Morgunblaðið - 03.09.2007, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ VEIST AÐ MORGUNMATUR,
HÁDEGISMATUR OG KVÖLDMATUR
ERU ÞRJÁR MÁLTÍÐIR?
ÞÚ ÁTT EKKI AÐ BLANDA
ÞEIM ÖLLUM SAMAN
ERTU BARA AÐ SEGJA
ÞETTA TIL AÐ SÆRA MIG?
MIG
LANGAÐI
BARA AÐ
VERA HETJA
EN FÆ ÉG AÐ VERA HETJA?
NEI! ÉG ER ALLTAF BARA
HEIMSKUR AULI!
EKKI LÁTA SVONA, KALLI...
ÞAÐ LENDA ALLIR Í ÞVÍ
EINHVERN TÍMANN Í LÍFINU
AÐ ÞEIM LÍÐUR ILLA..
MÁLIÐ ER BARA AÐ
Í MÍNU TILFELLI ER
ÁSTANDIÐ VIÐVARANDI
HÆ
SOLLA
FARÐU BURT!
SESTU HJÁ
EINHVERJUM
ÖÐRUM! ÉG VIL
EKKI VITA HVAÐA
ÓGEÐ ÞÚ ERT MEÐ
Í NESTI!
ÉG ÆTLAÐI
EKKERT AÐ
SEGJA ÞÉR
HVAÐ ÉG ER
MEÐ Í NESTI
ÞAÐ ER
EINS GOTT
FYRIR ÞIG!
ÞAÐ EINA SEM ÉG GET
SAGT ER AÐ ÉG VORKENNI
MÖÐKUNUM MÍNUM KENNARI!
ÉG
SAGÐI
EKKI
HVAÐ ÉG
ER MEÐ
Í NESTI!
EKKI BÚAST VIÐ ÞVÍ
AÐ VÍKINGUR SÉ ÞÉR
FULLKOMLEGA TRÚR...
LÆRÐU ÞESS Í STAÐ AÐ
TAKA ÞÁTT Í ÁST HANS
Á ANNARRI
KONU?!?
NEI... Á SKIPINU
SÍNU
VILTU
FLÝTA ÞÉR!
ÞETTA ER
BARA
HUNDAÓL!
ÞAÐ FINNST ÖLLUM
KJÖTRÉTTURINN ÞINN
FRÁBÆR. MIG LANGAR
BARA AÐ BREYTA TIL
EN MIG
VANTAR SAMT
HJÁLP. GETUR
ÞÚ ÚTBÚIÐ
MEÐLÆTI?
ALLT Í LAGI,
ADDA. HAFÐU
ÞETTA BARA
EINS OG ÞÚ VILT
EKKERT MÁL!
ÉG GET
ÚTBÚIÐ
MEÐLÆTI...
OG PÍNULÍTIÐ AF
KJÖTRÉTTINUM
MÍNUM
EF ÞÚ ERT
EKKI KÓNGULÓ-
ARMAÐURINN,
HVER ERTU ÞÁ?
ÉG HEITI
TED
CHAMBERS
ÉG FANN ÞENNAN
BÚNING OG REYNDI AÐ
HJÁLPA FÓLKI MEÐ ÞVÍ
AÐ ÞYKJAST VERA
KÓNGULÓARMAÐURINN
ÉG VAR
SLÖKKVI-
LIÐSMAÐUR
Á AUSTUR-
STRÖNDINNI
EN EFTIR AÐ
KONAN MÍN LÉST Í
ELDSVOÐA HEF ÉG VERIÐ
HRÆDDUR VIÐ ELD
dagbók|velvakandi
Draugaskipið Kútter Sigurfari
NÚ HEFUR Bæjarstjórn Akra-
ness farið fram á að aflaskerðingar
verði bættar m.a. með því að ríkið
leggi fjármuni til í þá óendanlegu
hít sem Sigurfari nefnist. Nú efast
enginn um að Akurnesingum ber að
fá þá skerðingu sem við blasir
bætta. En, herra guð, var ekki hægt
að finna eitthvert jákvæðara við-
fangsefni en draugaskipið alræmda!
Menn tóku fljótlega eftir því við
komu skipsins og þó sér í lagi er á
leið svonefndar viðgerðir á stáss-
fleyi þessu að búpeningur hvarf
með öllu í næsta nágrenni enda er
hástig vitrænna vitsmuna að finna í
sauðkindinni sem svo sannarlega
lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Hugsjónamaðurinn og mannvinur-
inn sr. Jón M. (Margrétarson) Guð-
jónsson var aðalhvatamaður að því
að Sigurfari var keyptur til lands-
ins. Sr. Jón var þeirrar gerðar að
með einstökum persónutöfrum sín-
um fékk hann það í gegn er hann
taldi til gildis fyrir komandi kyn-
slóðir. Fjölmargir komu að verki
þessu, t.d. Sæberg SU er tók skipið
í tog til Íslands, Landhelgisgæzlan,
vöruflutningafyrirtæki o.fl.
