Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 29
Elsku Björg, Bjöggi og fjöl-
skylda, Guð gefi ykkur styrk á þess-
ari sorgarstundu.
Elsku Haukur, takk fyrir að vera
vinur minn og takk fyrir að vera
eins og þú varst, einstakur.
Við söknum þín.
Elísabet vinkona,
Smári og Hrannar Örn.
Vonin er það sem við lifum fyrir.
Haukur er einn þeirra sem blésu
mörgum von í brjóst. Það var mér
mikil ánægja að vera einn þeirra
sem samþykktu inngöngu Vonar-
innar, félags krabbameinsgreindra,
í ÖBÍ, aðeins nokkrum dögum eftir
að hann lést. Merkjum Hauks verð-
ur haldið á lofti um ókomin ár. Enda
hann frumkvöðull að stofnun þessa
félags.
Við Haukur kynntumst fyrst fyrir
mörgum árum, hann í hlutverki
sölumanns á byggingavörum en ég
að kaupa. Óvenju hreinskiptinn og
heiðarlegur sölumaður á ferð. Eftir
nokkurra ára hlé á samskiptum
okkar hittumst við aftur, en í þetta
skipti var fundarstaðurinn sjúkra-
þjálfun hjá LSH. Þótt ástand okkar
væri ekki glæsilegt þá fórum við
nær alltaf hlæjandi af fundi hvor
annars. Húmorinn ráðandi þótt mál-
efnið væri oft réttleysi okkar félaga
og við lögðum á ráðin hvernig við
gætum bætt ástandið fyrir lang-
veika í landinu. Ég er ríkari maður
eftir kynni mín af þessu ljúfmenni.
Við vottum aðstandendum okkar
einlægustu samúð við fráfall Hauks
og treystum félögum hans til áfram-
haldandi góðra verka.
Guðjón Sigurðsson,
formaður MND-félagsins.
Haukur Þorvaldsson hóf störf hjá
okkur í Fönix í október 2004 í kjöl-
far nokkurra ára samstarfs fyrir-
tækis hans og vinar hans, Sveins
Sigurðssonar. Frá byrjun fundum
við hvers kyns öðlingur hann var,
blíður og gamansamur, en jafnframt
ákveðinn og fylginn sér. Haukur var
einn af stofnendum Vonarinnar,
hagsmunasamtaka krabbameins-
greindra og fyrsti formaður sam-
takanna. Hann var fastur fyrir en
öfgalaus í skoðunum og sýndi það
vel, eftir að hann veiktist, með
greinarskrifum í dagblöð um rétt-
indi og aðbúnað sjúklinga.
Haukur greindist með illkynja
krabbamein. Fljótlega kom að því
að hann gat ekki sinnt fullri vinnu
og lét því af störfum að eigin ósk en
var eftir það kallaður inn, nokkrum
sinnum, til ráðfæringar. Barátta
hans við sjúkdóminn var erfið en
hann bar sig vel og kvartaði ekki.
Eftir nokkurra vikna legu, á líkn-
ardeild Landspítalans, játaði hann
sig sigraðan og lést þann 2. október
síðastliðinn, langt um aldur fram,
aðeins 49 ára gamall.
Haukur Þorvaldsson reyndist
okkur vel í leik og starfi. Fyrir hönd
starfsmanna Fönix ehf, Mynd-
bandavinnslunnar og Hljóðrita vott-
um við eiginkonu hans, Björgu Jó-
hannsdóttur, fjölskyldu hans og
vinum, okkar innilegustu samúð
vegna fráfalls góðs drengs.
Jón Ingi Friðriksson,
Kristján Ottó Andrésson,
Þórhallur Andrésson.
Fallinn er frá langt um aldur
fram góður vinur og Lionsfélagi
okkar, Haukur Þorvaldsson. Það er
með söknuði og virðingu sem við fé-
lagar hans í Lionsklúbbi Hafnar-
fjarðar kveðjum góðan dreng.
Haukur gekk til liðs við okkur
snemma árs 2004 og var strax mjög
virkur félagi í klúbbnum. Þarna var
mættur eldhugi sem hafði skoðanir
á öllu og kom með ferskar hug-
myndir inn í starf okkar, sem þjón-
ar samfélagsins. Haukur var kraft-
mikill hugsjónamaður sem fann
vettvang við sitt hæfi í Lionshreyf-
ingunni þar sem karlmenn og konur
geta látið gott af sér leiða fyrir þá
sem þurfa á hjálp að halda.
