki um. Að honum er vinum hans mikill sjónarsviptir. Hann er hinn þriðji sem gengur fyrir ætternisstapann af tólf manna gestasveit, sem jafnan sat Þorláksmessuhóf að Einimel 9 um aldarfjórðungsskeið. Hinir tveir eru Pétur Sigurðsson, sjómaður og alþingismaður, og Helgi G. Þórð- arson verkfræðingur. Þótti mikill miðmundi að Eiríki í þeim hópi. Við Greta kveðjum Eirík með söknuði, þakklát forsjóninni fyrir kynni af svo einstökum manni. Eiríkur var ekki trúhneigður maður. Hann mun samt eiga góða heimvon. En líklega mun hann vilja fá að blaða í Lífsins-bók, þegar hann kemur til fundar við Lykla- Pétur. Og hefir þá einurð að benda á misfellur ef þar finnast. Sverrir Hermannsson. Eirík sá ég fyrst fyrir réttum fjörutíu árum. Hann var í trjávinnu austur á Hallormsstað og Sigurður Blöndal kynnti hann sem væntan- lega pólitískan flóttamann. Eiríki samdi nefnilega ekki við menning- arvitana fyrir austan sem hann kall- aði svo, einkum ekki ef þeir voru framsóknarmenn. Sama kvöld kom hann til okkar í tjald, kunni vel að meta lítilræði á fleyg og þá var nú ekki töluð vitleysan. Síðan bar ekki skugga á. Tveim árum seinna sögðu samstarfsmenn mínir á Þjóðminja- safni, Gísli Gestsson og Halldór J. Jónsson, frá fróðskap sama manns sem hafði verið þeim til aðstoðar við að taka ofan baðstofuna á Brekku í Hróarstungu. Þegar Sverrir Hermannsson gerðist þingmaður í Austurlands- kjördæmi varð honum brátt ljóst að Eiríkur átti betur heima í menning- arlífi höfuðstaðarins. Hann fékk því til leiðar komið að Eiríkur varð starfsmaður á bókasafni Alþingis. Sá böggull fylgdi þó skammrifi að þar sat fyrir Halldór framsóknar- maður Kristjánsson á Kirkjubóli. Kváðust þeir nokkuð á annað veifið og þótti Eiríki stundum hart undir að búa því Halldóri var öllu léttara um að yrkja. Eftir að Eiríkur fluttist til Reykjavíkur urðu ferðir hans tíðari á Þjóðminjasafnið. Hann var þar kunnugur ýmsum, hafði einatt margt að segja, skoðanir og gagn- rýni á ýmsa hluti svo að nokkuð gat teygst úr heimsókninni. Oftast hafði hann þó komið einhverjum til nokk- urs þroska. Eiríkur varð landsfrægur þegar hann tók þátt í spurningakeppni á vegum Sjónvarpsins og hlóð hverju gáfnaljósinu á fætur öðru með marghliða þekkingu sinni. Honum var fræðimennska í blóð borin en líklega var hún meira í ætt við al- fræðirit en djúpan skilning á sam- hengi hlutanna. Hann birti ekki annað en nokkrar smágreinar í hér- aðsritin Múlaþing og Gletting og eitt kvæði í tímaritinu Skildi sem reyndar er pólitísk háðsádeila. Mesta verk sem eftir hann liggur er hin mikla skrá yfir mannanöfn, drauga, vættir og staði í seinasta bindi hinnar nýju útgáfu á þjóðsög- um Sigfúsar Sigfússonar. Hún er 360 blaðsíður og er til vitnis um mikla natni og nákvæmni. Eiríkur hirti lítið um útlit sitt eða klæðaburð. Að sumu leyti virtist þetta stafa af einstakri gætni hans í fjármálum og sparsemi við sjálfan sig og aðra sem sögur fóru af. Hann var ekki mikill félagshyggjumaður og sá eftir hverjum eyri í opinber gjöld. Hann lagði kollhúfur þegar hann var eitt sinn spurður af grá- glettni hvort honum væri ekki ljúft að geta lagt sitt af mörkum til sam- félagsins. Það var því nánast átak- anlegt að það litla sem hann hafði nurlað saman skyldi á endanum lenda í óprúttnum höndum en hann sjálfur fá að njóta hinnar sam- félagslegu velferðarþjónustu. Hvað sem annars má um Eirík segja gat hann gert mönnum glatt í sinni ef hann var rétt skilinn. Og hann er gott dæmi um þá sjálf- menntuðu menn sem geta skotið mörgum fræðimanninum með há- skólagráðu ref fyrir rass. Árni Björnsson. Eiríkur Björgvin Eiríksson deyfa dollaraglampann í augum þeirra: „… virkjunin er erfið og áhættusöm jaðarframkvæmd í landfræðilegu, – tæknilegu, – um- hverfislegu – og markaðslegu til- liti, er í raun eyland í raf- orkukerfinu og rýrir það meðal annarra þátta gildi vatnsréttinda við Kárahnjúka. Þá er ekki unnt að útiloka að stofnkostnaður fari fram úr áætlunum vegna tækni- legra örðugleika á byggingartíma og rekstrarkostnaður Hálslóns geti orðið umtalsverður ef beiti þurfi ítrustu mótvægisaðgerðum vegna skilyrða um umhverf- isþætti …“ Ég tók hvergi í grein minni undir bullið um að gildi vatnsréttinda rýrðist vegna þess hve þessi framkvæmd væri slæm og myndi aldrei taka undir það að verðmæti náttúruverðmætanna sem fórnað var væru minni af þeim sökum. Þvert á móti er það grátlegast hve miklum verðmæt- um er fórnað og hve grátt þjóð okkar verður endanlega leikin þegar öll kurl verða komin til grafar. Jakob Bjarnar sýnir skemmtilega í lok greinar sinnar hvernig ríkið sjálft muni í raun samkvæmt úrskurði matsnefndar borga til annarra en sjálfs sín ná- kvæmlega það sama fyrir vatns- réttindin og áætlað var í upphafi. 70 prósent af greiðslunum muni einfaldlega renna úr einni skúffu ríkiskassans í aðra. Þessi fram- kvæmd byggist nefnilega á því að á endanum borgi þjóðin sjálf reikningana og að því leyti til er- um við Jakob Bjarnar samherjar í því að fletta ofan af því hugarfari og aðferðum sem liggja að baki þessu mesta hneyksli Íslandssög- unnar. Höfundur er formaður Íslandshreyfingarinnar. Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is  Fleiri minningargreinar um Eirík Björgvin Eiríksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.