Mér er til efs að nokkur þessara
aðila hafi tekið krónu fyrir vinnu
sína og ómældan tíma; verkalaunin
fólust í því að sjá drauminn rætast.
En þetta ævintýr er á enda. Þar ber
fyrst og síðast að nefna fákunnáttu
og að því er virðist dauðyflishátt við
að verða sér úti um bestu fáanlegu
heimildir hvernig skyldi með slík
skip fara. Handvömmin er alger og
þetta botnlausa gímald sóunar og
fordjörfunar á verðmætum auk
sjónmengunar þarf að jarða sem
allra fyrst.
Menn geta sem best gert af-
steypu af plasti en kútterinn sjálfur
er svo illa á sig kominn að þar nægir
að einhver hósti í næsta nágrenni til
að hann hrynji saman í frumeindir
sínar, ekki einu sinni nothæfur í
áramótabrennu eða menn geti gert
sér það til skemmtunar að sprengja
hræ þetta í loft upp.
Varla er hægt að skiljast við
grein þessa nema minnast þess ein-
staka skemmdarverks sem unnið
var á klöppunum milli Gamla vita og
Nýja vita á Akranesi. Brotajárn eða
blikkrusl hefur „skreytt“ klapp-
irnar um nokkur ár sem og að ein-
hver síbernsku- eða kiddaklúbb-
urinn tók sig til og gerði upp vitann!
Þarf ekki að fara að tjarga Valþjófs-
staðahurðina!! Undirritaður er vel
kunnugur strandlengjunni við
Akranes og nágrenni og ótrúlegt
hversu stutt er að fara í ósnortna
fegurð náttúrunnar og upplifa feg-
urð ljóss og skugga, óendanlega
litadýrð þar sem mannshöndin,
góðu heilli, hefur hvergi nærri kom-
ið.
Guðni Björgólfsson,
kennari á Þórshöfn.
Fækkum flækingsköttum
ÉG SÁ frétt um að lögreglan tók
hund og lét lóga honum. Mér finnst
að það eigi að fara eins að með
ómerktar kisur, fara með þær í
Kattholt, eða svæfa þær. Það er allt
of mikið af kisum sem ráfa um, og
vita ekki hvar þær eiga heima. Kis-
ur ættu ekki að fá að ganga lausar.
Ég á sjálf 3 ketti og hef þá alltaf í
beisli þegar ég fer út með þá. Því
eru þeir vanir frá 8 vikna aldri og
gengur mjög vel.
Katta- og hundavinur.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
STARFSMENN Landsbankans við Austurstræti hafa í nógu að snúast
þessa dagana. Kannski hafa þessir starfsmenn verið að útbúa myntkörfu
fyrir einhvern viðskiptavin bankans, en ásókn landsmanna í erlend lán hef-
ur aldrei verið meiri.
Það er því öruggara að draga pappírana út í glugga og athuga hvernig
þeir líta út í dagsbirtunni.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Gluggað í pappíra
FRÉTTIR
SAMKOMULAG hefur náðst í
kjaradeilu slökkviliðsmanna á
Austurlandi við nýstofnað bruna-
samlag, Brunavarnir á Austur-
landi. Í júlí sögðu 11 af 14 slökkvi-
liðsmenn upp störfum frá og með 1.
september vegna óánægju með
breytt launakerfi sem þeir töldu
skerða kjör sín.
Með samkomulaginu, sem und-
irritað var í fyrradag milli Bruna-
varna á Austurlandi og Landssam-
bands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna, drógu
slökkviliðsmennirnir uppsagnir
sínar til baka.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
greiðslum til slökkviliðsmannanna
fyrir störf þeirra vegna vakta á
vegum rekstrarsamlagsins, að því
er segir í tilkynningu. Þar kemur
einnig fram að greitt verði fyrir
starfshlutfall sem geti verið mis-
munandi milli starfsheita og ein-
stakra starfsstöðva vegna meðal
annars mismunandi umfangs.
Þar kemur einnig fram að
slökkviliðsmönnum sé kunnugt um
að uppi séu hugmyndir um stofnun
atvinnuslökkvideildar á Fljótsdals-
héraði og að aðilar séu sammála
um að grundvöllur samkomulags-
ins sé að vinna sameiginlega að
uppbyggingu öflugra brunavarna á
svæðinu.
Samkomulagið gildir frá 1. jan-
úar á þessu ári og fram til loka
nóvember á því næsta.
Samkomulag í deilu slökkviliðsmanna
og Brunavarna á Austurlandi
Uppsagnir
dregnar til baka