Fyrsta verkefni Hauks í Lions
var að sjá um vorferðina okkar í
júní 2004. Þar kynntumst við María,
kona mín, Hauki og eiginkonu hans,
Björgu. Ferðin var ógleymanleg
skemmtireisa um Suðurland sem
endaði á Hótel Laka við Kirkjubæj-
arklaustur. Í svona ferðum er margt
skrafað og tilvalið tækifæri til þess
að tengjast sterkum vinaböndum.
Þarna í þessari ferð fann ég að
Haukur hafði miklar væntingar til
starfa sinna sem Lionsmaður og
þeirra verkefna sem framundan
voru. Þetta starfsár vann Haukur
að unglingaskiptamálum, fjáröflun-
arnefnd og hugmyndavinnu vegna
Gaflarans. Gaflarinn er vörumerki
Lionsklúbbsins okkar og vann
Haukur ásamt öðrum við þá vinnu
að gera Gaflarann að fjáröflunar-
verkfæri fyrir klúbbinn.
Strax árið 2005 var Haukur gerð-
ur að varagjaldkera og var þar með
kominn í stjórnarstörf hjá okkur.
En nú dró yfir skýjahulu í lífi hans
og greindist hann með þann sjúk-
dóm sem feldi hann að lokum.
Haukur ákvað að berjast við þennan
vágest og gerði það með sæmd. Í
stað þess að gefast upp tók hann til
við að vinna að réttindamálum
þeirra sem greinast með ólæknandi
sjúkdóma og má segja að starf hans
að þeim málum sé eftirtektarvert og
muni nýtast fólki sem á við svipaðar
aðstæður að etja í framtíðinni.
Haukur var trúaður maður og var
það hans haldreipi í baráttunni sem
hann háði við örlög sín. Trúin á guð
almáttugan og son hans Jesú Krist
auðveldaði honum að takast á við
þessi síðustu ár í lífi sínu.
Sem leiðtogi Lionshreyfingarinn-
ar á Íslandi og félagi í Lionsklúbbi
Hafnarfjarðar vil ég þakka Hauki
Þorvaldssyni fyrir störf hans í þágu
samfélagsins og innlegg hans í
Lionshreyfinguna. Gott hefði verið
að fá að njóta krafta hans lengur en
enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Fyrir hönd Lionshreyfingarinnar
á Íslandi og félaganna í Lionsklúbbi
Hafnarfarðar sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur til fjölskyldu
Hauks, með þakklæti fyrir lánið á
þessum góða dreng.
Megi minning hans lifa,
Björgúlfur Þorsteinsson,
fjölumdæmisstjóri
Lions á Íslandi.
Fallinn er nú frá góður drengur,
eldhuginn og hugsjónamaðurinn
Haukur Þorvaldsson.
Haukur var einn af okkur, stofn-
endum Vonarinnar, hagsmunasam-
taka krabbameinsgreindra. Hann
var upphafsmaðurinn og hug-
myndasmiðurinn að félagsstofnun-
inni og hlaut einróma kosningu sem
fyrsti formaður hennar á stofnfundi
félagsins 30. janúar sl.
Kynni okkar Hauks hófust í Ljós-
inu en Ljósið er endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð fyrir krabba-
meinsgreinda og aðstandendur
þeirra. Hann var þessi hávaxni, ein-
lægi, glaðværi og brosmildi einstak-
lingur sem hvarvetna naut verð-
skuldaðrar athygli. Ekki var hann
alveg laus við smávegis stríðni þeg-
ar sá gállinn var á honum. Skrif
hans um hagsmunamál krabba-
meinsgreindra og vankanta í heil-
brigðiskerfinu sem birtust í dag-
blöðunum gátu verið beitt og
stundum svolítið hvatvís þegar hann
vildi svo vera láta. Hann var ein-
ungis nýorðinn 49 ára síðan 15.
september þegar meinin tóku loks
að yfirbuga og lögðu síðan að velli
þennan fjallmyndarlega víking og
hugrakka baráttumann, hinn 2.
október sl. Haukur dvaldi síðustu
vikurnar á líknardeild Landspítal-
ans. Hann kvaðst sjálfur í upphafi
ekki ætla að vera þar lengi. Reynd-
ar trúði hann mér fyrir því að hann
ætlaði að vera kominn út fyrir 15.
september sem ég vissi þá ekki að
væri afmælisdagurinn hans. Þegar
það gekk ekki upp sá ég fljótt
hvernig af honum dró og vonin
þvarr þó svo hann væri ekkert að
flagga því við okkur hin. Við fé-
lagarnir í Voninni stöndum hnípin
eftir og talsvert ráðvillt. Haukur var
nefnilega sá sem dró vagninn og
blés eldi í glæðurnar. Það var hann
sem bjó yfir eldmóðnum og hreif
okkur hin með sér. Það var hann
sem hvatti til dáða með áhuga sín-
um og sterkum vilja til þess að láta
gott af sér leiða. Fyrir þá sem þurfa
að líða vegna veikinda sinna og síð-
an þeirra aumkunarverðu kjara sem
bíða þeirra í íslensku allsnægtasam-
félagi. Við Haukur áttum góða viku-
dvöl saman, að Sólheimum í Gríms-
nesi í ágúst á sl. ári í höfðinglegu
boði líknar- og vinafélagsins Berg-
máls sem félagið tileinkar krabba-
meinsgreindum og sjúkum. Þar
skeggræddum við um margt og þá
ekki hvað síst um hugmyndir hans
að stofnun hagsmunasamtaka
krabbameinsgreindra sem áttu þá
hug hans að mestu. Hann kvaðst
endilega vilja fá mig í lið með sér
ásamt fleirum sem hann hafði áður
viðrað hugmyndina við. Hann sagð-
ist vilja fá mig með sér í stjórn þar
sem ég gæti tekið stöðu ritara, m.a.
til þess að ég hefði nóg að gera á
fundum og til þess að fyrirbyggja að
ég kjaftaði allt og alla í kaf. Og svo
hló hann sínum dillandi stríðnis-
hlátri og klappaði mér á öxlina til að
fyrirbyggja það að mér yrði misboð-
ið.
Hjá okkur félögum og vinum
hans er nú stórt skarð fyrir skildi.
Þó er það skarð einungis glufa í
samanburði við þann missi sem
kona hans, Björg Jóhannesdóttir og
sonur þeirra Björgvin Margeir sem
varð átta ára laugardaginn 6. októ-
ber, þurfa að lifa við. Ennfremur
eldri börnin hans, þau Agnes Björk,
Hermann Haukur og Þorvaldur
sem og aðstandendur og nánir vinir
allir.
Þeim votta ég mína dýpstu samúð
og bið algóðan Guð að hugga þau og
styrkja í erfiðri raun.
Farðu í frið, kæri vinur,
Ármann Eiríksson.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 29
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskulegur bróðir okkar,
KARL ÚLFARSSON,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést aðfaranótt sunnudagsins 14. október á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Systkini hins látna.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
(DÚNA),
Mýrarvegi 115,
Akureyri,
andaðist að morgni föstudagsins 12. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
19. október kl. 13.30.
Sigmundur Magnússon,
Þórný Kristín Sigmundsdóttir,
Stefanía Gerður Sigmundsdóttir, Helgi Jóhannesson,
Sigrún Hulda Sigmundsdóttir, Finnbogi Rútur Jóhannesson,
Þórir Sigmundur Þórisson, Guðrún Erla Gísladóttir,
Björn Þór Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
frá Súluholti,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 8. október
sl. Útförin fer fram frá Hraungerðiskirkju laugar-
daginn 20. október kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Guðrún Hjörleifsdóttir,
Helgi Sigurðsson, Hafdís Örvar,
Hjördís Inga Sigurðardóttir, Guðjón Guðvarðarson,
Sigrún Sigurðardóttir, Jónas Haraldsson,
Guðmundur Valur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
dóttir, systir, tengdadóttir og mágkona,
ÞURÍÐUR LINDA ALFREÐSDÓTTIR,
Hjöllum 7,
Patreksfirði,
sem lést sunnudaginn 7. október, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
18. október kl. 15.00.
Ragnar Fjeldsted,
Stella Björk Fjeldsted, Elmar Már Einarsson,
Kristinn Fjeldsted,
Alfreð Már Fjeldsted,
Rakel G. Magnúsdóttir,
Kristinn Fjeldsted,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁSMUNDUR BJÖRNSSON,
Vallargötu 7,
Sandgerði,
sem lést miðvikudaginn 10. október, verður
jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði
föstudaginn 19. október kl. 15.00.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Jón Ásmundsson, Helga Karlsdóttir,
Kristín Ásmundsdóttir, Jón Árni Ólafsson,
Ragnheiður E. Ásmundsdóttir, Magnús Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.